Skessuhorn - 20.12.2005, Blaðsíða 4
4
ÞRIÐJUDAGUR 20. DESEMBER 2005
SUilSaúMöiaS
Byggja húsnæði fyrir aldraða á
tveimur stöðum á Akranesi
Segja upp
leigusamning-
um
STYKKISHÓLMUR: Bæjar-
ráð Stykkishólms hefur sam-
þykkt að segja upp leigusamn-
ingum tveggja húseigna í eigu
sveitarfélagsins. Annars vegar
er sagt upp samningi vegna
Hafiiargötu 7. Það hús hefur
Skipavík hf. haft á leigu og rek-
ur þar verslun. Að sögn Erlu
Friðriksdóttur bæjarstjóra eru
hugmyndir uppi um að flytja
bókasafnið í þetta húsnæði og
því var leigusamningi sagt upp.
Hins vegar var sagt upp leigu-
samningi við St. Fransiskuregl-
una vegna Austurgötu 7. Þar
hefur um árabil verið rekinn
leikskóli. Nú er í byggingu nýr
leikskóli sem ætlunin er að taka
í notkun í desember á næsta ári.
-hj
Sjómannadags-
blöðin í bók
SNÆFELLSBÆR: Sjómanna-
dagsblað Snæfellsbæjar hefur
um árabil verið órjúfanlegur
þáttur í hátíðarhöldum sjó-
mannadagsins. I þeim hefur
birst mikill fróðleikur um sjó-
mennsku, fiskvinnslu og fleira
er sjónum og sjávarútvegi til-
heyrir í Snæfellsbæ og víðar á
Snæfellsnesi. Nú hafa þessi
blöð verið bundin inn í tvær
bækur. Fyrri bókin eru blöðin
frá árinu 1987 til 1999 og sú
seinni frá árinu 2000 til 2005.
Bækurnar eru í fallegu bandi og
í þeim er efnisyfirlit. Bækurnar
eru til sölu í Bókabúðinni
Gimli á Hellissandi og á skrif-
stofu VÍS í Ólafsvík.
-hj
Ný stjóm fé-
lagsheimilisins
STYKKISHÓLMUR: Bæjar-
ráð Stykkishólms kaus á dögun-
um þrjá menn í stjórn Félags-
heimilis Stykkishólms hf. Kosin
voru Elísabet L. Björgvinsdótt-
ir, Erla Friðriksdóttir og Davíð
Sveinsson. Til vara voru kosin
Dagný Þórisdóttir, Rúnar
Gíslason og Hilmar Hallvarðs-
son. -hj
Áframhaldandi
merking
gönguleiða
SNÆFELLSBÆR: Atvinnu-
og ferðamálanefnd Snæfells-
bæjar samþykkti á fundi fyrir
skömmu að óska eftir því að
200 þúsund krónur verði eyrna-
merktar til merkinga göngu-
leiða við tjaldstæði í Snæfellsbæ
við gerð fjárhagsáætlunar bæj-
arins fyrir næsta ár. Þá ítrekaði
nefndin að við uppbyggingu
tjaldstæðis við Hellissand verði
gert ráð fyrir nútímalegri þjón-
ustu við húsbíla og jafnframt
tekið ffam að fyrir slíka nú-
tímaþjónustu komi eðlileg
gjaldtaka. -hj
Bæjarstjórn Akraness samþykkti
með fimm samhljóða atkvæðum í
síðustu viku að vinna að því að byggt
verði nýtt húsnæði fyrir aldraða á
tveimur stöðum í bænum og að því
verkefni verði flýtt sem kostur er.
Annarsvegar er í samþykktinni gert
ráð fyrir að byggja fjölbýlishús í ná-
grenni Dvalarheimilisins Höfða þar
Eins og ffarn kom í ffétt Skessu-
horns af fjárhagsáætlun Borgar-
fjarðarsveitar og stofhana hennar er
á næsta ári gert ráð fyrir 40 milljóna
króna fjárveitingu til lagningar
vatnsveitu úr Rauðsgili í Borgar-
firði. Að sögn Lindu Bjarkar Páls-
Umhverfisráðherra, Sigríður
Anna Þórðardóttir, hefur með bréfi
til Loftmynda ehf. hafnað tilboði
fyrirtækisins í rekstur Landmælinga
Islands á Akranesi. Sem kunnugt er
bauðst fyrirtækið til þess að taka
yfir reksturinn og taldi sig með því
geta sparað ríkinu milljónatugi.
Stjórnendur Landmælinga töldu
tilboðið hins vegar ekki raunhæft
og í raun væri ekki verið að bera
saman sambærilega hluti. Þá kom
til umræðu framtíð þeirra rúmlega
Ilópur fólks í Hvalfjarðarstrandar-
hreppi, sem starfað hefúr að undir-
búningi samtaka um sveitarstjórnar-
mál, boðaði til fundar um miðjan
nóvember sl. Markmiðið var að
stofina samtök um sveitarstjórnarmál
sem undirbúi framboðslista fyrir
sveitarstjómarkosningamar í vor.
Brynjólfur Þorvarðarson, kennari í
Heiðarskóla, er einn af forsvars-
mönnum hópsins. Hann sagði að
menn hefðu ekki verið tilbúnir með
stefinu eða annað slíkt á fundinum en
ákveðið var að samtökin eiga að vera
þverpólitísk og í þeim verði fólk sem
getur starfað saman. Á fúndinum var
kjörinn undirbúningshópur til að
annast stofúun samtakanna og boða
til stofúfúndar þegar þar að kemur. I
kjölfarið yrði svo farið í að vinna mál-
efúaskrá og setja saman lista fyrir
kosningarnar í vor.
Fyrir ári síðan var samþykkt sam-
eining og sameinuðust fjórir hreppar
á svæðinu í eitt sveitarfélag sem enn
hefúr ekki fengið nafú en ganga und-
ir nafninu Hrepparnir sunnan
Skarðsheiðar. Brynjólfur segir að tvö
mál brenni heitast á þessu nýja sveit-
arfélagi sem em skólamál og skipu-
lagsmál. Eftdr sameininguna er Heið-
arskóh að Leirá orðinn of lítill og
menn greinir á um hvort færa skuli
skólahaldið eða hafa hann áffarn að
Leirá. Varðandi skipulagsmálin
takast menn á um hvort sveitarfélag-
sem kostur verði gefinn á nauðsyn-
legri þjónustu. Hins vegar verði
haldið áfiram skipulagsvinnu á svæði
sem markast af Kirkjubraut, Háholti
og Heiðarbraut og áhersla lögð á að
ffamkvæmdir geti hafist þar. Var
skipulags- og umhverfisnefúd falið í
samráði við bæjarstjóra að vinna
deiliskipulag að svæðinu.
dóttur sveitarstjóra liggur í dag fyr-
ir forathugun vegna vatnsveitunnar
sem unnin var af verkffæðistofunni
Fjarhitun. Er þar gert ráð fyrir að
framkvæmdakostnaður verði rúmar
90 milljónir króna. Er veitunni ætl-
að að þjóna Reykholti og Klepp-
30 starfsmanna stofnunarinnar á
Akranesi. Flest em þau störf skipuð
háskólamenntuðu fólki.
Haraldur Johannessen aðstoðar-
maður umhverfisráðherra segir að
Loftmyndum ehf. hafi verið sent
afsvar um síðustu mánaðarmót. I
bréfi ráðherra kemur fram að ekki
sé hægt að ganga að tilboðinu eins
og það er sett ffam. Segir ráðherra
að verði talið rétt að bjóða úr rekst-
ur Landmælinga Islands yrði öllum
sem áhuga hafa og getu til þess að
ið skuh verða þéttbýh eða dreifbýli
eða eitthvað þar á milli.
Eitt af því sem veldur áhyggjum
hjá íbúum hreppanna sunnan Skarðs-
heiðar er Grundartangahöfnin.
Menn sjá fyrir sér mikla iðnaðampp-
byggingu þar en vandinn er að svæð-
ið er í eigu Faxaflóahafúa sem munu
skipuleggja það og nýja sveitarfélagið
mun hafa næstum ekkert að segja um
máhð. Síðan er land í Ilvalfjarðar-
strandarhreppi þar sem til stóð að
reisa rafskautaverksmiðju og er það í
Þá áréttaði bæjarstjómin einnig að
nýskipaður starfshópur um öldran-
armál skih af sér tihögum um fram-
tíðarskipan í öldrunarmálum á Akra-
nesi eigi síðar en 15. febrúar 2006.
Eins og áður sagði var tillagan sam-
þykkt með fimm atkvæðum meiri-
hluta bæjarstjórnar. Bæjarfulltrúar
Sjálfstæðisflokksins sátu hjá. HJ
járnsreykjum. Ekki liggur fyrir á
þessari stundu hvenær framkvæmd-
ir geta hafist þar sem frekari hönn-
unarvinna á eftir að fara ffam. Því
er ekki heldur hægt, að sögn Lindu
Bjarkar, að spá um verklok.
sinna verkefmnu boðin þátttaka.
Þá kemur ffam í bréfi ráðherra
að á næstu vikum verði lagt ffam
ffumvarp á Alþingi um starfsemi
Landmælinga. I því ffumvarpi sé
gert ráð fyrir að hlutverk stofúun-
arinnar verði takmarkað enda hafi
einkaaðilar að undanförnu tekið að
sér ýmis verkefúi sem áður vora á
könnu hennar enda hafi á síðustu
missemm verið unnið að því að
draga Landmælingar smám saman
út úr samkeppnisrekstri. HJ
eigu ríkisins. Nú vill sveitarfélagið
þar kaupa það land en undirtektir em
afar dræmar. Brynjólfur segir menn
óttast að Faxaflóahafnir vilji líka
kaupa þetta land. „Þetta em stór mál
sem blasa við hinu nýja sveitarfélagi
auk venjulegra sveitarstjórnarmála.
Ljóst er að þessi mál verða ekki leyst
fyrir sveitarstjórnarkosningarnar í
vor og því viljum við vera undirbúin
þegar þar að kemur,” sagði Brynjólf-
ur Þorvarðsson.
Tekist á um
breytingu
á útsvari
REYKHÓLAR: Hreppsnefúd
Reykhólahrepps hefur samþykkt
að útsvarsálagning verði óbreytt
á næsta ári, eða 13,03%. A fundi
hreppsnefndar í síðustu viku
lagði Gústaf Jökull Ólafsson
oddviti til að álagning yrði lækk-
uð í 12,96%. Gengið var til at-
kvæða og var oddviti einn tun þá
skoðun að lækka útsvarið því til-
laga hans hlaut aðeins eitt at-
kvæði gegn fjórum atkvæðtm
annarra hreppsnefúdarmanna.
-hj
Náttsöngur í
kirkjunni
BORGARNES: Kammerkór
Vesturlands býður til náttsöngs í
Borgarneskirkju miðvikudaginn
21. desember. A tónleikunum,
sem hefjast klukkan 22, verða
fluttir jólasálmar og öxmur hátíð-
leg verk sem minna á jólin.
Stjórnandi kammerkórsins er
Dagrún Hjartardóttir og Jónína
Ema Amardóttir leikur undir á
píanó. Annað tónlistarfólk sem
kemur ffam með kórnum að
þessu sinni em Ólafur Flosason,
óbó og þær Eygló Dóra Davíðs-
dóttir og Geirþrúður Asa Guð-
jónsdóttir á fiðlu. Aðgangur er
ókeypis og allir velkomnir. -mm
Skemman rifin
SNÆFELLSBÆR: Búið er að
rífa skemmuna sem staðið hefur
inní dal í Ólafsvík. Skemman sú
hefur verið þyrnir í augum
margra, heimamanna og gesta.
Með því að skemman hverfur
batnar til muna umhverfi gesta á
tjaldstæði bæjarins og göngufólks
sem þar fer um. -mm
Dýrt að hita
sparkvöll
DALIR: Byggðaráð Dalabyggð-
ar hefur falið sveitarstjóra að
skoða frekar með hvað hætti
hægt verður að reka snjóbræðslu-
kerfi sparkvallarins sem settur
var upp við grunnskólann. A
fúndi ráðsins á dögunum kynnti
sveitarstjóri hversu mikið af heitu
vatni þyrfti að bæta við bakrás
skólans til þess að tryggja sjó-
bræðslu af vellinum. Samkvæmt
útreikningum myndi slíkt kosta á
bilinu 50-67 þúsund krónur á
mánuði eftir því hvaða hitastig er
miðað við. -hj
Styrkja Snorra-
stofu
AKRANES: Við hátíðlega at-
höfn í Reykholti sl. fimmtudag
var undirritað samkomulag á
milli Akraneskaupstaðar og
Snorrastofu um styrk Akranes-
kaupstaðar til reksturs Snorra-
stofú og aukins samstarfs Snorra-
stofú og Byggðasafús Akraness
og nærsveita að Görðum. Samn-
ingurinn er til tveggja ára.
-mm
HJ
Tólf aðilar fá styrlá
Um leið og fjárhagsáætlun tólf félaga og félagasamtaka. Sam-
Akraneskaupstaðar og stofúana tals nema styrkirnir 1.635 þús-
hans fyrir árið 2006 var afgreidd undum króna.
samþykkti bæjarstjóm styrki til HJ
Eftirfarandi aðilar hlutu styrki:
AAsamtökin..................................kr. 120.000
Þroskahjálp á Vesturlandi...................kr. 240.000
Stígamót....................................kr. 50.000
Kvennaathvarf...............................kr. 50.000
Norræna félagið, starfsstyrkur..............kr. 60.000
Snorraverkefúi..............................kr. 100.000
Kirkjukór Akraness..........................kr. 55.000
Ölver.......................................kr. 50.000
Skátafélag Akraness v. rekstrar.............kr. 220.000
KFUM og KFUK v. rekstrar....................kr. 110.000
Skógræktarfélag Akraness....................kr. 15 0.000
Fjöliðjan...................................kr. 430.000
Ný vatnsveita úr Rauðsgili
Tilboði Lofimynda í rekstur
LMIhafiiað
Þverpólitískt framboð í undir-
búningi sunnan Skarðsheiðar
WWW.SKESSUHORN.IS
Bjarnarbraut 8 - Borqarnesi Sími: 433 5500
Kirkjubraut 54-56 - Akranesi Fax: 433 5501
Skessuhorn kemur út alla mi&vikudaga. Skilafrestur auglýsinga
er kl. 14:00 á þribjudögum. Auglýsendum er bent á aö panta
auglýsingapláss tímanlega. Skilafrestur smáauglýsinga er til
12:00 á þri&judögum.
Blaðið er gefið út í 3.000 eintökum og selt til áskrifenda og í
lausasölu.
Áskriftarverð er 1000 krónur með vsk. á mánuði en krónur 900
sé greitt með greiðslukorti. Verð í lausasölu er 300 kr.
SKRIFSTOFUR BLAÐSINS ERU OPNAR KL. 9-14 alla virka daga
Útgefandi: Skessuhorn ehf. - 433 5500 skessuhorn@skessuhorn.is
Ritstj. og ábm. Magnús Magnúss. 894 8998 magnus@skessuhorn.is
Blaðamenn: Halldór jónsson 892 2132 hj@skessuhorn.is
Magnús Magnúss. 894 8998 magnu$@skessuhorn.is
Fréttaritarar: Gísli Einarsson 899 4098 gisti@skessuhorn.is
Ófeigur Gestsson 892 4383 sf@simnet.is
Augl. og dreifing: Iris Arthúrsd. iris@skessuhorn.is
Umbrot: Guðrún Björk Friðriksd. 437 1677 gudrun@skessuhorn,is