Morgunblaðið - 16.05.2019, Blaðsíða 54
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 16. MAÍ 2019
Bláu húsin v/Faxafen
Sími 553 7355 • www.selena.is • Selena
undirfataverslun • Næg bílastæði
Frábært úrval af
sundfatnaði
konar afnæmingu fyrir þessum nei-
kvæðum tengslum sem hafa verið
viðloðandi BDSM.“ Mörg fyrirtæki
hafa undanfarið birt myndir af
vörumerkjum og vörum sínum í
BDSM-fatnaði og meir að segja
lögreglan á höfuðborgarsvæðinu
tók þátt með því að klæða lög-
regluþjóna í slíkan fatnað. Margrét
segir að allt auki þetta sýnilega
BDSM og hjálpi til við að norm-
alísera umræðuna. „Það er gríð-
arlega mikilvægt að fólk sé óhrætt
að hugsa um BDSM, að ég tali nú
ekki um að það leyfi sér að tala um
BDSM án þess að fá eitthvert
sjokk. Þetta er bara partur af
mannlegum fjölbreytileika og ekk-
ert sem skilgreinir mann frá a til ö,
þetta er bara einhver persónulegur
hluti af manni sem er mikilvægur
fyrir mann en litar ekki allt lífið. Ef
maður fréttir af því að Lára frænka
hafi verið að skrá sig á einhverja
Sigurður Þorri Gunnarsson
siggi@mbl.is
„Við stöndum eiginlega gapandi
og nuddum augum,“ segir Margrét
Nilsdóttir, formaður BDSM á Ís-
landi, um þá
miklu athygli
sem BDSM hef-
ur fengið í
tengslum við
þátttöku Hatara
í Eurovision.
„Það er frábært
að sjá að það sé
verið að setja
okkur í nýtt
samhengi. Eitt-
hvað svona já-
kvætt, eitthvað skemmtilegt.
Tengja okkur við eitthvað annað en
lélega vonda karla í bíómyndum. Ég
held bara að íslenska þjóðin og bara
vonandi öll Evrópa sé í einhvers-
BDSM-síðu þá á það ekki að vera
eitthvert stórmál og breyta sam-
skiptunum við téða frænku,“ segir
Margrét og bætir við að líkja megi
þessu sem Hatari er að gera núna
við það þegar Dana International
kom og setti transfólk á kortið með
sigri í Eurovision 1998. „Við alla-
vegana vonum þegar rykið sest og
Eurovision er búið að það sem
standi eftir sé það að við séum til og
að við séum ekki eitthvað klikkuð.“
Margrét er sömuleiðis ánægð
með hvernig Hatari hefur komið
fram. Margir listamenn hafa í gegn-
um tíðina komið fram með ein-
hverjar tengingar í BDSM, t.d.
Rammstein, en það má segja að
þetta sé í fyrsta skipti sem hljóm-
sveit með jafn breiðan og stóran
áheyrendahóp komi fram sem
BDSM-listamenn. „Þau eru ekki
bara að taka eina og eina táknmynd
frá okkur upp úr kassanum og
skreyta sig með henni heldur tala
þau opinskátt um BDSM og að þau
séu BDSM-hljómsveit.“
Margrét hefur gaman af Euro-
vision og horfir alltaf á keppnina en
hún segir að keppnin hafi óneitan-
lega djúpstæðari merkingu í ár.
„Það kæmi mér ekkert á óvart að
við ynnum þetta í ár,“ bætir hún við
að lokum jákvæð í bragði.
BDSM-æði hefur gripið um sig á Íslandi
Þátttaka andkapítalísku BDSM-hljómsveitarinnar
Hatara í Eurovision hefur væntanlega ekki farið
framhjá neinum. Segja má að með þátttöku Hatara
hafi ákveðið BDSM-æði gripið um sig á landinu og
þykir það ekki tiltökumál að klæða sig í fatnað
tengdan BDSM eða skreyta vörumerki og vörur í
þessum stíl. En hvað ætli þeim sem stunda BDSM
eða skilgreina sig BDSM-hneigða finnist um alla
þessa athygli?
Margrét
Nilsdóttir
BDSM æði Lögreglan, Bónus og sælgætisgerðin Freyja eru meðal þeirra sem hafa verið með BDSM þema í vikunni.