Morgunblaðið - 16.05.2019, Blaðsíða 59
ÞÝSKALAND
Sindri Sverrisson
sindris@mbl.is
Sandra María Jessen lá inni á
sjúkrahúsi þegar Morgunblaðið
heyrði í henni til að ræða hádrama-
tíska lokaumferð þýsku 1. deildar-
innar í fótbolta þar sem Sandra og
félagar hennar í Leverkusen héldu
sér í deildinni þrátt fyrir afar dökkt
útlit um tíma. Sandra fékk þungt
höfuðhögg í leiknum en fann ekki al-
mennilega fyrir afleiðingum þess
fyrr en sigurvíman rann af henni, en
þá tók við hausverkur og uppköst.
„Við vissum það fyrir leikinn að
þetta væri „allt eða ekkert“-leikur.
Það tók einhvern veginn pressuna af
okkur. Maður fann það allan tímann
hvað stemningin var góð og við vel
samstilltar, og við áttum sennilega
okkar besta leik á tímabilinu. Þetta
var engu að síður mjög erfitt,“ segir
Sandra um lokaleik tímabilsins, en
Leverkusen vann þá liðið í 4. sæti,
Essen, 2:1, þrátt fyrir að vera 1:0
undir þegar 20 mínútur voru eftir.
Leverkusen varð að vinna leikinn
og treysta á að Werder Bremen
myndi ekki vinna Freiburg. Þeim
leik lauk með 1:1-jafntefli og Lever-
kusen hélt sér uppi á kostnað Brem-
en.
„Í þessum leik okkar við Essen þá
fengu bæði lið mikið af færum en
þær skoruðu fyrsta markið. Á sama
tíma var svo Bremen komið í 1:0
gegn Freiburg. Á þessum tíma-
punkti þurftum við því að skora tvö
mörk og treysta á að Freiburg næði
að jafna metin gegn Bremen. Þetta
leit því ekki vel út í hálfleik en við
bara héldum áfram og náðum inn
tveimur mörkum í seinni hálf-
leiknum,“ segir Sandra, en eftir leik
tóku við taugatrekkjandi mínútur:
Ekki síðra en að verða meistari
„Eftir leik vissum við svo ekki
hvernig staðan væri hjá Bremen.
Þjálfarinn talaði við okkur og við
biðum þarna eftir því að sjá staðfest
úrslit á netinu, en allt í einu byrjuðu
einhverjir að öskra af gleði uppi í
stúku, fólk sem var greinilega með
leikinn í beinni. Þá vissum við að
þetta væri komið og við tóku sturluð
fagnaðarlæti. Ég hef upplifað það að
verða Íslandsmeistari og það að
bjarga sér svona frá falli er ekkert
síðra. Þetta var mjög skemmtilegt,“
segir Sandra, sem varð Íslands-
meistari með Þór/KA árið 2017. Hún
var valin besti leikmaður Íslands-
mótsins í fyrra áður en hún gerði
samning til eins og hálfs árs við Lev-
erkusen í janúar.
Þjálfarinn öskraði á mig
að halda áfram
Sandra fékk að fara heim af
sjúkrahúsinu í gær en eins og fyrr
segir fékk hún höfuðhögg í leiknum
sem hún þarf nú að jafna sig á.
Höggið truflaði hana þó ekki í mestu
fagnaðarlátunum: „Tíu mínútum
fyrir leikslok fékk ég boltann beint
aftan á hnakkann og fann að ég varð
pínu ringluð og missti aðeins jafn-
vægið. Ég man svo bara að þjálfar-
inn öskraði á mig að halda áfram að
hlaupa og það var ekkert annað í
boði en að gera það. Við vorum
komnar yfir, 2:1, það var allt undir
og við búnar með skiptingarnar líka.
Maður gleymdi sér einhvern veginn
í þessu. Eftir leikinn var maður svo
bara í sigurvímu yfir þessum frétt-
um að við hefðum haldið okkur uppi.
Það var ekki fyrr en ég gat sest nið-
ur og slakað aðeins á sem ég fór að
finna fyrir hausverk og ógleði, og
byrjaði að kasta upp. Þá fór ég upp á
spítala með sjúkraþjálfaranum,“
segir Sandra en henni líður betur
núna:
„Ég er öll að koma til. Ég er með
smáhausverk núna en þetta verður
allt í góðu. Tímabilið er búið núna og
ég tek mér núna viku í algjörri pásu
áður en ég get farið að æfa eitthvað
aftur. Maður veit helling um það
hvernig höfuðmeiðsli geta verið, eft-
ir umræðuna og frásagnir í blöð-
unum, og veit því hversu mikilvægt
er að hugsa vel um sig fyrstu vik-
urnar eftir svona. Ég fer bara al-
gjörlega eftir þeim ráðleggingum
sem ég hef fengið.“
Fyrsta sumarfrí síðan í 5. flokki
Sandra segir mikla ánægju ríkja
með að Leverkusen hafi haldið sér
áfram í efstu deild:
„Þegar ég skrifaði undir samning
við félagið vorum við í mikilli fallbar-
áttu og ég vissi alveg að ég væri á
leið í þá baráttu. Markmiðið var
bara að við næðum að halda okkur
uppi. Við erum með rosalega ungt og
reynslulítið lið, mikið af efnilegum
leikmönnum sem hafa staðið sig vel
þegar á reyndi en við misstum þrjá
leikmenn út vegna krossbandsslita.
Það eru margar í liðinu búnar að
taka þvílíkum framförum og nú þeg-
ar við höfum tryggt okkur áfram
sæti í deildinni stefnum við bara
hærra á næstu leiktíð,“ segir
Sandra. Nýtt tímabil í Þýskalandi
hefst í september en Sandra fær þó
ekki ýkja langt sumarfrí:
„En þetta er mjög langþráð
sumarfrí, það fyrsta síðan í 5. flokki.
Ég tek mér gott frí núna á meðan ég
jafna mig á þessu höfuðhöggi en svo
fæ ég kannski að sprikla eitthvað
með Þór/KA áður en ég byrja að
gíra mig fyrir næsta tímabil. Við er-
um að fá nýjan þjálfara og hann vill
fá hópinn saman snemma, svo við
mætum til æfinga í kringum 20.
júní,“ segir Sandra, sem er 24 ára
gömul og á að baki 26 A-landsleiki.
Hún hefur skorað 73 mörk í 116
leikjum fyrir Þór/KA í efstu deild,
liðið sem hún hefur lengst af leikið
með, en hún lék sem lánsmaður hjá
Leverkusen vorið 2016 og með
Slavia Prag í fyrravor.
Í sigurvímu á spítalann
Sandra María og Leverkusen héldu sér í efstu deild á dramatískan hátt
Gleymdi sér í gleðinni eftir höfuðhögg en fær góðan tíma til að jafna sig
Ljósmynd/Leverkusen
Þýskaland Sandra María Jessen fagnar marki í leik með Leverkusen.
ÍÞRÓTTIR 59
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 16. MAÍ 2019
TE
N
G
IT
A
U
G
A
R Fallvarnarbúnaður
Hafðu samband og kynntu þér
vöruúrvalið og þjónustuna
Fjölbreytt og gott úrval til á lager
Námskeið um fallvarnir fyrir viðskiptavini
Skoðanir og eftirlit á fallvarnarbúnaði
FA
LLB
LA
K
K
IR
BELTI
Hvernig datt mönnum í hug
að breyta agareglunum í fótbolt-
anum á þá leið að refsingar fyrir
gul og rauð spjöld í bikarkeppni
karla og kvenna væru bara tekn-
ar út í bikarkeppninni sjálfri en
ekki næsta leik á Íslandsmótinu?
Þessi regla er nú í gildi annað
árið í röð og ég sé ekki annað en
þetta sé tóm vitleysa.
Stærstur hluti leikbanna
verður aldrei tekinn út þar sem
gul spjöld fyrnast á milli ára, en
þeir sem fá rautt spjald í bikar-
leik geta þurft að bíða í heilt ár
eða jafnvel lengur eftir því að
taka út bannið.
Í einhverjum tilvikum taka
þeir það jafnvel aldrei út því þeir
geta verið hættir fótboltaiðkun
þegar að því kemur!
Ef leikmaður er semsagt
rekinn af velli í bikarleik, og lið
hans tapar og fellur úr keppni,
tekur hann bannið út í fyrsta bik-
arleik á næsta ári.
Hann gæti fengið spjaldið í
fyrstu umferð í kringum 10. apríl
og þurft að taka út bannið í leik í
32ja liða úrslitum 1. júní á næsta
ári.
Fái hann tveggja leikja bann
gæti hann þurft tvö ár til að af-
plána refsinguna!
Leikmaður sem ætlar að
hætta að tímabili loknu getur í
raun brotið af sér að vild í sínum
síðasta bikarleik og síðan spilað
næstu leiki í deildinni eins og
ekkert hafi í skorist.
Ég held að gamla kerfið þar
sem spjöld og refsingar gengu á
milli bikars og deildar hljóti að
vera skárra. Jafnvel þótt gult eða
rautt spjald í deildarleik geti
kostað leikmann þátttöku í úr-
slitaleik bikarkeppninnar nokkr-
um dögum síðar.
BAKVÖRÐUR
Víðir Sigurðsson
vs@mbl.is
Israel Martin hefur verið ráðinn
þjálfari karlaliðs Hauka í körfu-
knattleik. Martin skrifaði undir
þriggja ára samning. Vænta for-
ráðamenn körfuknattleiksdeildar
Hauka mikils af starfi Martins hjá
félaginu. Hann tekur við starfinu
að Ívar Ásgrímssyni en undir hans
stjórn hafnaði lið Hauka í 10. sæti
Dominos-deildarinnar í vor.
Martin þjálfaði karlalið Tinda-
stóls á síðasta keppnistímabili en
axlaði sín skinn eftir að liðið féll úr
keppni í átta liða úrslitum eftir tap
fyrir Þór frá Þorlákshöfn.
Martin tekinn við
þjálfun Hauka
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Hafnarfjörður Israel Martin þjálfar
hjá Haukum næstu þrjú ár.
Íslendingaslagur verður í undan-
úslitum dönsku úrvalsdeildarinnar
í handknattleik karla þegar Óðinn
Þór Ríkharðsson og samherjar í
GOG mæta Aalborg. Með síðar-
nefnda liðinu leika Janus Daði
Smárason og Ómar Ingi Magnússon
auk þess sem Arnór Atlason er að-
stoðarþjálfari liðsins.
Danmerkurmeistarar Skjern
með þá Tandra Má Konráðsson og
Björgvin Pál Gústavsson innan-
borðs mætir Bjerringbro/Silkeborg
í hinni viðureign undanúrslitanna
sem hefjast á miðvikudag.
Íslendingaslagur í
undanúrslitum
Ljósmynd/GOG.dk
Fljótur Óðinn Þór Ríkharðsson
gekk til liðs við GOG í fyrra.