Morgunblaðið - 23.11.2018, Side 90
90 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 23. NÓVEMBER 2018
Nýlega lauk ríkissjón-varpið við að sýna 10þátta röð um sögu Dan-merkur. Þetta eru vand-
aðir þættir og ekkert til sparað.
Þeir minna á að Danmörk er skagi á
meginlandi Evrópu. Öldum saman
var tekist á um mörkin milli skag-
ans og meginlandsins. Þættirnir
snúast að verulegu leyti um þessa
togstreitu og blóðug átök vegna
hennar. Norður-Atlantshafseyj-
arnar sem skapa skaganum dýpt
voru stundum nefndar þegar sýnd
voru landakort. Aldrei var athygli
beint að hjálandinu Íslandi. Saga
þess stóð utan við meginstrauma
þessarar dönsku
sögu.
Ríkisoddvitar
um 70 landa
komu saman í
París 11. nóv-
ember til að
minnast 100 ára
afmælis vopna-
hlésdagsins. Í
hátíðarræðu
sagði Emmanuel Macron Frakk-
landsforseti þjóðernishyggju and-
stæðu föðurlandsástar.
Orð forsetans taka mið af reynslu
þjóða heims á 20. öldinni og blóð-
ugum átökum hennar. Hundrað ára
fullveldi Íslands má hins vegar
rekja til þjóðernishyggju sem mót-
aðist af rómantík 19. aldar og varð
til að föðurlandsást fékk útrás í ljóð-
um og annarri menningarsköpun,
aflvaka í sjálfstæðisbaráttunni.
Í nýrri bók Gunnars Þórs Bjarna-
sonar sagnfræðings, Hinir útvöldu,
sem segir söguna af því þegar Ís-
land varð sjálfstætt ríki árið 1918,
eins og það er orðað í undirtitli, er á
bls. 113 bent á að rök Íslendinga í
fullveldisviðræðunum við Dani voru
ekki aðeins reist á því að Ísland
væri í sambandi við Danmörku um
konung einan heldur hefði íslenska
þjóðin ein germanskra þjóða varð-
veitt hina fornu tungu „er um öll
Norðurlönd gekk fyrir 900-1000 ár-
um svo lítið breytta að hver íslensk-
ur maður skilur enn í dag og getur
hagnýtt sér til hlítar bókmennta-
fjársjóði hinnar fornu menningar
vorrar og annarra Norðurlanda-
þjóða. Með tungunni hefur sérstakt
þjóðerni, sérstakir siðir og sérstök
menning varðveist. … Þessi atriði,
sérstök tunga og sérstök menning,
teljum vér skapa oss sögulegan og
eðlilegan rétt til fullkomins sjálf-
stæðis“, segir í greinargerð fjór-
menninganna sem ræddu við full-
trúa danskra stjórnvalda.
„Verður þetta betur orðað?“ spyr
Gunnar Þór réttilega um þennan
kafla úr greinargerðinni. Með vísan
til ræðu Frakklandsforseta má
einnig spyrja: Er við hæfi að beita
slíkum rökum? Leiðir krafan um að
þjóðernishyggja hopi fyrir föður-
landsást til þess að rök af þessu tagi
í samskiptum þjóða verði að víkja? Í
samtímanum er hvað sem öðru líður
hollt að minnast þess hve sagan,
tungan og menningin eiga ríkan
þátt í að Íslendingar eru fullvalda
þjóð.
Einmitt af þeim sökum var rétt
til fundið af alþingi að fela full-
veldisnefndinni undir formennsku
Einars K. Guðfinnssonar, fyrrv.
þingforseta og ráðherra, að sjá til
þess að verk á borð við það sem
Gunnar Þór hefur unnið yrði gefið
út í tilefni 100 ára afmælis fullveld-
isins.
Í útgáfuhófi hvatti Gunnar Þór
menn til að lesa bókina til að skilja
heiti hennar. Farið skal að þessum
óskum, hins vegar kemur á óvart að
í undirtitli skuli talað um „sjálf-
stætt“ en ekki „fullvalda“ ríki. Segir
þó í bókinni (bls. 113) að íslenska
viðræðunefndin hafi krafist að nýir
samningar um samband landanna
verði einungis „á þeim einum
grundvelli gerðir að Ísland verði
viðurkennt fullvalda ríki“.
Óljóst er hvers vegna Kristján X.
Danakonungur ákvað í nóvember
1917 að bregðast á þann hátt við
ályktun alþingis frá ágúst 1917 um
fullgildan siglingafána að bjóða við-
ræður um samband landanna í
heild. Íslendingar vildu samþykki
konungs við siglingafána. Hann
bauð þess í stað viðræðurnar sem
leiddu til fullveldis.
Gunnar Þór bendir ekki á neina
sérgreinda málefnalega ástæðu fyr-
ir viðræðunum. „Þegar Íslandsmál
voru rædd í Danmörku síðsumars
1918 og um haustið var Suður-
Jótland oft nefnt í sömu andrá og
fullyrt að samningarnir við Íslend-
inga myndu auðvelda Dönum að fá
stórveldin til að viðurkenna sjálfs-
ákvörðunarrétt Suður-Jóta,“ segir á
bls. 78.
Þessi rök voru kynnt á danska
þinginu eftir að samið var við Ís-
lendinga um fullveldi en réð ekki
gerð samningsins. Gunnar Þór telur
að „ein meginástæða“ þess að Danir
vildu semja við Íslendinga sumarið
1918 hafi verið ótti þeirra við að
annars kæmi til aðskilnaðar land-
anna og Íslendingar færu undir
verndarvæng Breta eftir reynsluna
í stríðinu.
Bretar höfðu þó ekki þá frekar en
áður neinn áhuga á að ná undirtök-
unum á Íslandi. Þeir vissu að án
þeirra höfðu þeir Norður-Atlants-
hafsvæðið í hendi sér.
Samhliða því sem Gunnar Þór
reifar álitaefni tengd stjórnmálum
dregur hann upp glögga aldarfars-
lýsingu á Íslandi á árinu 1918. Hann
siglir með skipinu Sterling í kynnis-
ferð um hafnir landsins og staldrar
sérstaklega við í Reykjavík. Án full-
veldisviðburðarins 1. desember væri
árið 1918 líklega eitt dapurlegasta
ár 20. aldarinnar vegna skorts í lok
styrjaldarinnar, mannfalls í
spænsku veikinni og Kötlugoss.
Efnistökin eru fagmannleg og
textinn skýr, áreitnislaus og auð-
veldur aflestrar. Í bókinni er ekki
að finna sömu spennu og í bók
Gunnar Þórs frá árinu 2012, Upp
með fánann um uppkastið 1908.
Ástæðan er sú að allan tímann frá
því að Kristján X. og Jón Magnús-
son forsætisráðherra hittust 22.
nóvember 1917 liggur í loftinu að
samningar takist milli íslenskra og
danskra stjórnvalda enda er það
konungsvilji.
Eftir að samningurinn lá fyrir 18.
júlí 1918 var brautin næsta greiðfær
á þjóðþingum landanna. Umræður
tóku lengri tíma í Danmörku en hér.
Ætlunin var að hespa málið af á al-
þingi með hraði og næsta umræðu-
lítið en tveir þingmenn, Benedikt
Sveinsson í neðri deild og Magnús
Torfason í efri deild, komu í veg fyr-
ir það. Þeir töldu of langt gengið til
móts við Dani.
Sviptingar voru mestar milli
Benedikts og Bjarna Jónssonar frá
Vogi. Í málinu rofnaði áralöng sam-
staða þeirra í sjálfstæðisbaráttunni.
Jón Magnússon sýndi þau pólitísku
klókindi að skipa Bjarna frá Vogi í
viðræðunefndina.
Dræm þátttaka var í þjóðar-
atkvæðagreiðslunni um sambands-
lögin en yfirgnæfandi meirihluti
studdi þau.
Ítarlegar tilvísana- og heimilda-
skrár eru í bókinni, einnig skrár yfir
myndir, nöfn, staði og efnisorð. Er
vel til þessa vandað þótt við upp-
flettingu á efnisorði hafi verið lent á
textalausri myndasíðu.
Margrét Tryggvadóttir er
myndaritstjóri. Hún velur mikinn
fjölda líflegra mynda í bókina auk
þess sem fróðleik er að finna í text-
um sem þeim fylgja.
Frægasta myndin er eftir Magn-
ús Ólafsson frá athöfninni við
Stjórnarráðshúsið 1. desember
1918. Prýðir hún opnu fremst í bók-
inni. Þegar upplýst er að þetta hafi
verið sólbjartur, kyrr vetrardagur,
eins og raunar má sjá á fánanum, er
ekki lengur eins dimmt yfir mynd-
inni og sorgarklæddur hópurinn
framan við húsið gefur til kynna.
Öllu frjálslegra er yfir samtíma-
mynd frá sama stað aftast í bókinni.
Í myndatexta á bls. 42 segir að
Kristján X. hafi orðið konungur
1906 en það varð hann ekki fyrr en
1912 eins og segir í meginmáli.
Til þess að árétta gildi skjaldar-
merkis Íslands er birt mynd á bls.
326 sem tekin er við sendiráð Ís-
lands í Washington snemma á
stríðsárunum síðari. Thor Thors
varð sendiherra í Bandaríkjunum
1941 og er hann einn nafngreindur
á myndinni af átta manns en í þeim
hópi er Ágústa, kona Thors, Marta
(Ólafsdóttir) Thors, hjónin Gígja og
Henrik Sv. Björnsson auk þriggja
annarra. Vegna þess hve textar með
myndum eru vinsælt lesefni skiptir
alúð við þá máli.
Nú á tímum getum við ekki sett
okkur í spor þeirra sem lifðu þátta-
skilin í sögu þjóðarinnar 1. desem-
ber 1918. Sigurður Nordal prófess-
or sagði: „Mér hefur jafnan fundist
þessi örskotsstund hafa breytt því
meir að vera Íslendingur en gerst
hefur um mína daga.“ Kristján Al-
bertsson rithöfundur sagði: „Aldrei
hefur þjóðlíf vort haft meiri liðs-
drátt en nú gegn deyfðinni og logn-
mollunni sem löngum ætla að drepa
alla sál hins opinberra lífs vorrar fá-
mennu þjóðar.“ Þennan neista ber
að varðveita.
Örlagaárið 1918 og fullveldið
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Neisti Í bók Gunnars Þórs Bjarnasonar, Hinir útvöldu, segir hann söguna af því þegar Ísland varð sjálfstætt ríki.
Sagnfræði
Hinir útvöldu bbbbn
Eftir Gunnar Þór Bjarnason.
Sögufélag, 2018. Innb., 403 bls.
BJÖRN
BJARNASON
BÆKUR
BLACKFRIDAY
25%
AFÖLLU
ALLAHELGINA
23.-25.NÓV.