Morgunblaðið - 23.11.2018, Side 86
86 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 23. NÓVEMBER 2018
Bjarndýr í Grímsey
Miðvikudaginn 22. janúar 1969
urðu Grímseyingar varir við bjarn-
dýr á eynni. Það var 7 ára drengur,
Guðlaugur Óli Þorláksson, sem
varð fyrstur var við dýrið þar sem
hann var að reka kindur í haga.
Hélt hann fyrst að þetta væri hest-
ur en komst svo fljótlega að því að
svo var ekki.
Hann náði að
hlaupa heim og
gera viðvart.
Vopnuðust eyjar-
skeggjar í skyndi
þeim rifflum og
haglabyssum
sem til voru og
tókst að leggja
dýrið að velli eft-
ir nokkra baráttu. Dýrið var á
stærð við meðalkú og talið frekar
ungt. Líklegast þótti að það hefði
komið á land með ísnum sem rak að
landi vikunni áður og að það hafi
því dvalist á eyjunni í nokkra daga.
Þessi atburður er vel skrásettur í
öllum helstu prentmiðlum frá þess-
um tíma og þótti mönnum þakkar-
vert lán og hrein guðs mildi að dýr-
ið skyldi ekki hafa grandað fólki
þar sem ljóst var að það hafði verið
í eyjunni í nokkra daga. Var fólk
beðið um að vera vel á verði þar
sem hvítabirnir gætu gengið á land
víðar en í Grímsey.
Faðir hans, Þorlákur Sigurðsson
útvegsbóndi, var heima við fjárhús
að vinna. Það var ekki almennilega
orðið bjart af degi og hafði Þorlák-
ur einnig séð skepnuna en hélt eins
og sonur hans í fyrstu að þetta væri
hvítur hestur sem var í eyjunni þó
svo honum hafi fundist eitthvað af-
brigðilegt við hann. Þegar dýrið
rölti af stað sá hann að limaburður-
inn var allt öðruvísi en hjá hesti en
var samt ekki alveg fyllilega viss
hvers kyns var fyrr en strákurinn
kom hlaupandi og sagði að það væri
bjarndýr þarna í brekkunum.
Strákurinn sagði að dýrið hefði
hvæst á sig og fjárhópinn hvað eftir
annað og sveigðu ærnar þá fyrir
það. Eftir það fór dýrið út brekk-
una. Þorlákur hafði verið að lesa í
nýútkominni bók um hafísinn fyrir
börnin þar sem myndir af bjarndýr-
um voru mikið skoðaðar þannig að
Guðlaugur Óli þekkti strax hvaða
dýr var um að ræða. Þeir feðgar
fóru strax heim þar sem þeir
brugðu upp kíki á dýrið sem var
þegar minnst var um 200-300 metra
frá fjárhúsunum og áður ekki nema
um 20-30 metra frá drengnum. Þeir
sáu hvernig dýrið hélt út brekkuna
þar sem það gróf sig á kaf í litla
fönn og hvarf þeim sjónum.
Eyjarskeggjar vopnast
Þorlákur hafði nú samband við
karlmennina á staðnum, sem var
flesta að finna við vinnu á sama
stað, og fóru allir í að tína saman
byssur. Fóru þeir svo á móti vind-
inum í áttina að bælinu, vopnaðir
einni gamalli selabyssu númer átta,
fuglabyssum og tveimur stórum
kúlurifflum sem Þorlákur segir að
þeir hafi treyst mest á. „Fórum við
upp undir bælið og kom bangsi með
blátrýnið þá upp úr þegar hann
varð var við skarkið fyrir neðan. Í
öllum æsingnum gleymdist nú að
taka öryggið af sprengikúluriffl-
inum, þegar skjóta átti, en bangsi
lét sig síga niður í bælið aftur áður
en skotið yrði á hann. Svo gægðist
hann upp aftur og það var skotið á
hann og lenti kúlan fremst í trant-
inn á honum. Stökk hann þá upp úr
bælinu og upp á skaflinn og fór síð-
an frá okkur út fönnina á skokki. Þá
létu nokkrir skotin dynja á honum
og er ég hræddur um að góðum
veiðimönnum hefði nú ekki fundist
það veiðimannslega að farið. Það
voru að vísu „extra long“ skot í
rifflunum en þau hafa víst gagnað
lítið. Síðan eltum við hann eina
3-400 metra út Hæðirnar þangað til
hann var kominn að flugvallargirð-
ingunni og komst einn skotmann-
anna þar fyrir hann og síðan fleiri.
Hann hvæsti á móti mönnunum
þegar honum fannst að sér þrengt
enda orðinn særður. Þegar færið
var orðið eitthvað í kringum 10
metrar skutu menn í hann af hagla-
byssum með selaskotum. Við vorum
nú allir orðnir lafmóðir af eftirför-
inni en bangsi hafði stefnt í átt að
Básum sem er nyrsti bærinn hér.“
Bjarndýrið féll við selaskotin á
6-8 m færi. Þorlákur segist ekki
getað eignað neinum sérstökum að
hafa fellt björninn. Í viðtali við
Morgunblaðið sama dag segir hann
að þetta hafi sennilega verið ungt
dýr, það var ekki mikið gulur blær
á belgnum á því. Björninn virtist í
góðum holdum. Hann var eins og
stór nautgripur en vaxtarlagið
öðruvísi. Við mælingar reyndist
dýrið 2,5 m langt og um 370 kg á
þyngd sem er geysistærð á bjarn-
dýri. Þetta var karldýr, a.m.k. 12
ára gamalt. Hann hefur verið
hungraður því í maga bjarnarins
var aðeins sina. Haft var eftir Al-
freð Jónssyni, oddvita í Grímsey, að
þegar björninn féll hafi hann ekki
haft minna en 10 kíló af haglaskot-
um númer tíu í skrokknum.
Tilboð í skrokkinn
Á meðan á atlögunni stóð fylgd-
ust konur og börn með heiman frá
sér og mun mörgum ekki hafa verið
rótt innan brjósts. Faðir Óla sagði
að strákurinn hefði verið lystarlítill
fram eftir degi vegna taugaóstyrks
en hann hefði róast með kvöldinu.
Grímseyingar blóðguðu bjarn-
dýrið strax eftir að þar var lagt að
velli en sáu eftir á að það hefðu ver-
ið mistök. Skrokknum var svo kom-
ið fyrir í frystihúsinu þar sem hann
var geymdur þar til ákvörðun yrði
tekin um afdrif hans.
Tilboðin í skrokkinn létu ekki á
sér standa og samdægurs voru
komin þrjú tilboð. Eitt frá Húsavík,
annað frá Selfossi og það þriðja frá
Náttúrufræðistofnun.
Bæjarstjórinn á Húsavík skákaði
hins vegar keppinautum sínum,
sem buðu í dýrið, þar sem hann
hratt strax út báti og sigldi til
Grímseyjar þar sem hann reiddi
fram 30 þúsund krónur. Um mið-
nætti hafði svo safnast saman múg-
ur og margmenni á bryggjunni á
Húsavík þegar bæjarstjórinn sigldi
inn í höfnina með björninn. Allir
vildu sjá þessa skepnu sem hafði
fyrr um daginn valdið þessum usla
úti í Grímsey.
Björninn var stoppaður upp í há-
skólanum í Árósum og er nú til sýn-
is í Safnahúsinu á Húsavík.
Óttinn kom eftir á
Guðlaugur Óli býr nú með fjöl-
skyldu sinni á Akureyri. Þó svo
langt sé liðið frá þessum atburði
segir hann að minningin sé skýr
enn í dag og risti í sálina. Þegar
þetta gerðist var mjög lítill snjór í
eynni og enginn hafís. Sá möguleiki
að hvítabjörn væri þar á ferli var
því fjarlægur. Guðlaugur Óli segir
að þennan morgun hafi hann séð að
búið var að grafa snjóhús uppi í
brekkunum. Hann varð forvitinn
því það var ekki algengt að krakkar
gerðu þar snjóhús og ætlaði hann
því að skoða það betur eftir að hann
væri búinn að reka kindurnar upp á
eyna. Sem betur fer, segir hann,
var hann ekki kominn nema stutt
upp í brekkuna þegar hann mætti
bjarndýrinu. Hann segir að mesti
óttinn hafi komið eftir á, hvað ef
hann hefði verið fyrr á ferðinni og í
staðinn fyrir að mæta birninum á
leiðinni upp eftir með kindurnar
hefði hann mætt birninum á leiðinni
til baka og ekki komist heim. Aug-
ljóst er að þetta hefi getað farið
verr og segir Guðlaugur Óli að það
hafi tekið langan tíma að vinna úr
óttanum.
Margt breyttist í eyjunni við
þessa heimsókn. Krakkarnir, sem
voru vanir að renna sér á sleðum og
skíðum og líka að stökkva í snjón-
um sem safnaðist í brekkurnar
vestan í eyjunni og niður í fjöru,
hættu því og lagðist sú iðja nánast
af í töluvert langan tíma eftir að
bjarndýrið fannst, eins það að vera
á skautum á tjörnunum í myrkrinu
á kvöldin. Skammdegismyrkrið í
Grímsey er frekar langt og ekkert
var um götulýsingar á þessum tíma
og frekar langt á milli bæja. Guð-
laugur Óli segir að eftir að hann
rakst á bjarndýrið hafi hann farið
að finna fyrir myrkfælni þegar
hann var sendur á milli bæja.
„Manni fannst þá oft að eitthvað
væri á eftir manni eða að maður
heyrði einhver hljóð, yfirleitt var þá
tekinn spretturinn. Annað sem
breyttist var að foreldrar leyfðu
börnum sínum ekki að vera eins
lengi út á kvöldin og áður og allir
áttu að fara varlega. Enn eimir eftir
af þessum ótta hjá sumu fullorðna
fólkinu,,“ segir Guðlaugur Óli, „og
eru t.d. börnin, sem lengst fara í
skólann, oft keyrð í myrkrinu.“
Hvítabirnir
á Íslandi
Þórir heitinn Haraldsson, lengi líffræðikennari
við Menntaskólann á Akureyri, var mikill áhuga-
maður um hvítabjarnakomur til Íslands og safn-
aði að sér heimildum þar að lútandi. Dóttir hans,
Rósa Rut, vann síðan úr þessum heimildum að
honum látnum og útkoman er bókin Hvítabirnir á
Íslandi sem Bókaútgáfan Hólar gefur út.
Ljósmynd/Erna Ýr Guðjónsdóttir
Hvítabjarnabók Rósa Rut Þórisdóttir tók við heimildasafni föður síns, Þóris Haraldssonar, og kom á bók.
Óvelkominn Hvítabjörninn í Grímsey lagður að velli. Myndina tók Stein-
grímur Gunnarsson, birt með góðfúslegu leyfi Guðlaugs Óla Þorlákssonar.
Dásamlegir dropar
í sturtunni þinni
www.sturta.is | Reykjavíkurvegi 64, Hafnarfirði | s 856 5566