Morgunblaðið - 12.01.2019, Blaðsíða 42
42 ÍSLENDINGAR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. JANÚAR 2019
Brynhildur Bolladóttir, upplýsingafulltrúi hjá Rauða krossinum,á 30 ára afmæli í dag. Hún er reyndar í fæðingarorlofi því 29.nóvember eignaðist hún dóttur með sambýlismanni sínum,
Hrafni Jónssyni kvikmyndagerðarmanni.
„Hún er því orðin sex vikna og allt hefur gengið eins og í sögu. Það
er ekki búið að nefna hana en það er í vinnslu. Þetta er nýtt hlutverk
hjá manni allt í einu, er farin að sinna einhverjum öðrum en manni
sjálfum, en það er mjög fínt.“
Brynhildur er með meistaragráðu í lögfræði frá Háskóla Íslands og
er búin að vinna hjá Rauða krossinum í rúm tvö ár og ætlar að snúa
þangað aftur í haust.
„Fyrst eftir að ég kláraði námið vann ég smástund hjá Reykjavíkur-
borg og svo fór ég að vinna á auglýsingastofu. Ég var búin að vera
smá leitandi en svo fór ég til Rauða krossins og þá fannst mér ég vera
búin að finna mína fjöl. Það er mjög gefandi að vinna þágu í einhvers
góðs og finnast það sem maður er að gera skipta máli.“
Í tilefni dagsins ætlar Brynhildur að hitta vini sína í hádegismat.
„Þetta verður öðruvísi afmæli en ég er vön. Ég hef alltaf haldið upp á
afmælið mitt, örugglega frá því ég fæddist, en núna þegar maður er
með hvítvoðung þá er ekkert partístand. Ég er að bræða með mér
hvort ég haldi upp á 30 og hálfs árs afmælið eða 31 árs með stæl því
ég verð að halda upp á þetta. Það er alveg ljóst.“
Afmælisbarnið Brynhildur síðastliðið vor þegar þau Hrafn voru á
ferðalagi vítt og breitt um eyjuna Srí Lanka.
Komin í nýtt hlutverk
Brynhildur Bolladóttir er þrítug í dag
V
algerður Andrésdóttir
fæddist 12. janúar 1949 í
Reykjavík og ólst þar
upp. Hún gekk í Mela-
skóla og Hagaskóla og
útskrifaðist úr Menntaskólanum í
Reykjavík 1969. Hóf þá nám í líffræði
við Háskóla Íslands, en að því loknu
hélt hún til framhaldsnáms í sam-
eindalíffræði við Edinborgarháskóla
og lauk þaðan doktorsprófi.
Hún var í sumarvinnu við Til-
raunastöð Háskóla Íslands í meina-
fræði á Keldum á námsárunum, kom
þangað til starfa árið 1985, en hafði
áður verið við rannsóknir á frumu-
líffræðideild Landspítala í þrjú ár.
Jafnframt rannsóknavinnu á Keldum
stundaði Valgerður kennslu við Há-
skóla Íslands og hafði umsjón með
kennslu fjölda rannsóknanema.
Valgerður Andrésdóttir sameindalíffræðingur – 70 ára
Heima á Grímshaganum Valgerður og Ögmundur ásamt barnabörnunum. Börnin, frá vinstri: Margrét Helga, Sig-
ríður Olga, Valgerður, Sveinn, Ögmundur Óskar, Erla Kristín og fremst á myndinni er Móa, yngsta „barnabarnið“.
Grunnrannsóknir hafa
skilað okkur fram á við
Fjölskyldan Valgerður, Ögmundur og börn á toppi Garlaban fyrir ofan
Marseille árið 1997 þegar Valgerður sinnti rannsóknum við háskólann þar.
Reykjavík Seweryn
Tomasz Waszczuk fædd-
ist 20. janúar 2018. Hann
vó 3.080 g og var 49 cm
langur. Foreldrar hans eru
Barbara Wiktoria
Waszczuk og Tomasz
Adam Waszczuk.
Nýr borgari
Íslendingar Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is
Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má
senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn
þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.
Unnið í samvinnu við viðmælendur.
Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu
er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks,
svo sem stórafmælum, hjónavígslum,
barnsfæðingum og öðrum tímamótum.
Börn og brúðhjón
Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd
af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð.
Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni
mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is
ir
r
son
r
ttir
tir