Morgunblaðið - 13.12.2018, Síða 12

Morgunblaðið - 13.12.2018, Síða 12
Morgunblaðið/Sigurður Bogi Skógur Björn Traustason á svæðinu. „Hamrahlíðin er heilt ævintýraland. Skógurinn er í fallegu umhverfi og um hann liggur net göngustíga um rjóður og í fjallshlíðinni. Mörgum finnst hreinlega ómissandi að mæta á þennan stað fyrir hátíðir og velja sér jólatré,“ segir Björn Traustason, formaður Skógræktarfélags Mos- fellsbæjar. Jólaskógur félagsins, sem er í hlíðum Úlfarsfells við Vestur- landsveg, var opnaður um síðustu helgi. Fjölmenni mætti þá á svæðið og margt var til gamans gert, eins og hefð er fyrir á opnunardegi. Jólatrés- salan í Hamrahlíð er á virkum dögum í þessari viku opin milli klukkan 12 og 14 og um helgar frá 10 til 16. Í næstu viku verður svo opið alla daga frá há- degi og fram til kl. 18. „Það er nóg af fallegum trjám í skóginum núna en hjá okkur getur fólk í næði sótt sér furu og greni. Margir velja að fara um skóginn og saga það við rót. Einnig getur fólk nálgast tré sem við erum búin að fella og þau eru þá í rjóðrinu neðst í skóginum. Þá fást hjá okkur lifandi tré með rót í potti; fura og greni,“ segir Björn og bætir við að trén í ár séu einkar falleg og vel sprottin. Í stofur landsmanna séu eftirsóttust um það bil tíu ára gömul tré sem eru um tveir metrar á hæð. Mörg slík sé að finna í Hamrahlíð og þau séu yfir- leitt vel sprottin og jöfn að lögun. Vinsælt að heimsækja Hamrahlíðina fyrir jólin Jólaskógurinn er ævintýraland 12 DAGLEGT LÍF MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 13. DESEMBER 2018 Vefurinn heilsuvera.is ersamstarfsverkefni Heilsu-gæslu höfuðborgarsvæð- isins og Embættis landlæknis. Vefnum er ætlað að koma á fram- færi til almennings áreiðanlegum upplýsingum um heilsu, þroska og áhrifaþætti heilbrigðis, ásamt því að opna aðgengi einstaklinga inn á eigin sjúkraskrá og gera fólki mögulegt að vera í sambandi við heilsugæsluna sína í gegnum net- ið. Fróðleikur um heilsu og sjúkdóma Vefurinn skiptist í fjóra hluta. Sá fyrsti er þekkingarvefur, en strax á forsíðunni má finna efn- isflokka sem hafa að geyma ýmsan fróðleik um heilsu og sjúkdóma. Þarna má meðal annars finna efni um næringu, hreyfingu, svefn og hvíld, kynheilbrigði, forvarnir og bólusetningar ásamt upplýsingum um áhrifaþætti heilsu, sjúkdóma, einkenni og frávik í þroska. Fólk getur fengið hagnýt ráð og leið- beiningar um að breyta heilsu- hegðun sinni hvort sem markmiðið er að draga úr áfengisneyslu, hætta reykingum, bæta mataræði eða auka hreyfingu. Verðandi for- eldrar og foreldrar barna geta fundið ítarlegt efni um meðgöngu, fæðingu, þroska barna og uppeldi. Á þeim hluta sem fjallar um sjúk- dóma, einkenni og frávik má fá gagnleg ráð um hvað hægt er að gera heima og hvenær er ráðlagt að leita til heilsugæslunnar eða á bráðamóttöku. Örugg samskipti Annar hluti vefsins eru Mínar síðar. Nauðsynlegt er að hafa raf- ræn skilríki til að skrá sig þar inn en þar er öruggt vefsvæði þar sem hver og einn getur átt samskipti við starfsfólk heilsugæslunnar. Þar getur fólk nálgast gögn úr eig- in sjúkraskrá, pantað tíma hjá lækni, óskað eftir endurnýjun lyfja sem tekin eru reglulega, skoðað bólusetningar og skráð mælingar. Einnig er hægt að senda heilbrigð- isstarfsfólki örugg skilaboð. Fólki eru send sms-skilaboð þegar er- indinu hefur verið svarað. Hver heilsugæslustöð fyrir sig ákveður hvort notendur geta pant- að tíma eða notað samskiptin á Mínum síðum. Flestar heilsu- gæslustöðvar landsins nota lyfja- endurnýjunina og tímapantanir og þeim fer hratt fjölgandi sem heim- ila samskipti á þessum hluta Heilsuveru. Þriðji hluti vefsins er Þjón- ustuvefsjá, þar sem er yfirlit um allar heilsugæslustöðvar landsins. Þar má finna lýsingu á þjónustu á hverjum stað, hvernig má nálgast hana og hvað hún kostar. Einnig er að finna hvaða þjónusta er í boði utan dagvinnutíma á hverjum stað. Finna má þá heilsugæslustöð sem næst er hverju sinni ef þörf er á. Á þjónustuvefsjánni er einnig að finna yfirlit yfir bráðamóttökur. Einnig skal bent á að vaktsími fyr- ir allt landið er 1700 og svarað er í þann síma allan sólarhringinn. Opið netspjall Fjórði og síðasti meginhluti vefsins er Netspjall. Hjúkr- unarfræðingur er að jafnaði með opið netspjall á vinnutíma. Þar getur fólk fengið almenn ráð um heilsu, sjúkdóma og leiðbeiningar um hvað best sé að gera í hverju tilviki. Veittar eru ráðleggingar um notkunina á Mínum síðum ef þörf er á slíku ásamt leiðbeiningum um heilbrigðiskerfið. Landsmenn hafa tekið netspjallinu fagnandi og nota það mikið þegar það er opið og íslenskumælandi fólk hér og þar um heiminn hefur einnig tekið þessari nýjung fagnandi. Borist hafa netspjöll úr öllum heims- álfum, öllum Evrópulöndum og stórum hluta annarra landa í heiminum. En sjón er sögu ríkari. Best er að fara inn á heilsuvera.is og skoða sig þar um. Þú finnur örugglega eitthvað þar sem vekur áhuga þinn. Skógarmítill, akstur á efri árum, krydd í kynlífið, leiðir til að draga úr líkum á að smitast af kvefpestum, tengsl foreldra og ungbarna eða bara eitthvað allt annað og allar góðar ábendingar eru þegnar með þökkum. Unnið í samstarfi við Heilsu- gæslu höfuðborgarsvæðisins. Thinkstock/Getty Images Kvef Í skammdeginu hellast allskonar umgangspestir og flensuskítur yfir landsmenn og þá er ráðgjöf heilbrigðisstarfsfólks einkar mikilvæg. Skógarmítill, kvef og kynlíf Heilsuráð Margrét Héðinsdóttir og Ragnheiður Ósk Erlendsdóttir, hjúkrunarfræðingar Morgunblaðið/Sigurður Bogi Heilsugæsla Ragnheiður Ósk Erlendsdóttir, til vinstri, framkvæmdarstjóri hjúkrunar, og Margrét Héðinsdóttir, vefstjóri heilsuveru.is Hestafólkið í Brokkkórnum er mik- ið gleðifólk og félagslynt með ein- dæmum. Þetta er fólk sem kann að láta öðrum líða vel og ætla þau að bjóða til aðventukvölds í Selja- kirkju í Breiðholti í kvöld, fimmtu- dagskvöld, kl. 20. Ætlunin er að eiga notalega kvöldstund þar sem kórinn flytur jólalög undir stjórn hins geðþekka og gamalreynda Magnúsar Kjartanssonar. Einsöngv- ari að þessu sinni er María Gyða Pétursdóttir. Að loknum tónleikum verður rétt eins og fyrri ár boðið upp á heitt súkkulaði og nýbakaðar ilmandi vöfflur með tilheyrandi og allt saman innifalið í miðaverði. Hestafólkið í Brokkkórnum hlakkar til að sjá gesti og njóta með þeim hlýlegrar stundar. Húsið er opnað hálftíma áður en tónleikar hefjast, klukkan 19:30. Miðasala verður við innganginn og vert að taka fram að ókeypis er fyrir 12 ára og yngri, svo það er um að gera að bjóða börnunum með. Jólastemning Hluti kórmeðlima í sparifötunum ásamt Magnúsi stjórnanda. Söngur, heitt súkkulaði, ilmandi vöfflur og notaleg samvera Brokkkórinn syngur inn jólin í kvöld Lagt í’ann Brokkkórsmeðlimir ríða oft út saman. Þóra Þórisdóttir galvösk hér. HEKLA · Laugavegi 170-174 · Reykjavík · Sími 590 5000 · hekla.is Höldur Akureyri · Bílasala Selfoss · Bílás Akranesi · HEKLA Reykjanesbæ · BVA Egilsstöðum www.volkswagen.is Fjórhjóladrifna fjölskyldan. Touareg Offroad. 3.0 TDI V6. Verð 9.290.000 kr. T- Roc. Fjórhjóladrifinn og sjálfskiptur. Verð 4.590.00 kr. Tiguan Allspace. 7 manna og rúmgóður. Verð 7.635.000 kr. Tilboðsverð 6.990.000 kr. Tiguan Offroad. Fjórhjóladrifinn og sjálfskiptur. Verð 5.790.000 kr. Tilboðsverð 4.990.000 kr.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.