Morgunblaðið - 16.05.2019, Page 54

Morgunblaðið - 16.05.2019, Page 54
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 16. MAÍ 2019 Bláu húsin v/Faxafen Sími 553 7355 • www.selena.is • Selena undirfataverslun • Næg bílastæði Frábært úrval af sundfatnaði konar afnæmingu fyrir þessum nei- kvæðum tengslum sem hafa verið viðloðandi BDSM.“ Mörg fyrirtæki hafa undanfarið birt myndir af vörumerkjum og vörum sínum í BDSM-fatnaði og meir að segja lögreglan á höfuðborgarsvæðinu tók þátt með því að klæða lög- regluþjóna í slíkan fatnað. Margrét segir að allt auki þetta sýnilega BDSM og hjálpi til við að norm- alísera umræðuna. „Það er gríð- arlega mikilvægt að fólk sé óhrætt að hugsa um BDSM, að ég tali nú ekki um að það leyfi sér að tala um BDSM án þess að fá eitthvert sjokk. Þetta er bara partur af mannlegum fjölbreytileika og ekk- ert sem skilgreinir mann frá a til ö, þetta er bara einhver persónulegur hluti af manni sem er mikilvægur fyrir mann en litar ekki allt lífið. Ef maður fréttir af því að Lára frænka hafi verið að skrá sig á einhverja Sigurður Þorri Gunnarsson siggi@mbl.is „Við stöndum eiginlega gapandi og nuddum augum,“ segir Margrét Nilsdóttir, formaður BDSM á Ís- landi, um þá miklu athygli sem BDSM hef- ur fengið í tengslum við þátttöku Hatara í Eurovision. „Það er frábært að sjá að það sé verið að setja okkur í nýtt samhengi. Eitt- hvað svona já- kvætt, eitthvað skemmtilegt. Tengja okkur við eitthvað annað en lélega vonda karla í bíómyndum. Ég held bara að íslenska þjóðin og bara vonandi öll Evrópa sé í einhvers- BDSM-síðu þá á það ekki að vera eitthvert stórmál og breyta sam- skiptunum við téða frænku,“ segir Margrét og bætir við að líkja megi þessu sem Hatari er að gera núna við það þegar Dana International kom og setti transfólk á kortið með sigri í Eurovision 1998. „Við alla- vegana vonum þegar rykið sest og Eurovision er búið að það sem standi eftir sé það að við séum til og að við séum ekki eitthvað klikkuð.“ Margrét er sömuleiðis ánægð með hvernig Hatari hefur komið fram. Margir listamenn hafa í gegn- um tíðina komið fram með ein- hverjar tengingar í BDSM, t.d. Rammstein, en það má segja að þetta sé í fyrsta skipti sem hljóm- sveit með jafn breiðan og stóran áheyrendahóp komi fram sem BDSM-listamenn. „Þau eru ekki bara að taka eina og eina táknmynd frá okkur upp úr kassanum og skreyta sig með henni heldur tala þau opinskátt um BDSM og að þau séu BDSM-hljómsveit.“ Margrét hefur gaman af Euro- vision og horfir alltaf á keppnina en hún segir að keppnin hafi óneitan- lega djúpstæðari merkingu í ár. „Það kæmi mér ekkert á óvart að við ynnum þetta í ár,“ bætir hún við að lokum jákvæð í bragði. BDSM-æði hefur gripið um sig á Íslandi Þátttaka andkapítalísku BDSM-hljómsveitarinnar Hatara í Eurovision hefur væntanlega ekki farið framhjá neinum. Segja má að með þátttöku Hatara hafi ákveðið BDSM-æði gripið um sig á landinu og þykir það ekki tiltökumál að klæða sig í fatnað tengdan BDSM eða skreyta vörumerki og vörur í þessum stíl. En hvað ætli þeim sem stunda BDSM eða skilgreina sig BDSM-hneigða finnist um alla þessa athygli? Margrét Nilsdóttir BDSM æði Lögreglan, Bónus og sælgætisgerðin Freyja eru meðal þeirra sem hafa verið með BDSM þema í vikunni.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.