Morgunblaðið - 13.12.2018, Qupperneq 53
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 13. DESEMBER 2018
Jólagjöf gr i l lmeistarans
L
Fjöldi grilla á Jólatilboði
Núerhægtaðgrilla
allt árið
Grillbúðin
Smiðjuvegi 2, Kópavogi - (við hliðina á Bónus) - Sími 554 0400
www.grillbudin.is Opið alla daga til jóla
15”
Spaði og
skeri fylgja
Fyrir grill og ofna
Þráðlaus kjöthitamælir
JÓLATILBOÐ
3.990
VERÐ ÁÐUR 4.990
Pítsusteinn
KjúklingastandurLED ljós á grillið
Stilltu á
tegund og steikingu
Mælirinn lætur þig vita
þegarmaturinn er tilbúinn
Fyrir grill ogofna
Fyrir grill
ogofna
JÓLATILBOÐ
5.990
VERÐ ÁÐUR 7.990
JÓLATILBOÐ
4.990
VERÐ ÁÐUR 6.990
JÓLATILBOÐ
1.990
VERÐ ÁÐUR 2.990
Opið alla
daga til jóla
JÓLATILBOÐ
63.900
VERÐ ÁÐUR 79.900
Frá Þýskalandi
Niðurfellanleg
hliðarborð
Vefv
ersl
un
ww
w.g
rillb
udin
.is
Þóra Sigurðardóttir
thora@mbl.is
Höfundur bókarinnar, Nina Olsson,
er fædd og uppalin í Stokkhólmi en
býr núna við ströndina í Hollandi
ásamt eiginmanni og tveimur börn-
um. Hún hefur unnið í meira en tíu ár
á skapandi hátt með mat, sem list-
rænn stjórnandi, stílisti og hönnuður.
Hún er einnig ljósmyndari. Upp-
skriftir hennar hafa birst í tímaritum
á borð við Elle, Delicious og Women’s
Health. Nina heldur úti blogginu no-
urishatelier.com og er líka á in-
stagram undir sama heiti. Bókin þyk-
ir einkar falleg og aðgengileg en hún
kom út samtímis í tíu löndum.
Lachmacun-borgari
Puy-linsur / Kóríander / Kasjúhnetu
toum / Harissa
Bragðið sem hér er kallað fram er
einkennandi fyrir tyrkneskar og ar-
menskar pitsur sem kallast lachmac-
un. Þótt lachmacun sé samkvæmt
hefðinni kjötréttur felst lykillinn að
bragðinu í samspili hitans í sterku
kryddinu og svalanum í salatinu og
hvítlauksangan kasjúhnetu toum-
sósunnar. Linsur kryddaðar með
kanil, cumin og kóríander verða að
gómsætum klatta. Ofan á hann skell-
um við svo brakandi fersku salati,
lauk og sósum.
Klattarnir
200 g sveppir, saxaðir
3 hvítlauksgeirar, marðir
250 g soðnar puy-linsur eða aðrar
dökkar linsur
2 msk. harissa, heimagert eða aðkeypt
1 tsk. malað cumin
¾ tsk. salt, meira eftir smekk
Hnífsoddur af möluðum kanil
100 g valhnetur, léttristaðar og mal-
aðar
50 g bulgur eða hýðishrísgrjón, soðin
15 g ferskur kóríander, fínt saxaður
50 g sólþurrkaðir tómatar, bleyttir,
sigtaðir og maukaðir
Malaður svartur pipar eftir smekk
Ólívuolía eða ghee (1 msk.) til steik-
ingar
4 brauð, skorin til helminga og léttr-
istuð
Ofanálag
kasjúhnetu toum
rauðlaukssneiðar
jöklasalat, rifið smátt
lúkufylli af ferskri mintu, fínt saxaðri
lúkufylli af ferskum kóríander, fínt söx-
uðum
1. Hitið ofninn í 60 °C. Hitið ólívu-
olíu eða ghee á pönnu yfir meðalhita
og steikið sveppina í 7-8 mínútur eða
þangað til allur vökvi hefur gufað upp
og sveppirnir hafa skroppið saman.
Bætið út í hvítlauk og steikið í eina
mínútu í viðbót.
2. Hrærið út í linsum, harissa,
cumin, salti og kanil. Steikið í 3-4
mínútur eða uns allur vökvi hefur
gufað upp.
3. Blandið út í valhnetum, bulgur,
kóríander og sólþurrkuðum tómöt-
um. Setjið blönduna í matvinnsluvél í
skömmtum, stillið á púls og blandið
þangað til áferðin er grófur muln-
ingur. Látið standa í kæli í 15 mín-
útur eða allt að sólarhring undir loki.
Skiptið í fernt og mótið fjóra
klatta. Steikið klattana við meðalhita
á pönnu í 2-3 mínútur á hvorri hlið
eða uns þeir eru fallega brúnaðir.
Saltið og piprið eftir smekk. Setjið
klattana á bökunarpappír á ofngrind
og bakið í 6-10 mínútur.
4. Setjið saman borgarana, notið
tyrkneskt brauð og setjið toum, rauð-
lauk, kál, mintu og kóríander á klatt-
ana.
Kasjúhnetu toum
Hvítlaukur / Sítróna / Kasjúhnetur
Geggjaður hvítlaukur! Hér er mið-
austurlensk útgáfa af aioli – toum! Í
minni útgáfu er hluta af ólívuolíunni
skipt úr fyrir kasjúhnetusmjör og
hún er geggjuð!
1 heill hvítlaukur, flysjaður
1 ½ tsk salt, meira ef með þarf
safi úr einni sítrónu, meira ef með þarf
100 g kasjúhnetur, lagðar í bleyti í 1-3
klst., gætið þess að vatnið fljóti yfir,
hellið því svo af og sigtið kasjúhnet-
urnar
100 ml jómfrúarolía
1. Setjið hvítlauk, salt og sí-
trónusafa í matvinnsluvél og blandið
uns áferðin er mjúk.
2. Bætið við bleyttum kasjúhnet-
um og blandið vel.
3. Bætið út í örlitlu vatni ef bland-
an er of þurr. Smakkið til og bragð-
bætið með sítrónusafa og salti eftir
smekk. Geymist í kæli í loftþéttri
krukku.
Gerir 150-200 g.
Hamingjuvaldandi hamborgarar
Ljósmynd/Nina Olsson
Skyldueign Bókin Góðborgarar er
ekki bara einstaklega fróðleg held-
ur er hún líka sérlega falleg.
Bókin Góðborgarar eftir Ninu Olson er komin út
og er óhætt að fullyrða að lesendur bókarinnar
og aðdáendur góðrar eldamennsku verða ekki
fyrir vonbrigðum. Í bókinni galdrar Nina fram
borgara sem eru hver öðrum girnilegri en eiga
það sameiginlegt að innihalda ekkert kjöt.
Góðborgarar Þessi dásemdarborgari er
í senn einstaklega bragðgóður og spenn-
andi – auk þess að vera bráðhollur.
Þær stórfréttir berast frá mjólkur-
vinnslunni Örnu að jólaís frá henni
sé væntanlegur í verslanir. Um er að
ræða ís með ruby-súkkulaði en eins
og alþjóð veit hefur ruby-súkkulaðið
verið kallað fjórða súkkulaðið og er
baunin bleik á litinn. Þaðan kemur
einmitt liturinn á ísnum sem er fal-
lega bleikur og kemur í glerklukkum
sem ekki eru merktar með lím-
miðum enda segir Arna María Hálf-
dánardóttir, sölu- og markaðsstjóri
Örnu, að það sé gert til að auðvelda
neytendum lífið enda margir sem
nota krukkurnar áfram þar sem þær
eru sérlega fallegar.
Að sögn Örnu hefur ísinn fengið
frábærar viðtökur hjá þeim sem
hafa smakkað og segja þeir hann
minna á ekta heimatilbúinn ís.
Ruby-ís væntanlegur