Skessuhorn - 20.12.2005, Blaðsíða 35
SSiSSlíHÖBW
ÞRIÐJUDAGUR 20. DESEMBER 2005
35
Af Þuríði Ömu:
Lítil hetja sem nýverið hélt til Boston
og gekkst undir aðgerð á heila
Þann 25. október sl. voru
haldnir styrktartónleikar fyrir
Þuríði Omu Oskarsdóttur og
fjölskyldu hennar í safhaðar-
heimilinu Vinaminni á Akra-
nesi. Það var föðursystir Þuríð-
ar, Hanna Þóra Guðbrands-
dóttir, sem stóð fyrir tónleik-
unum sem vom vel sóttir af
velunnurum fjölskyldunnar og
safnaðist dágóð upphæð þeim
til styrktar sem var afhend í lok
tónleikanna. Tilefhi söfhunar-
innar var sú að fjölskyldan beið
á þeim tíma kalli lækna frá
Boston því Þuríður Ama þurfti
að komast í aðgerð til að fjar-
lægja æxli í vinstri hluta heila
hennar og hafði valdið henni
miklum veikindum og krampa-
köstum frá því sama dag árinu
áður.
Aðgerðin
Stuttu eftir tónleikana kom
kallið og þann 16. nóvember lagði
Þuríður Arna af stað til Boston á-
samt foreldrum sínum. Stax næsta
dag var hún lögð inn og gekkst
undir miklar rannsóknir. Aðgerð-
in á heila hennar var svo gerð viku
síðar. Oskar Orn Guðbrandsson
og Aslaug Osk Hinriksdóttir for-
eldrar Þuríðar segja tilfinninguna
hafa verið undarlega þegar þau
kvöddu Þuríði fyrir aðgerðina þar
sem búið var að vara þau við því
að ýmsar áhættur fylgdu stórri að-
gérð sem þessari. Aðgerðin tók
fjórar klukkustundir og náðist að
fjarlægja hluta af meininu, en vit-
að var fyrirfram að ekki væri hægt
að ná því öllu og var skurðlæknir-
inn nokkuð ánægður með árang-
urinn.
Heimkoman
Oskar segir Þuríði hafa verið
nokkuð fljóta að jafna sig eftir að-
gerðina og var hún komin á fætur
eftir fjóra daga. Þó þurftu þau öll
að dvelja í Boston í nokkurn tíma
því læknarnir vildu fylgjast með
framgangi mála og hvernig Þuríð-
ur myndi spjara sig. “Þegar við
loks lögðum af stað heim þá var
Þuríður alveg búin að fá nóg og
mikið rosalega voru þær systur
glaðar að hittast.” Oddný Erla
litla systir kom ásamt ömmum
sínum og öfum og fleiri ættingj-
um í Leifsstöð til að taka á móti
fjölskyldu sinni en hún þurfti að
bíða heima hjá ömmu og afa á
meðan á ferðalaginu stóð.
Einn dag í einu
Þó svo að heilsa Þuríðar sé hægt
og rólega að komast í meira jafn-
vægi eftir aðgerðina stóru þá eru
dagarnir misjafnlega strembnir.
Alagið er mikið, kramparnir eru
enn reglulegir og breytingar hafa
verið gerðar á lyfjasamsetning-
unni. Oskar og Aslaug segja það í
raun ekki óeðlilegt að kramparnir
séu enn að koma. “Við vissum það
fyrirfram að það væri ekki víst
hvort að aðgerðin myndi hjálpa til
við að minnka krampana en þó
gæti það tekið nokkra mánuði að
koma í ljós. I janúar mun svo taka
við lyfjameðferð vegna æxlisins
sem mun taka u.þ.b. 60 vikur.
Þessi meðferð er í raun mjög væg
og mun Þuríður geta verið í leik-
skóla á meðan á henni stendur en
þó bara brot úr degi. Eitthvað
mun ónæmiskerfið hennar þó
veikjast á meðan á meðferðinni
stendur og hún gæti misst hárið.
Æxlið ætti þó að minnka eitthvað
á þeim tíma. Allt gæti þetta hjálp-
að til við að minnka krampana en
þó er ekkert öruggt í þeim efnum.
Það er mikið af óvissuþáttum til
staðar en við erum þó nokkuð sátt
við stöðuna. Það er verið að gera
það sem hægt er að gera til að
hjálpa og þó það sé óvíst hvaða
oÍMI 431 2607 # . -1
KALMANSVÖLLUM 11 Q
AKRANESIv '
Það vorti fagnaðarfundir á flugvellinum þegar systumar hittust eftir heimkomu Þuríðar Ömufrá Boston.
gagn það gerir þá er það þó betra
heldur en að sitja bara og bíða eft-
ir engu. Þuríður er mikil hetja og
það er í raun alveg ótrúlegt hvað
hún getur verið kát þrátt fyrir að
hún sé greinilega slöpp,” segja
foreldrar Þuríðar Ornu.
“Við viljum senda öllum sem
hafa stutt okkur bestu kveðjur
með þakklæti fyrir alla hjálpina.
Stuðningurinn hefur verið okkur
ómetanlegur. Einnig viljum við
þakka starfsfólki Skessuhorns fyr-
ir að fá að segja okkar sögu.”
BG
www.skessuhorn.is
■
Óskum Vestlendingum gleðilegrajóla
ogfarsældar á nýju ári
Þökkum ánægjuleg samskipti á árinu
sem er að líða
‘VerkaCýðsféCagi Rlfaness
Óskum félögum sem og
Vestlendingum öllum
gleðilegra jóla og
á komandi
VerkgCýðsféíag Cðkraness