Morgunblaðið - 16.05.2019, Blaðsíða 2
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Á makrílveiðum Skipverji gerir
klárt áður en trollið er látið fara.
Ráðlögð makrílveiði tvöfaldast
Mun meira er til skiptanna en útlit var fyrir Strandríkin funda um nýja stöðu í London eftir helgi
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Alþjóðahafrannsóknaráðið (ICES)
hefur endurskoðað ráðgjöf sína um
makrílveiðar. Ráðlögð veiði í ár er
rúmlega 770 þúsund tonn sem er
meira en tvöfalt meiri afli en stofn-
unin taldi í haust að óhætt væri að
veiða. Strandríkin funda um þessa
nýju stöðu eftir helgi.
„Þetta er framhald af vinnu sem
staðið hefur yfir frá því í október þeg-
ar ráðgjöfin var fyrst kynnt. Þá voru
uppi efasemdir um að allt væri með
felldu í þeim líkönum sem notuð voru
við stofnstærðarmat. Farið var í það
að skoða aðferðafræðina,“ segir Þor-
steinn Sigurðsson, sviðsstjóri á upp-
sjávarsviði Hafrannsóknastofnunar.
Upp fyrir hættumörk
Niðurstaða upphaflegs mats gaf til
kynna að stofninn væri kominn niður
fyrir áhættumörk. Með endurskoðun
á mati hrygningarstofnsins fer hann
upp fyrir þessi mörk og þess vegna
eykst ráðlögð hámarksveiði makríls
úr 318 þúsund tonnum í rúmlega 770
þúsund tonn. Aukningin er 142%.
Ekki er samkomulag um skiptingu
kvótans og hefur aflinn farið langt
fram úr ráðgjöf á undanförnum ár-
um. Noregur, Evrópusambandið og
Færeyjar ákváðu 653 þúsund tonna
heildarkvóta. Skiptu 551 þúsund
tonnum á milli sín og skildu 102 þús-
und tonn eftir fyrir Íslendinga,
Grænlendinga og Rússa sem er langt
undir afla þessara ríkja undanfarin
ár. Íslensk stjórnvöld hafa tilkynnt
að þau muni miða kvóta sinn við
16,5% af heildarkvótanum sem hin
ríkin miða við, eða tæplega 108 þús-
und tonn og Grænlendingar hafa gef-
ið út að þeir taki sér 60 þúsund tonn.
Stjórnvöld á Íslandi hafa hins vegar
ekki gefið út kvóta vegna óvissu um
úthlutunarreglur eftir dóma Hæsta-
réttar.
Evrópusambandið sem sér um
fundi strandríkjanna þetta árið hefur
boðað til fundar í London á mánudag
og þriðjudag til að fara yfir endur-
skoðaða ráðgjöf ICES. Kristján
Freyr Helgason, formaður íslensku
viðræðunefndarinnar, segir alltaf
markmiðið að ná samningum enda
betra að stunda veiðar innan samn-
ings en utan. Hann segir að það ætti
að auðvelda samninga að nú sé meira
til skiptanna en gert var ráð fyrir. Af-
staða Noregs, ESB og Færeyja eigi
þó eftir að koma í ljós.
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 16. MAÍ 2019
a.
595 1000
ugs
Bir
tm
eð
fyr
irv
ar
au
m
pr
en
tvi
llu
r.
He
im
sfe
rð
ir
ás
kil
ja
sé
rr
étt
til
lei
ðr
étt
ing
aá
slí
ku
.A
th.
að
ve
rð
ge
tur
br
ey
st
án
fyr
irv
ar
a
60+Gran Canaria
ur
br
ey
st
án
fyr
irv
r
ðGu va
12. nóvember í 16 nætur
Frá kr.
234.995
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is
Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Stefán Gunnar Sveinsson
sgs@mbl.is
Seinni umræðu um þingsályktunartil-
lögu utanríkisráðherra um innleiðingu
á þriðja orkupakkanum svonefnda var
fram haldið í gær. Var umræðunni ekki
lokið þegar Morgunblaðið fór í prentun
í gærkvöldi og var rúmlega tugur þing-
manna eftir á mælendaskrá. Voru ít-
arlegar umræður um málið og veittu
þingmenn tíð andsvör við ræðum.
Einungis átta þingfundadagar eru
eftir á yfirstandandi löggjafarþingi
samkvæmt starfsáætlun þingsins og
lagði varaforseti þingsins, Guðjón S.
Brjánsson, til við upphaf þingfundar að
vikið yrði frá þingsköpum svo að fund-
urinn gæti staðið fram á kvöld.
Sagði Guðjón í samtali við Morgun-
blaðið um kvöldmatarleytið í gær-
kvöldi að ólíklegt væri að þingfundur-
inn myndi standa fram yfir miðnætti,
en í umræðum um fundarstjórn for-
seta í gærkvöldi kom fram vilji þing-
manna til þess að slíta umræðunni á
skikkanlegum tíma vegna nefndar-
starfa Alþingis í dag.
Sagði Guðjón því nær öruggt að
halda þyrfti umræðunni um orkupakk-
ann áfram á næsta þingfundadegi sem
er á mánudag. „Það er ljóst að þing-
menn vilja tjá sig um málið og það er
mikilvægt að þeir fái að gera það,“
sagði Guðjón.
Spurt um gildi fyrirvarans
Meginlínur umræðunnar voru nokk-
uð ljósar, þar sem það voru einkum
þingmenn Miðflokksins og Flokks
fólksins sem lýstu efasemdum um gildi
þess að orkupakkinn yrði samþykktur
en þingmenn annarra flokka sem tóku
til máls voru öllu hlynntari málinu.
Snerust umræðurnar í gær að miklu
leyti um þann fyrirvara sem þings-
ályktunartillagan gerir við innleiðingu
reglugerða er tengjast orkuflutningi
frá Íslandi og hvert lagalegt gildi hans
yrði.
Orkupakkinn ræddur
á þinginu fram á kvöld
Rúmlega tugur þingmanna enn á mælendaskrá
Morgunblaðið/Ómar
Alþingi Umræður um orkupakkann
stóðu fram á kvöld í gærkvöldi.
Mikill áhugi var á veglegu flugukastsnámskeiði
Moggaklúbbsins og Veiðihornsins, sem haldið
var í húsakynnum Árvakurs við Hádegismóa í
gær. Fengu þátttakendur þar fyrst bóklega
kennslu í flugukastsfræðunum, og svo var haldið
að Rauðavatni þar sem nemendurnir fengu að
spreyta sig, bæði á einhendur og tvíhendur. Var
gerður góður rómur að námskeiðinu þó að aflinn
hafi verið í minni kantinum að þessu sinni.
Veglegt flugukastsnámskeið í boði Moggaklúbbsins og Veiðihornsins
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Sýndu réttu handtökin í flugukasti
Ísland er í
fyrsta sæti
barnaréttar-
stuðulsins eða
KidsRights in-
dex, sem er
mælikvarði á
það hvernig
aðildarríki
Barnasátt-
mála Sameinuðu þjóðanna virða
réttindi barna.
Frjálsu félagasamtökin Kids-
Rights birta stuðulinn árlega. Um er
að ræða alþjóðleg samtök sem hafa
það að markmiði að stuðla að velferð
barna um allan heim og vinna að því
að réttindi þeirra séu virt. Á þessu
ári eru birtar tölur frá 181 landi og
er Ísland sem fyrr segir í fyrsta
sæti. Í fyrra var Ísland í öðru sæti á
eftir Noregi en árið 2017 var Ísland í
fjórða sæti.
Stuðullinn byggist á tilmælum
barnaréttarnefndar Sameinuðu
þjóðanna til aðildarríkja Barnasátt-
málans, upplýsingum frá UNICEF
og UNEP. Þá byggjast niðurstöð-
urnar á 20 mælikvörðum um líf,
heilsu, vernd, menntun og umhverfi
réttinda barna. mhj@mbl.is
Ísland í
fyrsta sæti á
lista yfir rétt-
indi barna
Barnaréttar-
stuðullinn 2019