Morgunblaðið - 13.12.2018, Side 42

Morgunblaðið - 13.12.2018, Side 42
42 FRÉTTIRErlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 13. DESEMBER 2018 IB ehf | Fossnes A | 800 Selfoss | ib.is Nánari upplýsingar ib.is Ábyrgð og þjónusta fylgir öllum nýjum bílum frá IB Bílar á lager Sími 4 80 80 80 2018 Ford F-150 Platinum 3,5 L Ecoboost (V6), 10-gíra ,375 hestöfl, 470 lb-ft of torque. Litur: Rauður / svartur að innan (lúkkar meira brúnn/ dökk rauður) LOBO edition, Mojave leður sæti, quad-beam LED hedlights, bakkmyndavél, heithúðaður pallur, sóllúga, fjarstart, 20 felgur o. fl. VERÐ 12.775.000 m.vsk 2019 GMC 3500 Sierra SLT 6.6L Duramax Diesel, 445 HÖ. Litur: Summit white, svartur að innan. Vel útbúinn bíll t.d. upphitað stýri, sóllúga, BOSE hátalarakerfi, dual alternators, upphituð og loftkæld sæti, Z71-pakki heithúðaður pallur og kúla í palli (5th wheel pakki) og fleira. Öll standsetning innifalin í verði ásamt ábyrgð og þjónustu. VERÐ 10.890.000 m.vsk 2018 Ford F-150 Lariat Litur: Hvítur og brúnn / svartur að innan. 3,5 L Ecoboost (V6), 10-gíra, 375 hestöfl, 470 lb-ft of torque. Mojave leður sæti, bakkmyndavél, heithúðaður pallur, sóllúga, fjarstart, 20” felgur o. fl. Öll standsetn- ing innifalin í verði ásamt ábyrgð og þjónustu. VERÐ 11.530.000 m.vsk 2018 Ford F-350 King Ranch Litur: Ruby red, java að innan. 6,7L Diesel ,450 Hö, 925 ft of torque Með upphituð/loftkæld sæti, heithúðaðan pall, fjarstart og trappa í hlera, Driver altert-pakki, Trailer tow camera system og airbag í belti í aftursæti. Öll standsetning er innifalin í verði ásamt ábyrgð og þjónustu. VERÐ 10.990.000 m.vsk Dalvegi 16c | 201 Kópavogur | Sími 568 6411 | rafvorur@rafvorur.is Þvottavélar og þurrkarar sem taka 10,1 kg Amerísk heimilistæki rafvorur.isRAFVÖRUR ehf Ágúst Ásgeirsson agas@mbl.is Á áttunda hundrað her- og lögreglu- manna leitaði enn í gærkvöldi að 29 ára gömlum manni sem skaut á fólk á jólamarkaði í miðborg Strassborg- ar í Frakklandi í fyrrakvöld. Myrti hann tvo menn, sá þriðji hefur verið úrskurðaður heiladauður. Þá særði hann 13 og skildi hópa fólks, sem urðu vitni að árásinni, eftir í losti. Alls hafa 246 manns týnt lífi í til- ræðum öfgasinnaðra múslima í Frakklandi frá 2015. Í skothríðinni hrópaði hinn 29 ára gamli Cherif Chekatt. „Allahu ak- bar“ (Guð er mestur). Beitti hann sjálfvirkri skammbyssu og stakk einnig fólk með hnífi, að sögn Remy Heitz, saksóknara í málum hryðju- verkamanna. Maðurinn var á lista yfir öfga- menn sem öryggissveitir hafa fylgst með frá 2015 en hann hefur hlotið 27 refsidóma fyrir rán og ofbeldisverk í Frakklandi, Þýskalandi og Sviss. Fyrsta dóminn hlaut hann aðeins 10 ára að aldri. Fjórir einstaklingar sem tengjast Cherif Chekatt voru handteknir í Strassborg í fyrrinótt. Maðurinn bjó í Poteries, hverfi í niðurníðslu í borginni, eigi fjarri jólamarkaðinum sem dregið hefur um tvær milljónir manna til sín ár hvert. „Fjölskylda hans hefur búið hér um skeið en hann bjó sjálfur út af fyrir sig skammt frá. Hann lét lít- ið fyrir sér fara og var ekki þorp- ari,“ sagði nágranni hans við AFP- fréttastofuna. Miðborg Strassborgar var meira og minna lokuð eftir árásina og var svo enn í gærkvöldi. Bygging Evr- ópuþingsins var sömuleiðis girt af í leitinni að ódæðismanninum. Öllum viðburðum í borginni í gær var af- lýst. Jólamarkaðurinn verður áfram lokaður í dag. Þýska lögreglan tók einnig þátt í leitinni að Cherif Chekatt þar sem ekki var hægt að útiloka að hann hefði komist undan og úr landi yfir Rín. Innanríkisráðherrann Chri- stophe Castaner tjáði þinginu í Par- ís að árásarmaðurinn hefði særst í skotbardaga við hermenn sem voru við öryggisvörslu við jólamarkaðinn. Komst hann undan í leigubíl yfir í hverfið Neudorf í suðurhluta Strass- borgar. Þar sló aftur í brýnu með honum og lögreglu áður en hann hvarf úr augsýn. „Ég heyrði skothvelli og síðan varð ringulreið og upplausn. Fólk hljóp í allar áttir,“ sagði sjónarvott- ur, sem kvaðst heita Fatih, við AFP- fréttastofuna. Lögreglan hugðist handtaka Cherif Chekatt að morgni þriðju- dagsins vegna rannsóknar á morð- tilræði, að sögn aðstoðarinnanríkis- ráðherrans Laurent Nunez. Hann reyndist að heiman þegar að var komið en á heimili hans fann lög- reglan handsprengju, fjóra hnífa og hlaðna skammbyssu með 0,22 kali- bera hlaupvídd. Roland Ries, borgarstjóri í Strassborg, sagði flest fórnarlamba árásarmannsins hafa verið karl- menn. Annar hinna látnu hafi verið taílenskur ferðamaður í brúðkaups- ferð. Eitt fórnarlambanna hefur ver- ið úrskurðað heiladautt, að sögn Heitz saksóknara. „Sumir fengu byssukúlu í höfuðið,“ sagði Ries við BFM-sjónvarpið. Ítalskur blaða- maður sem skrifar frá Evrópuþing- inu særðist hættulega. Einnig var pólskur borgari meðal hinna særðu. Alls munu sex hinna særðu vera í lífshættu. Skotárásin á sér stað á sama tíma og franski forsetinn Emmanuel Macron glímir við sína erfiðustu kreppu í kjölfar mikilla mótmæla gegn stjórnarstefnu hans. Verulega mæddi þar á öryggissveitum vegna átaka og ofbeldisverka, en fimm biðu bana í mótmælunum og um 1.400 slösuðust. Frakkland skotmark frá 2015 Strax eftir árásina í Strassborg var æðsta öryggisstigi lýst í Frakk- landi og landamæravarsla stórauk- in. Einnig öryggisvarsla við aðra jólamarkaði um land allt. Frakkland hefur verið skotmark hryðjuverkamanna úr röðum músl- ima frá 2015 og löngum hefur jóla- markaðurinn í Strassborg verið tal- inn skotmark þeirra. Leyniþjón- ustusamtökin SITE sem fylgjast með jihadistum vöruðu í nýliðnum nóvember við því að árás kynni að vera yfirvofandi í Strassborg af hálfu samtaka sem tengdust ríki ísl- ams. AFP Öryggissveitir Á áttunda hundrað lögreglumanna voru kvaddir út í Strass- borg í gær og fyrrakvöld í leitinni að ódæðismanninum sem myrti þrjá . Ákallaði „Allahu akbar“ í skothríðinni  Beitti sjálfvirkri skammbyssu og stakk f́ólk með hnífi Michael Choen, fyrrverandi lög- fræðingur Don- alds Trumps Bandaríkja- forseta, var dæmdur í þriggja ára fangelsi í gær. Fyrir dóms- uppkvaðninguna játaði hann þá glæpi sem á hann voru bornir og sagði að þar á meðal væru glæpir sem Trump hefði verið bendlaður við. „Það var skylda mín að hylma yfir hans sóðalegu ódæði,“ sagði Cohen. Lögmenn hans vildu að hann slyppi við fangelsisdóm eftir að hann játaði m.a. skattabrot, brot á lögum um fjármögnun kosningabaráttu og að hafa logið að Bandaríkjaþingi. Cohen var meðal annars ákærður fyrir að greiða tveimur konum sem hótuðu því í aðdraganda forsetakosn- inganna árið 2016 að segja opin- berlega frá ástarsamböndum sínum við Trump. agas@mbl.is Cohen í fangelsi Michael Cohen Theresa May, forsætisráðherra Bretlands, stóð í gærkvöldi af sér vantraust í eigin flokki sem stefnt var henni til höfuðs. Greiddu 117 þingmenn atkvæði með vantrausti en 200 á móti. Uppreisnarmenn í þingliði Íhalds- flokksins knúðu atkvæðagreiðsluna fram vegna andstöðu við samninginn um brottför Bretlands úr Evrópu- sambandinu (ESB) sem May hefur barist fyrir með oddi og egg að fá samþykktan í þinginu. May þurfti 160 atkvæði til að halda velli sem flokksleiðtogi. Hún mun hafa sagt þingmönnum í gær, að hún myndi ekki sækjast eftir því að leiða flokkinn í næstu þingkosningum. Varnarmálaráðherrann Tobias Ellwood sagði í gærkvöldi að May stæði sterkar að kjöri loknu. Líkti hann hópnum sem knúði atkvæða- greiðsluna fram við hægrihreyf- inguna Tea Party í Bandaríkjunum. Þeir ætluðu að ræna Brexit-ferlinu en voru gómaðir. „Hópurinn endur- speglar ekki afstöðu flokksins sem ég gekk til liðs við,“ sagði Ellwood. Hópurinn sem stofnaði til at- kvæðagreiðslunnar þykir standa verr nú en áður. Eftir atkvæða- greiðsluna létu nokkrir þingmenn í ljós vonir um að reynt yrði að sætta fylkingar og ljúka þingmeðferð Brexit-samningsins. agas@mbl.is Theresa May hélt velli AFP Pressan Bresku blöðin slógu upp baráttu May til að halda velli. Atvinna

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.