Skessuhorn - 20.12.2005, Síða 19
■aniSsaimúUíi'í
ÞRIDJUDAGUR 20. DESEMBER 2005
19
Vestiirlmid 2005 í máli og myndwn
Um úfið hraun
Bænhússvaði. Það var þrautavað. Skerjavað var svolítið neðar ekki nema að Stakkhamri. Frá Stakkhamri að Búðum tekur
en það var sjaldan farið. við skeljasandsíjara.
og nágrenni Eldborgar
Árlega falla Skessuhorni til þúsundir ljósmynda sem ekki
reynist pláss fyrir til birdngar, því miður. Bakvið þessar mynd-
ir er stundum saga; eitthvað fféttnæmt, en stundum ekki.
Margar þessara mynda munu vafalaus aldrei birtast þó svo
reynt verði að varðveita þær. Við ljúkum fféttaannál ársins
2005 með að birta eina slíka mynd sem blaðamaður tók liðið
sumar af úfhu Eldborgarhrauni í Kolbeinsstaðahreppi.
Orn H Bjarnason skrifar skemmtilegar leiðarlýsingar um
reiðgötur á þessum slóðtun en árlega fara hundruðir hesta-
manna þar um, gegnum hlaðið á Snorrastöðum, áleiðis á
Löngufjörur sem heilla svo marga enda engu saman saman að
jafna í mikilfeng þeirra reiðleiða. En gefum Erni H Bjarna-
syni orðið:
“Snorrastaðir standa austan við Eldborgarhraun en í gegn-
um það liggja þrjár fomar götur: Syðst er Þrællyndisgata hálf-
gerður óvegur eins og nafnið bendir tdl. Hún liggur milli
Snorrastaða og Litla-Hrauns. Um hana segir í Sýslu- og
sóknalýsingu yfir Hítarnesprestakall ffá 1841: “Kirkjuvegur
ffá Litlahrauni liggur yfir Eldborgarhraun að Snorrastöðum.
Er sá vegur kallaður Þrælindisgata. Fara hann einstöku ferða-
menn, þegar Básafjörur em orðnar of djúpar og lest er ekki
mjög þung.”
Svo kemur Eldborgargata milli Garða í Kolbeinsstaða-
hreppi og Stóra-Hrauns. Frá Görðum liggur líka Skjól-
hvammsgata, en hún mætir Holtnagötu sem liggur þvert yfir
Eldborgarhraun ffá austri til vesturs. Hún var greiðfæmst
enda gamla pósdeiðin. I Akurholti rétt vestan við Haffjarðará
var á tímabili bréfhirðing. Ef ekki vom farnar fjömmar þá lá
gamla skreiðarkaupaleiðin um Skjólhvammsgötu um svo-
nefhdan Skjólhvamm og fyrir vestan Sauðastapa. Farið var
yfir Haffjarðará á Hábrekknavaði og út hreppa um Öldu-
hrygg-
Sagt er að Nikulás Asmundsson frá Ystugörðum, sem uppi
var á átjándu öld hafi fyrstur fundið Eldborgargötu. I Sýslu-
og sóknalýsingum ffá árinu 1841 er hún talin alfaravegur og
gerðar á henni vegabætur af og til. Hún kemur út úr hraun-
inu rétt fyrir norðan Stóra-Hratm. Farið var þar vestan ffá
túninu um svokallað Arnes og Reiðsker og yfir Haffjarðará á
Milli Litla-Hrauns og Stóra-Hrauns er fjöruvegur ágætur
þangað til flæðir að. Þá verður að krækja inn hraunjaðarinn.
Upp með hinni veiðisælu Haffjarðará vom ágætar reiðgötur
fyrmm. A Stóra-Hrauni bjó lengi vel séra Ami Þórarinsson,
en hann lagði þjóðinni til óborganlegar ffásagnir stílfærðar af
Þorbergi Þórðarsyni. Um þeirra samvinnu var sagt að þar
hefðu komið saman lýgnasti maður á Islandi og sá trúgjarn-
asti. Enn aðra götu má nefna í norðurjaðri Eldborgarhrauns,
en hún lá meðfram Landbrotalæk.
I hrauninu um 4 km frá Snorrastöðum er Þjófahellir. Þar
munu menn hafa lagst út og lifað á ránum, kjörinn staður til
þeirrar iðju enda mikil umferð út undir jökul. Þar var þétt-
býlasta svæði á landinu lengi vel, þurrabúðarfólk svonefnt og
útvegsbændur. Aðalleiðin frá Snorrastöðum og vestur lá um
Löngufjörur en þær em af sumum taldar ná ffá Ökmm á
Mýmm allt vestur að Búðum. Venjulega er þó talið að þær nái
Ef lagt er af stað segjum ffá Grímsstöðum á Mýram og far-
ið með Múlum og hjá Snorrastöðum er hæfileg dagleið að
Hausthúsum. Farið er undir Snorrastaðabakka meðfram
Kaldá. Þar fyrir neðan taka fjömmar við. Farið er milli
Lönguskerja að Básatá og síðan í Saltoes og svo áfram með
Hausthúsaeyjar á vinstri hönd og um Hausthúsafjörur að
Hausthúsum. Ef ekki er rambað rétt á sjávarföllin geta menn
lent á hrokasundi í álunum, svo snögglega fyllast þeir. í Alm-
anaki Þjóðvinafélagsins era greinargóðar upplýsingar um flóð
og fjöra. Hestamenn ættu að hafa það í farteskinu þegar
Löngufjörar era farnar. Sömuleiðis að leita effir leiðsögn
kunnugra.” Hér lýkur tilvitnun í skrif Arnar en áhugasamir
geta nálgast meira efni þessu tengt á vefslóðinni:
http://www.sorli.is/greinar/gamlar_gotur_snaef.htm
MM
Skóbúðin Borg
5. 4371240
Hestavöruverslun
Borgarbraut 58-60 • Borgarnesi
Sími 437 0001 & 840 3801
Borgarnesi - 437 1878
borgorspori;
btOartsrgU^báýffiBshsiBiUSj1 i70f
r* liinii iiM í5 ftn 1 C1 il E^lcir j í 1 í ' S |o
V J 1 1 11 11(11 i íl VCIJ y i yj 1 í l 1 II I 1 ) 1 C 1
\