Dagblaðið Vísir - DV - 21.08.2019, Page 89
FÓKUS21. ágúst 2019 89
n „Undarlegustu tíu mínútur ævi minnar“ n „Ég var ekki búin undir þetta“ n Kvöldstund með leikstjóranum vekur athygli
Tarantino og tásublætið
Allt látið flakka – Death Proof (2007)
Death Proof er fyrsta og eina kvikmyndin þar sem Tarantino
gegnir hlutverki kvikmyndatökumanns. Þá kemur eflaust ekki
á óvart að tásublætið sjáist í sinni tærustu mynd, meðal annars
í opnunarskoti myndarinnar. Auk þess eru merki um að helsti
skúrkur myndarinnar, leikinn af Kurt Russell, deili þessu blæti.
Tásu-Tate – Once Upon a Time in
Hollywood (2019)
Í nýjustu mynd leikstjórans fylgjumst
við grannt með upprennandi leikkonu,
Sharon Tate, sem leikin er af Margot
Robbie. Ef einhver hefur veðjað á að hún
beraði ekki tærnar á einhverjum tíma-
punkti, þá hefur sá sami tapað því veð-
máli. Aftur á móti er Robbie langt frá því
að vera sú eina í þessari kvikmynd sem
hugnast lítt sokkar og skór.
Á
rið 2011 birti nafnlaus
kona tölvupóst, sem upp-
haflega var ætlaður vin-
um hennar, þar sem hún
rifjar upp kvöldstund með Tar-
antino sjálfum. Það sem hófst sem
saklaust kvöld þar sem setið var
að sumbli endaði sem grípandi
innsýn í koll leikstjórans fræga.
Pósturinn vakti vægast sagt mikla
athygli og þótti frásögnin afar
bitastæð, þótt innihald hans hefði
komið fáum á óvart. Umrætt bréf
var birt á fréttamiðlinum Gawker.
Leikstjórinn og konan hittu-
st á skemmtistað. Konan segir
leikarann Jamie Foxx hafa verið
með þeim í teiti sem átti sér stað
á heimili leikstjórans. Gestirnir
tíndust á brott, einn af öðrum, og
að lokum voru aðeins Tarantino
og nafnlausa frúin eftir. Hún skrif-
ar í póstinum:
„Eftir langar samræður um
kvikmyndir, stingur hann upp á
því að við förum í rúmið. Þarna
verð ég skíthrædd,“ segir hún og
tekur fram að þótt hún og leik-
stjórinn hefðu verið dugleg í
kossaflensi þetta kvöld, þá hefði
ekki staðið til hjá henni að ganga
lengra en það.
„Ég reyni að forðast allan
neðanbeltishasar í ljósi þess að
Tarantino er með einn ljótasta titt-
ling sem ég hef á ævi minni séð;
stuttan, þykkan og stubbalegan.
Á meðan ég ofanda yfir tilhugsun-
inni um að hann ætli sér að koma
nálægt mér með þennan grip, þá
hallar hann sér að mér og varpar
fram furðulegustu spurningu sem
ég hef á ævi minni heyrt:
Má ég sjúga tærnar á þér á
meðan ég fróa mér?
Ég var ekki búin undir þetta, en
ég lét mig hafa það til að koma í
veg fyrir eitthvað nánara.“
Að sögn konunnar tóku þá
við einhverjar undarlegustu tíu
mínútur ævi hennar, að fylgjast
með Óskarsverðlaunahafa fróa
sér meðan hann sleikti á henni
tærnar. „Þetta var ekki alslæmt,
enda þurfti ég ekki að gera neitt.
Skömmu eftir þetta fórum við að
sofa en hann ákvað að endurtaka
leikinn morguninn eftir, án þess
að spyrja mig – sem mér þótti
dónalegt. Í kjölfarið skutlaði hann
mér svo heim og þannig var sagan
öll.“
Ári síðar var leikstjórinn
staddur í ítarlegu viðtali hjá út-
varpsmanninum Howard Stern.
Þar var hann spurður út í söguna
og lekann á henni og þótti hon-
um birtingin vera fyrir neðan allar
hellur. Hann sagði í viðtalinu að
hann hefði verið herramaður í öll-
um samskiptum sínum við kon-
una og fannst birtingin vera arg-
asti trúnaðarbrestur. Hann tók
sterklega fram að hann hefði
verið sleginn vegna þessarar
opinberunar en neitaði ekki
nokkrum sköpuðum hlut, enda
var lítið til að fela.
„Þarna verð ég skíthrædd“
Nafnlausa konan krafðist þess
að þau Tarantino færu saman
í myndaklefa, fyrr um kvöldið,
til að geta sannað að sagan
væri engin lygi.
„Ef skórinn passar …“ –
Inglourious Basterds (2009)
Þýska leikkonan Diane Kruger
gerist Öskubuska í örskamma
stund þegar nasistaforingi kannar
hvort fótur hennar passi í skó sem
varð eftir á vettvangi glæps.
Tærnar á Margaret Qualley
á heitum degi í Los Angeles.