Morgunblaðið - 13.12.2018, Side 68
68 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 13. DESEMBER 2018
Fyrir fjórtán árum gáfu ljósmynd-
ararnir Einar Snorri Einarsson og
Eiður Snorri Eysteinsson út ljós-
myndabókina Barflies og í voru ljós-
myndir af gestum Kaffibarsins.
Myndirnar voru allar með sama
sniði, svart-hvítar myndir þar sem
fyrirsætan horfir upp í 50 mm linsu
á Hasselblad-myndavél, oftar en
ekki óræð á svip. Myndirnar voru
teknar frá árinu 1993 fram til 1994,
en stuttu eftir að bókin kom út flutt-
ust þeir Einar og Eiður vestur um
haf og hafa búið og starfað í Banda-
ríkjunum að mestu upp frá því.
Fyrir stuttu kom út bókin
Barflies Reykjavík 2 sem þeir
eru einnig skrifaði fyrir, en nú
sem Snorri Bros. Bókin er gefin
út í tilefni af 25 ára afmæli Kaffi-
barsins og í henni eru myndir
sem teknar hafa verið frá því
fyrri bókin kom út og einnig
nokkrar eldri sem ekki komust í
þá bók. Alls eru í bókinni 280
ljósmyndir af fólki. Jón Kaldal
skrifar inngang að bókinni og
Cchuk Cors eftirmála, en bókin
er á ensku eins og heiti hennar
ber með sér.
Fleiri barflugur
Írska skáldkonan Sally Rooney
hlaut nýverið helstu bókmennta-
verðlaun Írlands fyrir skáldsögu
sína Normal People sem fengið hef-
ur framúrskarandi dóma í írskum
og breskum fjölmiðlum. Hún hlaut
einnig bókmenntaverðlaun Wat-
erstones-verslunarkeðjunnar sem
bók ársins. Normal People var
einnig tilnefnd til bresku Booker-
verðlaunanna og er tilnefnd til
Costa-verðlaunanna sem afhent
verða í janúar.
Normal People er önnur skáld-
saga Rooney, en fyrsta skáldsaga
hennar, Con-
versations with
Friends, sem
heitir Okkar á
milli í íslenskri
útgáfu, var einn-
ig tilnefnd til
fjölda verðlauna.
Meðal bókanna
sem slógust um
verðlaunin írsku
voru Milkman eftir Anna Burns
sem hlaut Booker-verðlaunin, og
From a Low and Quiet Sea eftir
Donal Ryan.
Verðlaun til Rooney
Sally Rooney
Lesendur Morgunblaðsinsþekkja vel til verkaRagnars Axelssonar.Ljósmyndir hans hafa
birst hér í blaðinu um áratuga-
skeið. Í myndabálkum hans birtust
bæði geimar og kimar lands og
þjóðar sem ritstjórn birti flenn-
istórar á opnum sínum. Fáir prent-
miðlar íslenskir hafa sýnt ljós-
myndara líka rækt og Mogginn
Raxa.
Í myndheimi Raxa tókust lengi á
maður, land, himinn og haf, stilli-
birta og válynd veður. Hann var
fundvís á þá staði sem voru utan al-
faraleiða, leitaði uppi fólk við ysta
haf, sýndi okkur daglega önn horf-
inna lífshátta, naut sinnar þægilegu
nándar og skóp traust milli miðils
og manns sem til þarf að tryggja
góða töku. Safn slíkra mynda höf-
um við séð á fyrri bókum hans.
Þótt landið í ógnandi fegurð sinni
hafi löngum sést í ljósmyndum
Raxa hefur hann lengst einblínt á
manninn í landinu. Á sýningu sinni
í Ásmundarsal í liðnum mánuði og
nú á nýútkominni myndabók, Jökli,
mænir hann á landið: í ellefu þátt-
um rýnir hann í jökulinn og ólíkar
myndir vatnsins, frá ísbjörgum til
leysinga, frá tindum til ósa.
Sum efnin hafa áður ratað inn í
bækur hans: upphafsþátturinn,
Tindar, sýnir bólstrastál á Snæ-
fellsjökli sem áður birtist í Andlit-
um norðursins (2016, bls. 20-21).
Hér er syrpan lengri og maðurinn
horfinn. Stálið er líkast reykbólstr-
um, magnað af skini sem snertir
aðeins tinda í jökulbreiðunni. Við
erum á flugi og horfum niður á
áferð jöklanna sem fuglinn fljúg-
andi. Ný sýn er okkur birt af land-
inu.
Næst rennir hans sér yfir gjá-
beltin í skríðandi hellunni, flekarnir
mjakast áfram með djúpum gjám,
taumar eftir hlíðum og milli þeirra
öskugrá hrunbörð í bland við
mjúka flauma í snjónum. Náttúru-
sýnin tekur á sig form og verður
afstrakt. Myndsmiðurinn teygir sig
í átt að myndheimi sem er handan
við kunnuglegar náttúrumyndir í
átt að hinu óræða, brotnum
mynstrum með háttríkri hrynjandi
íssins í kaflanum Sprungur.
Mikilleiki stærðarinnar magnast
enn í þeim kafla sem hann kallar
Rúnir: þar takast á tónar gráskala
ösku og íss og myndefnið er úr
þessum heimi. Teiknarinn sem dró
þessar ristur sýnir okkur ógnarvald
sitt og skrásetjarinn myndasmið-
urinn bregst ekki í að finna styrka
myndbyggingu í hverjum ramma.
Í Bráðnun mýkjast línurnar,
formin verða ávöl í dvínandi birtu,
langir skuggar togast yfir gáróttan
frerann. Langt niðri sér í örsmáan
grip svo skyndilega verða hlutföllin
ljós: Flugvél á ferð yfir breiðuna
sem er í jaðri myndarinnar skorin
sprungubaugum.
Ösku-kafli verksins sýnir Eyja-
fjallajökul og þá miklu umbreyt-
ingu er svarta öskuna leggur yfir
hvíta breiðuna svo nú er hún myrk
rist hvítum rúnum. Á sama hátt
eykst fjölbreytileiki formanna sem
ljósmyndirnar sýna í kafla sem
helgaður er Hellum jöklanna, þar
er áferðin enn fjær fjallasýn okkar
og tekur á sig torkennilegar mynd-
ir með gljúpum formum óreiðu og
upplausnar. Þær myndir eru ekki
af þessum heimi.
Þá eru ótaldir kaflarnir Sporðar
og Lón. Allt verkið er þannig
skipulagt frá hinu hæsta til hins
lægsta. Bókin er aflöng, hún verður
að hvíla á sléttu við skoðun. Papp-
írinn er þykkur og tekur í kjöl.
Umbrot Einars Geirs er yfirlætis-
laust og tekur ekki athygli frá
meginefninu, ljósmyndunum.
Textar Raxa eru knappir, nákvæm-
ar staðsetningar hvers myndflatar
eru ekki birtar enda er myndefnið
horfið og breytt. Prentun er sem í
Andlitum norðursins einstaklega
vönduð frá þeim hjá Faenza á Ítal-
íu. Útgáfan er styrkt af Vinum
Vatnajökuls og skrifa þeir Ólafur
Elíasson og Tómas Guðbjartsson
formála og eftirmála sem falla al-
veg í skuggann af mikilleik þess
myndefnis sem hér birtist.
Jökull Ragnars Axelssonar er
myndlist frekar en listljósmyndun.
Hann rífur gat á þanin og þunn skil
milli ljósmynda og myndverka.
Bókin hans er listaverk frekar en
vandað bókverk.
Í síðasta textakafla sínum víkur
hann að þeirri yfirvofandi stað-
reynd að brátt kunna jöklar að
hverfa af jörðinni, fyrirboða enn
válegri tíðinda flóða og tortímingar
strandbyggða okkar daga. Mynd-
heimur Jökuls sýnir ægilegan heim
sem á fyrri stigum menningar
mannsins lagði undir sig stóran
hluta álfu okkar. Við vitum ei hvers
biðja ber. Verkið er þannig áminn-
ing um smæð okkar.
Úr lofti séð
Ljósmynd/Ragnar Axelsson
Jökull Bók Ragnars „er myndlist frekar en listljósmyndun. Hann rífur gat á þanin og þunn skil milli ljósmynda og myndverka. Bókin hans er listaverk frekar en vandað bókverk,“ skrifar rýnir.
Ljósmyndir
Jökull bbbbb
Eftir Ragnar Axelsson.
Querndu, 2018. 200 bls. í stóru broti.
PÁLL BALDVIN
BALDVINSSON
BÆKUR