Morgunblaðið - 12.01.2019, Page 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. JANÚAR 2019
Viðskiptablaðið sagði í vikunnifrá talningu á viðmælendum í
Silfri Ríkisútvarpsins: „Tímaritið
Þjóðmál lagði
það á sig á dög-
unum að telja
viðmælendur,
sem tóku þátt í
„vettvangi
dagsins“ í hin-
um vinsæla um-
ræðuþætti Silfri Egils í Ríkissjón-
varpinu nú á haustönn.
Þar voru teknir tali 59 mannsfyrir jól (nokkrir tvisvar), en
Þjóðmál röðuðu þeim eftir stjórn-
málaviðhorfi, til hægri, vinstri og
miðju, en auk þess voru nokkrir –
aðallega blaðamenn – merktir hlut-
lausir, þó eflaust mætti skipa þeim
sumum á pólitískan bekk.
Meira en helmingurinn reynd-ust vinstrimenn. Það er ekki í
neinu samræmi við fylgi flokka og
varla í góðu samræmi við skyldur
Rúv. um hlutleysi, jafnvægi og
miðlun ólíkra skoðana.“
Í lögum um Ríkisútvarpið segir aðþað skuli í starfsháttum sínum
„[á]byrgjast að sanngirni og hlut-
lægni sé gætt í frásögn, túlkun og
dagskrárgerð, leitað sé upplýsinga
frá báðum eða öllum aðilum og
sjónarmið þeirra kynnt sem jafn-
ast“.
Auðvitað vita allir að Ríkis-útvarpið brýtur þetta laga-
ákvæði reglulega og gróflega. Nú
liggur fyrir talning um augljóst
lögbrot þessarar ríkisstofnunar „í
almannaþágu“ eins og segir líka í
lögunum.
Ætli talningin verði til þess aðeitthvað verði gert til að fá
Rúv. til að fara að lögum? Það er
ekki líklegt.
RÚV okkar allra
á vinstri vængnum
STAKSTEINAR
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
20–60%
afsláttur
af völdum raftækjum meðan birgðir endast.
Rýmum fyrir nýjum vörum.
Fríform ehf.
Askalind 3,
201 Kópavogur.
562–1500
Friform.is
Ofnar.
Keramik–, span– og gashelluborð.
Veggháfar og veggviftur.
Gaseldavélar.
Kæliskápar.
LAGERHREINSUN
Stjórn Faxaflóahafna samþykkti á
fundi í gær að heimila Gísla Gíslasyni
hafnarstjóra að ganga frá smíða-
samningi á nýjum dráttarbáti sam-
kvæmt tilboði Damen Shipyards í
Hollandi.
Tilboðið hljóðaði upp á 7.594.00
evrur, eða jafnvirði tæplega 1.040
milljóna íslenskra króna. Þessi
ákvörðun var tekin á grundvelli nið-
urstöðu mats ráðgjafa og óháðs aðila
á fyrirliggjandi tilboðum.
Tilboð í smíði á nýjum dráttarbáti
voru opnuð í nóvember sl. Báturinn
átti að vera um 33 metrar á lengd og
hafa 80 tonna togkraft.
Alls bárust 15 tilboð frá átta skipa-
smíðastöðvum og voru upphæðir á
bilinu 844 til 1.394 milljónir. Lægsta
tilboðið var frá skipasmíðastöð í
Tyrklandi. Við mat á tilboðum gilti
verð 50% og gæði 50%
Í minnisblaði Gísla Jóhanns Halls-
sonar yfirhafnsögumanns kemur
fram að eftir yfirferð tilboðanna fékk
bátur Damen Shipyards hæstu
heildareinkunn, þegar búið var að
leggja saman einkunn fyrir verð og
gæði. Takist samningar er reiknað
með að báturinn verði afhentur í
febrúar 2020. Þeir bátar sem Faxa-
flóahafnir hafa nú yfir að ráða eru
allir frá hollensku skipasmíðastöð-
inni. sisi@mbl.is
Nýr bátur smíðaður í Hollandi
Tilboð í nýjan dráttarbát tæpar 1.040
milljónir Tilbúinn í ársbyrjun 2020
Morgunblaðið/Ómar
Magni Hann er stærsti og öflugasti
dráttarbátur Faxaflóhafna núna.
Dyravörðurinn sem er lamaður fyrir
neðan háls eftir árás á skemmti-
staðnum Shooters 26. ágúst segir að
Artur Pawel Wisocki hafi kýlt eða
sparkað í sig með þeim afleiðingum
að hann féll niður tröppurnar á
staðnum. Artur heldur því fram að
dyravörðurinn hafi dottið.
Þetta sagði saksóknari við aðal-
meðferð í Héraðsdómi Reykjavíkur í
gær í máli tveggja manna sem
ákærðir eru fyrir alvarlega líkams-
árás gegn dyraverði á skemmti-
staðnum Shooters.
Skýrsla var tekin af slasaða dyra-
verðinum á Grensásdeild Landspít-
alans í hádeginu í gær. Hann hefur
dvalið þar síðan í lok september og
er búist við því að hann verði þar í
allt að eitt ár.
Dyravörðurinn sagði að Artur
hefði kýlt eða sparkað og svo haldið
áfram að láta höggin dynja þar sem
hann lá og gat ekki hreyft sig.
Fyrir liggur að Artur og hinn sem
ákærður er, Dawid Kornacki, komu
ásamt tveimur öðrum mönnum og
réðust að dyravörðunum á Shooters.
Artur elti annan dyravörðinn að
bakdyrum staðarins og segir hann
hafa fallið þar niður tröppur.
Hinn dyravörðurinn kom fyrir
dóminn í gær. Sá sagði að dyraverð-
irnir hefðu lent í vandræðum með
hóp manna. Þeim hefði verið hent út
eftir að einn þeirra reyndi ítrekað að
fara út af staðnum með glerglas, sem
dyravörðurinn sagði að væri bannað.
Við það hefðu mennirnir reiðst,
haft í hótunum við dyraverðina og
sagt að þeir myndu snúa aftur. Hann
telur að um hálftími hafi liðið áður en
mennirnir sneru aftur á Shooters.
„Þá komu fimm eða sex menn og
það var kallað á mig en ég var á kló-
settinu en vinur minn, sá sem lam-
aðist, kallaði eftir aðstoð,“ sagði
dyravörðurinn.
Hlé var gert á aðalmeðferð máls-
ins og heldur hún áfram 28. janúar.
Kýldi og sparkaði í
dyravörð Shooters
Aðalmeðferð í máli árásarmanna
Morgunblaðið/Eggert
Aðalmeðferð Artur ásamt lög-
manni sínum í héraðsdómi í gær.