Morgunblaðið - 16.05.2019, Blaðsíða 46

Morgunblaðið - 16.05.2019, Blaðsíða 46
46 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 16. MAÍ 2019 ✝ Inga (PetreaBerta) Jóhanns- dóttir fæddist á Fagurhóli í Ólafsvík 15. september 1930. Hún lést á hjúkr- unar- og dvalar- heimilinu Brákar- hlíð 2. maí 2019. Inga var dóttir hjónanna Jóhanns Péturs Ágústssonar frá Búðum í Staða- sveit, f. 15. júlí 1892, d. 22. maí 1972, og Maríu Kristborgar Magnúsdóttur frá Ytri-Görðum í Staðasveit, f. 17. júní 1894, d. 9. apríl 1943. Inga var næstyngst níu syst- kina sem nú eru öll látin: Val- gerður Jóhannsdóttir, f. 1915, d. 1973; Aðalheiður Jóhannsdóttir, f. 1917, d. 1971; Ágústa Jó- hannsdóttir, f. 1918, d. 2014; Eggert Torfi Jóhannsson, f. 1920, d. 1990; Magnús Þórarinn Jóhannsson, f. 1921, d. 1947; Árni Jóhannsson, f. 1923, d. 1993; Drengur Jóhannsson, f. 1928, d. 1928; Þórunn Sigurborg Jóhannsdóttir, f.1933, d. 2006. Inga giftist hinn 18. febrúar 1951 Ólafi Halldóri Auðunssyni skurðgröfustjóra, f. 10. október 1925, 16. maí 1977, og hófu þau Auðuns og Sigurjónu sex talsins; Bryndís Þorbjörg Ólafsdóttir, f. 23. september 1953, gift Jóni Bergmann Jónssyni, f. 26. nóvember 1952. Börn þeirra eru Bergur Þór, Halldór Ingi, Krist- jón og Kristín. Bryndís og Jón eiga alls 15 barnabörn og fimm barnabarnabörn; Kristmar Jó- hann Ólafsson f. 24 nóvember 1959, giftur Írisi Hlíðkvist Bjarnadóttur, f. 12. nóvember 1961. Synir þeirra eru Auðunn Hlíðkvist (látinn), Bjarni Hlíð- kvist og Sævar Hlíðkvist. Barna- börn Kristmars og Írisar eru þrjú; Magnús Þórarinn Ólafs- son, f. 1. mars 1961, ókvæntur og barnlaus; Ólafur Ingi Ólafs- son, f. 3. maí 1964, kvæntur Björk Guðbjörnsdóttur, f. 25. janúar 1977. Dætur Ólafs og Bjarkar eru Arndís og Þórunn. Dóttir Ólafs úr fyrra hjónabandi var Ástríður (látin) en móðir hennar var Erla Sveinbjörg Hauksdóttir; Þröstur Þór Ólafs- son, f. 22. desember 1965, kvæntur Eydísi Líndal Finn- bogadóttur, f. 29. ágúst 1971. Synir þeirra eru Árni Teitur, Dagur Karl og Askur Björn. Samtals átti Inga 16 barnabörn, 24 langömmubörn og fimm langalangömmubörn. Útför Ingu verður gerð frá Borgarneskirkju í dag, 16. maí 2019, og hefst athöfnin klukkan 14. búskap sinn í Ástríðarhúsi í Borgarnesi. Ólafur Halldór var sonur hjónanna Auðuns Ólafssonar, f. 11. febrúar 1891, d. 21. júlí 1933, og Ingi- bjargar Þorsteins- dóttur frá Auðs- stöðum í Borgar- firði, f. 12. október 1899, d. 15. desem- ber 1986. Inga og Ólafur fluttust til Ólafsvíkur árið 1962 og bjuggu þar til ársins 1971 en þá fluttu þau aftur í Borgarnes þar sem þau bjuggu svo bæði til hinsta dags. Inga lauk skyldunámi við Grunnskólann í Ólafsvík og hóf störf við veitingaskála við Hvít- árbrú í Borgarfirði ung að aldri. Inga starfaði síðar sem matselja í mötuneyti kennara í Grunn- skólanum, á prjónastofu í bæn- um, við heimaþjónustu aldraðra og sem matselja þar sem hún eldaði fyrir fjölda kostgangara. Börn Ingu og Ólafs eru í aldursröð: Auðunn Bjarni Ólafs- son, f. 8. nóvember 1950, giftur Sigurjónu Högnadóttur. Börn þeirra eru Ólafur, Högni og Harpa og eru barnabörn Í dag kveð ég móður mína Ingu Jóhannsdóttur sem lést 2. maí. Mamma var fædd í Ólafsvík 1930 og tilheyrði því kynslóð sem nú er að kveðja. Kynslóð sem man tímana tvenna og skilgreinir erfiðleika á dálítið annan hátt en yngra fólk gerir í dag. Fyrstu æviárin bjó mamma á Fagurhóli í Ólafsvík ásamt for- eldrum sínum og systkinum. Uppeldið í sjávarplássinu þar sem lífsbaráttan var oft hörð og óvægin setti mark sitt á hana. Öryggisnetið sem við þekkjum í dag hjá ríki og sveitarfélögum var einfaldlega ekki til staðar í þá daga. Fjölskyldan, vinir og nán- asta samfélag hjálpuðust að en fyrst og fremst þurfti fólk að standa á eigin fótum og bjarga sér þegar áföll dundu yfir. Og það þurfti mamma svo sannanlega að gera. Hennar áfallasaga er lengri en gerist og gengur. Þegar hún var 13 ára missti hún móður sína og bróðir hennar drukknaði þegar hún var 17 ár. Á milli fertugs og fimmtugs missti hún síðan föður sinn, tvær systur og eiginmann. Stærstu áföllin voru hins vegar að hennar sögn þegar hún missti tvö barnabörn síðar á ævinni. Þrátt fyrir að hafa bognað þá brotnaði hún aldrei. Hún reis allt- af upp og vann sig út úr erfiðleik- unum. Hún gerði það á sinn hátt, í rólegheitunum og kvartaði aldr- ei yfir eigin hlutskipti. Tvisvar hef ég verið samferða henni í gegnum áföll þar sem styrkur hennar og lífsviðhorf reyndust vel. Fyrra skiptið var þegar pabbi dó en mamma var þá 47 ára og heimavinnandi. Við yngra hollið, bræðurnir fjórir, þá 11-17 ára, vorum allir heima en eldri systkinin tvö flutt að heim- an. Mamma varð þá að finna leið til að sjá okkur farborða en ut- anaðkomandi fjárhagsleg hjálp var nánast engin. Þeir tveir yngri voru það ungir að hún vildi ekki fara að vinna úti og skilja þá eftir eina heima. Hún ákvað því að taka menn í fæði og hafði af því lífsviðurværi í nokkur ár. Með ótrúlegri seiglu og útsjónarsemi tókst henni að láta enda ná sam- an og gott betur. Hún kláraði að byggja húsið á Kveldúlfsgötunni sem var ekki fullklárað þegar pabbi dó, tók bíl- próf og hún keypti sér nýjan bíl. Ekki heyrðist hún kvarta undan peningaleysi eða of mikilli vinnu, hún einfaldlega fann leið til að láta hlutina ganga upp. Það verður seint sagt að við bræðurnir höfum hjálpað mikið til. Við villtumst allir aðeins af leið á þessum árum en fundum hana aftur með dyggri hjálp mömmu. Seinna þegar Auðunn sonur okkar dó var hún okkur ómetan- leg hjálp í þeirri sorg allri. Ég veit að það reyndi mjög mikið á hana og það var henni erfitt að koma til okkar strax á eftir. En eins og áður þá fann hún styrkinn og leyfði okkur að njóta hans. Hún sagði ekki margt en það þurfti ekki heldur. Hennar fas og hennar framkoma og ekki síst hennar saga gerði það að verkum að það var ómetanlegt að hafa hana sér við hlið þegar svo stórt áfall dundi yfir. Fyrir það verð ég alltaf þakklátur og þetta er kannski mín aðferð til að þakka henni fyrir. Það hafði ég aldrei gert eins vel og ég vildi. Mamma var hjá okkur á að- fangadag alveg frá því að Auðunn dó og hún var hjá okkur um síð- ustu jól, þá orðin mjög veik. Stór- fjölskyldan hélt jóladag hátíðleg- an hjá mömmu alla tíð og þar var oft glatt á hjalla. Það er hætt við að jólahátíðin verði með dálítið öðru yfirbragði nú þegar mamma er ekki lengur til staðar. Þá minnumst við glaðværrar konu sem var sterkari en við öll hin. Kristmar Ólafsson. Nú við andlát og útför mömmu minnar hellist yfir mann mikill söknuður í bland við ljúfar minn- ingar og þakklæti fyrir að hafa átt hana að öll þessi ár. Þessi kjarnorkukona kom okk- ur sex systkinum á legg og gerði okkur eflaust að því sem við er- um. Pabbi vann mikið út á landi við skurðgröft meðan við þau tvö elstu vorum lítil og var þá oftast farið til Ólafsvíkur til afa á sumrin, en mamma var alltaf Óls- ari í hjarta sínu. Eitt sumar bjuggum við þó að Bakka í Arnarfirði þegar pabbi var að grafa í Selárdal og víðar og er sú minning ennþá kær. Þegar byrjaði svo að fjölga í hópnum fluttum við til Ólafsvíkur 1962 og áttum þar heima meðan þeir yngri komust á legg eða til 1971. Pabbi og mamma fluttu til Borgarness og tóku þátt í að byggja upp Tangann en þau voru hluti af hinum svokölluðu Tíköll- um. Þegar mamma varð ekkja 1977 voru yngri strákarnir heima en hún tók sínu hlutskipti af æðruleysi, tók bílpróf og nokkra kostgangara og kláraði uppeldis- dæmið ein og óstudd. Á þessu árum var alveg óborg- anlegt að koma á Kveldúlfsgöt- una og vera þar í hádegismat. Sex, sjö strákar undir tvítugu og einn eða tveir aðeins eldri að fífl- ast og grínast og mamma tók þátt í öllum fíflaganginum. Þegar farið var svo að byggja Brákarhlíð var mamma strax ákveðin að kaupa og varð ein af þeim fyrstu sem keyptu sig þar inn. Ég gæti haldið svona lengi áfram en það er ekki nokkur leið að fara að tíunda þó ekki væri nema brot af öllum þeim góðu minningum sem koma fram. Eitt er þó gegnumgangandi, það var oftast líf og fjör í kring um mömmu og þó áföll hafi dunið yfir vann hún úr þeim af mildi og inni- leik. En ein minning er þó líklega dæmigerð fyrir hug mömmu en það var þegar mamma á sjötugs- aldri fór fyrst til útlanda 1994 og kom til okkar til Króatíu í miðjum stríðsátökum til að halda jól með okkur. Félagar hennar að Brák- arhlíð reyndu að tala um fyrir henni og benda henni á stöðu mála og að þarna væri ófriður í gangi og ekkert vit í að fara þangað. „Iss, ef þau geta búið þarna þá get ég alveg farið í heimsókn.“ Þarna var ekki verið að láta ótryggar aðstæður draga úr sér en haldið á vit ævintýra eins og henni einni var líkt. Alveg fram til hins síðasta var mamma með í öllum veislum eða uppákomum sem haldnar voru í fjölskyldunni, ekki af skyldu- rækni heldur einfaldlega af því að hún var ómissandi með sitt góða skap, mildi og hlýju. Það er kannski táknrænt en mamma verður borin til grafar á dánardegi pabba þann 16. maí. Elsku mamma, þín er sárt saknað. Auðunn Bjarni og Sigurjóna. Elskuleg tengdamamma mín, hún Inga, er látin. Inga átti far- sæla ævidaga þrátt fyrir að hafa fengið dágóðan skammt af mót- læti í lífinu. Hún var lífsglöð og orkumikil kona og passaði upp á að hafa alltaf nóg fyrir stafni. Hún hafði gaman af því að ferðast og elskaði að hitta fólkið sitt. Hún tók nýju tengdafólki og stjúpbörnum opnum örmum og umvafði alla sína með ást og hlýju. Hún hafði skemmtilegan húmor og ekki síst fyrir sjálfri sér og það var alltaf stutt í hlátur- inn í kringum hana. Inga lærði ung að bera harm sinn í hljóði. Hún var ung að ár- um þegar hún missti móður sína og varð ekkja einungis 47 ára að aldri. Á seinni árum, þegar enn fleiri áföll dundu yfir, lærði hún að það eru fleiri leiðir til að vinna úr sorg en að bíta á jaxlinn og það var svo ánægjulegt að upplifa það hvernig hún fann til mikils léttis að geta loksins rætt um hluti sem hún hafði í mörg ár byrgt innra með sér enda var hún í eðli sínu tilfinningavera. Við áttum allt of fá en sem betur fer nokkur löng og gefandi samtöl um fortíðina, uppvöxtinn í Ólafsvík, móður- missinn, fráfall eiginmannsins og lífið sem ekkja og einstæð móðir. Ég hlustaði oft agndofa og dáðist að styrknum, dugnaðinum og æðruleysinu sem einkenndi þessa ekta íslensku kjarnakonu. Ég er virkilega þakklát fyrir að hafa fengið að verða samferða henni Ingu síðustu 25 árin eða svo. Hún hafði virkilega margt að gefa og nærvera hennar var alltaf svo góð. Þér ég þakka vináttu og góðar stundir Hlýja hönd og handleiðslu, okkar stundir saman. Bjartar minningar lifa ævina á enda. Hörpu þinnar ljúfa lag lengi finn í muna. Því ég minnist þín í dag, þökk fyrir kynninguna. (Á.K.) Hvíldu í friði, elsku Inga. Þín tengdadóttir, Björk Guðbjörnsdóttir. Elsku yndislega amma mín. Mig langar að þakka þér fyrir allar óteljandi stundirnar sem við höfum átt saman. Ég held að eng- inn hafi verið eins heppinn og ég með ömmu. Það var alltaf svo notalegt að vera hjá þér enda held ég að ég eigi vinninginn í gistinóttum hjá þér, alla vega er ég í topp þremur. Spilakvöldin, ísrúntarnir og hlátrasköllin eru eftirminnilegust en toppurinn var þó þegar við dúllindæjurnar vorum hjá þér saman. Núna eru þið saman þarna hin- um megin og ég hitti ykkur svo eftir mörg ár. Þegar ég veiktist fyrir tæpum tveimur árum hringdir þú nánast daglega og athugaðir með mig. Það var svo frábært að fá þig þegar þvottahrúgan var orðin ansi stór og þú braust allt saman. Mér leið eins og ég væri tæplega níræð og þú værir rúmlega þrí- tug. Þú varst alltaf til staðar fyrir mig, alltaf tilbúin að hjálpa til og tókst alltaf á móti mér og mínum með opnum örmum og full af ást. Á fermingardaginn hans Vals núna um daginn tók ég eftir því að það vantaði eitthvað rosalega mikið og það varst þú, það var fyrsta veislan sem þú varst ekki í, engin amma partídýr. Það er rosalega sárt að missa þig en mikið er ég glöð að þú fékkst að lifa alveg frábæru lífi og ótrúlega hress og jákvæð alla daga. Síðustu mánuðir eftir að þér fór að hraka voru erfiðir en alltaf varst þú glöð að fá okkur og sjá okkur. Takk fyrir allt, amma mín, enn og aftur, þú verður alltaf fyrir- myndin mín í lífinu og ég mun aldrei gleyma þér. Minning þín mun alltaf lifa í hjarta mínu. Englar eins og þú: Þú tekur þig svo vel út hvar sem þú ert. Ótrúlega dýrmætt eintak, sólin sem yljar og umhverfið vermir. Þú glæðir tilveruna gleði með gefandi nærveru og færir bros á brá svo það birtir til í sálinni. Sólin sem bræðir hjörtun. Í mannhafinu er gott að vita af englum eins og þér. Því að þú ert sólin mín sem aldrei dregur fyrir. (Sigurbjörn Þorkelsson) Þín ömmustelpa, Kristín. Í bljúgri bæn og þökk til þín, sem þekkir mig og verkin mín. Ég leita þín, Guð, leiddu mig og lýstu mér um ævistig. (Pétur Þórarinsson) Elsku amma Inga. það sem ég er þakklát fyrir allan okkar tíma saman og að hafa fengið þann heiður að vera nafna þín. Við áttum alltaf yndislegar stundir og ræddum heima og geima. Það var svo yndislegt að fá símtöl frá þér og fara með þér í ótal bíl- og búðaferðir. Það var dýrmætur tími þegar ég bjó á Böðvarsgötunni og þú varst dugleg að taka rúnt og banka upp á, kenna mér að baka ömmuspesíur og sjóða saltkjöt. Þú áttir alla bestu brandarana og gerðir allt svo miklu skemmti- legra. Ég gleymi aldrei þegar þú komst til mín upp á fæðingar- deild árið 2017 til að kíkja á langalangömmustelpuna þína, hvað þú geislaðir af stolti. Því miður varstu orðin of veik þegar stelpa númer tvö kom í febrúar 2019, en ég veit að þú varst alveg eins stolt þá. Þú varst alltaf til staðar fyrir alla sem þú elskaðir og við feng- um öll að vita hvað þú elskaðir okkur og varst stolt af okkur. Ég elska þig, amma mín. Inga Berta og fjölskylda. Elsku Inga amma. Undanfarnar vikur höfum við fjölskyldan verið að rifja upp minningar sem við eigum af þér og alltaf hefur það endað með því að við höfum brosað, hlegið og okkur liðið vel. Þú varst yndisleg í alla staði og allar stundir sem við höfum átt með þér voru yndis- legar og eiga eftir að vera dý- mætar minningar um ókomna tíð. Ég var svo heppinn að fá að eiga margar stundir með þér þegar ég var að vaxa úr grasi þegar þú áttir heima á 12 eins og það var alltaf kallað. Þar fékk ég að sitja innan um allan þann fjölda sem fór þar um og hitta endalaust af vinum og ættingjum sem komu til að spjalla og grín- ast. Það var alltaf nóg að gera og yfirleitt mikill erill og mikil læti, yfirleitt fíflalæti. Þú varst þeim hæfileikum gædd að geta blótað okkur öllum á yndislegan og ástkæran hátt á meðan þú hlóst að þeim uppá- tækjum sem við tókum upp á. Það var ekkert sem við gerðum sem olli þér áhyggjum og í þínum augum vorum við ekkert nema englar. Þú gast alltaf gefið þér tíma til að setjast niður með okk- ur til þess að hlusta, dunda, spila og allt þar á milli. Amma þú verður í mínum huga alltaf fullkomin, ég er svo þakklátur fyrir allan þann tíma sem ég fékk með þér sem krakki, unglingur og svo sem ungur mað- ur. Ég er þakklátur fyrir það að strákarnir mínir fengu svona yndislega langömmu. Elskulega amma mín, mjúk var alltaf höndin þín, tárin þorna í sérhvert sinn, er þú strýkur vanga minn. Þegar stór ég orðin er, allt það launa skal ég þér. (höfundur ókunnur) Með þökk fyrir allt, Ólafur Auðunsson og fjölskylda. Inga Jóhannsdóttir Við önnumst alla þætti undirbúnings og fram- kvæmd útfarar ásamt vinnu við dánarbússkiptin. Við þjónum með virðingu og umhyggju að leiðarljósi og af faglegum metnaði. Við erum til staðar þegar þú þarft á okkur að halda Lára Árnadóttir, umsjón útfara Útfararþjónusta & lögfræðiþjónusta Vesturhlíð 9, Fossvogi | Sími 551 1266 | útför.is Með kærleik og virðingu Útfararstofa Kirkjugarðanna Morgunblaðið birtir minningargreinar endurgjaldslaust alla út- gáfudaga. Skil | Þeir sem vilja senda Morgunblaðinu greinar eru vinsamlega beðn- ir að nota innsendikerfi blaðsins. Smellt á Morgunblaðslógóið í hægra horninu efst og viðeigandi liður, „Senda inn minningargrein,“ valinn úr felliglugganum. Einnig er hægt að slá inn slóðina www.mbl.is/ sendagrein Skilafrestur | Ef óskað er eftir birtingu á útfarardegi verður greinin að hafa borist eigi síðar en á hádegi tveimur virkum dögum fyrr (á föstu- degi ef útför er á mánudegi eða þriðjudegi). Þar sem pláss er takmarkað getur birting dregist, enda þótt grein berist áður en skilafrestur rennur út. Lengd | Minningargreinar sem birtast í Morgunblaðinu séu ekki lengri en 3.000 slög. Ekki er unnt að senda lengri grein. Lengri greinar eru ein- göngu birtar á vefnum. Hægt er að senda örstutta kveðju, HINSTU KVEÐJU, 5-15 línur. Ekki er unnt að tengja viðhengi við síðuna. Formáli | Minningargreinum fylgir formáli sem nánustu aðstandendur senda inn. Þar koma fram upplýsingar um hvar og hvenær sá sem fjallað er um fæddist, hvar og hvenær hann lést og loks hvaðan og klukkan hvað útförin fer fram. Þar mega einnig koma fram upplýsingar um for- eldra, systkini, maka og börn. Ætlast er til að þetta komi aðeins fram í formálanum, sem er feitletraður, en ekki í minningargreinunum. Minningargreinar
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.