Skessuhorn - 20.12.2005, Page 17
ÞRIÐJUDAGUR 20. DESEMBER 2005
17
atttðsunuiL
Vesturland 2005 í máli og myndiim
Hvanneyri. Vinnuhópur undirbýr nú málið. Flestir spá því
að nýi skólinn verði byggður á gamla fótboltavellinum sem
nú þjónar hlutverki tjaldstæða bæjarins.
Skaginn hlaut
Islensku sjávarútvegsverðlaunin
Skaginn hf. á Akranesi hlaut í september Islensku sjávarút-
vegsverðlaunin 2005 í flokki framleiðenda fiskvinnslutækja.
Verðlaunin voru afhent á sjávarútvegssýningunni sem hald-
in var í Reykjavík. Að verðlaununum stóðu sjávarútvegsritin
Fiskifréttir og World Fishing. Þetta er án efa mikil viður-
kenning fýrir fýrirtækið og starfsmenn þess. Viðurkenning-
una fær fyrirtækið meðal annars fýrir ffamleiðslu sína á fisk-
skurðarvél þeirri sem fýrirtækið hefur þróað og sagt hefur
verið frá hér í blaðinu.
Gamlar hetjur styrkja Skagaliðið
I haust hefur mikill undirbúningur átt sér stað hjá Rnatt-
spyrnufélagi IA við að styrkja liðið fýrir átök næsta árs. I
september var skrifað undir endurnýjaðan samning við Olaf
Þórðarson þjálfara sem stýrir liðinu næstu 3 árin. Þórður Þ
Þórðarson verður aðstoðarþjálfari. Sama dag var skrifað
undir samning við 11 unga leikmenn um veru þeirra hjá IA
næsta sumar. Síðar í haust lá það ljóst fýrir að Þórður Guð-
jónsson leggur atvinnumennskuna til hliðar og kemur heim
og spilar með sínu gamla liði. Tvíburabræðurnir Arnar og
Bjarki Gunnlaugssynir koma einnig heim og Hjörtur Hjart-
arson mun væntanlega einnig spila með næsta sumar. Gríð-
arlega spennandi verður að fýlgjast með gengi liðsins næsta
sumar með öllum þessum hetjum innanborðs.
Bændur virkja
Þrír bændur tóku sig til fýrir tveimur árum og undirbjuggu
virkjun Straumfjarðarár. Fyrir nokkrum vikum var síðan Múla-
virkjtm vígð en hún skilar um 2 MW raforku inn á dreifikerfi
landsmanna. Athyghsvert framtak bændanna til að auka verð-
mætasköpun í dreifbýh og í þokkalegri sátt við umhverfið.
Tóku höndum saman
Verkefhið Grænni skógar á Vesturlandi fór af stað í haust. Um
er að ræða samstarfsverkefni Skógræktar ríkisins, Vestur-
landsskóga, Landgræðslunnar, Félags skógarbænda á Vestur-
landi og Landbúnaðarháskóla Islands og miðar að því að gera
skógræktarfólk betur í stakk búið til að taka virkan þátt í mót-
tm og framkvæmd skógræktar og landgræðslu á bújörðum.
Skógrækt hefur aukist mikið í landshlutanum síðari ár en með
henni er verið að auka land- og búsemgæði, verðgildi og fjöl-
þætt notagildi jarða í umsjón skógræktarbænda.
ri i rgnarirrujjÆj
^carnes
um jm^maUuumM^ JidjkjáétJuiUM
akrma/uúan
/utrfÍMj/cd jamj/oMi a /u)/uim anim .
Hangikjöt
Hamborgarhryggur
Bayonneskinka
Frönsk sveitaskinka
Andapaté
Fasanapaté
Hreindýrapaté
Villigæsapaté
Franskt paté
Sveitapaté
Fjallagrasapaté
Madeirasósa
v;./
r-