Morgunblaðið - 16.05.2019, Side 72
ILVA Korputorgi, s: 522 4500 - www.ILVA.is
laugardaga og sunnudaga 12-18
mánudaga - föstudaga 11-18:30
ARISTA garðstóll. Ýmsir litir. 14.900 kr. Nú 11.175 kr.
25%
AF ÖLLUM
SUMARSTÓLUM
Franski kvikmyndaleikstjórinn
Claire Denis verður heiðursgestur
RIFF, Alþjóðlegrar kvikmyndahátíð-
ar í Reykjavík, í ár og hlýtur heið-
ursverðlaun fyrir framúrskarandi
listræna sýn. Denis hefur hlotið
fjölda verðlauna fyrir kvikmyndir
sínar, síðast SACD-verðlaun á Can-
nes-kvikmyndahátíðinni fyrir Un
beau soleil intérieur. Hún situr nú í
dómnefnd stuttmynda á Cannes-
hátíðinni. Denis er einna þekktust
fyrir kvikmynd sína Beau travail.
Denis heiðursgestur
FIMMTUDAGUR 16. MAÍ 136. DAGUR ÁRSINS 2019
Sími: 569 1100
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is
Í lausasölu 670 kr.
Áskrift 7.240 kr. Helgaráskrift 4.520 kr.
PDF á mbl.is 6.420 kr. iPad-áskrift 6.420 kr.
Sandra María Jessen og félagar í
Leverkusen héldu sæti sínu í þýsku
1. deildinni með sigri á Essen í loka-
umferðinni. Sandra María fékk höf-
uðhögg í leiknum en fann ekki fyrir
afleiðingunum fyrr en sigurvíman
rann af henni. „Það var ekki fyrr en
ég gat sest niður og slakað aðeins á
sem ég fór að finna fyrir hausverk
og ógleði,“ segir Sandra. »59
Sandra fékk höfuð-
högg í sigurleik
ÍÞRÓTTIR FÓLK Í FRÉTTUM
Þóra Einarsdóttir sópran verður
gestur Gunnars Guðbjörnssonar í
viðtalstónleikaröðinni Da Capo í
Salnum í Kópavogi á laugardaginn,
18. maí, kl. 14 og verða það síð-
ustu tónleikarnir í röðinni. Farið
verður yfir söngferil Þóru á óperu-
og tónleikasviðinu en hún þreytti
frumraun sína við Glyndebourne
Festival Opera aðeins 23 ára að
aldri og steig fyrst á svið Íslensku
óperunnar 18 ára. Þóra
hefur hlotið marg-
víslegar viður-
kenningar fyrir
söng og framlag
sitt til tónlistar,
m.a. Dannebrog-
orðuna og Hina
íslensku fálka-
orðu.
Þóra síðasti gestur
Gunnars í Da Capo
myndina. Enga varnargarða heldur
láta vatnið fara yfir veginn í stað
þess að færast og brjóta brúna.
Hann staðfesti þessa sögu við mig
fyrir nokkrum árum, sagðist hafa
fengið hugmyndina yfir öxlina á
mér.“
Óli var í sveit í Öræfum í átta sum-
ur. „Þá komu um 15 ferðamenn á
hverju sumri, flestir vísindamenn að
rannsaka Skeiðarárhlaup og jökul-
inn. Það var 21 bær í sveitinni, ein
símalína í gegn og þegar þurfti að
koma skilaboðum á framfæri var
bara hringt ein stutt og til dæmis
sagt: Það er ball í kvöld. Og allir
mættu.“
Þegar slátrun var lokið á haustin
flaug Óli suður með kjötinu. „Það
var hvorki frystir né kælir fyrir
austan og því miðaðist slátrunin við
flugdag, því flytja þurfti kjötið til
Reykjavíkur samdægurs. Ég hirti
aldrei um að koma í skólann á rétt-
um tíma, því sveitalífið hafði forgang
og það skapaði grunn að mínu lífi.
Þarna lifði ég eins og ævintýramað-
ur í góðu yfirlæti.“ »18
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
Undanfarin fimm ár hefur Ólafur B.
Schram leiðsögumaður skrifað á
annað hundrað örsögur á fésbókina
undir yfirskriftinni „Sögustund með
Óla“ og á sér nú þann draum að gefa
út úrval þeirra í bók, sem á að heita
Höpp og glöpp. Hann hefur opnað
söfnunarsíðu á Karolina Fund til
þess að láta drauminn verða að veru-
leika.
„Ég hef ekki fengið slæmar við-
tökur við þessum skrifum,“ segir Óli.
Bendir á að mynd með sögunum hafi
dregið lesendur að og hann veki at-
hygli á söfnuninni á Karolina Fund í
nýjasta pistlinum, „Ögurstund hjá
Óla“. „Bókin kemur ekki út nema
fólk skuldbindi sig til þess að kaupa
hana með fjárstuðningi,“ segir hann.
Sögurnar eru af ýmsum toga. Þær
fjalla um barnæskuna, sveitalífið í
Öræfum, samferðafólk, uppákomur
þess eins og rifrildi, skilnaði, mat,
svefnleysi og svo framvegis, ferðir
um landið og fleira. „Ég hef verið í
ferðamennsku frá 1995 og hef alla
tíð sagt farþegum mínum sögur.
Þeir hafa lengi hvatt mig til þess að
festa frásagnir af ýmsum ævintýrum
á blað og það var helsta hvatningin
að þessum skrifum,“ segir Óli. Hann
áréttar að hann hafi byrjað að skrifa
örsögur 1986, fyrst og fremst minn-
ingar úr sveitinni. Í því sambandi
rifjar hann upp að hann hafi á sínum
tíma lagt til hugmyndina að Skeiðar-
árbrú.
Suður með kjötinu á haustin
„Helgi Hallgrímsson, þáverandi
vegamálastjóri, lærði verkfræði með
áherslu á brúarsmíði,“ byrjar Óli og
setur sig í stellingar. „Eitt fyrsta
verkefni hans var að finna út hvern-
ig brúa mætti Skeiðará. Lausnin við
slíka brúargerð hafði alltaf falist í
því að setja varnargarða sitt hvorum
megin við brúna og veita vatninu
undir. Hann átti stundum erindi
austur að fylgjast með ánni og kom
eitt sinn að mér í bílaleik. Ég hafði
markað götur í sandinn og sett spýtu
yfir ímyndaðan árfarveg, en á þess-
um tíma var búið að leggja eina brú
fyrir austan. Þarna fékk hann hug-
Brúin að hætti Óla
Ólafur B. Schram leiðsögumaður hefur skrifað á annað
hundrað örsögur og hyggst gefa úrval þeirra út í bók
Ljósmynd/Eva Schram
Ferðafrömuður Íbygginn Óli Schram leggur á ráðin um næsta leik.