Morgunblaðið - 23.11.2018, Qupperneq 76
ingar sínar og skoðanir. Hann hafi
breyst með aldrinum, líkt og sam-
félagið. „Ég myndi ekki gefa „Elsk-
um þessar mellur“ út núna árið 2018.
Margt hefur breyst og textarnir
líka,“ segir hann.
Bardagalist og gort
– Þetta eru mjög opinskáir textar
hjá þér í samanburði við texta
margra kollega þinna …
„Já, margir hverjir en þetta er að
breytast, fólk er orðið opnara fyrir
því að vera berskjaldað. Ágúst Bent
sagði einhvern tíma við mig að rapp
væri bardagalist. Rapp er og hefur
alltaf verið dálítil keppni, líkt og þeg-
ar menn voru að kveðast á og gorta.
Það hefur alltaf verið mikið um gort í
rappi og þessi plata er ekkert laus við
það. Það er líka partur af mér, mér
finnst gaman að fara í flott föt, taka
einn snúning og sýna öllum hvað ég
er flottur þó ég sé líka á rólegu nót-
unum.“
Rappara er siður að fá til sín góða
gesti við plötugerðina en Gauti segir
óvenjulítinn gestagang á Fimm í
samanburði við fyrri plötur, gesta-
söngvarar séu færri en vanalega.
Hins vegar hafi hann fengið til sín
nokkra hljóðfæraleikara, m.a. Magn-
ús Jóhann Ragnarsson hljómborðs-
leikara sem komi mikið við sögu.
„Síðan er ég, Emmsjé Gauti, bara
fronturinn á batteríi sem er í raun og
veru hljómsveit,“ útskýrir Gauti.
Platan er mikið samvinnuverkefni
og komu margir að henni, m.a. Redd-
Light framleiðendatvíeykið og Björn
Valur Pálsson sem er jafnframt
plötusnúður Gauta á tónleikum. En
hvernig hefur tónlistin þróast hjá
Gauta frá síðustu plötu, er mikill
munur á plötunum tveimur?
„Já, það er mikill munur og þá sér-
staklega þegar maður heyrir hvað
fólki finnst. Vagg&velta er alltaf
flokkuð sem partíplata af því á henni
eru lög eins og „Reykjavík“, „Djam-
mæli“ og „Strákarnir“. Hún er í æst-
ari kantinum þó það séu líka róleg
lög á henni. Svo gaf ég út Sautjánda
nóvember sem var meira partí held-
ur en hin og átti í raun alltaf að vera
„rest of“ plata, lög sem ég tímdi ekki
alveg að henda en vildi ekki heldur
setja á hina plötuna. En svo varð hún
eiginlega jafnvinsæl og Vagg&velta
og stórir hittarar á henni,“ segir
Gauti. „Ég þurfti smátíma til að
skrifa niður hluti sem voru ekki á
hinum plötunum, fara upp í stúdíó og
skrifa niður það sem ég var að hugsa
og þurfti að afgreiða áður en ég gæti
haldið áfram. Stefnan var ekki tekin
á alltof rólega plötu en hún er þó í ró-
legri kantinum. Þetta er plata sem ég
þurfti að koma frá mér.“
– Hlustarðu mikið á erlenda rapp-
ara og sækir innblástur til þeirra?
„Já, já, algjörlega en ég held að ég
hafi sótt meira í R&B-senuna hvað
þessa plötu varðar. Það er enginn að
finna upp hjólið í þessu en maður
reynir að gera sitt besta og koma
með sína nálgun. En vissulega er
maður undir miklum áhrifum og
meira frá amerísku senunni en öðr-
um.“
Vel uppalinn
– Ég er með spurningu handa þér
frá vini mínum og hún er svohljóð-
andi: Af hverju ertu svona æðisleg-
ur?
„Já, hann spyr að því? Ég er bara
svo vel uppalinn!“ svara Gauti.
– Það er lykilatriði?
„Það er lykilatriði að ala fólk vel
upp svo það verði ekki skíthælar.“
– Margir rapparar eru nú engir
tengdamömmudraumar?
„Ég veit ekki hvort ég var „ideal“
fyrir tengdaforeldra þegar ég var tví-
tugur en í dag ber ég þessa kórónu
með brjóstkassann þaninn,“ svarar
Gauti hinn hressasti.
Morgunblaðið/Hari
Frumsýningarteiti Emmsjé Gauti bakaði vöfflur og frumsýndi myndband við lagið „Mér líður vel“ í Borgum, félagsmiðstöð aldraðra, fyrir sléttri viku.
Opinn „Ég byrja plötuna á því að opna mig alveg og þá líka til að réttlæta
allt áleggið á plötunni,“ segir Gauti, einn vinsælasti rappari landsins.
„Plata sem ég þurfti að koma frá mér“
Emmsjé Gauti er einlægur á fimmtu breiðskífu sinni, Fimm „Margt hefur breyst og textarnir
líka,“ segir Gauti og að mikilvægt sé að líta í eigin barm og ritskoða tilfinningar sínar og skoðanir
VIÐTAL
Helgi Snær Sigurðsson
helgisnaer@mbl.is
Emmsjé Gauti sendi fyrir skömmu
frá sér fimmtu breiðskífuna, Fimm.
Blaðamaður ræddi síðast við Gauta
fyrir fimm árum, þegar hann gaf út
plötuna Þey, og minnist þess að rapp-
arinn hafi þá, 24 ára að aldri, haft
áhyggjur af aldrinum. Gauti hlær
innilega að þessari upprifjun. „Ég er
búinn að vera með aldurskomplexa
frá því ég var tólf ára!“ segir hann.
En hefur hann ekki bara yngst á
þessum fimm árum? „Þetta kemur í
bylgjum og ég er alla vega sáttari
núna en ég var árið 2013, þá var ég
týndari í sálinni,“ svarar hann kím-
inn.
„Mér líður vel“ það fyrsta
Gauti hefur verið nokkuð lengi að í
hip hop-inu, gaf út sína fyrstu plötu,
Bara ég, fyrir sjö árum en árið 2016
uxu vinsældir hans hressilega þegar
hann gaf út tvær plötur, Vagg&velta
og Sautjándi nóvember. „Fyrstu
sóló-hittararnir fóru þá að koma inn,“
segir Gauti en af þeim smellum má
nefna „Reykjavík“, „Djammæli“ og
„Strákarnir“.
Gauti er að vanda einlægur og
opinskár í textum sínum og á Fimm
rappar m.a. um hvað honum líði vel, í
laginu „Mér líður vel“ sem hann segir
hafa verið fyrsta lagið sem hann
samdi fyrir plötuna. „Það er einmitt
að koma út vídeó við það,“ segir Gauti
en myndbandið má nú sjá á YouTube.
– Svo er annað lag sem heitir
„Hræddur“. Þú ert að kafa í tilfinn-
ingar þínar og hugrenningar?
„Já. Lögin „Hræddur“ og „Hætt-
ur“ eru samlokubrauðið á plötunni.
Þetta er í raun og veru sama lagið,
skipt í tvo hluta. Ég byrja plötuna á
því að opna mig alveg og þá líka til að
réttlæta allt áleggið á plötunni. Ég
opna og loka henni á sömu nótunum,“
útskýrir Gauti en platan hefst með
laginu „Hræddur“ og lýkur með
„Hættur“.
Gauti segir mikilvægt að líta í eigin
barm og ritskoða sjálfan sig, tilfinn-
76 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 23. NÓVEMBER 2018
SVARTUR
FÖSTUDAGUR
25%
Af öllu í dag!*
*tilboð gildir ekki á lifandi dýrum S;537-5000