Morgunblaðið - 13.12.2018, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 13.12.2018, Blaðsíða 20
20 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 13. DESEMBER 2018 Guðni Einarsson gudni@mbl.is Banaslys verða í umferðinni einhvers staðar í heiminum á 24 sekúndna fresti að því er kemur fram í nýrri skýrslu frá Alþjóðaheilbrigðismála- stofnuninni (WHO). Fjöldi þeirra sem farast í bílslysum á ári var 1,35 milljónir árið 2016. Dauðaslysum í umferðinni hafði þá fjölgað um 100.000 á ári á aðeins þremur árum og eru helsta dánarorsök barna og ungmenna á aldrinum 5-29 ára. WHO krefst þess að brugðist verði við þessari öfugþróun um allan heim, að því er segir í frétt AFP-fréttastof- unnar. Lausnin á vandanum er þekkt Tedros Adhanom Ghebreyesus, yfirmaður WHO, segir að þessi dauðsföll séu gjald fyrir það að geta farið um sem ekki sé hægt að sætta sig við. Hann segir að það sé engin af- sökun fyrir því að bregðast ekki við. Lausnin á vandamálinu sé þekkt. Í skýrslu um sama efni sem kom út árið 2013 var áætlað að um 1,25 millj- ónir manna hefðu þá farist í bana- slysum á vegum á ári. Þrátt fyrir að fleiri hafi dáið í banaslysum á vegum 2016 þá er hlutfall þeirra sem farast í slíkum slysum óbreytt miðað við mannfjölda undanfarin ár. Aðgerðir sem auka öryggið WHO telur að aðgerðir til að auka umferðaröryggi í löndum með meðal- eða háar þjóðartekjur hafi aðeins bætt ástandið. Það er einkum þakkað betri lög- gjöf um áhættuþætti eins og hrað- akstur, akstur undir áhrifum og það að nota ekki öryggisbelti, barnabíl- stóla eða hjálma. Endurbætur á innviðum eins og gerð gangstétta og reiðhjólareina og betri ökutæki hafa einnig skilað sér í meira öryggi. Því miður vantar mikið upp á að mörg fátækari lönd hafi bætt úr vanköntum varðandi umferð- ina á meðan betur stæð lönd hafa aukið við til að bæta öryggi vegfar- enda. Samkvæmt skýrslu WHO hefur ekkert land með lágar þjóðartekjur sýnt fram á fækkun dauðsfalla vegna slysa auk þess sem þrefalt meiri hætta er á að deyja í umferðarslysi í fátækum löndum en ríkum. Tíðni banaslysa er sérstaklega há í Afríku þar sem urðu 26,6 banaslys í umferðinni á hverja 100.000 íbúa á árinu 2016 samanborið við 9,3 bana- slys í Evrópu þar sem tíðnin var lægst. Skýrsla WHO segir einnig að meira en helmingur þeirra sem far- ast í slysum á vegunum sé ýmist gangandi eða á farartækjum með tveimur hjólum. Gangandi vegfar- endur og reiðhjólafólk eru 26% þeirra sem farast í slysum á vegun- um en hlutfall þessara er allt að 43% í Suðaustur-Asíu, samkvæmt skýrsl- unni. Ísland stóð sig best 2014 Gunnar Geir Gunnarsson, deildar- stjóri öryggis- og fræðsludeildar Samgöngustofu, sagði í skriflegu svari að Ísland hefði verið í hópi þeirra landa í Evrópu, og þar með í heiminum, sem standa sig hvað best í þessum efnum. „Árið 2014 höfðum við t.a.m. 1,2 dauðsföll á hverja 100.000 íbúa (4 látnir alls) og erum við nokkuð viss um að engin þjóð hafi staðið sig betur í heiminum það árið. Síðustu þrjú ár höfum við svo verið á bilinu 4,7-5,4. Ef við tökum fimm ára meðaltal, 2013-2017, til að jafna út sveiflur þá vorum við með 4,2 á þeim fimm árum að jafnaði og vorum við, eftir því sem ég kemst næst, í 10. sæti yfir Evrópuþjóðir á því tímabili,“ skrifaði Gunnar. Hann segir að Sam- göngustofa skoði þróun slysa mjög gaumgæfilega og beri stöðuna hér saman við önnur norræn lönd í ár- legri skýrslu um umferðarslys á Ís- landi samkvæmt lögregluskýrslum. Við þurfum að gera betur Síðasta áratug höfum við verið á pari við önnur norræn lönd og sum árin komið best út. „Síðustu þrjú ár hafa verið tiltölulega slæm miðað við árin þar á undan og miðað við hin norrænu löndin. Árið í ár stefnir í svipað ár og síðustu þrjú og ljóst að við verðum að gera betur til að ná töl- unum niður,“ skrifaði Gunnar. Að meðaltali hafa 12,7 látist hér í umferðarslysum á hverju ári síðustu tíu ár. Áratuginn þar á undan, þ.e. 1998-2007, létust að jafnaði 24,4 á ári í umferðarslysum. Gunnar bendir á að þeim sem látist hafa í umferðar- slysum hér á landi hafi fækkað að jafnaði um tæplega tólf á hverju ári. Því megi segja að á síðustu tíu árum hafi okkur tekist að bjarga einu mannslífi í mánuði með betri forvörn- um og fræðslu, betri vegum, betri bíl- um, bættri hegðun, betra eftirliti, betra ökunámi, aukinni öryggismeð- vitund og fleiru. Umferðin krefst of margra fórna  WHO segir 1,35 milljónir hafa farist í umferðinni 2016  Ástandið verst í fátækum löndum  Einu mannslífi forðað frá banaslysi í mánuði hér síðustu tíu ár miðað við áratuginn á undan Ár hvert deyja 1,35milljónir manna í slysum á vegum í heiminum Heimild: WHO (2018) *Í samræmi við ráðleggingu WHO Þróuð ríki LÖG Þróunar- lönd 71% 40 36 31 5,3 milljarðar manna + 3 lönd frá árinu 2014 2,7 milljarðar manna + 5 lönd frá árinu 2014 2,3 milljarðar manna + 10 lönd frá árinu 2014 3 milljarðar manna Takmörk við alkóhólmagni í blóði ökumanna* Skylda að nota hjálma á bifhjólum* Skylda að nota sætisbelti* Hraða- takmörk* 40% 7% 1 dauðsfall í heiminum á hverjar 24 sek. 1% af farartækjum 13% af dauðsföllum Morgunblaðið/Árni Sæberg Umferðarslys Tíðni umferðarslysa hér hefur verið svipuð og annars staðar á Norðurlöndum. Síðustu þrjú ár hafa þó verið tiltölulega slæm miðað við árin þar á undan. Ljóst er að gera verður betur til að ná slysatíðninni niður. Þyrlur og flugvél Landhelgisgæsl- unnar hafa það sem af er ári farið í 265 útköll og hafa þau aldrei verið fleiri. Fram kemur á heimasíðu Land- helgisgæslunnar, að loftför Land- helgisgæslunnar hafi á síðasta ári farið í 257 útköll en undanfarin ár hefur útköllunum fjölgað frá ári til árs. Til samanburðar voru þau 160 árið 2011. Útköll fyrstu ellefu mán- uði ársins 2018 séu því 65% fleiri en allt árið 2011. Þá hafi útköll í hæsta forgangi verið rúmur þriðjungur allra útkalla ársins en tölurnar bendi til þess að sjúkraflugferðum á landi hafi fjölgað töluvert milli ára. Á heimasíðunni segir, að fjölgun útkalla loftfara Landhelgisgæsl- unnar hafi það í för með sér að lög- gæslu- og eftirlitsferðir eru færri en oft áður. Fram kemur, að flugvélin TF-SIF hafi sinnt nokkrum útköll- um, þar á meðal sjúkraflugi til Árósa í Danmörku. Landhelgisgæslan hefur yfir að ráða þremur þyrlum af gerðinni Su- per Puma og Dash 8 Q 300 flugvél, sem er sérhönnuð til eftirlits-, leit- ar-, björgunar- og sjúkraflugs á Norður-Atlantshafi. Morgunblaðið/RAX Þyrla Ein af þyrlum Landhelgisgæslunnar á æfingu við Bláfjöll. Metfjöldi útkalla  Þyrlur og flugvél Landhelgisgæsl- unnar hafa á árinu farið í 265 útköll Skeifunni 8 | Sími 588 0640 | casa.is MARTINELLI LUCE Pipistrello Borðlampi Verð frá 199.000,- Jólagjöfin fæst hjá okkur
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.