Morgunblaðið - 16.05.2019, Blaðsíða 47

Morgunblaðið - 16.05.2019, Blaðsíða 47
MINNINGAR 47 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 16. MAÍ 2019 ✝ Sigríður Vil-helmína 0Elías- dóttir fæddist 26. júní 1923 á Akra- nesi. Hún lést á hjúkrunardeild Sjúkrahússins í Neskaupstað 7. maí 2019. Foreldrar Sig- ríðar voru Elías Níelsson, fæddur 27.7. 1896, og Klara Sigurðardóttir, fædd 17.6. 1899. Sigríður var þriðja elsta barn þeirra hjóna, en þau eign- uðust 14 börn og 11 komust á legg. Maður Sigríðar var Ívar Sig- urður Kristinsson, f. 19.6. 1925, d. 9.6. 1992, frá Neskaupstað. Þau giftu sig 26.12. 1946. Ívar og Sigríður eignuðust þrjú börn: 1) Kristinn, fæddur 17.6. a) Ívar, f. 16.6. 1969, kvæntur Stellu Rut Axelsdóttur, f. 20.5. 1972. Þau eiga tvær dætur. b) Sigurborg, f. 10.3. 1975. Seinni maður Klöru var Guðmundur Bjarnason, f. 18. júlí 1949, d. 11. júlí 2015. 3) Erla, fædd 26.11. 1958, gift Hermanni Ö. Steingrímssyni, f. 25.8. 1964. Sonur þeirra er Steingrímur, f. 17.12. 1993. Sigríður kynntist Ívari manni sínum þegar hann kom á vertíð á Akranes 1943. Þau hófu bú- skap í Reykjavík þar sem Ívar lærði húsasmíði. Árið 1949 fluttu þau til Neskaupstaðar og bjuggu þar alla tíð. Sigríður vann við ýmis þjónustustörf og saumaskap heima á Akranesi og í Reykjavík. Í Neskaupstað starfaði hún frá 1969 við þvotta- hús sjúkrahússins sem almenn- ur starfsmaður. Hún varð síðar forstöðumaður þvottahússins þar til hún hætti störfum vegna aldurs. Útför Sigríðar fer fram frá Norðfjarðarkirkju í dag, 16. maí 2019, og hefst athöfnin klukkan 14. 1946, kvæntur Steinunni Lilju Aðalsteinsdóttur, f. 15.6. 1945. Börn þeirra: a) Aðal- steinn Þórðarson, f. 25.9. 1965, kvæntur Jónínu Róberts- dóttur, f. 5.11. 1966. Þau eiga tvö börn og tvö barna- börn. b) Sigríður, f. 22.1. 1968, sam- býlismaður hennar er Jóhann Sveinmar Hákonarson, f. 25.6. 1962. Sigríður á eina dóttur en Jóhann á þrjú börn og sjö barna- börn. c) Ívar Sigurður, f. 20.6. 1974, kvæntur Erlu Halldórs- dóttur, f. 7.1. 1975. Þau eiga þrjár dætur. 2) Klara, fædd 23.3. 1953, fyrri maður hennar var Sæmundur Sigurjónsson, f. 5.7. 1949, og eignuðust þau tvö börn. Mig langar að skrifa nokkrar línur í minningu tengdamóður minnar sem lést 7. maí. Hún var húsmóðir af gamla skólanum. Alltaf allir hlutir á sínum stað. Hún var mikil hannyrðakona, saumaði föt o.fl., heklaði og prjónaði. Hún byrjaði snemma að sauma, vann á saumastofu sem ung kona og byrjaði snemma að sauma á bræður sína en hún var næstelst af 11 systk- inum sem komust á legg. Hún saumaði föt á sjálfa sig, börnin sín og jafnvel nágrannabörnin líka. Allt var þetta sérlega vel gert. Þegar börn og barnabörn voru vaxin úr grasi saumaði hún dúkkuföt, flotta dúkkukjóla. Sigga dóttir mín fékk marga fal- lega kjólana frá ömmu sinni. Seinna meir þegar hún hætti að sauma á sjálfa sig og fór að kaupa sér flíkur þurfti hún æði oft að sauma þær upp þar sem vaxtarlagið hennar passaði ekki alltaf í númerin frekar en hjá okkur mörgum. Eftir að hún var komin á hjúkrunardeildina hélt hún áfram að hekla. Hún heklaði litlar glasamottur sem hún gaf. Allir sem komu á heimilið hennar á Þiljuvöllum 25 töluðu um hvað það væri fallegt. Alls staðar voru munir sem bentu á handbragðið hennar, sama hvort það voru gardínurnar, púðarnir eða dúkarnir. Í svefnherberginu blasti við manni rúmið með rennislétt rúmteppi og glugga- tjöld í stíl. Og ofan á rúminu sat þessi flotta dúkka í prinsessukjól sem enginn fékk að snerta. Sigga varð ekkja fyrir rúmum 20 árum. Hún tók því með æðru- leysi og var sjálfri sér nóg. Hún sat gjarnan inni í hliðarherbergi með handavinnuna sína og hlust- aði á tónlist og oftar en ekki var það diskur með Álftagerðis- bræðrum. Hún horfði mikið á sjónvarp og lærði að taka upp á vídeó í sjónvarpinu. Hún elskaði enska boltann og horfði mikið á hann. Hún var líka dugleg að taka þátt í eldri borgara starf- inu. Nokkur sumur sóttu hún og tvær vinkonur hennar púttvöll- inn á golfvellinum okkar. Ein átti bíl og ef hún var forfölluð fékk ég að keyra þær. Það var gaman að fylgjast með þeim, þær fögnuðu mikið ef einhver fékk holu í höggi. Auðvitað var hún búin að sauma poka utan um pútterinn fyrir þær allar. Okkar samskipti voru mikil og góð gegnum árin. Ég sá reglulega um að setja í hárið á henni, fór gjarnan með hana í bæinn og stundum fór ég með hana og vinkonu hennar á rúnt- inn. Hún var alltaf þakklát fyrir það hvort sem það var bara ísr- úntur í bæinn eða yfir Skarð. Síðustu fimm árin gat hún ekki lengur lagað fötin sín og treysti mér fyrir því. Alltaf fór hún yfir hvernig væri best að gera þetta, var alltaf búin að gera það í hug- anum. Nú er rúmlega 50 ára samvistum okkar lokið. Það skil- ur alltaf eftir tómarúm þegar það hefur verið fastur liður í mörg ár að kíkja við næstum daglega. Hún Sigga hefði orðið 96 ára nú í júní og er ég þakklát að hafa fengið að hafa hana svona lengi með okkur. Hvíl í friði, elsku tengdamamma. Þín tengdadóttir, Steinunn Lilja Aðalsteinsdóttir. Elsku amma mín, nú ert þú farin í draumalandið og komin til afa eftir næstum tuttugu og sjö ára bið fyrir hann og mikið held ég að hann sé glaður að sjá þig. Níutíu og sex ár er langur tími og ég fékk að hafa þig í næstum 50 ár, að hafa þig allan þennan tíma eru forréttindi og það eru ekki allir jafn heppnir og ég. Ég átti þig og þrjár aðrar ömmur á tímabili, langömmu, tvær alvöru ömmur og svo Láru sem ég fékk auka þegar mamma og fóstri minn tóku saman. En þú varst samt alltaf amman af því ég átti alltaf mitt annað heimili hjá þér og afa. Var ég þar löngum stundum og eru þær ófáar stundirnar sem ég varði uppi á lofti að smíða og brasa á Þilju- völlum 25. Ég kom bara niður til að fá kökur eða annað bakkelsi sem var alltaf til hjá þér í kaffi- tímanum. Svo var það sláturtíð- in, það sem mér þótti spennandi að vera með afa úti í bílskúr, að klippa hausa, hreinsa lappir, snyrta punga og svíða þetta allt saman og borða. Það var líka voða spennandi fyrir lítinn strák að fá að gista hjá ykkur afa um helgar og eru mér ofarlega í minni sunnudags- bíltúrarnir inn á sand að skoða farfuglana, með viðkomu í sjopp- unni þegar ísvélin var í gangi – alltaf var keyptur ís eða annað góðgæti. Eftir að ég varð full- orðinn fengum við okkur tára- kaffi á tyllidögum, þú varst þannig amma. Það eru svo margar minning- ar sem ég á um þig, elsku amma, að það væri efni í heila bók, þær bestu eru allar ferðirnar í úti- legu með ykkur afa. Þá var yf- irleitt alltaf farið í Skaftafell og er ég enn heillaður af útilegum og verð ég ykkur afa ævinlega þakklátur fyrir það að hafa tekið mig með í þær. Minningin um veiðiferðirnar í Vopnafjörð eru mér líka kærar þar sem ég lærði að veiða, þar leið okkur stórfjöl- skyldunni svo ótrúlega vel, allir saman í litlu veiðihúsi að hafa gaman og þannig eiga fjölskyld- ur að vera. Við áttum líka marg- ar góðar stundir yfir sjónvarp- inu að horfa á fótbolta og það var svo skemmtilegt hvað þú varst áhugasöm og fylgdist vel með. Þær hrúgast yfir mig minn- ingarnar og ég gæti haldið enda- laust áfram en ég geymi þær bara í hjartanu. Ég var svo lán- samur að fá þig. Þú skilur eftir þig stórt tóm sem verður erfitt að fylla því þú varst „Amman“ með stóru A og ég geymi þig alltaf í hjartanu, þar hefur þú alltaf verið og munt alltaf verða og ef englana vantaði ömmu þá ert þú komin í það hlutverk. Hvíldu í friði, elsku Sigga amma, ég elska þig að eilífu. Þinn dóttursonur, Ívar Sæm. Sigga amma var eins og ömm- ur eiga að vera, hún kenndi mér bæði siði og ósiði eins og að drekka kaffi með mikilli mjólk, sykri og með bleyttu kexi, en þó aðallega betri siði eins og að meta vönduð vinnubrögð. Amma var mjög vandvirk í öllu sem hún tók sér fyrir hendur og handavinnan hennar hvort sem hún var saumuð eða prjónuð var óaðfinnanleg. Heimili hennar bar þess merki og voru púðarnir og gardínurnar hennar stolt. Við vitnum oft í ömmu þegar við sjáum lélegan frágang á fötum eða gardínum og höfum á orði að Sigga amma hefði nú ekki verið ánægð með þennan frágang. Meira að segja uppvaskið hjá ömmu var fallegra en hjá öðrum. Heimili ömmu og afa var okkur frændsystkinum alltaf opið og eru ófáar stundirnar í gegnum tíðina sem við dvöldum þar. Minnisstæðar eru árlegu veiði- ferðirnar í Vopnafjörð með fjöl- skyldunni og einu sinni allavega fengum við Sæmundsson að fara með ömmu og afa degi fyrr og gista á hótel Tanga og alltaf var stoppað í nesti á Jökuldalnum við brúna áður en farið var upp á heiðina. Sem unglingur vann ég í þvottahúsi sjúkrahússins undir hennar stjórn ásamt Önnu frænku og Rúnu á Hól, þær kenndu mér margt sem ég hef tekið með mér út í lífið, ég kann t.d. að strauja skyrtur sem er ákveðin kúnst svo vel sé gert. Elsku amma, en nú er komið að kveðjustund, það eru forréttindi að hafa fengið að alast upp með þér og það ber að þakka. Síðustu ár varstu við hliðina á mér í orðsins fyllstu merkingu þegar við bjuggum hlið við hlið á Þilju- völlunum í rúmlega 10 ár og svo þegar þú bjóst í íbúðum aldraðra í Breiðabliki og á hjúkrunardeild Umdæmissjúkrahúss Austur- lands í Neskaupstað núna í lok- in. Ég kom oftar en ekki við hjá þér að loknum vinnudegi til að heilsa upp á þig og ná mér í súkkulaðibita. Við mæðgur nut- um góðs af því búa við hliðina á þér og átti Bergrós Arna gott athvarf hjá langömmu sinni og þegar hún fermdist valdi hún rauðan síðkjól af henni og lét sauma eftir honum nýjan, sem var reyndar ekki síðkjóll þegar Bergrós var komin í hann. Meðan þú hafðir heilsu til að elda keypti ég stundum í matinn og þú eldaðir og við borðuðum saman, kjöt í karrý, steikt kjöt eða kálböggla sem voru í uppá- haldi, það bragðaðist bara betur hjá þér. Undanfarinn áratug hafa hlutverkin okkar ömmu að- eins snúist við og vona ég að ég hafi náð að gefa til baka aðeins af því það sem þú gafst mér. Í lokin langar mig að þakka starfsfólki hjúkrunardeildar FSN kærlega fyrir góða umönn- un meðan hún dvaldi þar. Sigríður Kristinsdóttir. Elsku Sigga amma. Það eru margar fallegar minningar sem koma upp þegar ég hugsa til baka. Að sitja í litla eldhúsinu þínu við hringlaga eld- húsborðið, borða kjöt í karrý sem þú eldaðir best af öllum og fá ísblóm með sultu í eftirrétt. Heimilið þitt sem var alltaf svo fallegt og notalegt á sérstakan stað í hjarta mínu, hvort sem það er saumaherbergið uppi á lofti þar sem við þurftum að passa okkur á nálum í teppinu, sitja í stofunni með þér og horfa á sjónvarpið eða einfaldlega vera í heimsókn og njóta kyrrðarinn- ar sem ríkti á heimilinu. Þegar ég var yngri fór ég í pössun til þín eftir skóla þar sem ég eyddi mörgum stundum inni á skrif- stofunni hans afa að leika mér með dót og gamla skífusímann. Í seinni tíð urðu bíltúrarnir okkar skemmtilegustu stundir, rúntandi um bæinn að skoða hús og fá okkur pulsu og ís á sjopp- unni. Verst að við unnum aldrei í lottóinu með þeim fjölmörgu lottómiðum sem þú keyptir og deildir með okkur. Ég mun sakna þess að geta ekki kíkt í heimsókn til að spjalla um lífið og tilveruna, stel- ast í súkkulaði og hlæja yfir línulegri dagskrá. Takk fyrir allt sem þú gafst mér. Bergrós Arna Sævarsdóttir. Sigríður Vilhelmína Elíasdóttir Sálm. 16.1-2 biblian.is Varðveit mig, Guð, því að hjá þér leita ég hælis. Ég segi við Drottin: „Þú ert Drottinn minn, ég á engin gæði nema þig.” FALLEGIR LEGSTEINAR Verið velkomin Á góðu verði Auðbrekku 4, 200 Kópavogi, sími: 537-1029, www.bergsteinar.is Opið: 10-17 alla virka daga Hjartkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, SIGRÚN JÓHANNESDÓTTIR, áður Byggðavegi 88, andaðist aðfaranótt fimmtudagsins 9. maí á dvalarheimilinu Hlíð. Útförin verður gerð frá Akureyrarkirkju föstudaginn 17. maí klukkan 13.30. Blóm og kransar afþökkuð. Guðrún Bjarnadóttir Björn Sigmundsson Jóhannes Bjarnason Þórey Edda Steinþórsdóttir Unnur Bjarnadóttir barnabörn og barnabarnabörn Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, HANS STEFÁN GÚSTAVSSON garðyrkjubóndi, síðast búsettur í Ási, Hveragerði, lést á Heilbrigðisstofnun Suðurlands 2. maí. Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins látna. Sérstakir þakkir fær starfsfólk í Ási og á Heilbrigðisstofnun Suðurlands fyrir hlýja og góða umönnun. Jóna Hansdóttir Gísli Jónsson Skúli Einarsson Ásdís Teresita Einarsson Klara Hansdóttir Eyþór Hjartarson Björg Elva Hansdóttir Magnús B. Kristjánsson Friðrik H. Hansson barnabörn og barnabarnabörn Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð við andlát og útför ástkærrar móður okkar, tengdamóður, systur, ömmu og langömmu, VIGDÍSAR GUÐFINNSDÓTTUR, sem lést 26. apríl. Sérstakar þakkir færum við starfsfólki á Hrafnistu í Reykjavík fyrir einstaka umönnun og hlýju. Marta Loftsdóttir Gunnar Jóhannsson Svava Loftsdóttir Ásmundur Kristinsson Pétur Guðfinnsson barnabörn og barnabarnabörn Ástkær eiginkona mín, móðir, tengdamóðir, amma og langamma, GUÐBJÖRG ELENTÍNUSDÓTTIR, Espigerði 4, lést á hjúkrunarheimilinu Droplaugar- stöðum þriðjudaginn 7. maí. Útförin fer fram frá Fossvogskirkju mánudaginn 20. maí klukkan 15. Sigurjón Sigurðsson Rafn Sigurjónsson Elísabet Skúladóttir barnabörn og barnabarnabörn Hjartans þakkir sendum við öllum sem sýndu okkur samúð og vinarhug við andlát og útför HERMANNS EINARSSONAR kennara og útgefanda. Guðbjörg Ósk Jónsdóttir Sigurborg Pálína Hermannsdóttir, Páll Friðbertsson Steinunn Ásta Hermannsdóttir, Ágúst Ingi Jónsson barnabörn og barnabarnabarn Ástkær móðir okkar, SIGRÍÐUR KONRÁÐSDÓTTIR, fyrrum húsfreyja á Stórhóli í Víðidal, lést á Heilbrigðisstofnun Vesturlands, Hvammstanga, föstudaginn 3. maí. Útför hennar fer fram frá Hvammstangakirkju föstudaginn 17. maí klukkan 15. Fyrir hönd annarra aðstandenda, Birna Torfadóttir Konráð Ingi Torfason
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.