Morgunblaðið - 13.12.2018, Síða 38

Morgunblaðið - 13.12.2018, Síða 38
38 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 13. DESEMBER 2018 Vogir sem sýna verð á vörum eftir þyngd Löggiltar fyrir Ísland og tilbúnar til notkunar ELTAK sérhæfir sig í sölu og þjónustu á vogum VERSLUNAR- VOGIR Ásgeir Ingvarsson ai@mbl.is Eftir tíu ára búsetu í Sviss er Ró- bert Michelsen úrsmiður snúinn aftur heim til Íslands. Hann lærði við hinn heimsfræga WOSTEP- úrsmíðaskóla í Neuchâtel og eftir stutt stopp á Íslandi eftir námið kallaði Sviss á hann aftur. Þar fór hann í framhaldsnám sem úr- smíðakennari og eftir að hafa í nokkur ár kennt úrsmíði í hjarta úraheimsins í Sviss fékk hann ómótstæðilegt atvinnutilboð sem hann gat ekki hafnað: Það vantaði nefnilega bráðflinkan og fjölhæfan úrsmið hjá fyrirtæki sem stofnað var 1773 og kennt er við bróður Jörundar hundadagakonungs. „Úrin frá Urban Jürgensen þykja hafa mikla sérstöðu og þeir sem safna öndvegisúrum þekkja þetta merki mjög vel þó að almenningur kannist ekki endilega við nafnið. Meðal þess sem aðgreinir Urban Jürgensen frá öðrum framleið- endum er hve úrsmíðin er sérhæfð og flókin, og nostrað við hvert úr. Fyrrverandi eigandi framleiddi t.d. aðeins um 500 úr á 30 árum og al- gengt meðalverð á Jürgensen-úrum í kringum fimm milljónir króna, en sum jafnvel kostað í kringum kvart- milljón svissneskra franka, eða lið- lega 30 milljónir króna,“ útskýrir Róbert. Fyrirtækið var stofnað af Jürgen Jürgensen, föður Jörundar og Ur- bans. „En Urban var föðurbetr- ungur og raunar algjör snillingur í úrsmiði, og setti eigið nafn á rekst- urinn þegar hann tók við. Urban vann með og lærði af öllum fremstu úrsmiðum síns tíma, s.s Abraham- Louis Breguet í París og John Arn- old í London. Var það í kringum 1810 sem Urban átti sitt blómaskeið og lagði grunninn að fyrirtækinu sem lifir enn þann dag í dag.“ Fyrirtækið endurvakið Urban Jürgensen hélst lengi inn- an sömu fjölskyldunnar en snemma á 9. áratugnum eignaðist svissneski úrsmiðurinn Peter Baumberger fyrirtækið og rak af ástríðu og hug- sjón. Segir Róbert að Baumberger hafi gert áhugaverða hluti á sviði úrsmíði og m.a. þróað merkilegt „detent“-gangverk sem vikið verður að síðar, en hann var þó ekki mikill viðskiptamaður svo að ekki tókst að halda rekstrinum gangandi eftir að Baumberger féll skyndilega frá árið 2010. Hópur danskra fjárfesta keypti síðan Urban Jürgensen árið 2014 og hófst þá vinna við að koma fram- leiðslunni aftur af stað. Voru góð ráð dýr enda þurfti úrsmið í algjör- um sérflokki sem gæti haldið mörg- um boltum á lofti í einu. Róbert reyndist vera rétti maðurinn í starf- ið enda reyndur og vel að sér um bæði framleiðslu og viðgerðir. Skemmdi heldur ekki fyrir að Ró- bert hafði dreymt um að starfa hjá fyrirtækinu allt frá því hann var námsmaður. Í ljósi sögunnar verður að þykja nokkuð vel til fundið að fá Íslending til að hjálpa við að endurreisa sviss- neskan úraframleiðanda með rætur sem liggja til Íslands. Róbert segir að hjá Urban Jürgensen þekki menn söguna af Jörundi hunda- dagakonungi, þó að hún sé ekki mikið rædd. „Það virðist sem Jör- undur hafi verið svarti sauðurinn í fjölskyldunni og í þeim bókum sem ég hef lesið um ævi Urbans Jürgen- sen er varla minnst á uppátæki bróður hans.“ Aðspurður hvernig það gæti ver- ið að fyrirtæki, sem selur úr sem kosta á við góðan bíl og er með kaupendur á biðlista, skuli hafa lent í rekstarörðugleikum segir Róbert að úrsmíðin sé mjög kostnaðarsöm og hafi Baumberger lagt hér um bil allt undir við þróun nýja gangverks- ins. Það reyndist svo einmitt vera þetta gangverk sem bjargaði fyr- irtækinu. „Bæði sáu fjárfestarnir virðið í vörumerkinu, og hvernig mætti hefja það upp til fyrri dýrðar, en detent-gangverkið sem fylgdi með í kaupunum er hugvitsamlega hannnað og mjög nákvæmt.“ Opna verslun á Hafnartorgi Eftir þrjú góð ár hjá Urban Jür- gensen í Sviss var orðið tímabært að halda aftur til Íslands og segir Róbert að það hafi ekki síst verið fjölskyldunnar vegna. „Ég og konan mín rákum okkur á það hvað sviss- neskt samfélag getur verið íhalds- samt þegar kemur að barneignum. Með tvö ung börn á heimilinu stóð hún frammi fyrir töluverðri ein- angrun og fáum góðum valkostum. Þá var ljóst að uppi á Íslandi beið mín það krefjandi verkefni að hjálpa við að flytja verslun Michel- sen úrsmiða, sem verið hefur á Laugavegi um áratuga skeið, niður á Hafnartorg í hjarta miðborg- arinnar.“ Eins og flestir lesendur ættu að þekkja kemur Róbert af langri ætt úrsmiða og var það langafi hans sem upphaflega stofnaði úrsmiða- fyrirtæki Michelsen árið 1909. Í dag eru verslanir Michelsen úrsmiða tvær: á Laugaveginum og í Kringl- unni en þegar opnað verður á Hafn- artorgi mun búðinni á Laugavegi verða lokað. Unnendur vandaðra úra bíða spenntir því ýmsar áherslubreytingar munu verða á nýja staðnum. „Rolex verður með sitt eigið svæði innan verslunar- innar – að kalla má búð í búð – og eingöngu í félagsskap annarra lúx- usmerkja, s.s. Longines, TAG Heu- er og annarra lúxusmerkja sem við erum í viðræðum við. Tískuúrin, s.s. frá Armani, Michael Kors og Hugo Boss verða aftur á móti höfð til sölu í versluninni í Kringlunni,“ útskýrir Róbert. Er síðan aldrei að vita nema að í nýju búðinni birtist eins og eitt Ur- ban Jürgensen-úr steinsnar frá þeim slóðum þar sem Jörundur reyndi að ná völdum á litla Íslandi. „Veit ég ekki hvort hægt er að finna kaupendur en okkur stendur til boða að selja þetta merki og get- um verið milliliðir ef íslenskir úra- safnarar vilja eignast forláta grip frá Urban Jürgensen.“ Á úrsmíðavinnustofu bróður Jörundar hundadagakonungs  Urban Jürgensen var einstaklega snjall í sínu fagi og lagði grunninn að merkilegu fyrirtæki Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Metnaður Gamall draumur Róberts Michelsen rættist þegar hann var ráðinn til Urban Jürgensen í Sviss. Í dag vinnur hann að því að flytja fjölskyldufyrirtækið, Michelsen úrsmiði, í nýtt húsnæði á Hafnartorgi. Bróðirinn Urban Jürgensen lærði úrsmíði af meisturum síns tíma. Djásn Þegar Róbert kvaddi fyrir- tækið smíðaði hann sér þetta úr.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.