Morgunblaðið - 12.01.2019, Qupperneq 34
34 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. JANÚAR 2019
✝ Guðbjörg ElínSveinsdóttir
fæddist á Fossi í
Staðarsveit á Snæ-
fellsnesi 6. október
1932. Hún lést á
Heilbrigðisstofnun
Vesturlands Akra-
nesi 21. desember
2018.
Foreldrar henn-
ar voru Sveinn
Þórðarson, f. 25.8.
1893, d. 27.12. 1979, og Pálína
Svanhvít Guðbrandsdóttir, f.
14.9. 1893, d. 22.4. 1950. Guð-
björg var yngst fimm systkina.
Hin eru Ágústína, f. 22.2. 1919,
Guðbrandur, f. 28.5. 1920, d.
15.6. 2010, Anna, f. 6.10. 1923, d.
29.10. 2018, og Þórður, f. 3.1.
1927.
Guðbjörg giftist 26.12. 1952
Þráni Sigtryggssyni, skipstjóra
og útgerðarmanni frá Ólafsvík,
f. 1.9. 1928, d. 7.3. 2008. Börn
þeirra eru: 1) Egill Viðar, f. 24.4.
1951, maki Hrefna Guðbjörns-
dóttir, f. 1953, börn: a) Guð-
björn, f. 1971, maki Guðrún
Oddsdóttir, börn Hrefna, Unnur
og Bryndís. b) Þráinn, f. 1974,
maki Svandís Sigurðardóttir,
börn María, Elín og Hafsteinn. c)
Elísabet, f. 1978, maki Jón
Harðardóttir, börn Ragnheiður,
Þráinn og Lárus. c) Steinunn, f.
1989, maki Gunnlaugur Smára-
son, börn Alex og Sunneva. 6)
Berglind Sigrún, f. 25.9. 1961,
fv. maki Heimir Maríuson, f.
1960, synir: Arnar, f. 1994, og
Felix, f. 1999. 7) Sigtryggur
Sævar, f. 2.6. 1967, maki Mar-
grét G. Helgadóttir, f. 1967,
börn: Valgerður, f. 1994, Helgi,
f. 1998, og Þráinn, f. 2001.
Guðbjörg ólst upp á Fossi í
Staðarsveit. Hún lauk hefðbund-
inni skólagöngu og gekk í far-
skóla á Ölkeldu í Staðarsveit á
árunum 1942-1945. Árið 1949
kynntist Guðbjörg Þráni og
fluttist til Ólafsvíkur árið 1950
þar sem þau hófu búskap í for-
eldrahúsum Þráins á Mosfelli.
Síðar byggðu þau húsið Lyng-
holt og bjuggu þar á árunum
1953-1960. Í ársbyrjun 1960
fluttu þau í nýbyggt hús á
Grundarbraut 26 þar sem þau
bjuggu alla tíð.
Guðbjörg sinnti aðallega hús-
móðurstörfum auk ýmissa verka
tengdra útgerðarfélagi Þráins
og bræðra hans. Hún vann við
ræstingar á bæjarskrifstofunni
um tíma og í saltfiskverkun hjá
Hraðfrystihúsi Ólafsvíkur auk
þess að taka að sér saumaskap.
Síðar starfaði Guðbjörg ásamt
manni sínum að rekstri Út-
gerðarfélagsins Dvergs hf.
Útför Guðbjargar fór fram
frá Ólafsvíkurkirkju 5. janúar
2019 í kyrrþey að ósk hinnar
látnu.
Harðarson, börn
Anna, Aníta, Hörð-
ur og Egill. d)
Soffía, f. 1984, maki
Friðbjörn Ásbjörns-
son, börn Ásbjörn,
Særún og óskírð. 2)
Pálína Svanhvít, f.
24.3. 1952, maki
Ingvar Sigurðsson,
f. 1954, börn: a)
Guðbjörg, f. 1979,
maki Guðmundur
Unnarsson, börn María og Mar-
inó. b) Guðmundur, f. 1979. 3)
Bryndís Jenný, f. 3.9. 1954, maki
Valur Magnússon, f. 1952, dóttir:
Lea, f. 1986, maki Magni Fann-
berg, börn Lára og Marcus. 4)
Sigurbjörg Erla, f. 12.1. 1957,
maki Þröstur Kristófersson, f.
1956, börn: a) Guðbjörg, f. 1976,
maki Björgvin Bjarnason, börn
Þröstur og dóttir Guðbjargar
Eydís. b) Ævar, f. 1980, maki
Fjóla Magnúsdóttir, dætur
Díana og Eva. c) Dagný, f. 1983,
maki Jóhann Þorsteinsson, börn
Óliver, Kamilla og Diljá. 5) Lilja
Björk, f. 15.12. 1959, maki Lárus
Einarsson, f. 1959, börn: a)
Hermína, f. 1979, maki Krist-
mundur Sumarliðason, börn
Sumarliði, Viktor og Freydís. b)
Elmar, f. 1981, maki Harpa
Það er með mikilli hlýju og
virðingu sem mig langar með
nokkrum orðum að minnast
tengdamóður minnar, Guðbjarg-
ar Elínar Sveinsdóttur, sem ég
hef verið svo lánsöm að eiga
samfylgd með frá því ég kom
fyrst á heimili þeirra Þráins þeg-
ar ég kynntist Tryggva syni
þeirra. Ég fann strax fyrir hlý-
legu viðmóti þeirra hjóna og
reyndust þau mér, sem tengda-
dóttur, einstaklega vel alla tíð.
Guðbjörg var vönduð og heil-
steypt að eðlisfari og hafði hlýja
og notalega nærveru. Hún var
hógvær og fylgdist vel með mál-
efnum líðandi stundar og hafði
ákveðnar skoðanir á hlutunum.
Þá hafði Guðbjörg góðan húmor
og oft var hlegið við hringlaga
eldhúsborðið á Grundarbrautinni
í góðra vina hópi. Guðbjörg var
alla tíð styrka stoðin í stórfjöl-
skyldunni sem hægt var að leita
til enda úrræðagóð og þar var
skynsemin alltaf í fyrirrúmi.
Guðbjörg ólst upp á Fossi í
Staðarsveit og bar ávallt sterkar
taugar til heimahaganna. Hún
átti góðar minningar frá æskuár-
unum þar sem hún ólst upp í
hópi samhentra systkina á heim-
ili sem stýrt var af miklum
myndarskap. Oft barst í tal
ábyrgðin sem henni og syst-
kinunum var falin, langar göngu-
ferðir í kirkju á Staðastað og
samskipti barnanna í sveitinni.
Guðbjörg var einkar handlag-
in og lék allt í höndunum á henni.
Það var alveg sama hvað hún tók
sér fyrir hendur; allt varð að
listaverki í höndum hennar. Hún
fylgdist vel með tískunni og hafði
áhuga og glöggt auga fyrir því að
skapa fallega hluti sem vöktu
eftirtekt. Á Grundarbrautinni
má hvarvetna sjá handverk Guð-
bjargar sem prýða hlýlegt heim-
ili þeirra hjóna.
Guðbjörg lagði rækt við sitt
fólk og átti einstaklega gott sam-
band við unga fólkið sem hún
sýndi mikinn áhuga, fylgdist vel
með, hvatti og var stolt af þeim.
Ég kveð tengdamóður mína
með söknuði og þakklæti í huga
fyrir allar góðu samverustund-
irnar og þá hlýju og vinsemd
sem hún sýndi mér og fjölskyldu
minni alla tíð.
Margrét Gróa Helgadóttir.
Í dag kveð ég elsku ömmu
mína hana Guðbjörgu Sveins-
dóttur.
Elsku amma mín, það sem ég
er þakklát fyrir allar þær ynd-
islegu stundir sem við höfum átt
saman í gegnum tíðina sem eru
ótalmargar. Ég var mikill heim-
alningur á Grundarbrautinni
enda ekki skrítið þar sem nær-
vera þín var svo hlýleg og nota-
leg. Ég gat ávallt leitað til þín
þegar eitthvað bjátaði á og tókst
þú alltaf á móti mér opnum örm-
um. Þú varst mjög myndarleg í
alla staði, mér fannst ekki leið-
inlegt að koma í nýbakað bakk-
elsi til þín eins og heimabakað
brauð og hveitikökur sem var
það allra besta, þú fékkst varla
að kæla góðgætið því lætin voru
svo mikil við að gæða sér á því.
Einnig varst þú mikil hannyrða-
kona og allt frá þér var hvað
öðru fallegra, allt lék í höndun-
um á þér hvort sem það var að
sauma, mála fallegar myndir,
hekla, prjóna, mála keramik eða
bússela. Alla þá fallegu hluti sem
þú gafst mér mun ég varðveita
um ókomna tíð. Þú hafðir mjög
gaman af því að fara á rúntinn og
varst ávallt tilbúin að koma í smá
bíltúr þegar kostur gafst. Okkur
fannst ekki leiðinlegt að kíkja á
og skoða glingur saman, eins
mikill fagurkeri og þú varst og
segi ég ætíð að ég hafi fengið
„fagurkeraveikina“ beint í æð frá
þér, elsku amma mín.
Nú er komið að kveðjustund
og söknuður minn er mikill. Það
verður tómlegt hér án þín, það
verður skrítið að keyra fram hjá
Grundarbrautinni og ekki hægt
að droppa inn í smá kaffi og
spjall líkt og ég fann fyrir núna
um jólin. En minningin um þig
mun lifa í hjarta mínu, guð varð-
veiti þig, elsku amma mín.
Amma kær, ert horfin okkur hér,
en hlýjar bjartar minningar streyma
um hjörtu þau er heitast unnu þér,
og hafa mest að þakka, muna og
geyma.
Þú varst amma yndisleg og góð,
og allt hið besta gafst þú hverju
sinni,
þinn trausti faðmur okkur opinn
stóð,
og ungar sálir vafðir elsku þinni.
Þú gættir okkar, glöð við undum hjá,
þær góðu stundir blessun, amma
kæra.
Nú hinstu kveðju hjörtu okkar tjá
í hljóðri sorg og ástarþakkir færa.
(Ingibjörg Sigurðardóttir)
Þín
Hermína.
Kvöldið sem amma á Grundó
kvaddi var einstaklega heiðskírt,
algjör stilla, stjörnubjart og
Staðarsveitin hennar ömmu
skartaði sínu fegursta á vetrar-
sólstöðum.
Ég var svo heppin að alast
upp í nágrenni við ömmu og afa.
Oftar en ekki kom ég við á
Grundarbrautinni á heimleið úr
skóla og þar var amma ávallt
tilbúin með alls kyns góðgæti
sem okkur systkinunum þótti
spennandi líkt og engjaþykkni
og hveitikökur með smjöri. Í
seinni tíð fórum við amma oft í
bíltúra um Staðarsveitina og í
kringum Jökul og voru það
gæðastundir þar sem við nutum
náttúrunnar, spjölluðum og
hlustuðum á góða tónlist og oftar
en ekki komum við heim eftir
miðnætti á björtum sumar-
nóttum.
Amma var einstök kona, hún
var hlý og góðhjörtuð en umfram
allt stillt og hógvær. Við amma
vorum alla tíð mjög samrýndar
og miklar vinkonur. Við gátum
setið tímunum saman og spjallað
um allt milli himins og jarðar.
Hún sýndi því sem ég tók mér
fyrir hendur áhuga og hvatti mig
ávallt. Það er ýmislegt sem kem-
ur upp í hugann þegar horft er
til baka. Ég man þegar ég æfði
mig í því að bakka í stæði inni á
Klifi og amma var þar leiðbein-
andi. Hún opnaði dyrnar marg-
oft til þess að athuga hvort bíll-
inn væri rétt staðsettur gagnvart
línunum. Ekkert var gefið eftir
enda við báðar þrjóskar og höf-
um við oft hlegið að þessari sögu
þar sem við hentumst til í göml-
um beinskiptum vinnubíl.
Söknuðurinn er mikill en
minningarnar um yndislega
ömmu eru dýrmætt veganesti í
lífinu. Ég er rík af því að hafa
kynnst þessari einstöku konu
sem ég mun ávallt taka mér til
fyrirmyndar.
Mig langar að kveðja með orð-
unum sem amma sagði alltaf við
mig; „stelpan mín“.
Stelpan þín,
Valgerður Sigtryggsdóttir.
Guðbjörg Elín
Sveinsdóttir
Flatahraun 5a • www.utfararstofa.is • Símar: 565 5892 & 896 8242
ÚTFARARSTOFA HAFNARFJARÐAR
ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS
Auðbrekku 1, Kópavogi síðan 1996
ALÚÐ •VIRÐING • TRAUST • REYNSLA
Símar allan sólarhringinn: 581 3300 & 896 8242 • www.utforin.is
Komum heim til aðstandenda og ræðum skipulag útfarar ef óskað er.
Margrét Ásta GuðjónsdóttirSverrir EinarssonKristín Ingólfsdóttir
Ástkær bróðir okkar og mágur,
EIÐUR A. BREIÐFJÖRÐ
blikksmíðameistari,
Laugateigi 27,
verður jarðsunginn frá Grafarvogskirkju
mánudaginn 14. janúar klukkan 15.
Blóm og kransar afþakkaðir en þeim sem vilja minnast hans er
bent á dvalar- og hjúkrunarheimilið Grund.
Bertha R. Langedal
Leifur Breiðfjörð Sigríður Jóhannsdóttir
Gunnar Breiðfjörð Elín Aune
Ástkær eiginkona mín og besti vinur, móðir
okkar, tengdamóðir, amma og langamma.
SIGURBJÖRG BJÖRGVINSDÓTTIR,
Digranesheiði 34,
er lést fimmtudaginn 13. desember, verður
jarðsungin frá Digraneskirkju í Kópavogi
mánudaginn 14. janúar klukkan 11.
Haukur Hannibalsson
Heiða Jóna Hauksdóttir Arnar Stefánsson
Hanna Þóra Hauksdóttir
Björgvin Jónas Hauksson Cinzia Fjóla Fiorini
Birgir Már Hauksson Harpa Rós Jónsdóttir
Sigrún Edda Hauksdóttir Guðbjartur Árnason
barnabörn og barnabarnabörn
Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir,
afi, langafi og langalangafi,
NJÁLL TRAUSTI ÞÓRÐARSON,
andaðist á Hrafnistu Nesvöllum
mánudaginn 7. janúar.
Útförin fer fram frá Keflavíkurkirkju
þriðjudaginn 22. janúar klukkan 13.
Kolfinna Árnadóttir
Ástfríður Svala Njálsdóttir
Árný Dalrós Njálsdóttir Gísli Sigurðsson
Jóhanna Njálsdóttir Kári Þorgrímsson
Þórdís Anna Njálsdóttir Erlendur Salómonsson
Kolfinna Njálsdóttir Óskar Birgisson
og fjölskyldur
Yndislega mamma mín, dóttir og systir,
SIGURBJÖRG SIGURÐARDÓTTIR,
Dvergabakka 32, Reykjavík,
lést á heimili sínu laugardaginn 5. janúar.
Jarðsett verður frá Fossvogskirkju
1. febrúar klukkan 11. Blóm og kransar
afþakkaðir en þeim sem vilja minnast hennar er bent á Ljósið.
Flavia Annis Rollini
Magðalena Stefánsdóttir
Esther Sigurðardóttir Helgi Sigurðsson
Stefán Baldvin Sigurðsson Anna S. Jóhannesdóttir
Sigrún Jensey Sigurðard. Kristján Bjarndal Jónsson
Sigurður Sigurðarson Hildur Sandholt
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
ALDA ÞORGRÍMSDÓTTIR,
Brekkugötu 38,
Akureyri,
sem andaðist aðfaranótt föstudagsins
4. janúar, verður jarðsungin frá
Akureyrarkirkju mánudaginn 14. janúar klukkan 13.30.
Ómar Garðarsson Rannveig Benediktsdóttir
Smári Garðarsson
Páll Garðarsson Sigurður Ö. Guðbjörnsson
Eydís Garðarsdóttir Bjarni Einarsson
Viðar Garðarsson Sigríður Á. Viðarsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir og afi,
STEFÁN JÓNSSON
málarameistari,
Bakkahlíð 2, Akureyri,
lést sunnudaginn 6. janúar.
Útförin fer fram frá Akureyrarkirkju
föstudaginn 18. janúar klukkan 13.30.
Heiðrún Björgvinsdóttir
Jón Ari Stefánsson
Hjördís Stefánsdóttir Heiðar Konráðsson
Heiðrún Valdís og Hildur Védís
Okkar ástkæra,
ALFA GUÐMUNDSDÓTTIR,
lést á hjúkrunarheimilinu Hömrum
þriðjudaginn 8. janúar.
Jarðarförin auglýst síðar.
Ágúst Ormsson Ingibjörg Kristinsdóttir
Jórunn Elídóttir
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
MAGNÚS BJARNASON,
Klapparholti 12, Hafnarfirði,
lést miðvikudaginn 9. janúar á
hjúkrunarheimilinu Skjóli.
Ólöf Haraldsdóttir
Júlía Magnúsdóttir Ingibergur Gunnar Jónsson
Sæunn Magnúsdóttir Haraldur Sigurðsson
Bjarni Magnússon Ólína Helgadóttir
Sigurborg Skjaldberg Baldur Snæhólm Einarsson
barnabörn og barnabarnabörn