Skessuhorn - 20.12.2005, Page 47
ÞRIÐJUDAGUR 20. DESEMBER 2005
47
Reykjavík að ég myndi mála meira
og ég hreinlega bara verð að
standa við það.”
Hreyfingin nauðsynleg
Eitt af helstu áhugamálum Ellýj-
ar er líkamsræktin. Hún hefur ver-
ið með leikfimikennslu á Akranesi
og er núna með slökkvilið bæjarins
í tímum hjá sér. Hún segir ekki
hægt að sleppa einhverju eins góðu
og hreyfingu því þegar maður byrji
sé erfitt að hætta. “Þegar maður
kynnist einhverju svona góðu er
erfitt að leita aftur í það slæma.”
Hún uppgötvaði líkamsræktina af
tilviljun. “Eg fór einn daginn með
vinkonu minni í eróbikk í World
Class þegar stöðin var nýopnuð.
Þessari vinkonu minni fannst hún
vera eitthvað illa á sig komin lík-
amlega og of þung en ég hélt að ég
þyrfti ekkert á svona að halda. Svo
í tímanum þá bara gat ég ekki neitt
og fékk algjört áfall. Eg var greini-
lega í mjög slæmu líkamlegu
formi. Eftir það mætti ég alltaf í
World Class þrisvar í viku. Eg
þurftd að tala harkalega við sjálfa
mig í hvert einasta skipti því ég
fann alltaf upp einhverja afsökun
til að sleppa því. Eg átti ekki bíl og
þetta tók mig fleiri klukkutíma, en
ég fór í hvert einasta skipti. Eg var
undir vendarvæng hjá Birni í
World Class, en ég lærði rosalega
mikið þar og á honum mikið að
þakka.” Ellý er mikill stuðnings-
maður íþrótta og líkamsræktar.
“Ég er hætt að drekka og reykja, ég
meina - eitthvað verður maður að
gera! Nei, ég er nú bara að segja
svona. Eg styð íþróttir af fullum
hug. Eg held að hreyfing sé eitt
það nauðsynlegasta í lífinu og vil
meina að þunglyndið hér á landi sé
sprottið af einhverjum hluta af
hreyfingarleysi. Fyrir krakkana eru
íþróttir og líkamsrækt líka annað
skemmtilegt hobbí án vímuefna.”
Skreytir blómin líka
Þegar Ellý er spurð að því hvort
hún sé mikið jólabarn þá svarar
hún því til að henni finnist frábært
að skreyta fyrir jólin, það sé eitt
það skemmtilegasta við hátíðina. I
Hvíta húsinu eru ótal jólaskreyt-
ingar á borðunum og í hillum eftir
hana. “Eg er mikill safnari og ef ég
kemst yfir eitthvað sem mér finnst
fallegt, til dæmis efni eða hlut þá
geymi ég það. Eg gekk í gegnum
tímabil einu sinni þar sem ég safh-
aði fallegum efnum þó ég ætti ekki
saumavél. Mikið úr þessum skreyt-
ingum til dæmis er úr hlutum sem
eru komnir úr öllum áttum og eru
ekkert endilega jólaskraut.”
A leiðinni heim til Ellýjar er hún
dugleg að benda á allar jólaskreyt-
ingarnar á húsunum á Vesturgöt-
unni og greinilegt að henni finnst
mikið til þeirra koma. “Það er svo
mikið skreytt hérna, mér finnst
það vera meira en fyrir síðustu jól.
Þetta er rosalega flott þegar það er
komið myrkur því þá er þetta eins
og jólabær með öllum jólaljósun-
um.” Húsið hennar, sem hún á al-
gjörlega heiðurinn af að utan sem
innan, er einstaklega smekklegt og
glæsilegt. Gólfin eru dökkleit,
enda flotuð með steypu, og innbú-
ið er að mestu leyti hvítt og svart.
Það er greinilegt að Ellý finnst
mikilvægt að hafa fallegt í kringum
sig. “Jólatréð mitt í ár verður
skreytt með glerperlum og perlu-
festum, glærum kúlum og vírkúl-
um. Svo er um að gera að skreyta
ekki bara jólatréð heldur blómin
líka.” Ellý segist aðeins fara efiir
eigin smekk og hugarflugi þegar
hún byrjar að skreyta. “Eg kaupi
nú bara svona ódýrt skraut í
Blómavali og svoleiðis búðum og
er dugleg við að gera það sem mér
dettur í hug við það, taka það í
sundur og setja það saman við ann-
að og blanda saman. Maður þarf
ekkert að hafa þetta alveg eins og
það kemur úr búðinni. Svo er alveg
svaka gaman að pakka inn gjöfun-
um, það fer mjög mikill tími í það
hjá mér, örugglega alltof mikill. Eg
er rosalega metnaðarfull þegar
kemur að jólapökkunum..” Það er
greinilegt að Ellý er stolt af húsinu
sínu enda hlýtur það að teljast sér-
stakt að kona ráðist í þetta verk,
sérstaklega ef hún er ein. “Já, ég
smíðaði, setti einangrun, klæddi
það og gerði upp öll húsgögnin.
Við stelpurnar erum aldar upp við
það að við eigum að ná okkur í
mann og gifta okkur vel. Eg vil
bara vera ein og búa ein og vera
sjálfstæð. Allavega núna,” segir
hún og hlær. “Það er aldrei að vita
hvort það komi svo annað hljóð í
mann seinna.”
GG
Þessi mynd af Ellý var tekin á sl. ári þegar hún vann við hellulögn utan við Hvíta húsið. Hér var ekki slegið af.
Öskum Vestlendingum.
öllum gleðilegra jóla og
farsœldar á nýju ári
Verzlunarmannafélag Reykjavíkur \§§p
Sendum oltkar bestu
inla- pg nýárskvedjur
með hjartanlegu
þakklœti jyrir
ómetanlegan stuðning
á árinu sem er að líða.
s ••
Oskar Orn,
Aslaug Osk,
ÞurídurArna
og Oddný Erla
/
(%Áum (l{''Sf/e/ic///Ujf({/?f
&em (Hj /asic/s/riö/mum/
ö/Áuu^ (j/eðt/ejjrajó/u
ajjjýur&œ/c/ar á njjju/ ár/
v ftö//u/)i oúhÁ’/fí/út
á örúiu se/u e/< ací/úfa
V
J