Skessuhorn - 20.12.2005, Qupperneq 32
32
ÞRIÐJUDAGUR 20. DESEMBER 2005
7/£&t-
Jólakveðja úr
Borgamesi
Héðan úr Borgarnesi er allt gott
að frétta. Allt í rífandi gangi eins
og sagt er.
Það er ekki hægt að segja að
sumarið hafi verið gott hvað veður
varðar, frekar að þetta hafi verið
sumarið sem aldrei kom, samt náði
maður nú að heyja handa skepnun-
um sínum. Dögun okkar kastaði
fallegu merfolaldi í ágúst, sem
vonandi á eftir að gleðja eiganda
sinn með góðum spretti síðar meir.
- Mikil uppbygging er hér nú í
“Nesinu”. KB að byggja fóður-
vörusölu, Borgarnes kjötvörur að
byggja hús á Vallarásinum, það
verður mikil breyting fyrir starfs-
fólkið þegar flutt verður í það hús.
En hvað gert verður við gamla
sláturhúsið úti í eyju er ekki gott
að vita, en ef eitthvað að þeim
hugmyndum sem ffam komu á í-
búaþingi sem Borgarbyggð efhdi
til í haust, ná að líta dagsins ljós já,
þá verður gaman að eiga heima í
Borgarnesi.
Hollvinasamtök Englendinga-
víkur eru mér ofarlega í huga. Búið
er að klára effa pakkhúsið að utan
og hækka hleðsluna undir því og
það komið aftur á sinn stað. Byrjað
er að vinna í neðra pakkhúsinu.
Einnig á að fara að laga gömlu
steinbryggjuna, en til þess fengum
við styrk frá Faxaflóahöfnum. Þá
hafa krakkar í grunnskólanum
unnið að gerð upplýsingaskiltis um
gróður og fugla sem eru þarna nið-
ur í víkinni og á Vesturnesinu,
fengum við styrk ffá Pokasjóði til
þess verkefnis. Hafin er bygging á
mörgum húsum við Kvíaholt og
Stöðulsholt og einnig á að byrja á
nýjum leikskóla á næsta ári. Skáta-
húsið er komið niður í Skalla-
grímsgarð og búið að rikka það
upp bæði að utan og innan, eru
menn á einu máli um að það er
eins og húsið hafi alltaf verið þarna
svo vel fellur það inn í umhverfið.
- Þá munu Skuggamenn byrja á
reiðhöll fljótlega á næsta ári.
Borgfirðingahátíð og Sauða-
messa eru orðnir árlegir viðburðir
hérna og tókust hvorutveggja vel.
Einnig voru Vesturbæjarleikarnir
haldnir, núna voru það afkomend-
ur Skallagríms búsettir við götu
kennda við soninn Egil sem sáu
um “leikana”. Voru þeir haldnir
innandyra þetta árið í gamla sam-
laginu, sem nú er búið að selja og á
að fara að gera við það svo það fái
sína fyrri reisn. Þá ber einnig að
nefna að lokið var við byggingu á
Hótel Hamri sem er fyrsta golf-
hótelið sem reist hefur verið hér á
landi. Var það opnað í júnímánuði
og er hið glæsilegasta í alla staði.
Við Digranesgötu hefur SPM
reist hið veglegasta hús einnig hef-
ur Bónus byggt stærðar hús við
þessa sömu götu þar eru einnig
Geirabakarí og Ismynd til húsa. -
Þá stendur til að fara að byggja
ffamhaldsskóla hérna og er það hið
besta mál því þá getur unga fólkið
okkar haldið áfram námi í sínum
heimabæ. Nú er verið að rífa
gamla Esso og á að byggja þar
blokk og eru menn ekki á eitt sátt-
ir um fyrirhugaða byggingu.
Dag einn í sumar fór ég með 5
ára dótturson minn niður í gömlu
kaupfélagsfjöru og ætluðum við að
labba berfætt á leirunum í fyrstu
leist honum nú ekkert á þetta en
eftir fyrstu skrefin var ekki aftur
snúið og vorum við að sullast á tás-
unum í leirnum rúma tvo tíma.
Hann neitaði að hætta fyrr en al-
veg var flætt að. Eg lét mig hafa
það að sullast þarna með honum,
skildi hann mjög vel því margar
góðar og skemmtilegar minningar
á ég frá sólríkum sumardögum við
leik í fjörunni með æskuvinum
mínum, því í minningunni er jú
alltaf sólskin. Nú í nóvember fór-
um við 6 æskuvinkonur til Kaup-
mannahafnar og mikið skemmtum
við okkur vel og áttum yndislega
ferð. Þessar æskuvinkonurnar léku
sér í þessari sömu fjöru um miðja
síðustu öld. Það er dýrmætt að eiga
góða og trygga vini.
“Þo' ég engin nefni nöfn
neinu skal ei gleyma.
Minninganna myndasöfn
mér er Ijúft að geyma. ”
Ég vona að Vestlendingar og
landsmenn allir eigi góða og ffið-
sæla jólahátíð og að komandi ár
verði okkur öllum gott og gæfu-
ríkt.
Jólakveðja úr Borgamesi,
Ingibjórg Hargrave.
Með kveðju
úr Grundarfirði
Lífið er fiskur stendur einhvers-
staðar eða var það saltfiskur, gildir
einu. Hér í Grundarfirði snýst líf
fólks og tilvera í nokkuð stórum
mæli um fisk. Höfnin er lífæð
byggðarinnar segja menn á góðum
stundum en hittast þess á milli í
hafnarskúrnum í kaffi og morgun-
spjall, taka púlsinn á bæjarmálefn-
um í bland við bleksterkt langsoð-
ið kaffið a.m.k. þeir sem seint
mæta.
En það dylst engum sem á höfn-
ina kemur að þar fer þó nokkuð af
fiski um kör. Hafnarvörðurinn
verður drjúgur á svip þegar tal
berst að vegnum afla og sýnir fram
á stöðug met mánuð eftir mánuð á
exelskjali og niðurstöðurnar birtast
reglulega á heimasíðu Grundar-
fjarðarbæjar. Heimasíða sú er
býsna vinsæl samkvæmt athugun á
heimsóknum sem aukist hafa um
helming frá fyrra ári. Já tæknin
segja menn og dæsa, hún er orðin
mikil og ef að landsmeðaltal tölvu-
tenginga er 80% heimila þá er það
örugglega 95% í Grundarfirði.
Talandi um tækni verður manni
ósjálffátt hugsað til hins nýja Fjöl-
brautaskóla Snæfellinga sem hóf
starfsemi sína fyrir rúmu ári með
því að taka inn tvo fyrstu árgang-
ana. Sé höfnin lífæð þá er sá skóli
hjartað. Hann er allt í senn ffam-
sækinn kennslufræðilega, nýstár-
legur byggingalega og tæknivædd-
ur. Strax á öðru ári með þrjá ár-
ganga orðinn nánast fullsetinn og
enn eftir að bæta fjórða árgangi
ffamanvið. Skólinn er vissulega á
mótunarskeiði en hefur þegar
sannað gildi sitt. Ekki einungis fyr-
ir unga fólkið sem getur á sínu
mesta mótunarskeiði stundað
framhaldsskóla frá heimilum sín-
um, heldur einnig fyrir foreldra og
fjölskyldu í formi ávinnings af
meiri samvistum og minni útgjöld-
um vegna skólavistar í fjarlægð. Þá
hefur tilkoma Fjölbrautaskólans
reynst kærkomið tækifæri fyrir
fjölmarga sem ekki hafa séð sér
fært að taka sig upp til að ljúka því
námi sem þeir af einhverjum á-
stæðum hurfu frá á einhverjum
tíma. Og þetta er aðeins byrjunin
á því sem Snæfellingar allir mega
vera stoltir af en verða jafnffamt að
standa áfram vörð um.
Og það leiðir hugann að samein-
ingarmálum sem ekki gengu ffam
eins og að minnsta kosti félags-
málaráðherra hefði viljað og all-
vega sá minnihluti sem kaus með
sameingu sveitarfélaga á Snæfells-
nesi. Það fór reyndar ekki mikið
fyrir áróðri með sameiningu hér
heima fyrir og þó að einhverjir hafi
verið á móti sameiningu vegna
þess að boðið kom að ofan þá við-
urkenna flestir að þörf sé á sam-
vinnu sveitarfélaganna. Núverandi
samstarfsvettvangur er Héraðs-
nefnd sem tók við af gömlu sýslu-
nefndinni. Á þeim vettvangi var
fyrir skömmu flutt framsaga af
bæjarstjórunum í Grundarfirði og
Snæfellsbæ um aukna samvinnu
sveitarfélaganna á Snæfellsnesi.
Þar töluðu þau út ffá sinni daglegu
reynslu sem orðin er nokkuð löng
hjá báðum, um þá þróun sem orð-
ið hefur sl. 10 ár á stjórnsýslu
sveitarfélaganna. Stjórnsýslu sem
verður í raun sífellt flóknari og
krefst því meiri sérþekkingar t.d. á
sviði lögfræði og skipulagsmála svo
eitthvað sé nefnt. Með framsögu
sinni hvöttu bæjarstjórarnir til
aukinnar samvinnu um ýmsa mála-
flokka. Þar voru m.a. tilgreind við-
fangsefini eins og málefni fatlaðra,
tónlistarskóli, eldvarnir svo eitt-
hvað sé nefnt. Að koma á slíkri
samvinnu er tímafrekt verk og
kostar önnumkafna sveitarstjórn-
armenn aukna fundarsetu þannig
að tíminn á eftir að leiða í ljós
hvort orð verði að athöfnum eða
endi bara með sameiningu.
Gunnar Kristjánsson,
Grundarfirði