Skessuhorn - 20.12.2005, Qupperneq 60
60
ÞRIÐJUDAGUR 20. DESEMBER 2005
Herra nærfatnaöur og
náttbuxur í úrvali
Ný brók fyrirjólin
Passar í skóinn
Jlbs
Friðarganga á Þorláksmessu
Meðlimir í Endurhæfingarsmiðj-
unni Glóð efna til Friðargöngu á
Þorláksmessu á Akranesi, en ganga
af þessu tagi er árlegur viðburður í
Reykjavík og á Akureyri. Aætlað er
að gangan hefjist við Ráhúsið, Still-
holti 18, klukkan 18:00 þann 23.
desember. Gengið verður í kyrrð
og ró sem leið liggur á Akratorg þar
sem séra Eðvarð Ingólfsson ávarpar
göngufólk stuttlega, Kirkjukór
Akraness flytur fáein lög og sömu-
leiðis meðlimir í skóalhljómsveit
Akraness.
Hugmyndin að göngunni kvikn-
aði þegar fyrirlesari sem er með-
limur í Friðardúfunum, alþjóðlegri
friðarhreyfingu kvenna og aðila að
Menningar- og friðarsamtökum ís-
lands sem skipuleggur gönguna í
Reykjavík, flutti stutt erindi í heim-
sókn hjá smiðjunni. Það var sam-
dóma álit þeirra sem þátt tóku í
umræðum á effir að friðargangan
væri þarft innleg í jólaundirbúning
Akurnesinga. Við vorum öll sam-
mála um að þar sem mikil áhersla er
lögð á frumkvæði, virkni, innri ffið
og sátt við lífið í endurhæfing-
arsmiðjunni fælist rökrétt framhald
í því að við tækjum að okkur að
skipuleggja göngu á Akranesi, enda
teljum við að friður í hjarta hvers
manns sé forsenda friðar í víðara
samhengi. Með þessu framtaki von-
umst við einnig til þess að vekja
fólk til vitundar um það að mikil-
væg skref í friðarátt eru stigin í
brjóstum þeirra manna og kvenna
sem taka afstöðu gegn hverskyns
ofbeldi og óréttlæti og sýna það í
verki. Friðarganga á Þorláksmessu
er kjörinn vettvangur til þess, um
leið og það er ákaflega viðeigandi
að sýna þennan friðarvilja í verki í
tengslum við þá friðarhátíð sem jól-
in eru.
Með kveðju og von um að sjá
sem flesta.
Fyrir h 'ónd Glóðar,
Anna Lára Steindal.
Glitský
✓
a
Hvann-
eyri
Jólalegt er orðið um að litast á
Hvanneyri þessa dagana og jóla-
ljós víða komin upp. Það var því
falleg sjón sem blasti við Hvann-
eyringum þegar glitský var á
himni heilan morgun og skartaði
sínu fegursta fyrir ofan þorpið í
stíl við jólaljósin. Margir Hvann-
eyringar náðu að sjá skýið þar
sem tölvupóstur var sendur út á
nemendur og starfsmenn og
flykktust menn út til að dást að
því. Axel Kárason nemandi tók
þessa mynd þar sem glitskýið
tindrar fyrir ofan Skessuhornið
og hús Isgeirs fjósameistara sem
komið er í jólabúninginn. Glitský
eru mjög litskrúðug og falleg ský
sem myndast þegar óvenju kalt er
hátt uppi í heiðhvolfinu. Stund-
um eru glitský einnig nefnd
Perlumóðurský vegna þess að
litadýrðin líkist oft hvítu lagi sem
sjá má innan í sumum skeljum.
Þau sjást helst um miðjan vetur,
um sólarlag eða sólaruppkomu
eins og átti við í þessu tilfelli.
Aðstæður fyrir glitský voru ó-
venjuhagstæðar þennan daginn
og sáust þau víða um land.
GuSrún Bjamadóttir/
Ljósmynd: Axel Kárason
Góðir tónleikar í Borgameskirkju
Fjölmenni var í Borgarneskirkju
sl. þriðjudagskvöld þegar haldnir
voru jólatónleikar með þeim systk-
inum Ellen Kristjánsdóttur og
Kristjáni Kristjánsyni sem í daglegu
tali gegna nafninu Ellen og KK.
Flutm þau gullfalleg jólalög af ný-
útkomnum jóladiski sínum og var
virkilega góð stemning á tónleikun-
um sem einkenndust af fallegum og
rólegum jólatónum. Fyrir utan ein-
staklega fallegan söng vakti undir-
spil Kristjáns á gítarinn athygli en
hann fór hreinlega á kosmm í ffá-
bærum undirleik sínum. IJ