Morgunblaðið - 13.12.2018, Side 26

Morgunblaðið - 13.12.2018, Side 26
26 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 13. DESEMBER 2018 Lesið vandlega upplýsingarnar á umbúðumog fylgiseðli fyrir notkun lyfsins. Leitið til læknis eða lyfjafræðings sé þörf á frekari upplýsingum umáhættuog aukaverkanir. Sjá nánari upplýsingar um lyfið áwww.serlyfjaskra.is Ibuprofen Bril Reykjavíkurvegur 62 | Sími 527 0640 | 220Hafnarfjörður | www.wh.is Á hreint brilliant verði! Bólgueyðandi og verkjastillandi 400mg töflur - 30 stk og 50 stk SVIÐSLJÓS Erla María Markúsdóttir erlamaria@mbl.is Innleiðing á nýju atvikaskráningar- kerfi á landsvísu mun gera stjórn- endum Embættis landlæknis kleift að fylgjast með umfangi, tíðni og úr- vinnslu atvika sem eiga sér stað á viðkomandi stofnun. Innleiðingin hófst síðla á þessu ári og áætlað er að henni ljúki á næstu tveimur ár- um. Þetta er meðal þess sem kom fram við kynningu á áætlun um gæðaþróun í heilbrigðisþjónustu 2019-2030 sem Svandís Svav- arsdóttir heilbrigðisráðherra og Alma D. Möller landlæknir kynntu og undirrituðu í gær. Frá því að rafræn atvikaskráning var tekin upp árið 2004 hafa nokkur rafræn kerfi verið notuð til skrán- ingar og úrvinnslu atvika og einnig skráð á sérstök eyðublöð. Með atviki er átt við þegar eitthvað fer úrskeið- is í heilbrigðisþjónustunni. „Langoftast er það eitthvað í ferl- unum sem bregst og kannski eitt- hvert samspil við mannlega þætti. En þá er svo mikilvægt að rýna at- vikin og greina hvað fór úrskeiðis til að laga, ef þetta eru ferlar,“ segir Alma. Kerfið á ekki að einblína á hlut einstaklingsins heldur hlut kerfisins. Skylt að skrá atvik í kerfið Kerfið var keypt fyrr á þessu ári frá breska fyrirtækinu Datix. Fjórar einingar innan heilbrigðiskerfisins eru með kerfið í prófun en Alma seg- ir að kerfið verði innleitt að fullu eft- ir um það bil tvö ár. „Það er gríð- arlega umfangsmikið verkefni að innleiða svona kerfi á landsvísu. Þetta er svo viðamikið og margar einingar, allt heilbrigðiskerfið.“ Að innleiðingu lokinni verður öll- um þeim sem veita heilbrigðisþjón- ustu skylt að skrá atvik sem koma upp í þetta kerfi. Svandís segir innleiðingu kerf- isins mjög mikilvæga til að skapa heildarsýn í heilbrigðiskerfinu. „Við sjáum að það kemur ítrekað fram að við þurfum að bæta skráningu, ut- anumhald og heildarsýn yfir okkar heilbrigðiskerfi og þetta er einn angi af því. Til þess að við getum bætt heilbrigðisþjónustu þurfum við að vita hvað fer úrskeiðis og greina það hvað veldur því að eitthvað fer úr- skeiðis og fara í saumana á hverju atviki fyrir sig til þess að við getum lært af því, breytt okkar áætlunum og lært af því.“ Áætlun um gæðaþróun er unnin í samræmi við 11. grein laga um land- lækni og lýðheilsu og er ætlað að efla gæði og öryggi heilbrigðisþjónust- unnar og stuðla að þróun hennar. Markmið hennar er að notendur fái heilbrigðisþjónustu sem eykur líkur á betri heilsu og auknum lífs- gæðum, er samfelld og samhæfð, örugg, rétt tímasett, skilvirk, byggð á jafnræði, notendamiðuð og árang- ursrík. Svandís segir áætlunina vera einn af hornsteinum heilbrigðisþjónust- unnar, ásamt heilbrigðisstefnu til ársins 2030, sem er nú í umsagn- arferli. Alma segir að mikilvægt sé að leggja áherslu á eflingu gæða, ör- yggis og umbótastarfs í heilbrigðis- þjónustu. „Það er ekki einungis sið- ferðilega rétt heldur sýna rannsóknir að slíkt er beinlínis fjár- hagslega hagkvæmt.“ Í áætluninni má finna leiðbein- ingar um verklag við veitingu heil- brigðisþjónustu. Þar kemur einnig fram hvernig heilbrigðisstofnanir geta stöðugt fylgst með gæðum og öryggi þjónustunnar og brugðist við með umbótastarfi þegar þess gerist þörf. Áætlunin byggist á fjórum lykil- þáttum um verklag: Umbótaferli og stjórnskipulagi, gæðavísum, skrán- ingu og úrvinnslu atvika auk þjón- ustukannana. Þá skila veitendur heilbrigðisþjónustu árlega gæða- uppgjöri til Embættis landlæknis og Sjúkratrygginga Íslands eftir atvik- um, sem byggist á lykilþáttunum og er ætlað að sýna árangur hvað snertir gæði og öryggi þjónust- unnar. Tvenns konar gæðavísar Í áætluninni eru tvenns konar gæðavísar notaðir, annars vegar landsgæðavísir, sem ákvarðaður er fyrir allt landið af Embætti land- læknis og gefur kost á samanburði milli sams konar heilbrigðisstofnana og heilbrigðisþjónustu, og hins veg- ar valgæðavísar, sem taka mið af þeirri þjónustu sem þeir veita og eru mælikvarði á gæði þjónustunnar frá sjónarhóli notenda, heilbrigðis- starfsmanna og stjórnenda. Árlegar þjónustukannanir Þá telur Embætti landlæknis mikilvægt að veitendur heilbrigð- isþjónustu afli með reglubundnum hætti upplýsinga frá notendum þjónustunnar um upplifun þeirra á veittri þjónustu. Í áætluninni er ætl- ast til að veitendur heilbrigðisþjón- ustu geri þjónustukannanir ekki sjaldnar en einu sinni á ári og nýti niðurstöðurnar í umbótastarfi. Morgunblaðið/Eggert Nýtt kerfi Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra og Alma D. Möller landlæknir í gær þegar nýtt atvikaskrán- ingarkerfi fyrir heilbrigðisstofnanir var kynnt. Kerfið er breskt og fjórar heilbrigðisstofnanir hafa prófað það. Auðveldara að fylgjast með atvikum  Áætlun um gæðaþróun í heilbrigðisþjónustu var kynnt í gær  Nýtt kerfi innleitt að fullu eftir tvö ár  Öllum í heilbrigðisþjónustu skylt að nota sama kerfi  Einn af hornsteinum heilbrigðisþjónustunnar Næstu tvær helgar eru einhverjar mestu verslunarhelgar ársins. Það er prýðilegt hljóð í verslunarmönn- um fyrir hátíðirnar en ófá íslensk fyrirtæki reiða sig mjög á desember. „Fólk gerir betur við sig núna og það sækir í dýrari vöru,“ sagði Andr- és Magnússon, framkvæmdastjóri Samtaka verslunar og þjónustu, í samtali við mbl.is. Hann sagði aðstæður góðar í ís- lenskri verslun fyrir jólin en þó ger- breyttar á vissan hátt. Breytingar hafa orðið á neysluháttum fólks á allra síðustu árum og hluti jólaversl- unarinnar hefur dreifst yfir á hina nýju alþjóðlegu verslunardaga í nóv- ember, eins og svarta föstudaginn. Breytingin felst ekki síður í stór- aukinni netverslun. Andrés segir það vera áhyggjuefni hversu stór hluti netverslunarinnar er við erlend fyrirtæki. „Það er hlutfallslega meiri aukning í netverslun við fyrirtæki í öðrum löndum en íslensk.“ Breki Karlsson, formaður Neyt- endasamtakanna, brýnir fyrir fólki að staldra við í jólainnkaupunum og hugsa hvað skiptir í raun og veru máli. „Þar þurfa hlutir ekki endilega að vera fyrst á listanum,“ sagði hann í samtali við mbl.is, „heldur kannski frekar samvera við vini og fjöl- skyldu.“ Þá minnti Breki á skilarétt- inn, sem á að gilda um flestar vörur með skilamiða. Athyglisvert í því samhengi, segir hann, er að neyt- enda- og skilaréttur er ríkari þegar hlutir eru keyptir á netinu en þegar þeir eru keyptir úti í búð. snorrim@mbl.is Sótt í dýrari vöru um jólin  Hluti jólaverslunar fer nú fram á svarta föstudeginum og netmánudeginum  Skilaréttur ríkari á netinu en í búðum Morgunblaðið/Hari Fyrir jólin Aðstæður í íslenskri jóla- verslun eru sagðar góðar.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.