Morgunblaðið - 13.12.2018, Page 24
Þórir Garðarsson, sem er jafnframt stjórnar-
formaður Hveravallafélagsins, segir hluthafa
telja rétt að nýir aðilar komi að uppbyggingu á
Hveravöllum. Hluthafar hafi því ákveðið að
selja félagið. Ekkert ásett verð er á félaginu og
er óskað tilboða. Ferðaþjónustufyrirtækið Gray
Line er stærsti hluthafinn en aðrir hluthafar eru
Húnavatnshreppur og Björn Þór Kristjánsson.
„Helstu ástæðurnar fyrir sölunni eru þær að
Húnavatnshreppur, sem hefur verið meðeigandi
okkar í þessu verkefni, hefur áhuga á að fara út
úr ferðaþjónusturekstri. Eðlilega. Það stóð
aldrei til að hreppurinn yrði lengi viðloðandi
verkefnið,“ segir Þórir. „Við [hjá Gray Line] er-
um jafnframt í öðrum krefjandi verkefnum. Þá
bæði varðandi uppbyggingu við Skíðaskálann í
Hveradölum og rekstur Gray Line. Við teljum
rétt að á Hveravöllum, sem er friðlýst svæði og í
hjarta hálendisins og einn af fegurri stöðum á
hálendinu, sé heppilegra að uppbyggingin sé í
höndum aðila sem geta einbeitt sér að
verkefninu á þessum tímapunkti.“
Selja starfsemina á svæðinu
Undir Hveravallafélagið heyra allar fast-
eignir, tæki, innviðir og lóðaleigusamningar til
reksturs ferðaþjónustu á Hveravöllum.
Þórir rifjar upp að Hveravallafélagið hafi
starfað í áratugi. Á síðustu árum hafi félagið
varið um 100 milljónum í endurbætur húsa og
búnaðar. Þá hafi félagið byggt upp innviði á
borð við vatnsveitu og fráveitu í samstarfi við
Umhverfisstofnun og fleiri aðila.
„Við höfum fjárfest gríðarlega mikið í inn-
viðum á undanförnum árum. Reksturinn er orð-
inn sjálfbær. Það eru mikil tækifæri til staðar
fyrir þá sem vilja koma að þessu verkefni. Síðan
er því ekki að leyna að það hafa haft samband
við okkur aðilar sem hafa viljað komast í þetta
verkefni en við vorum ekkert á því að selja. Nú
þegar þessi ákvörðun hefur verið tekin fannst
okkur hins vegar rétt að vekja athygli á því.“
Selja Hvera-
vallafélagið
Fjárfestar sýna áhuga
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Hveravellir Svæðið er fjölsótt á sumrin.
24 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 13. DESEMBER 2018
Fæst í apótekum og almennu verslunum.
GUM tannbursti
og tannkrem.
GUM tannbursti tannkrem
og VitaSip sogrör.
Góðar gjafir fyrir
jólasveininn eða
með í jólapakkann
VitaSip eru vítamínfyllt sogrör sem
krakkarnir elska. Sykurlaus og án gerviefna.
– fyrir stráka og stelpur
Vörurna eru í tilbúnum pakkningum og
eru báðar fyrir tvö aldursbil
2-6 ára og 7 ára og eldri.
BAKSVIÐ
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Fyrirhuguð uppbygging baðlóns í Hveradölum
á Hellisheiði fór í umhverfismat og vonast fjár-
festar til að niðurstaða liggi fyrir í vor.
Fram kom í Morgunblaðinu í september að
Skipulagsstofnun hefði ákveðið að umræddar
framkvæmdir skyldu fara í umhverfismat. Fé-
lagið sem fer með uppbygginguna, Hveradalir
ehf., ákvað að una þeirri ákvörðun. Hafði félag-
ið mánuð til að kæra
ákvörðunina til úrskurðar-
nefndar umhverfis- og auð-
lindamála.
Fyrirhuguð uppbygging
er við Skíðaskálann í
Hveradölum. Stendur til að
gera baðlón í Stóradal,
stækka núverandi skíða-
skála og reisa hótel og bað-
hús við lónið.
Hluthafar í Hveradölum
eru Grettir Rúnarsson, eigandi Heklubyggðar,
og ferðaþjónustufyrirtækið Gray Line.
Uppbyggingin kostar um 2 milljarða
Þórir Garðarsson, stjórnarformaður Gray
Line og framkvæmdastjóri Hveradala ehf.,
segir áætlað að uppbygging baðlónsins kosti
um 2 milljarða.
„Við reiknum með að umhverfismatinu ljúki
á næsta ári og að við getum í kjölfarið farið á
fullt í framkvæmdir við baðlónið.
Það er ekki komin dagsetning en ef allt
gengur upp ættum við að geta opnað baðstað-
inn 2021,“ segir Þórir.
Hann reiknar með mikilli aðsókn í lónið.
„Það er eftirspurn eftir vatnstengdri afþrey-
ingu á Íslandi, ekki síst þegar um er að ræða
jarðvatn. Lónið verður ekki, eins og menn
gætu haldið, eins og hefðbundin sundlaug, eða
með hitaveituvatni, heldur er um að ræða jarð-
hitavökva sem er fullur af steinefnum sem hafa
jákvæð áhrif á húð fólks. Nýsköpunarfyrir-
tækið geoSilica hefur þróað fæðubótarefni úr
sama jarðhitavökva með góðum árangri.
Lónið í Stóradal verður á vissan hátt sam-
bærilegt við jarðböðin við Mývatn. Stóridalur
er gamall gígur sem skapar mikla skjólsæld og
sérstakt andrúmsloft,“ segir Þórir.
Hann segir aðspurður að sviptingar í ferða-
þjónustu að undanförnu hafi ekki áhrif á lang-
tímaáætlanir félagsins Hveradala.
Nálægðin við borgina er kostur
Rætt er um að vegna styrkingar krónu fari
erlendir ferðamenn síður út fyrir suðvestur-
hornið. Það hefur bitnað á eftirspurn á lands-
byggðinni, m.a. hjá hótelum.
„Styrkleiki verkefnisins liggur í því að vera
nálægt höfuðborginni þar sem flestir ferða-
menn eru. Ég hefði meiri áhyggjur af því að
vera lengra í burtu,“ segir Þórir.
Varðandi gengi krónunnar bendir hann á að
gengið hafi gefið eftir í haust. Vísbendingar
séu um að neikvæð áhrif gengisstyrkingarinn-
ar á ferðaþjónustuna séu að ganga til baka.
Hann segir að í framtíðinni sé fyrirhuguð
frekari uppbygging fyrir útivist á svæðinu í
kringum Hveradali. Rætt hefur verið um að
alls geti uppbyggingin kostað 5-6 milljarða.
Uppbygging í Hvera-
dölum í umhverfismat
Gera á baðlón fyrir 2 milljarða Áformað að hefja uppbyggingu 2019
Teikning/Hveradalir ehf.
Ferðaþjónusta Hér má sjá drög að baðlóni í Stóradal. Lónið verður skammt frá þjóðveginum.
Þórir
Garðarsson
Hveradalir
Hveragerði
Þorlákshöfn
Fjarlægð frá
Reykjavík:
32 km
Grunnkort/Loftmyndir ehf.
Baðlón í Stóradal
í Hveradölum
Reykjavík
Hveravallafélagið hefur haft áform um uppbyggingu nýs gisti- og þjón-
ustuhúss í jaðri friðlandsins á Hveravöllum og utan við það.
Samkvæmt þessum áætlunum verða mannvirki í friðlandinu fjarlægð,
að frátöldum gamla skála ferðafélagsins við laugina. Gistiskálinn myndi
rúma 120 gesti og yrði þriðjungur þeirra með sambærilega aðstöðu og á
farfuglaheimili. Áætlað er uppbyggingin kosti um 600 milljónir.
Fram hefur komið í Morgunblaðinu að tafir hafa orðið á afgreiðslu
Skipulagsstofnunar á umsókn um þessar framkvæmdir. „Hugur okkar
hefur staðið til þess að byggja upp nýja hálendismiðstöð á Hveravöllum
utan við friðlýsta svæðið, eins og gert er ráð fyrir skv. gildandi deiliskipu-
lagi og svæðisskipulagi miðhálendisins. Stærð og umfang húsa er heldur
meira en í gildandi deiliskipulagi þannig að auglýsa þurfti breytingu á
deiliskipulaginu. Skipulagsstofnun vill fara með breytinguna í nýtt um-
hverfismat þar sem núverandi mat er eldra en 10 ára. Það mál er nú til
meðferðar hjá úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála,“ segir Þórir.
Yrði ný hálendismiðstöð
ÁFORM Á HVERAVÖLLUM
Það hefur sýnt sig að íslenska þjóðin stendur
saman, sýnir stuðning og samhug
eftir bestu getu.
Hægt er að leggja framlög inn á reikning
nr. 0101-26-35021, kt. 470269-1119
S. 551 4349, 897 0044, maedur@simnet.is
90 ára afmæli
Mæðrastyrksnefndar Reykjavíkur
JÓLASÖFNUN