Morgunblaðið - 16.05.2019, Blaðsíða 69

Morgunblaðið - 16.05.2019, Blaðsíða 69
MENNING 69 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 16. MAÍ 2019 Hvað getum við gert? KPMG stendur fyrir ráðstefnunni en Kristín Linda Árnadóttir forstjóri Umhverfisstofnunar opnar. Meðal fyrirlesara verður Tomas Otterström sem fer fyrir sjálfbærniráðgjöf KPMG á Norðurlöndunum og er leiðandi á sviði sjálf- bærra fjármála hjá KPMG Global. Tomas býr yfir 20 ára reynslu úr ráðgjöf og eignastýringu og hefur aðstoðað fyrirtæki, fagfjárfesta og sjóði við að skilja og samtvinna þætti umhverfis, samfélags og stjórnarhátta við starfsemi sína. Ráðstefnustjóri er Hrund Gunnsteinsdóttir framkvæmdastjóri Festu. Tomas Otterström, KPMG Trends in sustainable finance Margrét Sveinsdóttir, Arion Banka Ábyrgar fjárfestingar Hrefna Hallgrímsdóttir, Elkem Kolefnishlutlaus framtíð Sigurður Friðleifsson, Orkusetur Tækifæri fyrirtækja í orkuskiptum Óskar Þórðarson, Omnom Sjálfbærni og virðiskeðja Omnom GRAND HÓTEL REYKJAVÍK FÖSTUDAGINN 17. MAÍ | KL. 9-12 3.500 KR. | SKRÁNING Á KPMG.IS RÁÐSTEFNA UM SJÁLFBÆRNI FYRIRTÆKJA Málverk eftir franska meistarann Claude Monet, Meules eða Kornsát- ur frá árinu 1890 var slegið hæst- bjóðanda hjá Sotheby’s uppboðshús- inu á þriðjudagskvöld fyrir 110,7 milljónir dala, um 13,6 milljarða króna. Er þetta hæsta verð sem nokkru sinni hefur verið greitt fyrir málverk eftir einhvern impressjón- istanna á uppboði og níunda hæsta verð sem greitt hefur verið fyrir listaverk á uppboði. Seljandinn er óþekktur safnari og kaupandinn er heldur ekki þekktur. Samkvæmt The New York Times keypti seljandinn verkið á uppboði árið 1986 og greiddi þá tvær og hálfa milljón dala. Verðið á verkinu við hamarshögg var tvöfalt matsverð þess. Á árunum 1890 og 91 málaði Monet 25 verk af kornsátum nærri heimili sínu í Giverny í Frakklandi og túlkaði ólíka birtu í hverju þeirra. Þetta eru rómuð og vinsæl verk og flest í eigu safna; það sem nú var selt er eitt af átta sem enn eru í einka- eigu og hafa ríkir safnarar barist um þau sem hafa komið á markaðinn á síðustu áratugum. Dýrasta málverkið eftir impressjónista AFP Litríkt Gestir hjá Sothebys ræða hið verðmæta verk eftir Claude Monet sem var selt fyrir um 13,6 milljarða. Vortónleikar Kvennakórs Háskóla Íslands verða haldnir í Hátíðarsal Háskólans 18. maí kl. 16. Verða þetta síðustu tónleikar Margrétar Bóas- dóttur sem stjórnanda kórsins en hún stofnaði kórinn ásamt hópi nem- enda í desember 2005. Kórinn skipa nemendur og kenn- arar HÍ ásamt nokkrum útskrifuðum nemendum og mun hópur fyrri kór- félaga syngja með í nokkrum lögum. Efnisskráin verður fjölbreytt en kór- inn mun flytja þrjú lög úr leikritinu Híbýli vindana eftir Pétur Grétars- son og mun hann sjálfur leika með á harmonikku. Hafa lögin aldrei áður heyrst utan leiksviðs. Auk þess verða frumfluttar tvær heimspekisonnett- ur eftir Kristján Hreinsson. Mun kórinn jafnframt flytja fyrstu kvennakóraútsetningu á verðlauna- laginu „Landið mitt“, eftir Jóhann G. Jóhannsson. Ýmis önnur lög verða flutt á tónleikunum, til að mynda kórtónlist eftir Xavier Sarasola og Eric Whitacre. Stjórnandi Margrét Bóasdóttir. Stjórnar í síðasta sinn Á tónleikum Sinfóníuhljómsveitar Íslands í Eldborg í kvöld munu strengjaleikararnir Ari Þór Vil- hjálmsson fiðluleikari ásamt Sigurgeiri Agnarsyni sellóleikara leika einleik. Munu þeir flytja tilfinningaþrunginn tvíkonsert eft- ir Johannes Brahms fyrir fiðlu og selló, síðustu hljómsveitarverk tónskáldsins. Önnur verk sem flutt verða á tónleikunum eru Akademískur hátíðarforleikur eft- ir Brahms sem lýkur með stúd- entasöngnum Gaudeamus igitur, Sinfónía 3. eftir píanóleikarann Louise Farrenc og España eftir Emmanuel Chabrier. Stjórnandi er Bjarni Frímann Bjarnason, aðstoðarhljómsveitarstjóri Sinfón- íuhljómsveitar Íslands. Ari Þór Annar þeirra sem munu leika einleik í Eldborg í kvöld. Einleikur í Eldborg
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.