Morgunblaðið - 13.12.2018, Qupperneq 54

Morgunblaðið - 13.12.2018, Qupperneq 54
Hulda Bjarnadóttir hulda@k100.is Sigvaldi Ástríðarson sem starfar innan samtakanna fékk hug- myndina í fyrra og það var ákveðið að fylgja því eftir til gamans og búa til vegan jólasveina, segir Valgerður Árnadóttir hjá Sam- tökum grænkera. „Jólasveinarnir eru náttúrlega rosa mikið að sjúga ærnar og krækja í bjúgu og svona og við erum að ala upp börn sem eru grænkerar og þau skildu ekki alveg af hverju jóla- sveinarnir væru að borða vini þeirra,“ segir Valgerður. Hún segir Samtök grænkera sameinuð samtök Vegansamtakanna og Græn- metisæta á Íslandi, en í sameinuðu félagi segir hún nokkur hundr- uð manns. Einn jólasveinanna verður „hán“ Það sem ýtti við þeim hjá samtökunum við að láta jólasveina- grínið verða að veruleika var grínið hjá einum jólasveininum í fyrra sem sagði Grýlu bara borða vegan börn, útskýrir Valgerður. „Það fannst börnunum okkar hins vegar ekki fyndið og því ákváðum við að grínast á móti.“ Ljúfur er uppáhald Valgerðar, því hann tamdi jólaköttinn segir hún. Í viðtali í síðdegisþætti K100 upplýsti hún um leið að fjölbreytnin væri höfð að leiðarljósi og að ein jólaveran yrði hvorugskyns. Á facebooksíðu samtakanna hvetja þau alla til að taka þátt í að búa til vísur um jólaverurnar, en þar má einnig sjá fallegar myndir eftir Árna Jón Gunnarsson, teiknara jólaveranna. Vegan-jólaverur komnar til byggða Stekkjastaur, Giljagaur, Stúfur og allir hinir jólasveinarnir hafa gengið í endurnýjun líf- daga hjá félögum í Samtökum grænkera á Íslandi. Nú er það Lambafrelsir, sem kom fyrstur til byggða, Hænuhvísla sem kom í bæinn í morgun og á aðfangadagsmorgun er Smjörlíkir væntanlegur til byggða. Þó að samtökin setji þetta fram á skemmtilegan máta má merkja á Valgerði að þau vilji koma á framfæri lífsháttum veg- anismans, þar sem leitast er við að útiloka og forðast hagnýtingu og ofbeldi gagnvart dýrum, hvort sem það á við um fæðu, fatnað, skemmtun eða aðra neyslu. „Þessi hátíð felur í sér mikið dýradráp og okkur finnst svolítið leiðinlegt að kalla þetta hátíð ljóss og friðar,“ útskýrir Valgerður. Nýju jólaverurnar eru vænar og grænar og hvers manns hug- ljúfi. Sagt er að þau læðist inn í fjárhúsin og frelsi þar fé, hvísli að hænunum og klappi jólakettinum, sem er steinhættur að éta börn og malar nú sáttur upp við ofn. Lambafrelsir 11. desember Hænuhvísla 12. desember Ljúfur 13. desember Þarasmjatta 14. desember Hafraþamba 15. desember Berjatína 16. desember Tófúpressir 17. desember Hummusgerður 18. desember Vökvareykir 19. desember E-efnagægir 20. desember Raknakrefur 21. desember Plöntuklókur 22. desember Smjörlíkir 23. desember Jólaverurnar 13 Teiknari Jóla- veranna er Árni Jón Gunnarsson, en hér má sjá Lambafrelsi sem kom fyrstur til byggða. Hænuhvísla kom til byggða í morgun hjá vegan-fólki sem bjó til nýj- ar jólaverur. MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 13. DESEMBER 2018 VATN, HÚSASKJÓL OG BETRI HEILSA MEÐ ÞINNI HJÁLP! •Valgreiðsla í heimabanka: 2.500 krónur •Söfnunarsími 907 2003: 2.500 krónur •Framlag að eigin vali á framlag.is • Söfnunarreikningur 0334-26-50886 kennitala 450670-0499 HJÁLP TIL SJÁLFSHJÁLPAR Alþjóðlegt hjálparstarf kirkna – Action by Churches Together Í vikunni var sagt frá því að fjöl- margar líkamsræktarstöðvar hefðu ákveðið að sameinast um að grípa til aðgerða til að útrýma ólöglegum sterum úr stöðvum sínum og úthýsa fólki sem notar efnin. Jón Axel, Kristín Sif og Ásgeir Páll heyrðu í konu sem virtist auðveldlega geta útvegað þeim ávanabindandi efni. Á konunni mátti skilja að það væri mikið að gera í sölunni á þess- um árstíma og eftirspurnin gríð- armikil. Framleiðslan er langt kom- in og í raun að verða búin og gæti því reynst erfitt að verða sér úti um skammta af þessari vöru sem er gríðarvinsæl. Konan, sem starfar sem milliliður í viðskiptunum, sagði við þáttarstjórnendur að hún gæti þó liðsinnt þeim í að nálgast vöruna ef vilji væri fyrir hendi. Aðspurð hvort auðvelt væri að nálgast efni til framleiðslunnar sagði konan að fyrst og fremst þyrfti góða kunn- áttu til þess og aðilinn sem hún starfar fyrir hefði mikla reynslu og þekkingu í því að búa efnin til. Í viðtalinu við umrædda konu, sem kom ekki fram undir nafni, kom fram að framleiðslan færi oft á tíðum fram í heimahúsum hér á landi og ferlið tæki í raun ekki lang- an tíma. Þannig tæki um klukku- tíma að búa til 100 stykki af efninu. Hún tók sérstaklega fram að mikil neysla hefði þau áhrif að fólk stækkaði mikið og auk þess væri erfitt að hætta að nota vöruna þar sem þetta væri gríðarlega ávana- bindandi. Undir lok viðtalsins benti hún á að aðalmaðurinn í framleiðslunni væri drengur á grunnskólaaldri og nyti aðstoðar móður sinnar. Það mátti heyra saumnál detta í hljóð- verinu en þegar Jón Axel gat loks stunið upp spurningu og spurt hver söluvaran væri sagði konan að hún væri að tala um sörur sem ganga kaupum og sölum nú fyrir jólin. Þó að hlustendum hafi létt við þessar fréttir sagði Kristín Sif eftir þáttinn að ekki yrði leitað til sömu heimild- armanna við undirbúning viðtala í framtíðinni. islandvaknar@k100.is Íslensk framleiðsla Í kjölfar umræðu um ólöglega stera ákváðu stjórn- endur þáttarins Ísland vaknar að reyna að komast í samband við sölumann til að kanna hversu auðvelt það væri að nálgast stera. Ísland vaknar reyndi að kaupa ólöglega stera
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.