Morgunblaðið - 06.12.2018, Blaðsíða 18
18 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 6. DESEMBER 2018
www.gjofsemgefur.is
P
IP
A
R
\T
B
W
A
•
S
ÍA
•
102985
Fallega jólaskeiðin
frá ERNU
Bakhlið
Hönnuður
Ragnhildur Sif Reynisdóttir
Verð kr. 21.500
Silfurmunir og skartgripir síðan 1924
ERNA
Skipholti 3 – Sími 552 0775 – erna.is
GULL- OG SILFURSMIÐJA
BAKSVIÐ
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Samtök iðnaðarins (SI) áætla að
þjóðhagslegur kostnaður umferðar-
tafa á höfuðborgarsvæðinu í fyrra
hafi verið yfir 15 milljarðar króna.
Þar af hafi atvinnulífið tapað um sex
milljörðum vegna
tapaðs vinnutíma
og almenningur
um níu millj-
örðum vegna tap-
aðs frítíma. Þá
áætla samtökin að
19 þúsund
klukkustundum
hafi verið sóað í
umferðartafir á
höfuðborgar-
svæðinu á hverj-
um virkum degi árið 2017. Það gerir
um sex milljónir klst. á ári miðað við
algengar forsendur um meðalfjölda
farþega í bíl. Yfirfært á hvern
borgarbúa jafngildir það því að þrír
dagar hafi farið í umferðartafir á
árinu. Greining samtakanna er gerð í
tilefni af mótun samgönguáætlunar
fyrir höfuðborgarsvæðið árin 2019-
2033.
Hluti af samkeppnishæfni
Sigurður Hannesson, fram-
kvæmdastjóri SI, segir það mikið
hagsmunamál fyrir Ísland að tafir í
umferð séu sem minnstar.
„Samtök iðnaðarins leggja áherslu
á bætta samkeppnishæfni Íslands af
því að samkeppnishæfni er eins og
heimsmeistaramót í lífsgæðum. Því
betri sem samkeppnishæfnin er,
þeim mun meiri verðmæti verða til
og lífsgæðin þar með aukast. Fjórar
meginstoðirnar eru menntun, inn-
viðir, nýsköpun og starfsumhverfi.
Innviðir skipta miklu máli í sam-
keppnishæfni. Þeir þurfa enda að
vera fyrir hendi til að styðja við aðra
verðmætasköpun. Til dæmis þurfum
við flugvelli fyrir ferðamennina og
vegi til að flytja vörur og fólk milli
staða,“ segir Sigurður en stuðst er
við alþjóðleg reiknilíkön við áætlað
tap þjóðfélagsins af umferðartöfum.
Sigurður segir samtökin hafa tekið
þetta til athugunar í tengslum við
samgönguáætlunina og fleiri áform í
vegamálum á höfuðborgarsvæðinu á
næstu árum.
„Staðreyndin er sú að ferðatími á
höfuðborgarsvæðinu hefur aukist
umtalsvert. Til dæmis hefur ferða-
tími úr úthverfum í miðborg Reykja-
víkur aukist um hér um bil 50% frá
árinu 2007. Þannig að við eyðum
miklu meiri tíma í umferðinni. Við
fórum því að velta fyrir okkur hvað
tafirnar kosta samfélagið,“ segir Sig-
urður.
Á ekki að vera svona á Íslandi
Spurður hvort þrír dagar í tafir á
ári séu ef til vill lítið í alþjóðlegu sam-
hengi segir Sigurður að staðan þurfi
ekki að vera svona á Íslandi.
Hann rifjar upp að vegafram-
kvæmdir á höfuðborgarsvæðinu hafi
verið í frosti frá árinu 2012. Mark-
miðið hafi verið að tvöfalda hlut
Strætó í umferðinni úr 4% í 8% á
tímabilinu frá 2012 til 2022. Nú, sjö
árum síðar, hafi hlutfallið hins vegar
ekki breyst. Þrátt fyrir þetta sé
áformað að verja 42 milljörðum til
uppbyggingar borgarlínu til ársins
2033, í þremur áföngum.
Fjallað er um þau áform í tillögum
sem viðræðuhópur ríkis og sveitar-
félaga á höfuðborgarsvæðinu skilaði
fyrir helgi varðandi uppbyggingu
samgangna á svæðinu til ársins 2033.
Íbúar sætti sig við tafirnar?
„Í fyrsta lagi veltir maður fyrir sér
hvort pólitísku skilaboðin í þessu séu
þau að tafirnar séu komnar til að
vera. Hvort það standi raunverulega
ekki til að snúa við taflinu heldur sé
þetta eitthvað sem pólitíkin, bæði ríki
og sveitarfélög, ætlist til að almenn-
ingur og fyrirtæki sætti sig við, með
hliðsjón af árangrinum síðustu árin. Í
öðru lagi er umhugsunarefni að stór
hluti af framlögum til samgöngumála
á höfuðborgarsvæðinu mun fara í
borgarlínuna. Það fer þá lítið, eða
minna, í önnur verkefni. Það má einn-
ig velta fyrir sér á hversu traustum
grunni kostnaðarmatið fyrir borgar-
línu byggist. Nýleg dæmi lofa ekki
góðu. Bragginn í Nauthólsvík átti til
dæmis að kosta 158 milljónir en kost-
aði 415 milljónir,“ segir Sigurður sem
telur aðspurður að huga þurfi betur
að forgangsröðun verkefna.
Til dæmis kosti samtenging um-
ferðarljósa lágar fjárhæðir í stóra
samhenginu en auki skilvirkni í um-
ferðinni til muna. Lausnirnar þurfi
ekki að vera dýrar.
Umferðartafir kostuðu 15 milljarða
Samtök iðnaðarins hafa áætlað tap þjóðfélagsins af umferðartöfum á höfuðborgarsvæðinu í fyrra
Formaður samtakanna segir að huga þurfi betur að forgangsröðun við fjárfestingu í umferðinni
Framlög til samgöngumála á höfuðborgarsvæðinu
Samgönguáætlun og tillögur verkefnahóps um breytingar á henni, milljarðar kr.
20
18
16
14
12
10
8
6
4
2
0
130
125
120
115
110
105
100
95
Heimild: SI
2019 til 2023 2024 til 2028 2029 til 2033
2013 2014 2015 2016 2017
Fjöldi slasaðra og umferð á höfuðborgarsvæðinu
1,5
16,3
7,1
5,9
15,4
17,9
9,1
9,9
2,0
Vísitölur árana 2013 til 2017 (2013=100)
Fjöldi slasaðra
Umferðarmagn
Samgönguáætlun
Borgarlína / tillaga verkefnahóps
Annað í tillögum verkefnahóps
Hjóla- og
göngu-
stígar
Þjóðhagslegur kostnaður
vegna umferðartafa árið 2017
6
milljarðar
króna
9
milljarðar
króna
Umferðartafir á
höfuðborgarsvæðinu
Umframkostnaður
fyrirtækja,
tapaður vinnutími
Kostnaður annarra
vegfarenda,
tapaður frítími
Heimild: SI
Sigurður
Hannesson