Morgunblaðið - 06.12.2018, Blaðsíða 64
64 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 6. DESEMBER 2018
Heilsuleikskólinn
Árbær
auglýsir eftirfarandi stöður
lausar til umsóknar
Sérkennslustjóri
Heilsuleikskólinn Árbær auglýsir eftir sérkennslustjóra í
100% starfshlutfall frá og með 1. janúar 2019. Leitað er að
áhugasömum og metnaðarfullum einstaklingi sem er fær
um að taka að sér umsjón með sérkennslu, stjórnunarlega
ábyrgð og þátttöku í stjórnunarteymi.
Meginverkefni:
• Starfar samkvæmt lögum og reglugerð um leikskóla,
lögum um málefni fatlaðra, öðrum lögum er við eiga,
aðalnámskrá leikskóla og skólastefnu Árborgar.
• Faglegur umsjónarmaður sérkennslu í leikskólanum og
veitir ráðgjöf til annarra starfsmanna leikskólans.
• Hefur yfirumsjón með gerð verkefna og ber ábyrgð á gerð
einstaklingsnámskráa fyrir börn sem njóta sérkennslu.
• Veita foreldrum/forráðamönnum barna stuðning, fræðslu
og ráðgjöf.
• Þátttaka í stefnumörkun skólans ásamt stjórnunarteymi og
öðru samstarfsfólki.
Menntun og hæfniskröfur:
• Leikskólakennaramenntun
• Framhaldsmenntun í sérkennslufræðum
• Sýni jákvæðni, frumkvæði og samstarfsvilja.
• Góð færni í mannlegum samskiptum.
• Reynsla, áhugi og hæfni í starfi með börnum.
• Góðir skipulagshæfileikar
• Færni til að tjá sig í ræðu og riti
• Góð íslenskukunnátta
Leikskólakennarar
Um er að ræða 100% stöður frá og með 1. janúar 2019.
Helstu verkefni og ábyrgð leikskólakennara er að vinna að
uppeldi og menntun leikskólabarna samkvæmt starfslýsingu
leikskólakennara.
Menntun og færnikröfur:
• Leikskólakennararéttindi
• Jákvæðni, frumkvæði og samstarfsvilji
• Færni í mannlegum samskiptum
• Áhugi, reynsla og hæfni í starfi með börnum
• Góðir skipulagshæfileikar
• Færni í að tjá sig í ræðu og riti
Frekari upplýsingar veitir Kristín Eiríksdóttir, sími 480 3250 og
áhugasamir geta sent umsóknir á netfangið arbaer@arborg.
is.
Umsóknarfrestur er til 15. desember 2018.
Störfin henta jafnt körlum sem konum og launakjör eru
samkvæmt kjarasamningi Launanefndar sveitarfélaga og
viðkomandi stéttarfélags.
VIÐ VILJUM KYNNAST ÞÉR BETUR
HUGBÚNAÐARHÖNNUÐUR ÓSKAST Í UPPLÝSINGATEYMI VARÐAR
Brennur þú fyrir þróun hugbúnaðarlausna og innleiðingu á hinum ýmsu kerfum? Áttu gott með að vinna í árangurs-
og verkefnadrifnum hópum? Býrð þú að framsýni, sjálfstæði og átt auðvelt með að finna úrræði og lausnir?
Vörður leitar að öflugum liðsauka í teymi sérfræðinga sem vinna að upplýsingatæknimálum. Helstu verkefni hópsins eru
þróun á fjárhags- og tryggingakerfi félagsins í Microsoft Dynamics NAV 2016 sem og öðrum kerfum, innleiðing á aðkeyptum
kerfum, notendaprófanir og aðstoð við notendaþjónustu. Teymið sinnir einnig vefsíðum Varðar og þróunarverkefnum með
öflugum samstarfsaðilum félagsins á sviði trygginga- og fjártækni.
Við hvetjum jafnt konur sem karla til að sækja um en viðkomandi einstaklingur þarf að hafa menntun og reynslu á sviði
hugbúnaðarþróunar, helst á sviði Microsoft Dynamics NAV. Mikill kostur er ef viðkomandi hefur þekkingu á NAV 2016
og nýrri útgáfum sem og þekkingu á þróun á vefþjónustum.
UMSÓKNARFRESTUR ER TIL 9. DESEMBER 2018
Veistu hvað
þú vilt?
Tekið er á móti umsóknum á ráðningarvef félagsins inni á vordur.is þar sem nánari upplýsingar um starfið er að finna.
Nánari upplýsingar veitir Sverrir Scheving Thorsteinsson, forstöðumaður upplýsingatækni, í netfanginu sverrir@vordur.is
eða Harpa Víðisdóttir, mannauðsstjóri, í netfanginu harpa@vordur.is
Vörður er lifandi og skemmtilegur vinnustaður með fjölskylduvæna og heilsueflandi mannauðsstefnu þar sem unnið er
í anda jafnréttis. Vinnuumhverfi félagsins er nútímalegt, jákvætt og árangursmiðað.
Hefur þú áhuga á að koma að kennslu í litlum samreknum
leik- og grunnskóla úti á landi? Við erum staðsett um klukku-
stund frá höfuðborgarsvæðinu og það er hálftíma keyrsla á
Selfoss. Nemendur í skólanum eru 75 á leik- og grunnskóla-
stigi. Það eru áhugaverðar stöður í boði og ef þú hefur áhuga
þá endilega sendu okkur línu eða hafðu samband símleiðis.
• Deildarstjóri í leikskóladeild 100% staða
• Leikskólakennari 100% staða
• Stuðningsfulltrúi grunnskóladeild 50-100%
Hér í skólanum er starfið í stöðugri þróun og hefur skólinn
markað sér sérstöðu í útikennslu. Þar sem skólinn er sam-
rekinn leik- og grunnskóli hefur samfellan á milli skólastiga
verið góð og markviss. Stuðst er við fjölbreytta kennsluhætti
og lögð áhersla á einstaklingsmiðað nám. Skólinn er græn-
fánaskóli og leggur áherslu á umhverfismennt.
Kennarar og starfsfólk vinnur í teymum á báðum skólastigum
og leggjum við ríka áherslu á góða samvinnu allra sem að
skólasamfélaginu koma.
Störfin henta jafnt körlum sem konum.
Lausar stöður við
Bláskógaskóla Laugarvatni
Ef ekki fæst kennari með kennsluréttindi á viðkomandi skólastigi verður litið til reynslu og meðmæla úr fyrri
starfi/störfum. Nánari upplýsingar veitir Elfa Birkisdóttir skólastjóri í síma 480-3030 eða í gegnum tölvupóst
elfa@blaskogaskoli.is. Umsóknarfrestur er til 15. desember 2018.
Hæfniskröfur:
• Kennsluréttindi á leikskólastigi
• Færni í mannlegum samskiptum
• Jákvæðni og áhugi fyrir margbreytilegu
starfi
• Lausnamiðun í starfi er mikilvægur
eiginleiki
• Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð
• Gleði og samstarfsvilji skipta miklu máli
Smáauglýsingar
Bátar
Mikið úrval í bæði
12V og 24V.
Flatahrauni 25 - Hafnarfirði
Sími 564 0400
www.bilaraf.is
Sumarhús
Sumarhús – Gestahús –
Breytingar
Framleiðum stórglæsileg sumarhús
í ýmsum stærðum.
Tökum að okkur stækkun og
breytingar á eldri húsum.
Smíðum gestahús – margar
útfærslur.
Sjáum um almennt viðhald á
sumarhúsum og sólpöllum.
Setjum niður heita potta og
smíðum palla og skjólveggi.
Áratugareynsla –
endilega kynnið ykkur málið.
Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn,
sími 892-3742 og 483-3693,
www.tresmidjan.is