Morgunblaðið - 13.12.2018, Qupperneq 28
28 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 13. DESEMBER 2018
Verið velkomin í verslun okkar
Opið virka daga kl. 8:30–17:00
Síðumúli 16 I 108 Reykjavík I Sími 580 3900 I fastus.is
fastus.is
MEATER +
ÞRÁÐLAUS KJÖTHITAMÆLIR
Stórsniðugur þráðlaus hitamælir sem vinnur með WiFi og Bluetooth.
Fylgst er með hitastigi og stillingum í appi í snjallsíma, tölvu eða spjaldtölvu.
VERÐ: 19.995KR
Ágúst Ingi Jónsson
aij@mbl.is
Landnemum fjölgar með hverju
árinu í lífríki hafsins og má nefna
ýmsar tegundir svo sem krabba,
möttuldýr og hveljur. Langt er í frá
að allar þessar framandi tegundir séu
velkomnar og sumar eru flokkaðar
sem ágengar í lífríkinu.
Sindri Gíslason, líffræðingur og
forstöðumaður Náttúrustofu Suð-
vesturlands, segir að því miður hafi
takmarkaðar rannsóknir verið stund-
aðar á stofnum krabba við Ísland.
Með landnámi grjótkrabbans sem
fannst fyrst hér við land í Hvalfirði
árið 2006 hafi þekking á kröbbum á
grunnsævi stóraukist.
„Samhliða rannsóknum á grjót-
krabbanum höfum við nefnilega aflað
mikilla upplýsinga um algengustu
innlendu krabbategundir á grunn-
sævi, bæði bogkrabba og trjónu-
krabba. Rannsóknir okkar á grjót-
krabba hér við land eru einstakar því
sjaldgæft er að fylgja landnámsteg-
und svo vel eftir frá upphafi,“ segir
Sindri.
Mikill þéttleiki grjótkrabba
Grjótkrabbinn hefur breiðst hratt
út með strandlengjunni og finnst
hann nú frá Faxaflóa norður með
landinu og allt austur á Borgarfjörð
eystri, að sögn Sindra. Annars staðar
á Austfjörðum og við suðurströndina
hefur hann enn ekki frétt af honum.
„Við höfum gert þéttleikamat á
grjótkrabbanum hér suðvestanlands.
Á kjörbúsvæði krabbans sem er
mjúkur botn finnst hann í hvað mest-
um þéttleika sem þekktur er fyrir
tegundina í heiminum, það er krabbi
á hverja tvo fermetra. Krabbinn er
orðinn algengur og ekki er óalgengt
að sjá hann í köfun eða við snorkl víða
um land,“ segir Sindri. Sem dæmi
nefnir hann að við snorkl í Eyjafirði
síðasta sumar hafi hann séð þó-
nokkra grjótkrabba.
Veiðin á grjótkrabba síðustu fimm
ár er um 28 tonn, en að mestu hefur
verið um tilraunaveiðar að ræða. Á
síðasta fiskveiðiári veiddust tæp sex
tonn, en aflinn hefur dregist saman
og er rúmlega 1,3 tonn af þremur
bátum á þessu fiskveiðiári sam-
kvæmt yfirliti á vef Fiskistofu.
„Ég geri fastlega ráð fyrir að snjó-
krabbi komi hingað innan fimm ára,“
segir Sindri. „Þessa tegund er víða að
finna í Vestur-Atlantshafi og í Kyrra-
hafi þar sem krabbinn er mikið
veiddur. Nú hefur snjókrabbi numið
land norður við Svalbarða og menn
eru hræddir um þau áhrif sem hann
kann að hafa á lífríkið á þeim slóðum.
Stórir krabbar sem þurfa mikið
Snjókrabbinn er mikið lostæti og
verðmæt tegund fyrir krabbaveiði-
menn. Sömu sögu er að segja um
kóngakrabba sem breiddist hratt út
við Noreg og er mikið veiddur þar.
Þessir krabbar eru stórir og þurfa
mikið og þeir sem veiða aðrar teg-
undir eru uggandi vegna þeirra. Ég
vona að kóngakrabbinn komi ekki
hingað.“
Af fyrrnefndum tegundum er
kóngakrabbinn langstærstur, síðan
kemur snjókrabbi, en grjótkrabbi er
minnstur þeirra þriggja. Þess má
geta að kóngakrabbi kom í humar-
troll í Breiðamerkurdýpi í maí 2014
og er það eina þekkta dæmið um
kóngakrabba á Íslandsmiðum. Lík-
legast er talið að honum hafi verið
hent útbyrðis af skipi. Þá berast af og
til fréttir af því að nornakrabbi hafi
veiðst eða fundist og hefur þeim
fréttum farið fjölgandi.
Innrás hefur áhrif
Innrás nýrra tegunda hefur áhrif á
aðrar og þannig gæti vaxandi styrkur
grjótkrabba haft áhrif á tegundir
sem fyrir eru. „Einhverra hluta
vegna virðist bogkrabba og trjónu-
krabba vera að fækka og færri eintök
hafa komið í gildrur. Stofn trjónu-
krabba virðist vera í lægð suðvestan-
lands og það er talsvert annað en var
fyrir um 30 árum þegar sjómenn
sögðust varla geta lagt út net án þess
að þau fylltust af trjónukrabba. Þetta
er ekki staðan í dag og greinilega ein-
hverjar sviptingar í gangi,“ segir
Sindri.
Glærmöttull og griphvelja eru
landnemar frá árunum 2007 og 2008
og hefur Náttúrustofa Suðvestur-
lands yfirumsjón með rannsóknum á
báðum þessum tegundum við landið.
Griphvelja hefur að öllum líkindum
borist til landsins með kjölfestuvatni
og er enn sem komið er sjaldgæf hér
við land en líklegt er að hún geti orðið
ágeng. Glærmöttull hefur að öllum
líkindum borist til landsins sem
ásæta á skipsskrokkum.
Í Kanada og Suður-Afríku er glær-
möttull talinn ágeng tegund þar sem
áhrif hans á skelfiskrækt eru nei-
kvæð. Glærmöttullinn er í samkeppni
við skelina um pláss og fæðu, hann er
ásæta bæði á skel og ræktunarútbún-
aði og hefur valdið miklu fjárhags-
legu tjóni, sérstaklega í kræklinga-
rækt, að því er fram kemur á heima-
síðu Náttúrustofunnar.
„Þéttleiki glærmöttuls er orðinn
talsvert mikill suðvestanlands og
hann gæti með tímanum orðið ógn
við bæði kræklingarækt og fiskeldi á
landsvísu,“ segir Sindri
Fleiri tegundir komnar?
Hann segir að því miður sé lítið
gert hérlendis til að hamla gegn því
að tegundir sem þessar flytjist til
landsins, eins og með kjölfestuvatni
og á skipsskrokkum.
„Á þennan hátt gætu margir teg-
undahópar borist til landsins og orðið
skæðir,“ segir Sindri. „Við höfum
rökstuddan grun um að fleiri skyldar
tegundir séu komnar hingað. Við er-
um að vinna úr sýnum sem við tókum
í sumar á hafnarsvæðum á Suð-
vesturlandi og bendir allt til þess að
við getum bætt við nokkrum nýjum
þekktum ágengum tegundum við nú-
verandi lista.
Griphvelja er enn sem komið er
eina framandi tegundin hér við land
sem er eitruð, en upphaflega kemur
hún úr Kyrrahafinu þar sem eru
nokkrir stofnar. Fyrstu niðurstöður
erfðarannsóknar benda til þess að
stofninn sem hingað er kominn sé frá
Japan og hann er sá sem er langeitr-
aðastur. Fólk í sjósundi ætti því
einna helst að hafa augun hjá sér en
ég reikna ekki með að griphveljan
komi til með að hafa teljandi áhrif á
lífríkið hér við land,“ segir Sindri.
Snjókrabbi gæti verið á leiðinni
Landnemar í hafi Fleiri krabbategundir Glærmöttull gæti orðið ágengur Eitruð griphvelja
Á hverju ári veiðast eða berast til
Hafrannsóknastofnunar nokkur
eintök af sjaldgæfum kröbbum,
samkvæmt upplýsingum Jónasar
P. Jónassonar fiskifræðings.
Hann segir að sumar tegundir
séu greinilega að festa sig í sessi
og séu orðnar algengar eins og
grjótkrabbi á grunnslóð.
Nornakrabbi er einnig dæmi
um tegund sem er orðin nokkuð
algeng en hann fannst fyrst árið
2002. Á síðustu árum hafa stofn-
uninni borist eða veiðst í leið-
öngrum yfir tíu nornakrabbar
einstök ár. Hann hefur fengist allt
frá 50 metrum niður á næstum
500 metra dýpi. Af öðrum sjald-
gæfum krabbategundum má
nefna að örfáir tröllakrabbar hafa
borist og nokkrir tann- og tinda-
krabbar á allra síðustu árum.
Flestar af sjaldgæfustu
krabbategundunum hér við land
veiðast helst við landgrunns-
brúnina eða enn dýpra, oftast
suður af landinu. Þeir fást eink-
um í allra dýpstu togunum í
stofnmælingaleiðöngrum eða
öðrum könnunum eða sérverk-
efnum, samkvæmt upplýsingum
Jónasar.
Nokkur ein-
tök árlega
SJALDGÆFIR KRABBAR
Nornakrabbi Nokkuð algengur.
Vísindi Sindri Gíslason við mælingar á grjótkröbbum í árlegri vöktun í Hvalfirði, en tegundin hefur breiðst hratt út.
Ljósmynd/Sindri Gíslason
Landnemi Griphvelja er eina framandi tegundin hér við
land sem er eitruð, en hún er ættuð úr Kyrrahafinu.
Ljósmynd/Sindri Gíslason
Ágengur Glærmöttull gæti haft neikvæð áhrif á kræk-
lingarækt og fiskeldi, en þéttleiki hans hefur aukist.