Morgunblaðið - 06.12.2018, Síða 18

Morgunblaðið - 06.12.2018, Síða 18
18 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 6. DESEMBER 2018 www.gjofsemgefur.is P IP A R \T B W A • S ÍA • 102985 Fallega jólaskeiðin frá ERNU Bakhlið Hönnuður Ragnhildur Sif Reynisdóttir Verð kr. 21.500 Silfurmunir og skartgripir síðan 1924 ERNA Skipholti 3 – Sími 552 0775 – erna.is GULL- OG SILFURSMIÐJA BAKSVIÐ Baldur Arnarson baldura@mbl.is Samtök iðnaðarins (SI) áætla að þjóðhagslegur kostnaður umferðar- tafa á höfuðborgarsvæðinu í fyrra hafi verið yfir 15 milljarðar króna. Þar af hafi atvinnulífið tapað um sex milljörðum vegna tapaðs vinnutíma og almenningur um níu millj- örðum vegna tap- aðs frítíma. Þá áætla samtökin að 19 þúsund klukkustundum hafi verið sóað í umferðartafir á höfuðborgar- svæðinu á hverj- um virkum degi árið 2017. Það gerir um sex milljónir klst. á ári miðað við algengar forsendur um meðalfjölda farþega í bíl. Yfirfært á hvern borgarbúa jafngildir það því að þrír dagar hafi farið í umferðartafir á árinu. Greining samtakanna er gerð í tilefni af mótun samgönguáætlunar fyrir höfuðborgarsvæðið árin 2019- 2033. Hluti af samkeppnishæfni Sigurður Hannesson, fram- kvæmdastjóri SI, segir það mikið hagsmunamál fyrir Ísland að tafir í umferð séu sem minnstar. „Samtök iðnaðarins leggja áherslu á bætta samkeppnishæfni Íslands af því að samkeppnishæfni er eins og heimsmeistaramót í lífsgæðum. Því betri sem samkeppnishæfnin er, þeim mun meiri verðmæti verða til og lífsgæðin þar með aukast. Fjórar meginstoðirnar eru menntun, inn- viðir, nýsköpun og starfsumhverfi. Innviðir skipta miklu máli í sam- keppnishæfni. Þeir þurfa enda að vera fyrir hendi til að styðja við aðra verðmætasköpun. Til dæmis þurfum við flugvelli fyrir ferðamennina og vegi til að flytja vörur og fólk milli staða,“ segir Sigurður en stuðst er við alþjóðleg reiknilíkön við áætlað tap þjóðfélagsins af umferðartöfum. Sigurður segir samtökin hafa tekið þetta til athugunar í tengslum við samgönguáætlunina og fleiri áform í vegamálum á höfuðborgarsvæðinu á næstu árum. „Staðreyndin er sú að ferðatími á höfuðborgarsvæðinu hefur aukist umtalsvert. Til dæmis hefur ferða- tími úr úthverfum í miðborg Reykja- víkur aukist um hér um bil 50% frá árinu 2007. Þannig að við eyðum miklu meiri tíma í umferðinni. Við fórum því að velta fyrir okkur hvað tafirnar kosta samfélagið,“ segir Sig- urður. Á ekki að vera svona á Íslandi Spurður hvort þrír dagar í tafir á ári séu ef til vill lítið í alþjóðlegu sam- hengi segir Sigurður að staðan þurfi ekki að vera svona á Íslandi. Hann rifjar upp að vegafram- kvæmdir á höfuðborgarsvæðinu hafi verið í frosti frá árinu 2012. Mark- miðið hafi verið að tvöfalda hlut Strætó í umferðinni úr 4% í 8% á tímabilinu frá 2012 til 2022. Nú, sjö árum síðar, hafi hlutfallið hins vegar ekki breyst. Þrátt fyrir þetta sé áformað að verja 42 milljörðum til uppbyggingar borgarlínu til ársins 2033, í þremur áföngum. Fjallað er um þau áform í tillögum sem viðræðuhópur ríkis og sveitar- félaga á höfuðborgarsvæðinu skilaði fyrir helgi varðandi uppbyggingu samgangna á svæðinu til ársins 2033. Íbúar sætti sig við tafirnar? „Í fyrsta lagi veltir maður fyrir sér hvort pólitísku skilaboðin í þessu séu þau að tafirnar séu komnar til að vera. Hvort það standi raunverulega ekki til að snúa við taflinu heldur sé þetta eitthvað sem pólitíkin, bæði ríki og sveitarfélög, ætlist til að almenn- ingur og fyrirtæki sætti sig við, með hliðsjón af árangrinum síðustu árin. Í öðru lagi er umhugsunarefni að stór hluti af framlögum til samgöngumála á höfuðborgarsvæðinu mun fara í borgarlínuna. Það fer þá lítið, eða minna, í önnur verkefni. Það má einn- ig velta fyrir sér á hversu traustum grunni kostnaðarmatið fyrir borgar- línu byggist. Nýleg dæmi lofa ekki góðu. Bragginn í Nauthólsvík átti til dæmis að kosta 158 milljónir en kost- aði 415 milljónir,“ segir Sigurður sem telur aðspurður að huga þurfi betur að forgangsröðun verkefna. Til dæmis kosti samtenging um- ferðarljósa lágar fjárhæðir í stóra samhenginu en auki skilvirkni í um- ferðinni til muna. Lausnirnar þurfi ekki að vera dýrar. Umferðartafir kostuðu 15 milljarða  Samtök iðnaðarins hafa áætlað tap þjóðfélagsins af umferðartöfum á höfuðborgarsvæðinu í fyrra  Formaður samtakanna segir að huga þurfi betur að forgangsröðun við fjárfestingu í umferðinni Framlög til samgöngumála á höfuðborgarsvæðinu Samgönguáætlun og tillögur verkefnahóps um breytingar á henni, milljarðar kr. 20 18 16 14 12 10 8 6 4 2 0 130 125 120 115 110 105 100 95 Heimild: SI 2019 til 2023 2024 til 2028 2029 til 2033 2013 2014 2015 2016 2017 Fjöldi slasaðra og umferð á höfuðborgarsvæðinu 1,5 16,3 7,1 5,9 15,4 17,9 9,1 9,9 2,0 Vísitölur árana 2013 til 2017 (2013=100) Fjöldi slasaðra Umferðarmagn Samgönguáætlun Borgarlína / tillaga verkefnahóps Annað í tillögum verkefnahóps Hjóla- og göngu- stígar Þjóðhagslegur kostnaður vegna umferðartafa árið 2017 6 milljarðar króna 9 milljarðar króna Umferðartafir á höfuðborgarsvæðinu Umframkostnaður fyrirtækja, tapaður vinnutími Kostnaður annarra vegfarenda, tapaður frítími Heimild: SI Sigurður Hannesson
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.