Morgunblaðið - 16.05.2019, Blaðsíða 10
10 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 16. MAÍ 2019
Greiðsluáskorun
Innheimtumenn ríkissjóðs skora hér með á gjaldendur eftirtalinna
gjalda að gera skil nú þegar eða í síðasta lagi innan 15 daga
frá dagsetningu áskorunar þessarar:
Gjöldin eru: Staðgreiðsla tekjuskatts, útsvars og tryggingagjalds sem fallið hefur í eindaga til
og með 15. maí 2019, virðisaukaskattur sem fallið hefur í eindaga til og með 6. maí 2019 og
önnur gjaldfallin álögð gjöld og ógreiddar hækkanir er fallið hafa í eindaga til og með 15. maí
2019, á staðgreiðslu tekjuskatts, útsvars og tryggingagjalds, virðisaukaskatti, virðisaukaskatti
í tolli, vanskilum launagreiðenda á gjöldum í og utan staðgreiðslu, fjármagnstekjuskatti á
skilaskylda aðila, áfengisgjaldi, bifreiðagjaldi, úrvinnslugjaldi, olíugjaldi, kílómetragjaldi, gisti-
náttaskatti, fjársýsluskatti, vinnueftirlitsgjaldi, vörugjaldi af innlendri framleiðslu, vörugjaldi af
ökutækjum, eftirlitsgjöldum, árgjöldum, aðflutningsgjöldum, skilagjaldi á umbúðir, fasteigna-
gjöldum, skipulagsgjaldi, skipagjöldum, jarðarafgjaldi, sektum skattrannsóknarstjóra,
ofgreiddri uppbót á eftirlaun, eftirlitsgjaldi Fjármálaeftirlitsins, árgjaldi handhafa markaðsleyfis,
veiðigjaldi og álögðum þing- og sveitarsjóðsgjöldum, sem eru:
Tekjuskattur og útsvar ásamt álagi á ógreiddan tekjuskatt og útsvar, útvarpsgjald,
gjald í framkvæmdasjóð aldraðra, slysatryggingagjald vegna heimilisstarfa,
auðlegðarskattur og viðbótar auðlegðarskattur, fjármagnstekjuskattur ásamt álagi á
ógreiddan fjármagnstekjuskatt, ógreiddur tekjuskattur af reiknuðu endurgjaldi ásamt
álagi, búnaðargjald, sérstakur fjársýsluskattur, sérstakur skattur á fjármálafyrirtæki,
jöfnunargjald alþjónustu, ofgreiddar barnabætur og ofgreiddar vaxtabætur.
Fjárnáms verður krafist án frekari fyrirvara að þeim tíma liðnum fyrir vangoldnum eftirstöðvum
gjaldanna ásamt dráttarvöxtum og öllum kostnaði, sem af innheimtu skuldarinnar kann að
leiða, á kostnað gjaldenda.
Athygli skal vakin á því að auk óþæginda hefur fjárnám í för með sér verulegan kostnað fyrir
gjaldanda. Fjárnámsgjald í ríkissjóð er allt að 25.000 kr. fyrir hvert fjárnám. Þinglýsingargjald
er 2.500 kr. auk útlagðs kostnaðar eftir atvikum. Eru gjaldendur hvattir til að gera full skil sem
fyrst til að forðast óþægindi og kostnað.
Þá mega þeir gjaldendur, sem skulda staðgreiðslu, staðgreiðslu tryggingagjalds, vörugjald,
afdreginn fjármagnstekjuskatt, áfengisgjald, fjársýsluskatt, gistináttaskatt og virðisaukaskatt,
búast við því að starfsemi þeirra verði stöðvuð án frekari fyrirvara, þeir gjaldendur er skulda
bifreiðagjöld og kílómetragjald mega eiga von á að skráningarnúmer verði tekin af ökutækjum
þeirra án frekari fyrirvara og þeir gjaldendur sem skulda gjöld þar sem lögveð fylgir mega
búast við að send verði út sérstök greiðsluáskorun fyrir gjaldföllnum kröfum. Greiðsluáskorunin
hefur ekki áhrif á þessi innheimtuúrræði þannig að fyrrgreindur 15 daga frestur frá dagsetningu
áskorunar þessarar gildir ekki í þessum tilvikum.
Reykjavík, 16. maí 2019
Ríkisskattstjóri
Sýslumaðurinn á Vesturlandi
Sýslumaðurinn á Vestfjörðum
Sýslumaðurinn á Norðurlandi vestra
Sýslumaðurinn á Norðurlandi eystra
Sýslumaðurinn á Austurlandi
Sýslumaðurinn á Suðurlandi
Sýslumaðurinn í Vestmannaeyjum
Sýslumaðurinn á Suðurnesjum
Samfara hinni miklu uppbyggingu á
Hafnartorgi í Kvosinni í Reykjavík
hafa orðið til tvær nýjar göngugötur,
Kolagata og Reykjastræti.
Kolagata er nú fullkláruð. Hún
liggur eftir endilöngu torginu, frá
vestri til austurs. Hún nær frá Toll-
húsinu (Kolaportinu) að Lækjargötu/
Kalkofnsvegi, gegnt Arnarhóli. Þar
er m.a. að finna verslun H&M og
fleiri verslanir verða opnaðar þarna
síðar meir. Kolagata mælist 136
metrar í Borgarvefsjá.
Tillaga að nafninu kom frá nafna-
nefnd Reykjavíkur með tilvísun til
þess að þarna hafi kolum verið skipað
á land fyrr á árum. Þá stóð kolakran-
inn Hegri skammt þar norðan við.
Hann var reistur 1927 og rifinn 1968.
Reykjastræti nær frá Hafnar-
stræti alveg norður að Hörpu. Það
liggur milli stórhýsa sem risið hafa á
Hafnartorgi og einnig milli stórhýsa
sem nú eru í byggingu á Hörpulóð-
inni. Eru það annars vegar íbúðarhús
og Marriott Edition Hótel, fimm
stjörnu glæsihótel, og hins vegar ný-
bygging Landsbankans. Hið nýja
stræti verður tilbúið þegar Lands-
bankahúsið verður fullbúið. Nafnið
vísar til heitis höfuðborgar Íslands,
Reykjavík. sisi@mbl.is.
Morgunblaðið/sisi
Hægt er að ganga
Kolagötuna á enda
Kolagata Hin nýja göngugata er fullkláruð. Horft í áttina að Kolaportinu.
Viðbúið er að atvinnuleysisbætur á
þessu ári muni rjúka upp og verða
mörgum milljörðum hærri en gert
hafði verið ráð fyrir. Þetta sagði
Bjarni Benediktsson fjármálaráð-
herra á Alþingi í gær í svari við
fyrirspurn frá Oddnýju G. Harðar-
dóttur, þingflokksformanni Sam-
fylkingarinnar, um fjármálaáætlun
ríkisstjórnarinnar. Benti Oddný á að
von væri á fjármálaáætluninni í
næstu viku og yrði henni væntan-
lega mikið breytt í ljósi „óhag-
stæðrar hagspár sem Hagstofan
kynnti á dögunum“.
„Það sem við erum að glíma við
núna, eftir að ný hagspá var birt á
föstudaginn, er mesta breyting í
hagvexti sem við höfum séð í áratugi
þegar hrunið er tekið til hliðar, þ.e.
það er mesta breyting til hins verra
á milli spágerða. Spurningin sem við
stöndum frammi fyrir er sú hvort
mér beri ekki hreinlega, og ég hall-
ast að því, að koma með nýja fjár-
málastefnu sem markar þá sporin
fyrir framtíðina,“ sagði Bjarni.
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Alþingi Bjarni Benediktsson.
Endurskoðar
fjármálaáætlun
Höskuldur Daði Magnússon
hdm@mbl.is
„Við erum alla daga að skoða kjör
rithöfunda og auðvitað styðjum við
glæpasagnahöfunda ef þeir vilja
bæta sína stöðu. Við getum hins veg-
ar ekki haft áhrif á úthlutanir starfs-
launa, hverjir fá laun og hversu oft.
Það væri óeðlilegt. Það verður að
vera traustur eldveggur á milli út-
hlutunarnefndar og okkar,“ segir
Karl Ágúst Úlfsson, formaður Rit-
höfundasambands Íslands.
Gagnrýna skort á framlögum
Morgunblaðið greindi í gær frá
óánægju glæpasagnahöfunda með
skort á opinberum stuðningi við höf-
unda í þeirri grein bókmenntanna.
Metsöluhöfundarnir Yrsa Sigurðar-
dóttir og Ragnar Jónasson bentu þar
á að glæpasagnahöfundar hafa að-
eins fengið 0,63% af listamannalaun-
um úr launasjóði rithöfunda síðasta
áratug. Eins gagnrýna þau skort á
framlögum til þýðinga glæpasagna
og benda á að ungur glæpasagnahöf-
undur hafi aldrei hlotið nýræktar-
styrk.
Allt heyrir þetta að einhverju leyti
undir Rithöfundasambandið því
þriggja manna úthlutunarnefnd
launasjóðs rithöfunda er skipuð sam-
kvæmt tillögum RSÍ. Þá eru tveir af
fimm stjórnarmeðlimum Miðstöðvar
íslenskra bókmennta, sem úthlutar
m.a. þýðingarstyrkjum og nýrækt-
arstyrkjum, skipaðir af sambandinu.
Gerum ekki upp
á milli barnanna
„Það eru mjög margir hópar sem
eru ekki ánægðir með sinn prósentu-
hlut, til að mynda barnabókahöfund-
ar og þýðendur. Mér vitanlega hefur
aldrei verið rætt í fullri alvöru að
taka upp kvótaskiptingu. Það hefur
aldrei nokkurn tímann verið neinn
vilji til þess,“ segir Ragnheiður
Tryggvadóttir, framkvæmdastjóri
Rithöfundsambands Íslands.
Hún segir að líta verði til þess að
aðeins séu ein lög um listamanna-
laun, ekki séu sérstök lög um rithöf-
undalaun. Ef gera ætti breytingar
þyrftu þær breytingar að ná yfir alla
launasjóðina. „Þau félög sem til-
nefna í úthlutunarnefndir hafa ekki
eitt einasta umboð til að vera með
puttana í úthlutuninni sjálfri. Það er
sjálfsagt að rithöfundar hafi skoðun
á þessu en við getum ekki ákveðið
áherslur í úthlutun. Þá værum við
farin að gera upp á milli barnanna
okkar.“
Vill verðlauna glæpasögur
Yrsa setti fram þá hugmynd í sam-
tali við Morgunblaðið í gær að
glæpasögur yrðu verðlaunaðar í sér-
stökum flokki á Íslensku bók-
menntaverðlaununum. Karl Ágúst
telur þá hugmynd góðra gjalda
verða. „Það er bara ekkert að því.
Mér finnst að við eigum að sýna rit-
höfundum sem mestan sóma, sama í
hvaða grein sem það er.“
Margir hópar eru óánægðir
Forsvarsmenn Rithöfundasambands Íslands segja erfitt að ætla að stýra úthlut-
unum ritlauna Glæpasagnahöfundar ósáttir Gerum ekki upp á milli höfunda
Morgunblaðið/Rósa Braga
Bækur Glæpasagnahöfundar eru óánægðir með skort á opinberum stuðn-
ingi. Þeir telja að ungir glæpasagnahöfundar eigi erfitt með að fóta sig.
Karl Ágúst
Úlfsson
Ragnheiður
Tryggvadóttir