Morgunblaðið - 16.05.2019, Blaðsíða 61
Stjarnan vann Víking, 4:3, í
markaleik sem spilaður var á
gervigrasvellinum í Laugardal.
Eftir jafnan leik framan af, þar
sem ungir og sprækir Víkingar
höfðu átt fleiri færi, þurfti ekki
nema eina laglega sókn Stjörnu-
manna til þess að breyta leiknum
og eftir að hafa komist yfir virtust
Stjörnumenn aldrei líklegir til
þess að missa forskotið, þrátt fyrir
jafnar lokatölur.
Úr nánast engu skoruðu
Stjörnumenn tvö mörk fyrir hlé
þar sem Hilmar Árni Halldórsson
og Guðjón Baldvinsson skiptust á
að leggja upp fyrir hvor annan,
auk þess sem Guðjón bætti við
öðru strax eftir hlé. Hans fyrstu
mörk í sumar og eflaust þungu
fargi létt af honum. Þorsteinn Már
Ragnarsson hætti aldrei að
hlaupa, lagði upp tvö mörk og enn
fleiri færi. Tengingin milli miðju
og sóknar hjá Garðbæingum var
enn á ný til fyrirmyndar og skap-
aði sífellda hættu. Það tók smá-
tíma að finna taktinn, en þegar
honum var náð var lítið um feil-
nótur. Liðið er enn taplaust og
sýndi í gær að það er góð ástæða
fyrir því.
Þrátt fyrir að fá á sig fjögur
mörk hættu Víkingar aldrei að
reyna og fá hrós fyrir það, enda
skilaði það sér í þremur mörkum
þegar staðan var þegar orðin
svört. Guðmundur Andri Tryggva-
son fór beint inn í byrjunarliðið og
fyrstu drög að samvinnu hans og
Ágústs Hlynssonar eru spennandi,
en hinn síðarnefndi var spræk-
astur Víkinga í leiknum og síógn-
andi. Það er svekkjandi að skora
þrjú mörk en fá ekkert út úr
leiknum, en barátta Víkinga var til
fyrirmyndar. Það skilar hins vegar
ekki stigum í sarpinn.
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Morgunblaðið/Eyþór Árnason
Skoruðu Guðjón Baldvinsson
skoraði tvö marka Stjörnunnar
í Laugardalnum og Sölvi Geir
Ottesen eitt marka Víkings.
ÍÞRÓTTIR 61
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 16. MAÍ 2019
Hefur þú séð nýjasta tilboðs
blaðið?
FOSSBERG
Dugguvogi 6 • 104 Reykjavík • www.fossberg.is • 5757600
Holland
Excelsior – AZ Alkmaar ......................... 4:1
Elías Már Ómarsson skoraði eitt mark
fyrir Excelsior en fór af leikvelli á 83. mín.
Mikael Anderson var ónotaður varamaður.
Excelsior sem endaði í 16. sæti af 18 liðum
og fer í umspil um sæti í deildinni.
Albert Guðmundsson lék í 64 mín., fyrir
AZ sem endaði í 4. sæti og fer í umspil um
Evrópusæti.
Den Haag – Willem II.............................. 6:2
Kristófer Ingi Kristinsson var ekki í
hópnum hjá Willem II. sem varð í 10. sæti.
Lokastaða efstu liða: Ajax 86, PSV 83,
Feyenoord 65, AZ Alkmaar 58.
Pólland
Jagiellonia – Legia Varsjá ..................... 1:0
Böðvar Böðvarsson lék allan leikinn fyr-
ir Jagiellonia sem er í 5. sæti fyrir loka-
umferðina og í baráttu um Evrópusæti.
Noregur
Bikarkeppnin, 2. umferð:
Bryne – Avaldsnes................................... 0:2
Kristrún Rut Antonsdóttir var ekki leik-
mannahópi Avaldsnes.
Sigvaldi Björn
Guðjónsson og
Þráinn Orri
Jónsson og fé-
lagar í Elverum
eru komnir með
tvo vinninga í
keppni við Nor-
egsmeistara Ar-
endal um sigur í
úrslitakeppninni
í norska hand-
boltanum eftir sigur í gær, 30:22, á
heimavelli í annarri viðureign lið-
anna.
Sigvaldi Björn skoraði sjö mörk í
níu skotum. Þráinn Orri náði hins-
vegar ekki að skora. Næst mætast
liðinu á heimavelli Arendal á
sunnudaginn. iben@mbl.is
Íslendingar í
góðri stöðu
Sigvaldi Björn
Guðjónsson
KNATTSPYRNA
Úrvalsdeild karla, Pepsi Max-deildin:
Kórinn: HK – ÍBV ................................ 18.45
Grindavíkurv.: Grindavík – KR........... 19.15
Würth-völlur: Fylkir – Valur............... 19.15
1. deild karla, Inkasso-deildin:
Framvöllur: Fram – Haukar ............... 19.15
3. deild karla:
Fjölnisv.: Vængir Júpíters – Kórdrengir 20
Í KVÖLD!
Síðari þrír leikirnir í fjórðu umferð úrvalsdeildar karla í
fótbolta verða leiknir í kvöld og þar verður fyrst flautað
til leiks í Kórnum hjá HK og ÍBV, klukkan 18.45. Sá leik-
ur átti að fara fram í gær en var frestað um sólarhring
þar sem Eyjamenn komust ekki í land. Liðin tvö sitja
sem stendur í tveimur neðstu sætunum með eitt stig eftir
þrjá leiki. HK og ÍBV hafa aldrei áður mæst á Íslands-
móti í meistaraflokki karla og því er um sögulega við-
ureign að ræða.
Íslandsmeistarar Vals sem sitja með ÍBV og HK á
botni deildarinnar með eitt stig fara í Árbæinn og mæta
taplausum Fylkismönnum. Þeir appelsínugulu sýndu
mikla seiglu með því að jafna í lokin gegn KR á sunnudaginn og ljóst er að
Ólafur Jóhannesson og hans menn þurfa að hafa mikið fyrir hlutunum þar.
Grindvíkingar, sem eru án sigurs en með tvö stig, taka á móti taplausum
KR-ingum, sem líka hafa gert tvö jafntefli, og spila því sinn þriðja heima-
leik í fyrstu fjórum umferðunum. vs@mbl.is
Ólafur
Jóhannesson
Söguleg viðureign í Kórnum
0:1 Hilmar Árni Halldórsson 31.
0:2 Guðjón Baldvinsson 39.
0:3 Guðjón Baldvinsson 48.
1:3 Ágúst E. Hlynsson 54.
1:4 Alex Þór Hauksson 64.
2:4 Júlíus Magnússon 71.
3:4 Sölvi Geir Ottesen 88.
I Gul spjöldHeiðar Ægisson (Stjörnunni)
VÍKINGUR R. – STJARNAN 3:4
M
Ágúst Hlynsson (Víkingi)
Davíð Örn Atlason (Víkingi)
Júlíus Magnússon (Víkingi)
Mohamed Didé Fofana (Víkingi)
Alex Þór Hauksson (Stjörnunni)
Eyjólfur Héðinsson (Stjörnunni)
Guðjón Baldvinsson (Stjörnunni)
Hilmar Á. Halldórsson (Stjörnunni)
Þorsteinn Már Ragnarss. (Stjörn.)
Dómari: Vilhjálmur A. Þórarinss., 8.
Áhorfendur: 673.
1:0 Bjarki Steinn Bjarkason 3.
2:0 Bjarki Steinn Bjarkason 68.
I Gul spjöldGuðmann Þórisson (FH), Ótt-
ar B. Guðmundsson (ÍA), Gonzalo
Zamorano (ÍA), Guðmundur Krist-
jánsson (FH), Cédric D’Ulivo (FH),
Steinar Þorsteinsson (ÍA).
I Rauð spjöldPétur Viðarsson (FH) 71.
ÍA – FH 2:0
MM
Tryggvi Hrafn Haraldsson (ÍA)
Bjarki Steinn Bjarkason (ÍA)
M
Árni Snær Ólafsson (ÍA)
Einar Logi Einarsson (ÍA)
Óttar Bjarni Guðmundsson (ÍA)
Stefán Teitur Þórðarson (ÍA)
Hjörtur Logi Valgarðsson (FH)
Jónatan Ingi Jónsson (FH)
Dómari: Pétur Guðmundsson, 8.
Áhorfendur: Um 1.300.