Morgunblaðið - 16.05.2019, Qupperneq 30
viku,“ segir Samburu sem er einnig
mjög náinn þeim systkinum sem
hann ólst upp með í SOS-barnaþorp-
inu. Öll líffræðilegu systkini hans
nema eitt eru látin vegna heilsufars-
vandamála.
„Það endurspeglar líklega þá stað-
reynd að gæði heilbrigðiskerfisins í
mörgum löndum Afríku eru stundum
svolítið gloppótt og fólk fær ekki þá
umönnun sem það þarf á að halda.“
Ólst upp með 20 systkinum
Samburu hlær þegar hann er
spurður um stærðina á SOS-
fjölskyldunni sinni.
„Almáttugur, sú fjölskylda var
gríðarstór. Í raun svolítið eins og
hefðbundin afrísk fjölskylda. Í gegn-
um tíðina hef ég líklega alist upp með
20 systkinum. Það bætast fleiri
systkini við á hverju einasta ári. SOS
kerfið virkar svolítið eins og snún-
ingshurð, börn koma inn og fá
umönnun og á einhverjum tíma-
punkti ganga þau út úr SOS-kerfinu
en það skapar fleiri tækifæri fyrir
börn.“
Samburu segir að þrátt fyrir stærð
fjölskyldunnar hafi æska hans verið
mjög eðlileg.
„Mér leið eins og hún væri mjög
venjuleg þegar ég var að alast upp.
Ég held að krafturinn í starfi SOS sé
sú að samtökin vinna hart að því að
skapa eins venjulega æsku fyrir
börnin og þau geta mögulega gert.
Við spáðum lítið í það að við værum
munaðarlaus, sú hugmynd hékk ekki
yfir okkur.“
Í Kenía eru um fjórar milljónir
munaðarlausra barna en í landinu
búa 40-50 milljónir. Samburu segir
að þörfin fyrir SOS-barnaþorp sé
vaxandi.
„Í árdaga voru ákveðnir þættir
sem leiða af sér varnarleysi og erfið-
leika ekki til staðar eins og HIV og
AIDS sem eru nú gríðarstórt vanda-
mál. Það verður að sjálfsögðu til
þess að margir foreldrar týna lífinu
og börnin standa uppi mun-
aðarlaus.“
Til mikils ætlast af Samburu
Samburu gekk sjálfur út úr SOS-
barnaþorpunum þegar hann var
fimmtán ára og hlaut styrk til þess
að fara í framhaldsskóla í Gana.
„Ungmennin sem komust inn í
skólann voru valin vegna þess að þau
höfðu einhverskonar akademíska
hæfni. Einkunnarorð skólans voru
„Þekking til þjónustu Afríku“ svo
það var búist við því að þegar þú
hefðir lokið þínu námi að þú færir
aftur til Afríku og þjónaðir sam-
félaginu og landinu þínu.
Ég get ekki sagt að við höfum skil-
ið nákvæmlega hvað „Þekking til
þjónustu Afríku“ þýddi en við skild-
um spekina og áttuðum okkur á því
að það væri til mikils ætlast af okkur
þar sem okkur hefði verið mikið gef-
ið.“
Vann fyrir SOS-barnaþorp
Samburu tók boðskapinn greini-
lega alvarlega en hann menntaði sig
bæði í Bretlandi og Kanada og að því
loknu fór hann að vinna fyrir Sam-
einuðu þjóðirnar. Þaðan lá leiðin til
UNICEF og svo fór hann aftur til
Afríku og vann fyrir afrísku leiðto-
gaakademíuna (e. The African Lead-
ership Academy) í Suður-Afríku.
„Ég var virkilega heppinn að fá
starf hjá Sameinuðu þjóðunum en
köllun mín var þó alltaf til Afríku.
Frá Suður-Afríku fór ég og vann
mest gefandi starf sem ég gat hugsað
mér. Þá vann ég fyrir SOS-barna-
þorpin í Kenía svo ég fór aftur til róta
minna.“
Samburu býr enn í Kenía og vinn-
ur sem yfirráðgjafi hjá góðgerðar-
sjóðnum Bill and Melinda Gates
Foundation.
„Ef ég á að vera hreinskilinn þá
líður mér eins og ég verði áfram í
Kenía. Þar er stutt á milli vinnunnar
sem ég vinn og áhrifanna sem hún
hefur.“
Lítur til íslensks sjávarútvegs
Atvinnutækifæri fyrir ungmenni
eru af mjög skornum skammti í
Kenía en Samburu sér stór tækifæri
í sjávarútvegi.
„Það sem ég er að læra af Íslandi
er að það er heil atvinnugrein sköpuð
í kringum sjávarútveginn, eða bláa
hagkerfið svo ég held að það sé mjög
mikilvægt fyrir lönd í Afríku að spá í
þau efni.“
Samburu hitti Elizu Reid forseta-
frú á dögunum og segir hann að hún
hafi verið hispurslaus og heimsóknin
ánægjuleg. „Ekkert hefði getað und-
irbúið mig undir það hversu óform-
legir íslensku leiðtogarnir eru, bæði
forsetinn og forsetafrúin.“
Að lokum þakkar Samburu þeim
Íslendingum sem styrkja SOS-
barnaþorpin og hvetur fólk til að
leggja sitt af mörkum til góðgerðar-
mála, sama hver þau séu.
„Þekking til þjónustu Afríku“
Ólst upp í SOS-barnaþorpi með 20 systkinum Menntaði sig í þróunarmálum og starfar nú í þágu
kenísks samfélags Segir að ýmis lönd í Afríku gætu lært af Íslandi, t.d. hvað varðar sjávarútveg
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Áhrifamikill Samburu mælist til þess að fólk meti hvert einasta tækifæri mikils þar sem þau séu ekki sjálfsögð.
VIÐTAL
Ragnhildur Þrastardóttir
ragnhildur@mbl.is
Keníamaðurinn Samburu Wa-Shiko
sem ólst upp í SOS-barnaþorpi er
staddur hérlendis til að fagna 70 ára
afmæli SOS-barnaþorpa. Samburu
vinnur nú sjálfur að því að bæta hag
annarra en hann er sérfræðingur á
sviði þróunarmála, hámenntaður
með doktorsgráðu frá háskólanum í
Manchester.
Samburu er hrifinn af Íslandi og
segir að ýmis lönd í Afríku mættu líta
til Íslands hvað varðar uppbyggingu.
„Það var óvænt ánægja fyrir mig
að komast að því að Ísland hefði lengi
vel verið nýlenda og þróunarland því
landið stendur mjög framarlega í
dag. Það sýnir fram á að það sé
möguleiki að ástandið batni í löndum
Afríku á þeim forsendum að stjórn-
völd séu mjög ábyrg, íbúar séu
menntaðir og tækifæri séu búin til.“
Móðir Samburu lést þegar hann
var tveggja ára gamall og hann,
ásamt fjórum systkinum, stóð uppi
munaðarlaus. Samburu og fjögurra
ára systir hans fengu þá inni í SOS-
barnaþorpi en hin systkinin voru
orðin of gömul til að koma inn í þorp-
ið.
„Stefna SOS á þessum tíma var að
taka einungis inn börn sem voru sex
ára og yngri. Það er vegna þess að
SOS-líkanið sérhæfir sig í því að út-
vega ungum börnum bestu mögulega
umönnun. Börnin dvelja svo innan
þorpsins þar til þau eru tilbúin að
ganga inn í hinn raunverulega heim.
SOS veitir því börnum sem þurfa
langtíma umönnun,“ segir Samburu
en hann og systir hans ólust upp í
umönnun svokallaðrar SOS-móður
og ásamt SOS-systkinum.
„Við vorum sérstaklega heppin.
Við vorum alin upp af SOS-móður
sem var virkilega ástrík og sam-
úðarfull, hún heitir Lydia. Hún er
eina móðirin sem ég hef þekkt svo
hún varð algjörlega móðir mín. Við
erum enn náin og í miklu sambandi.
Ég tala við móður mína í hverri
30 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 16. MAÍ 2019
icewear.is
KRÍA/KJALAR
Hybrid jakki kr. 18.990.-
Við bjóðum uppá glæsilegar borgir allt árið í A-Evrópu.
Tilvalið fyrir hópa, fyrirtæki og einstaklinga. Veldu
tímann og farðu þegar þú vilt 2, 3, 4 daga eða lengur.
Verðlag er hagstætt bæði í mat og drykk. Þá er
hægt að gera góð kaup í hinum ýmsu verslunum og
mörkuðum. Við bjóðum upp á skoðunarferðir fyrir
hópa og fyrirtæki, svo og kvöldverði/veislur í höllum,
köstulum eða húsum frá miðöldum.
www.transatlantic.is Sími 588 8900
GLÆSILEGARMIÐALDA
BORGIR Í A-EVRÓPU
Wrocalaw er ein mesta ferðamannaborg
Póllands. Wroclaw var kosin menningarborg
Evrópu 2016. Wroclaw hefur svo mikið uppá
að bjóða. Borgin er ægifögur menningarborg
með svo margt fyrir ferðamanninn sem gerir
hana svona vinsæla. Gamli bærinn er augna-
yndi með fagrann arkitektur frá fyrri tímum,
mikið er af söfnum og menningarviðburðir í
borginni hafa ætíð verið fjölbreyttir.
Miðaldaborg frá 12. öld. Gamli og nýji
tíminn mætast í borg sem ekki á sinn líka.
Gamli bærinn er frá árinu 1201 og er vernd-
aður af Unesco. Þar ber hæst kastalinn í
Riga, kirkja Sankti Péturs og Dómkirkjan.
Gamli bærinn í Riga er virkilegt augnayndi
hvert sem litið er og setur borgina á stall
með fallegri borgum Evrópu.
RIGA Í LETTLANDI
WROCLAW
TALLINN EISTLANDI
NOKKUR DÆMI UM BORGIR SEM VIÐ BJÓÐUM UPPÁ
Vilnius,
Budapest, Prag
Gdansk, Krakow,
Varsjá, Bratislava
Vínarborg og
Brugge
Tallinn er ein allra fallegasta borg Evrópu
og er gamli bæjarhlutinn sá hluti borga-
rinnar sem mesta aðdráttaraflið hefur á
ferðamenn. Þar eru götur steini lagðar,
byggingar frá 11. öld sem hefur tekist að
varðveita ótrúlega vel. Þú ferð úr 21. öldinni
beint aftur í miðaldir. Þar sem Tallinn er best
varðveitta miðaldaborg N-Evrópu hefur
henni verið bætt við á heimslista UNESCO.