Skessuhorn - 20.12.2005, Qupperneq 18
18
ÞRIÐJUDAGUR 20. DESEMBER 2005
„.H’Bimi.. |
Vestiirland 2005 í máli og myndum
Sparitoppar 3.990,-
Efling þekkingarsamfélagsins
I október var skrifað undir viljayfirlýsingu um samstarf og
þróun þekkingarsamfélags í Borgarfirði. Aðild að yfirlýsing-
unni áttu sveitarfélögin Borgarbyggð og Borgaríjarðasveit,
háskólarnir á Bifröst og Hvanneyri og Orkuveita Reykjavík-
ur. Til að styrkja stoðir öflugs þekkingarsamfélgs var m.a. á-
kveðið að leggja ljósleiðara í þéttbýliskjarnana Borgarnes,
Hvanneyri og Bifröst. Ljósleiðaravæðing stendur einnig yfir
á Akranesi en þar er stefnt að því að “ljósið” verði komið í
Stórar
Nýr vegur yfir Kolgrafarfj örð
Síðla í október var nýr vegur um Kolgrafarfjörð formlega
tekinn í notkun. Nýi vegurinn, sem leysir af hólmi eldri veg
er lá fyrir fjörð, byrjar við heimreið að bænum Berserkseyri
og liggur út á Kolgrafarodda, yfir Kolgrafarfjörð, um Hjarð-
arbólsodda og tengist núverandi Snæfellsnes-
vegi í námunda við vegamót Framsveitarvegar í
Grundarfirði. Með nýja veginum styttist leiðin
á norðanverðu Snæfellsnesi um 6 km auk þess
^ sem nú er komið bundið slitlag á alla leiðina
milli þéttbýlisstaðanna. Má ætla að þessir bættu
vegir auki möguleika sveitarfélaganna á sam-
starfi.
*
Bolir
Buxur
Peysur
3.490,-
3.990, -
4.990, -
Óska viáskiptammmi ag
Vestlmdingum ðlliiiu
gleðilegm jála ag farsældar
d kamandiári.
-- V -
uom
KIRKJUBRAUT 2 • AKRANESI
SÍMI431 1753 & 861 1599
Áfraiu stelpur!
Konur minntu rækilega á stöðu sína á vinnu-
markaðinum á kvennafrídeginum 24. október
og lögðu niður vinnu nákvæmlega klukkan
14:08, eða á þeirri stundu sem meðal karlmað-
ur er búinn að vinna fyrir sömu launum og
meðalkona þénar allan daginn. Fjölmenntu
konur á baráttufundi, bæði í Reykjavík og á
hinum ýmsu stöðurn í landshlutanum.
öll hús fyrir lok næsta árs. Ljóst er að með ljósleiðaravæð-
ingu á þessu svæði mun það standa flestum öðrum lands-
svæðum frarnar hvað þessa tækni varðar og möguleikana sem
henni fylgir. A myndinni er starfsmaður BOB sf. að bora
ljósleiðaralögn inn í eitt húsanna á Akranesi en þar er verk-
efnið komið lengst hér á Vesturlandi.
Rækjuvinnslu hætt í Stykkishólmi
Miklar þrengingar steðjuðu að rækjuvinnslunni í landinu
þegar líða tók á árið. Hvert fyrirtækið á fætur öðru tilkynnti
um lokanir og það kom einnig að slíku reiðarslagi í lands-
hlutanum. I byrjun október var það ljóst að tuttugu og níu
manns í Stykkishólmi misstu vinnuna um áramót þegar
rækjuvinnslu verður hætt hjá Sigurði Agústssyni ehf. í
Stykkishólmi. Þá var á annan tug manna sagt upp störfum
hjá kavíarverksmiðjunni Nóru sem Sigurður Agústsson á og
rekur í Hólminum.
Danskrakkar gera það gott
Á þessu ári varð ffamhald á einkar athyglisverðum árangri
danskrakka úr Borgarfjarðarsveit. Gekk þeim afar vel í
danskeppnum á landsvísu en í haust æfa um 60 börn á aldr-
inum 7-15 ára dans á Kleppjárnsreykjum undir styrkri stjórn
Evu Karenar Þórðardóttur. Sjö pör náðu þeim áfanga að
komast í keppnisflokk (K-hóp) og eru þessi pör að fara í
keppnisferðalag til Irlands í febrúar.
Menning og vöxtur
Á aðalfundi Samtaka sveitarfélaga á Vesturlandi í október
voru venju fremur innsigluð stór mál fyrir íbúa alls Vestur-
lands og sveif óneitanlega léttari andi yfir vötnum en oft
áður við sama tækifæri. Meðal stórra mála skal skal fyrst
nefna menningarsamning fyrir Vesturland milli ríkis og
sveitarfélaga en auk þess kynnti iðnaðar- og viðskiptaráð-
herra undirbúning að vaxtarsamingsgerð fyrir Vesturland og
skipaði undirbúningshóp. Stjórn SSV var endurkjörin og er
hér ásamt Sturlu Böðvarssyni sem undirritaði menningar-
samninginn f.h. ríkisins.
Leiðrétta þarf kjör eldra fólks
Kjör og aðbúnaður eldra fólks var mikið til umræðu á þessu
ári. Um leið og það er gleðilegt að eldra fólk sækir nú fastar
réttindamál sín en áður, hvort sem litið er til ellilífeyris, líf-
eyrisgreiðslna, húsnæðismála eða þjónustu, þá er sorglegt til
þess að vita að á tímum góðæris í landinu skuli þessi þjóðfé-
lagshópur búa við jafn slök kjör og raun ber vitni. Hvernig
væri að ráðamenn þessa lands leiðréttu nú kjör eldri borgara
þannig að sómi væri að og létu eftir það sömu prósentu-
hækkanir launa og þeir skammta sjálfum sér renna til þessa
þjóðfélagshóps sem við eigum svo margt að þakka? Þessi
hópur kvenna á myndinni kvartar þó ekki, en hér eru spræk-
ar eldri konur að vinna við sláturgerð á Dvalarheimilinu
Höfða á Akranesi sl. haust.
Nýskipan lögreglumála umdeild
Mikillar óánægju gætti víða um fjórðunginn í haust með til-
lögur um nýskipan lögreglumála. Þar var lagt til að Borgar-
nes yrði svokallað lykilembætti. Löggæslan í Búðardal og
Hólmavík yrði sameinuð lögreglunni í Borgarnesi og færi
það lið jafnframt með löggæslu í Reykhólahreppi. Onnur
embætti á svæðinu sem færu með lögreglustjórn væru Akra-
nes og Stykkishólmur. Með þessum breytingum falla fjár-
veitingar frá embættunum í Búðardal og Hólmavík til emb-
ættisins í Borgarnesi. Þá var gert ráð fyrir að starfsemi rann-
sóknardeildar verði í Borgarnesi og falli því fjárveiting vegna
rannóknarlögreglumanns á Akranesi til embættisins í Borg-
arnesi. Eins og áður segir heyrðust kröftugar mótmælaradd-
ir við þessum breytingum allsstaðar nema úr Borgarnesi þar
sem tillögunum var fagnað.