Morgunblaðið - 16.05.2019, Side 36
36 FRÉTTIRErlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 16. MAÍ 2019
DALVEGI 10-14 | 201 KÓPAVOGI | SÍMI 540 7000 | FALKINN.IS
Veldu öryggi
SACHS – demparar
ÞAÐ BORGAR SIG AÐ NOTA ÞAÐ BESTA
Bogi Þór Arason
bogi@mbl.is
Repúblikanar í öldungadeild Bandaríkjaþings
hafa vaxandi áhyggjur af tollastríðinu, sem
Donald Trump forseti hóf gegn Kína, vegna
þess að gagnaðgerðir Kínverja hafa skaðað
bandaríska bændur. Tollahækkanir Trumps
eru einnig taldar koma niður á bandarískum
neytendum, leiða til hærra vöruverðs, auka
kostnað bandarískra fyrirtækja og draga úr
hagvexti í báðum löndunum, að sögn The Wall
Street Journal.
Trump hóf tollastríðið í mars í fyrra með því
að hækka tolla á innflutt stál og ál, með undan-
þágu fyrir nokkrar vinaþjóðir, m.a. Argentínu,
Ástralíu og Brasilíu. Nýju tollunum var aðal-
lega beint að Kínverjum sem svöruðu þeim
með 15-25% tollum á þriggja milljarða dollara
virði af bandarískum innflutningi. Deilan
magnaðist í júlí í fyrra þegar stjórn Trumps
lagði 25% viðbótartoll á 34 milljarða dollara
virði af kínverskum innflutningi og Kínverjar
svöruðu með svipuðum tollahækkunum. Eftir
tvær aðrar hækkanir ákvað Trump í vikunni
sem leið að hækka tolla á 200 milljarða dollara
virði af kínverskum varningi og Kínverjar
svöruðu með því hækka tolla á 60 milljarða
dollara virði af bandarískum landbúnaðar-
afurðum og iðnvarningi.
Hafði ekki tilætluð áhrif
Bandaríkjastjórn sagði fyrir rúmu ári þegar
Trump hækkaði tollana á innflutt stál og ál að
markmiðið væri að auka útflutning og minnka
innflutning Bandaríkjanna á málmunum og
fjölga störfum. Tollahækkunin varð hins vegar
til þess að útflutningurinn minnkaði um 7%,
innflutningurinn jókst um 1% og störfunum
fjölgaði lítið og miklu minna en árið áður, að
sögn The Wall Street Journal, sem segir að
tollahækkunin hafi orðið til þess að bandarískir
neytendur hafi þurft að greiða hærra vöruverð.
Útflutningurinn minnkaði um 75%
Gagnaðgerðir Kínverja hafa m.a. orðið til
þess að útflutningurinn á bandarískum land-
búnaðarafurðum til Kína hefur minnkað. Til að
mynda minnkaði útflutningurinn þangað á
sojabaunum um 75% á síðasta ári, samkvæmt
upplýsingum frá viðskiptaráðuneyti Banda-
ríkjanna. Um þriðjungur af allri sojabauna-
framleiðslu landsins var seldur til Kína en sam-
tök bandarískra bænda óttast að þeir missi
þennan markað og Kínverjar auki innflutning
sinn á sojabaunum frá löndum á borð við Bras-
ilíu.
Trump naut mikils stuðnings í sveitahéruð-
um Bandaríkjanna í kosningunum 2016 og
samtök bænda hafa mikil pólitísk áhrif í land-
inu, einkum í öldungadeildinni. Margir repú-
blikanar í deildinni hafa stutt viðleitni Trumps
til að knýja Kínverja til að láta af ósanngjörn-
um viðskiptaháttum sínum en runnið hafa tvær
grímur á suma þeirra vegna nýjustu tolla-
hækkana hans og óánægju bænda, að sögn The
Washington Post. Blaðið segir þá hafa vaxandi
áhyggjur af því að Trump hafi ekki hugsað
málið til enda og hafi ekki sett sér skýrt loka-
markmið. „Enginn vinnur tollastríð nema
samningur náist að lokum og hann verði til
þess að tollarnir hverfi,“ hefur blaðið eftir
Mitch McConnell, leiðtoga repúblikana í öld-
ungadeildinni.
Verndartollar til frambúðar?
Yfirlýsingar Trumps hafa hins vegar stund-
um bent til þess að hann telji í raun og veru að
tollarnir hafi eflt efnahag Bandaríkjanna,
stuðlað að hagvexti og aukið tekjur ríkissjóðs,
þannig að Bandaríkin myndu aðeins hagnast á
því að halda tollunum til streitu. „En tollar eru
skattar sem hækka verð á kínverskum varn-
ingi fyrir bandaríska neytendur og framleið-
endur,“ segir The Wall Street Journal. „Þeir
hækka einnig verð á bandarískum varningi
sem er í samkeppni við kínverskan innflutning
vegna þess að bandarískir framleiðendur
hneigjast til að hækka verðið eins og keppi-
nautarnir. Þetta gerðist þegar Trump hækkaði
tolla á þvottavélar.“
Tollahækkunum Trumps var í fyrstu lýst
sem vopni til að knýja önnur lönd til að afnema
viðskiptahindranir eða láta af ósanngjörnum
viðskiptaháttum en forsetinn virðist nú hneigj-
ast til að líta á tollana sem varanlegt tæki til að
vernda bandarískar atvinnugreinar, hindra
innflutning og uppræta óæskilegan vöruskipta-
halla, að sögn stjórnmálaskýranda The New
York Times. Stuðningsmenn frjálsra viðskipta
milli landa óttast að önnur stór lönd taki upp
þessa stefnu Trumps og hækki tolla til að
vernda fyrirtæki sín.
Tollahækkanir Bandaríkjanna og Kína
Heimild: Fréttastofur AFP
6. júlí 2018 34
milljarðar $
25% tollur
34
milljarðar $
23. ágúst 16
milljarðar $
16milljarðar $
25% tollur
BANDARÍKIN KÍNA
24. september 200
milljarðar $
10% tollur
60
milljarðar $
1. desember 2018 Stjórnvöld í Bandaríkjunum og
Kína semja um vopnahlé
í viðskiptastríðinu
10. maí 200
milljarðar $
Hækkar úr
10% í 25%
1. júní 60milljarðar $
Allt að 25%
tollur
9.-10. maí Samkomulag næst ekki í viðræðunum
Janúar 2019
til
febrúar
Samningaviðræður
milli landanna tveggja
um viðskiptadeilur þeirra
Helstu atburðir
Hafa áhyggjur af tollum Trumps
Tollastríðið við Kína hefur skaðað bandaríska bændur Kemur einnig niður á neytendum, hækk-
ar vöruverð og eykur kostnað fyrirtækja í Bandaríkjunum Uggur í þingmönnum repúblikana
AFP
Hækkar tolla Donald Trump fer um borð í
forsetaþotuna eftir enn eina tollahækkunina.
Með hæsta tollahlutfallið
» Bandaríkin voru lengi forystuland í
baráttunni fyrir frjálsum viðskiptum í
heiminum en nú er öldin önnur.
» Meðalhlutfall tolla er nú hærra í
Bandaríkjunum en nokkru öðru G7-ríki,
að sögn Torstens Sløks, aðalhagfræðings
Deutsche Bank Securities. Hann segir að
tollahlutfallið í Bandaríkjunum sé meira
en tvöfalt hærra en í Kanada, Bretlandi,
Ítalíu, Þýskalandi og Frakklandi og hærra
en í flestum öðrum iðnvæddum löndum.
» Tollastríðið hefur m.a. skaðað stór
bandarísk fyrirtæki á borð við Boeing,
General Motors, Apple og Caterpillar,
auk smærri fyrirtækja og bænda.
Þýski listamaðurinn Ottmar Hörl
stendur hér við höggmyndir sem
hann hefur gert af tónskáldinu
Ludwig van Beethoven á torgi í
Bonn. Hörl sýnir nú um 700 högg-
myndir í borginni á sýningu sem
stendur til 2. júní og er liður í
hátíðarhöldum í tilefni af 250 ára
fæðingarafmæli tónskáldsins. Beet-
hoven fæddist í Bonn, fæðingar-
dagur hans er óþekktur en vitað er
að hann var skírður 17. desember
1770. Hann bjó mestan hluta ævi
sinnar í Vín og lést 26. mars 1827.
AFP
250 ára fæðingarafmælis
Beethovens minnst