Morgunblaðið - 16.05.2019, Qupperneq 64
64 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 16. MAÍ 2019
Einar Falur Ingólfsson
efi@mbl.is
Ekki er alltaf blíða þegar listaverk
eru sett upp utandyra og það gekk
á með hressilegum rigninga-
hryðjum á mánudaginn var þar sem
myndlistarkonan Kathy Clark var
ásamt aðstoðarmönnum að grafa
niður og festa nýtt verk sitt, „Ei-
lífðin er í næsta húsi“, í svörðinn
við göngu- og hjólastíg við Breið-
holtsskóla. Rétt þar hjá átti síðan
að fara að setja niður „Skilti“, verk
eftir Baldur Geir Bragason, og þeg-
ar útisýning Myndhöggvarafélags í
Reykjavík verður opnuð í Gerðu-
bergi í Breiðholti á morgun, föstu-
dag, klukkan 17 þá hefur verkum
níu listamanna, og nokkrum eftir þá
suma, verið komið upp víða í Breið-
holtshverfi, allt frá Elliðaárdal yfir í
Seljahverfi.
Sýningin nefnist Úthverfi og er
annar áfangi í röð sumarsýninga
sem hófust í fyrra, nefnast Hjólið
og verða settar upp í aðdraganda
fimmtíu ára afmælis Mynd-
höggvarafélagsins árið 2022. Á sýn-
ingunum eru listaverk sett upp
meðfram hjóla- og göngustígum í
borginni.
Titill þessrar sýningar, Úthverfi,
vísar í staðsetningu hennar í Breið-
holtshverfi sem var fyrsta skipu-
lagða úthverfið í Reykjavík og er
jafnframt eitt fjölmennasta og fjöl-
breytilegasta hverfi borgarinnar.
„Við fengum verkefnið og hverfið
upp í hendurnar og hófumst handa
við að setja saman þessa sýningu,“
segir Aldís Arnardóttir en þær
Aðalheiður Valgeirsdóttir eru sýn-
ingarstjórarnir og aðstoða jafn-
framt við uppsetningu verkanna.
Þær benda á að hverfið sé gríðar-
stórt, „eins og heilt bæjarfélag“ og
það hafi verið forvitnilegt að kynn-
ast því með uppsetningu þessara
fjölbreytilegu verka í huga.
Margar góðar tillögur
Þær segjast í vinnunni að sýning-
unni einmitt hafa lagt áherslu á
fjölbreytileikann, bæði þann sem
finnst í hverfinu og í verkunum,
sem og sögu hverfisins. „Hér er alls
staðar stutt í náttúruna og hið
manngerða og náttúran mætast
víða með svo skemmtilegum hætti.
Við lögðum upp með að listamenn-
irnir tækju mið af þessum þáttum.
Í ýmsum menningarverkefnum á
síðustu árum hefur einkum verið
horft til Efra-Breiðholts en við vild-
um hafa allt hverfið undir,“ segir
Aðalheiður.
Félagar í Myndhöggvarafélaginu
sem höfðu hug á að vera með í sýn-
ingunni sendu inn tillögur og var
valið úr þeim. Þá er samvinna um
sýninguna við finnska myndhöggv-
arafélagið og er Anssi Pulkkinen
fulltrúi þess. „Við fengum margar
góðar tillögur frá finnskum lista-
mönnum sem gaman var að skoða,“
segir Aldís.
Miðstöð í Gerðubergi
„Verkin sem við völdum eru afar
fjölbreytileg,“ segir Aðalheiður, „og
eru líka unnin í fjölbreytileg efni.
Þau eru til dæmis úr járni, fánum,
sápu, steinum og kartöflum! Við
lögðum líka áherslu á að hafa ein-
hver þátttökuverk í samvinnu við
íbúana. Tveir listamannanna unnu
með börnum í Fellaskóla, Ósk Vil-
hjálmsdóttir og Halldór Ásgeirsson,
og Katrín Inga var með þátttöku-
gjörning, fékk fólk til að skrifa und-
ir samning um sjálfsást en þá setur
hún inn í skúlptúrinn sinn.“
Katrín Inga gerði jafnframt
myndbandsverk af gjörningnum og
verður það sýnt í Gerðubergi. „Þar
verður einskonar miðstöð sýningar-
innar, minni útgáfur af verkum og
upplýsingar af ýmsu tagi, til að
mynda hugmyndavinnan að baki
verkum,“ segja sýningarstjórarnir.
Þar er jafnframt hægt að ná sér í
sýningarskrá og kort til að flakka
eftir á milli verkanna.
„Verkin dreifast á nokkuð stórt
svæði en það má auðveldlega skoða
þau öll í tveimur leiðöngrum,“ segja
þær Aldís og Aðalheiður og munu
þær leiða áhugasama gesti milli
verkanna síðar í sumar.
Morgunblaðið/Einar Falur
Sýningarstjórarnir Aðalheiður Valgeirsdóttir og Aldís Arnardóttir segja listaverk, náttúru og byggð mætast.
Járn, fánar, sápa, steinar og kartöflur
Fjölbreytileg útilistaverk hafa verið sett upp víða í Breiðholti Níu listamenn eiga myndverk
á sýningunni Úthverfi „Verkin sem við völdum eru afar fjölbreytileg,“ segja sýningarstjórarnir
Fjalla(hjól) Verk eftir Anssi Pulkkinen vekja athygli vegfarenda.
Níu listamenn eiga verk á sýn-
ingunni Úthverfi sem verður
opnuð í Gerðubergi kl. 17 á
morgun, föstudag.
Verkin er að finna víða í
Breiðholtshverfi og má fá kort
með staðsetningu þeirra og
frekari upplýsingum í Gerðu-
bergi. Kortið má einnig sjá á
vefsíðunni hjolid.is.
Sýnendur eru Anssi Pulkk-
inen, Arnar Ásgeirsson, Baldur
Geir Bragason, Halldór Ás-
geirsson, Hallsteinn Sigurðs-
son, Kathy Clark, Katrín Inga
Jónsdóttir Hjördísardóttir, Ósk
Vilhjálmsdóttir og Sindri
Leifsson.
Verkin víða
að finna
NÍU LISTAMENN TAKA ÞÁTT
Gestur á sýningunni Úthverfi og
fulltrúi finnskra myndhöggvara á
sýningunni er Anssi Pulkkinen. Hann
er höfundur verka, „Fjalla(hjól)“,
sem hafa verið sett upp á þremur
stöðum, tvö eru í Seljahverfi og eitt á
gatnamótum Eyjabakka og Arnar-
bakka. Öll eru heljarmikið bjarg sem
„lent“ hefur á reiðhjóli sem stendur
beyglað undan því. Pulkinnen viður-
kennir brosandi að hann sé ábyrgur
fyrir þessum verkum, sem eru ógn-
vekjandi og fyndin í senn og eiga án
efa eftir að vekja athygli. Er hann
viss um að björgin hafi ekki kramið
hjólandi vegfarendur?
„Það urðu engin slys við uppsetn-
inguna,“ segir hann. Og bætir við að
ýsmar hugmyndir komi saman í þess-
um verkum, hugmyndir um manninn
í náttúrunni, og um hreyfingu. „Ég
var líka að hugsa um fjöll og kletta,
eitthvað sem á ekki að vera hægt að
hreyfa eða flytja. Þar koma inn and-
legar eða trúarlegar hugmyndir; það
er sagt að ef fjallið vilji ekki koma til
Múhameðs þá verði hann að fara að
fjallinu. Þarna mætast varanleikinn
og þyngslin í steininum og hreyfingin
í hjólinu. Í stað þess að ná að hreyfa
grjótin með hjólinu þá kremja þau
hjólið.
Ég vildi líka hafa björgin á stærð
við menn, það gerði samhengið at-
hyglisvert.“ Pulkkinen viðurkennir
fúslega að þessi verk sín séu fyndin,
hann hafi gjarnan viljað kalla fram
bros með þeim.
Þátttaka Pulkkinens er hluti af
samstarfi milli myndhöggvarafélag-
anna í Reykjavík og Helsinki. All-
nokkrir Finnar hafi komið með til-
lögur að verki til að setja upp í þess-
ari sýningu og varð hans fyrir valinu.
Hann segir að síðar á árinu taki ís-
lenskur myndhöggvari síðan þátt í
samsýningu með finnskum kollegum
í Helsinki.
Varanleiki og
hreyfing mætast
Anssi Pulkkinen sýnir þrjú verk
Skúlptúristi Anssi Pulkkinen er
fulltrúi finnskra listamanna.