Morgunblaðið - 29.06.2019, Qupperneq 1
L A U G A R D A G U R 2 9. J Ú N Í 2 0 1 9
Stofnað 1913 151. tölublað 107. árgangur
DAUÐI EVRÓPU
OG MÁLEFNI
ÚTLENDINGA
TRILLU-
KARL Á
SJÓNUM
FÓR UNG Á VEIÐAR, 6DOUGLAS MURRAY 52
Makrílkvóti
» Heildarkvóti ársins er 140
þúsund tonn. 127 þúsund tonn
koma til úthlutunar samkvæmt
aflahlutfalli.
» 4.000 tonn verða boðin
handfærabátum gegn gjaldi.
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Íslendingar taka sér stærri hlut af
makrílaflanum í Norður-Atlantshafi
en þeir hafa áður gert. Makrílkvóti ís-
lenskra skipa verður 140 þúsund tonn
í ár, samkvæmt reglugerð sjávarút-
vegsráðherra. Er það rúmlega 32
þúsund lestum meira en fyrri viðmið-
unarreglur hefðu gefið.
Íslendingum hefur ekki verið
hleypt að samningaborði strandríkja-
hóps makríls þrátt fyrir margar til-
raunir. Þess vegna hafa stjórnvöld
tekið sér einhliða kvóta eftir að mak-
ríll fór að veiðast á Íslandsmiðum.
Miðað hefur verið við 16,5% af kvóta
strandríkjanna sem hefði gefið 108
þúsund tonn í ár. Nú er miðað við
sama hlutfall en af áætlaðri heildar-
veiði allra ríkja. Búast má við að
heildaraflinn fari um 80 þúsund tonn
yfir ráðgjöf vísindamanna.
„Ég sé ekki ástæðu til þess að við
verðum eitt ríkja að vera í þeirri stöðu
að taka ábyrgð á þessum sameigin-
lega deilistofni okkar,“ segir Kristján
Þór Júlíusson, sjávarútvegsráðherra.
Aflamarki var úthlutað í gær og
fyrstu skipin héldu til veiða síðdegis.
Aukið við makrílkvótann
Með breyttri viðmiðun auka Íslendingar hlutdeild sína í makrílveiðunum
Kvótinn 32 þúsund tonnum meiri en annars hefði orðið Fyrstu skipin til veiða
M Ísland tekur stærri ... »4 og 24
Lögbrot Ekki er mælt með lyfinu.
Ólöglega lyfið Melanotan, sem
gengur hefur undir nafninu Barbí-
lyf, er í umferð hér á landi. Mel-
anotan er sprautað undir húð á
maga og dekkir húðina en því
fylgja ýmsar aukaverkanir og
langtímaáhrifin eru ókunn. Ung
móðir í Reykjavík hefur notað lyfið
af og til í níu ár og segir frá
reynslu sinni í Sunnudagsblaði
Morgunblaðsins.
„Ég prófaði þetta fyrst í níunda
bekk,“ segir konan sem ekki vill
koma fram undir nafni. „Manni
finnst maður sætari ef maður er
brúnn. Maður getur alveg orðið
pínu háður þessu og þá þarf maður
að fara að passa sig.“
Jenna Huld Eysteinsdóttir, sér-
fræðingur í húðlækningum, hefur
áhyggjur af notkun lyfsins.
„Mestu áhyggjurnar eru að með
því að örva litarfrumurnar gætu
myndast sortuæxli en þau koma
frá þessum sömu frumum,“ segir
hún.
Barbí-brúnkulyf í umferð
Lyfið Melanotan sem dekkir húðina selt ólöglega á Íslandi
Læknir hefur áhyggjur af myndun sortuæxla vegna lyfsins
Fyrsta diskódúnleit landsins fór fram í gær í Svefneyjum á
Breiðafirði þegar fjölskylda Dagbjarts heitins Einarssonar
skipstjóra úr Grindavík og vinir hennar tíndu dún í gríð og
erg. Einar Dagbjartsson dúnbóndi segir fleiri unga koma upp
nú en undanfarin ár. Hann segir að með því að fylkja liði í
Svefneyjar náist að klára að mestu báðar dúnleitir sumarsins.
Að lokinni dúntekju er þeim sem taka þátt í dúnleitinni boðið í
grill og fjör fram eftir nóttu. Von er á fleira fólki í Svefneyjar
til dúntöku í dag.
Fjöldi fólks tók þátt í fyrstu diskódúnleitinni í Svefneyjum
Morgunblaðið/RAX
Heildarsamtök á vinnumarkaði
hafa nú fengið til undirritunar end-
urskoðað samkomulag um útvíkkað
hlutverk Þjóðhagsráðs og er gert
ráð fyrir að það taki til starfa í
haust. ASÍ hefur þegar undirritað
samning þessa efnis. Fulltrúar
launþega neituðu að taka þátt í
störfum ráðsins á fyrstu árum þess
en nú er gert ráð fyrir að auk
stjórnvalda og Seðlabankans sitji
fulltrúar ASÍ, BSRB, BHM og
Kennarasambandsins auk SA í
ráðinu. Þá hefur forsætisráðherra
sent samtökum launafólks og Sam-
bandi íslenskra sveitarfélaga minn-
isblað um grænbók. »24
Ræða grænbók og
stærra Þjóðhagsráð
Kristófer Oliversson formaður FHG
– fyrirtækja í hótel- og gistiþjónustu,
segir í samtali við Morgunblaðið að
bakslag sé komið í gamla markmiðið
hjá ferðaþjónustuaðilum hér á landi,
að fá fram aukna dreifingu ferða-
manna um landið og meiri dreifingu
þeirra yfir veturinn. „Þetta gekk
rosalega vel, en nú er árstíðasveiflan
að aukast og menn fara síður út á
land. Að okkar mati er það óásætt-
anlegt að stjórnvöld leggist ekki á
sveif með okkur m.a. í markaðs-
kynningar- og sölumálum nú þegar
þjóðin horfist í augu við 100 milljarða
samdrátt í útflutningstekjum. Sér-
tækan skatt eins og gistináttaskatt á
að fella niður umsvifalaust. Ef við
ættum að nefna einhvern einn aðila
sem tapar mestu á samdrætti í grein-
inni, þá er það ríkissjóður Íslands,
sem sést á því að endurskoða þurfti
fjármálaáætlun þegar sló í bakseglin
hjá okkur.“
Hvað næstu vikur og mánuði varð-
ar segir Kristófer að það sé áhyggju-
efni hvað verð á flugi til landsins hef-
ur hækkað mikið, og hljóðið í
mönnum í ferðaþjónustunni sé ekkert
rosalega gott. Óvissa sé mikil. »22
Bakslag komið í
gamla markmiðið