Morgunblaðið - 13.12.2018, Síða 57

Morgunblaðið - 13.12.2018, Síða 57
MINNINGAR 57 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 13. DESEMBER 2018 ✝ Guðný AnnaEyjólfsdóttir fæddist í Múla í Gufudalssveit 19. desember 1929. Hún lést á hjúkr- unarheimilinu Boðaþingi hinn 16. nóvember 2018. Foreldrar henn- ar voru Eyjólfur Magnússon, f. 16. febrúar 1896, d. 17. júní 1994, og Ingibjörg Há- konardóttir, f. 14. nóvember 1894, d. 7. september 1970. Guðný var yngst sjö systkina, en þau voru í aldursröð: Brynhild- ur, Þorvarður Trausti, Arndís, Guðrún Ingibjörg og Guðný Jó- hanna, sem dó aðeins eins árs gömul sama ár og Guðný Anna fæddist. Synir Hauks og Guðnýjar eru: 1) Rúnar Gils bókbindari, f. 7. júlí 1951. 2) Jón Hjálmar hús- gagnasmiður, f. 29. ágúst 1952, kvæntur Ike Tloju- Hauksson, f. 25. september 1966, Dóttir þeirra er Alma Asa, f. 8. sept- ember 1999. Dóttir Jóns af fyrra hjóna- bandi er Guðný Ragna, f. 30. sept- ember 1973, í sam- búð með Árna Frí- manni Jónssyni, f. 6. ágúst 1955. Dæt- ur þeirra eru Júlíana Rún, f. 2010, og Ragnheiður Anna, f. 2012. 3) Hannes viðskiptafræð- ingur, f. 20. ágúst 1958, kvæntur Hjördísi Gunnarsdóttur, f. 27. janúar 1958. Dóttir þeirra er Harpa, f. 8. nóvember 1982, í sambúð með Heiðari Theódóri Heiðarssyni, f. 18. nóvember 1983. Dóttir þeirra er Díana Lind, f. 2015. Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Elsku amma mín. Ég er ennþá að reyna að átta mig á því að ég hitti þig ekki aft- ur, að ég geti ekki hringt í þig og að þú eigir ekki eftir að læka fleiri myndir á Facebook. Þó að þú hefðir orðið 89 ára í desember, þá fórstu snöggt og stöndum við öll eftir í sjokki. En ég veit að nú ertu laus við verki og vanlíðan og að nú ertu komin til afa. Ég er svo þakklát fyrir að hafa náð að hitta þig deginum áður en þú kvaddir. En þú kvaddir með allt fólkið þitt í kringum þig og þú slepptir ekki takinu fyrr en allir voru hjá þér. Amma, þú varst límið í þessari „stóru“ fjölskyldu okkar og þín verður sárt saknað. Takk fyrir allar minningarnar sem ég eignaðist með þér og þær mun ég varðveita alla mína ævi. Nú ertu horfinn í himnanna borg Og hlýðir á englanna tal. Burtu er kvíði, sjúkdómur, sorg Í sólbjörtum himnanna sal. (Ingibjörg Jónsdóttir) Hvíl í friði, elsku amma mín. PS. „Bless, langaamma, knús, Díana. Þín, Harpa. Guðný Anna Eyjólfsdóttir Amma Beta, eins og við í fjölskyld- unni kölluðum hana gjarnan, hefur fengið hvíld. Hún lést sex dögum eftir hundrað ára afmælið sitt. Hún gat ekki notið þeirra merku tímamóta. Amma Beta var afburða- greind en hafði ekki tækifæri til að stunda nám eftir eins árs setu í Kvennaskólanum. Hún lék sér að því að leysa erfiðar kross- gátur og mátaði hámenntaða syni sína í skák. Hún giftist ung Bjarna, sem hafði verið fljótur að sjá hvað hún var gott kvonfang. Lífsbar- áttan varð hörð. Hjónin þurftu að flytja til ættingja í Landeyj- um fyrir stríð, því enga vinnu var að fá á mölinni. Bjarni setti síðar upp járnsmíðaverkstæði við Bergstaðastræti. Beta sá um börn og bú. Hún var myndarleg húsmóðir og fór vel með. Hún ræktaði kartöflur og rabarbara til heimilisins í kálgörðum, sem voru í Kringlumýri. Snemma fór hún að prjóna peysur á drengina sína. Þeir kunnu ekki að meta fínu handprjónuðu peysurnar. Þá var eftirsóttara að eignast peysu úr búð. Amma Beta prjónaði síðar óteljandi lopapeysur fyrir Ís- lenskan heimilisiðnað. Elísabet Bretadrottning kom í búðina og dáðist þar að einni peysunni, sem hún fékk að gjöf. Henni var sagt að nafna hennar hefði prjónað hana. Síðar kom bréf frá breska konungsembættinu með þakk- læti fyrir peysuna, þar sem drottningin sagðist alltaf minn- ast Íslandsferðarinnar, þegar hún færi í hana. Amma Beta og konurnar í Íslenskum heimilis- iðnaði voru mjög stoltar. Fjöl- skyldan naut einnig góðs af Elísabet Þorkelsdóttir ✝ Elísabet Þor-kelsdóttir fæddist 14. nóv- ember 1918. Hún lést 20. nóvember 2018. Útför Elísabetar fór fram 10. desem- ber 2018. myndarskapnum og fengum við fallegar peysur frá henni, sem við kunnum vel að meta. Þegar börnin voru orðin stálpuð fór hún að vinna í Kjötbúðinni Borg og reyndist þar góður starfskraftur. Beta og Bjarni komu sér upp sumarhúsi á gullfallegum stað í Grafningi við Þingvallavatn. Dvöldu þau þar nánast allar helgar á sumrin og nutu náttúr- unnar. Húsið, sem var nefnt Hytta, var ekki stórt, en tekið var á móti öllum með hjartahlýju og gestrisni. Við fórum þangað oft með börnin okkar. Beta lum- aði alltaf á einhverju góðgæti og töfraði fram gómsæta kjúklinga á kolaofninum. Hún bjó í íbúðinni sinni við Hrísateig, sem þau hjónin höfðu komið sér upp, eins lengi og hún gat. Hún var snillingur í pönnu- kökubakstri. Öllum, sem komu í heimsókn, var boðið upp á pönnsur. Bolludagsbollurnar með rjómasúkkulaði gleymast ekki. Amma Beta tók mér vel þegar eldri sonur hennar kynnti mig fyrir henni. Ég var skólastelpa sem kunni hvorki mikið um hús- hald né prjónaskap. Hún var alltaf tilbúin að leiðbeina mér ef ég lagði í það að byrja að prjóna peysu eða sauma flík. Reyndar dró hún mig oft að landi. Hún sleppti því alveg að setja út á mig eða það, sem ég tók mér fyr- ir hendur, og reyndi frekar að hjálpa til. Lengi hélt hún þeim sið að bjóða fjölskyldunni í mat á sunnudögum. Eftir lát Bjarna sótti Þorkell hana á laugardög- um. Þá var vaninn að aka niður Laugaveginn og minnast gam- alla tíma áður en kvöldmaturinn var snæddur. Elsku amma Beta. Ég óska þér alls góðs á nýjum vegum og þakka fyrir samfylgdina hér. Megir þú ávallt vera umvafin kærleika Guðs. Ása Kristín. ✝ Gyðríður ElínÓladóttir fæddist 17. nóv- ember 1941 í Reykjavík. Gyða lést á Hjúkr- unarheimilinu Skjóli 3. desember 2018 eftir skamm- vinn veikindi. Hún var yngst fjögurra barna þeirra hjóna Óla Péturs Möller, skólastjóra frá Sauðanesi á Langanesi, og Helgu Jónu Elías- dóttur, kennara frá Hörgsdal á Síðu. Systkini hennar voru þau Elías Pálmi og Sigríður sem eru látin en Davíð bróðir hennar kveður systur sína í dag. Gyðríður ólst upp á Þórshöfn á Langanesi til 14 ára aldurs. Þaðan lá leiðin í Reykholt í Biskupstungum, þar sem for- eldrar hennar tóku við skól- anum. Eftir það fluttist Gyða til Reykjavíkur og kynntist þar fyrri sambýlismanni sínum, Magnúsi Jenssyni, f. 1934, en hann varð bráðkvaddur 24. júlí 1970. Gyða kynnist eftirlifandi eig- inmanni sínum, Gerðari Óla Þórð- arsyni skipstjóra, f. 20.4. 1940, árið 1973. Börn Gyðr- íðar og Gerðars eru Jónína Ingi- björg, f. 5.10. 1974, og Magnús, f. 12.7. 1977. Dóttir Jónínu Ingibjargar er Gunnhildur Snorradóttir, f. 12. des. 2001. Frá fyrra hjónabandi átti Gerðar dótturina Gyðu Hrönn, f. 26.9. 1962, og fóst- urdótturina Lilju Báru Stein- þórsdóttur, f. 7.10. 1957. Gerðar og Gyðríður byrjuðu búskap sinn í Karfavogi en fluttu þaðan til Þorlákshafnar. Lengst af voru þau í Keflavík eða allt þar til þau fluttu 2004 á Grænlandsleið í Reykjavík. Gyða vann ýmis störf um æv- ina, meðal annars í Kútógler, efnalaug og frystihúsi, en fyrst og fremst var hún húsmóðir, móðir og amma. Útför Gyðu fer fram frá Guð- ríðarkirkju í Grafarholti í dag, 13. desember 2018, klukkan 13. Ég minnist móður minnar sem sterkrar konu frá upphafi til enda. Fyrstu minningar mín- ar eru þegar við bjuggum á Framnesvegi, þar sem móðir mín var kasólétt að Magnúsi bróður. Ég var mikill flökkupési á þessum tíma og hafði tekið upp á því að príla upp á þvotta- vél og opna þannig útidyr og hlaupa út. Það var ósjaldan sem mamma kom út hlaupandi á eftir mér í blárósóttum kjól eða skyrtu með gulum blómum og með viska- stykki á öxlinni þegar ég laum- aði mér niður Hafnargötuna í Keflavík með risastóra Línu langsokks-dúkku í eftirdragi. Margar minningar á ég um rútuferðir okkar til Reykjavík- ur, þegar pabbi var úti á sjó og mamma fór með okkur krakk- ana í heimsókn til Helgu ömmu. Einnig mátti þessi kona þola frá okkur krökkunum ýmis uppá- tæki, meðal annars að við tækj- um stofustólana, snerum þeim á hvolf og rifum út úr fataskápum lök og sængurver því við þótt- umst vera að búa til hús úr þeim. Þegar ég var orðin fullorðnari var mamma mín mjög dugleg að koma með á rúntinn og lyfta sér upp. Mamma var mikil stoð og stytta og okkar besti leikfélagi og vinur. Hún var vinur vina sinna. Mamma var með mörg lífs- mottó, sem ég ætla bara að halda fyrir mig en hún hafði ávallt að leiðarljósi orðin: Listin að lifa er fólgin í því að útiloka það sem skiptir ekki máli. Einnig reyndi hún að inn- prenta okkur krökkunum ýmsa góða lífsspeki, alúð, samkennd, heiðarleika og góðmennsku, sem ég vona að muni skila sér. Minning um Gyðríði móður mína verður ávallt borin í hjarta mínu. Hvíl í friði elsku mamma. Þín dóttir, Jónína Ingibjörg Gerðarsdóttir. Nú er hún Gyða mín farin yfir í sumarlandið. Okkar fyrstu kynni, þegar ég var 11 ára göm- ul, og fjölmargar samverustund- ir eftir það leita á hugann við þessi tímamót. Ellefu ára Gyða Hrönn var á varðbergi gagnvart hugsanlegum kærustum, að ekki sé minnst á möguleikanum á nýrri konu, fyrir hann pabba minn. Það gladdi mitt litla barnshjarta að ekki fylgdu henni önnur börn. Þegar hún varð ófrísk skömmu eftir að þau kynntust var þetta jú systkini mitt sem var á leiðinni. Svo var nú ekkert verra að hún væri kölluð Gyða. Já, það örlar snemma á eigingirninni. Gyða, eða Gyðríður Elín, tók mér afsaklega vel frá byrjun og það voru ófá spilin sem við spil- uðum saman, rommý, ólsen ól- sen og rakki svo eitthvað sé nefnt. Ég minnist þess sérstak- lega í Karfavoginum þar sem hún og pabbi hófu hjúskap sinn að það var alltaf tekið í spil. Þetta var eitthvað fyrir mig enda vön spilamennsku við eldri systur mína hana Lilju Báru, svo ég tali nú ekki um öll spilin við hann afa heitinn Þórð. Atvik á giftingardegi pabba og Gyðu, sem var gamlársdagur, er sérstaklega minnisstætt. Eft- ir vígsluna voru þau svo utan við sig að það gleymdist að taka litlu systur mína með út í bíl eft- ir giftinguna sem fór fram í heimahúsi hjá prestinum, séra Árelíusi, ég stóð í þeirri mein- ingu að það væri mér að þakka að Jónína systir var ekki skilin eftir. Það vantaði ekki hug- myndaflugið. Ég kynntist líka móður Gyðu, Helgu Elíasdóttur, sem var af- skaplega ljúf og góð kona og kom strax fram við mig eins og besta amma. Ég fór í margar heimsóknir til Helgu heitinnar sem hélt heimili á Laufásvegi 18 og þar var ég ávallt velkomin. Síðar var ég oft hjá pabba og Gyðu í Þorlákshöfn sem ung- lingur og þá þurfti að taka vin- konurnar með. Það var ýmislegt brallað á Eyjahrauni í Þorlákshöfn en hún nafna mín tók öllum uppá- tækjum hjá mér og vinkonum mínum með jafnaðargeði og leyfði mér að komast upp með flest sem ég vildi gera. Seinna fluttu þau til Keflavíkur og þar kom svo Magnús bróðir í heim- inn. Eftir að ég stofnaði sjálf heimili í Keflavík var samgang- urinn sérstaklega mikill, ég var eins og grár köttur hjá þeim og þau voru tíðir gestir hjá mér þar og reyndar alltaf síðan. Seinna bættist svo Gunný okkar í hóp- inn og sást þá vel hvað ömmu- hlutverið fór Gyðu vel. Það er margs að minnast eftir að hafa verið samferða góðri konu og vinkonu í svo mörg ár en það sem stendur upp úr er að Gyða var góð kona, mikil hús- móðir, móðir, amma og síðast en ekki síst góð eiginkona og vinur og ferðafélagi hans pabba míns. Takk, elsku nafna, fyrir árin okkar saman – minning þín mun lifa með mér og okkur öllum. Gyða Hrönn Gerðarsdóttir. Þá er hún farin, blessunin! Þessar fréttir komu ekki alveg á óvart eftir erfið veikindi. Gyða ólst upp í foreldrahús- um, Sólvöllum á Þórshöfn. Barn- margt var í hverju húsi á þeim tíma og vinskapur varð til milli þeirra sem næst bjuggu. Þar léku sér saman jafnöldrur neðar í þorpinu ofan við sandinn, en stelpurnar uppi á holti voru í öðrum hópi og samgangur ekki svo mikill nema í skólanum. Síðar fluttist Gyða suður ásamt foreldrum sínum og bjuggu þau sér heimili í Karfa- vogi í Reykjavík. Þar bjó hún ung og glæsileg kona. Gott var að koma í Karfavog, þar sem alltaf var nóg pláss fyrir gesti. Hin síðari ár var gaman þeg- ar dyrabjallan hringdi á kvöldin og hjónin litu inn. Fyrst var far- ið yfir óstjórn í landsmálum. Svo voru þættir að norðan í sjón- varpinu. Þá voru rifjaðar upp minningar af svæðinu og fólkinu sem kom fram. Gyða fylgdist alla tíð vel með því sem gerðist á Þórshöfn. Þetta voru góðar stundir. Blessuð sé minning þín. Þín mágkona, Elsa. Gyðríður Elín Óladóttir Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, EBBA INGIBJÖRG MAGNÚSDÓTTIR, Höfðagrund 21, Akranesi, lést á Heilbrigðisstofnun Vesturlands Akranesi laugardaginn 8. desember. Útförin fer fram frá Akraneskirkju mánudaginn 17. desember klukkan 13. Lilja Björk Högnadóttir Haraldur Friðriksson Magnús Högnason Hrund Valgeirsdóttir barnabörn og barnabarnabörn Ástkær eiginmaður, faðir, tengdafaðir, bróðir, mágur og afi, ÁSGEIR PÁLL SIGTRYGGSSON, Þórsbergi 2, Hafnarfirði, varð bráðkvaddur föstudaginn 7. desember. Útför fer fram frá Hafnarfjarðarkirkju mánudaginn 17. desember klukkan 13. Heiða Theodórs Kristjánsdóttir Bjarney Sigrún Ásgeirsdóttir Darri Mikaelsson Berglind Sigríður Ásgeirsd. Helgi Dagur Þórhallsson Valgerður Sif Ásgeirsdóttir Bryndís Lilja Ásgeirsdóttir Snædís María Ásgeirsdóttir Brynjar Sigtryggsson Anna Margrét Guðmundsd. Sigurveig K. Sigtryggsdóttir Pétur Steingrímsson og barnabörn Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, VALTÝR BJÖRGVIN GRÍMSSON, Blómvangi 14, Hafnarfirði, lést laugardaginn 8. desember. Útförin fer fram frá Hafnarfjarðarkirkju miðvikudaginn 19. desember klukkan 13. Auður Þórhallsdóttir Helga Valtýsdóttir Sigurður S. Antonsson Hugrún Valtýsdóttir Jón Ingi Björnsson Guðmunda Björk Hjaltested og barnabörn Ástkær faðir okkar, KONRÁÐ ANTONSSON, Vesturgötu 11, Ólafsfirði, andaðist sunnudaginn 9. desember, á hjúkrunarheimilinu Hornbrekku. Útför hans verður gerð frá Ólafsfjarðarkirkju föstudaginn 14. desember klukkan 14. Dagbjört S. Guðmundsdóttir Axel Axelsson Guðmundur Konráðsson Rósa Ruth Jóhannsdóttir Viðar Konráðsson Díana B. Hólmsteinsdóttir Anton Konráðsson Greta K. Ólafsdóttir
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.