Morgunblaðið - 23.11.2018, Side 92

Morgunblaðið - 23.11.2018, Side 92
92 MENNING MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 23. NÓVEMBER 2018 ALMAR BAKARI BAKARÍ / KAFFIHÚS / SALATBAR Sunnumörk 2, Hveragerði, sími 483 1919, Almar bakari Opið mánudaga til laugardaga kl. 7-18, sunnudaga kl. 8-18 SÉRBAKAÐfyrir þig SALATBAR ferskur allan daginn Árni Matthíasson arnim@mbl.is Nornasveimur er þriðja bókin í bóka- röð Emils Hjörvars Petersens um mæðgurnar Bergrúnu Búadóttur og Brá Bjarkadóttur og glímu þeirra við yfirnáttúrlegar ógnir og misindis- menn í mannheimum. Bókin segir frá því er norn er myrt í Trékyllisvík á Ströndum á Jónsmessunótt og þær mæðgur eru fengnar til að leysa mál- ið með yfirnáttúrudeild rannsóknar- lögreglunnar. Skrúfað upp í hryllingnum – Það gengur ýmislegt á í bókum þínum, en þú hefur ákveðið að skrúfa upp í hryllingnum í Nornasveim. „Hvað hryllinginn varðar þá er það aðallega vegna þess að mig langaði að vinna meira með hrollvekjuþáttinn. Bókin gerist yfir íslenska hásumarið, á Jónsmessu, og mig langaði að reyna að gera íslenska hásumarið hryllilegt af því að það er bjart allan sólarhring- inn. Svo var það líka vegna þess að saga mæðgnanna er að verða dekkri, sér- staklega Brár, af því að hún er að verða stærri og stærri karakter. Hún hefur ákveðna sögu þar sem ég hef ákveðið lokatakmark í huga. Í Norna- sveimi þarf hún að takast á við það að hún heldur að hún sé norn og nornir eru flestar siðblindar.“ – Það er sprettur í bókinni þar sem Brá er nánast eins og hún sé siðblind. „Já, hún verður óáreiðanleg sem sögumaður og lesandinn fær örugg- lega smá sjokk að sjá hvað hún gerir. Þetta er eitthvað sem hún þarf að takast á við í komandi bókum. Sam- band mæðgnanna er þannig að þær togast til og frá hvor annarri – á með- an önnur vill bæta samskiptin þá bregst hin. Það er Brá sem bregst í þessari bók.“ Hver bók er sjálfstætt verk – Sérðu fyrir þér að næstu bækur verði svona dökkar líka? „Nei, ekki endilega, Ég vil að hver bók hafi ákveðin þemu og hafi ákveð- in einkenni. Ég lít á hverja bók sem sjálfstætt verk og reyni að ganga að hverri bók með nýja sýn og nýja nálg- un. Samt þó að frásagnarstíllinn sé svipaður. Það á að vera hægt að taka upp eina bók og lesa hana án tillits til þess hvort þú hafir lesið aðrar bækur í röðinni. Ein helsta áskorun fantasíuhöf- unda er að koma upplýsingum til skila í sögunni og ég hef lagt mig í líma við að koma því á framfæri hvað hulan er og segja baksögu mæðgn- anna en gert það á mjög hnitmiðaðan hátt í takt við söguna. Maður á að geta lesið bækurnar í hvaða röð sem er.“ Hliðstæður íslenskur veruleiki – Þó maður viti á hvaða tíma Víg- hólar og Sólhvörf gerast þá eru þær mjög tímalausar, en Nornasveimur er með meiri skírskotun til nú- tímans, til að mynda atriði sem tengjast fíkniefnum og samfélags- miðlum. „Bækurnar gerast í hliðstæðum íslenskum veruleika, þetta eru glæpafantasíur/borgarfantasíur fyr- ir eldri lesendur sem gerast í ís- lenskum veruleika. Brá er tuttugu ára og er náttúrlega á samfélags- miðlum og spilar tölvuleiki og það kemur inn í söguna og í gegnum per- sónu Brár. Hvað fíkniefnin varðar þá er þetta glæpasögubókaröð og það getur ekki alltaf verið bara morð. Það voru morð í Víghólum, en í Sólhvörfum var líka barnarán. Í Nornasveimi er morð, bókin byrjar með morðrannsókn – norn er myrt í afskekktu þorpi í Tré- kyllisvík og það liggja allir undir grun, en svo kemur í ljós að það er meira sem tengist fíkniefnum, en á yfirnáttúrlegan hátt. Ég er að blanda saman yfirnáttúru og fíkniefnaheim- inum. Ég leik mér með stef og minni úr norrænu glæpasögunni og saka- málasögum yfirleitt.“ Emil býr erlendis, en var staddur hér á landi til að kynna bókina, en líka til að rannsaka sögusvið næstu bókar. „Ég bý í Lundi í Svíþjóð og les mér til eins og ég get og þetta var auðveldara til dæmis í Víghólum, þar var sögusviðið aðallega þjóðvegurinn. Í fyrra varð ég að fara og skoða sögu- sviðið, var á jeppa að vetri til og það var snjór. Ég er lofthræddur að eðl- isfari en komst yfir lofthræðsluna af eldmóðnum yfir því að vera þarna norður á Ströndum. Núna var ég á Vesturlandi, á Fellsströnd, að rann- saka fyrir næstu bók.“ Glímt við yfirnáttúrlegar ógnir  Í bókaröð Emils Hjörvars Petersens glíma mæðgur við óhugnanlega glæpi  Þriðja bókin komin Morgunblaðið/Árni Sæberg Yfirnáttúra Emil Hjörvar Petersen skrifar glæpafantasíur/borgarfantasíur fyrir eldri lesendur sem gerast í hliðstæðum íslenskum veruleika.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.