Morgunblaðið - 29.06.2019, Blaðsíða 10
10 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 29. JÚNÍ 2019
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Skipulags- og samgönguráð Reykja-
víkur hefur samþykkt breytingu á
deiliskipulagi fyrir Furugerði 23.
Felur hún í sér breytingar frá fyrri
tillögu en áformin hafa verið umdeild
meðal íbúa hverfisins. Nýja tillagan
bíður afgreiðslu
borgarráðs.
Með henni
fækkar íbúðum
úr 32 í 30, ásamt
því sem bygging-
arreitir hafa verið
færðir þremur
metrum nær Bú-
staðavegi.
Guðrún S.
Gröndal hefur
verið í forsvari fyrir íbúa Espigerðis
og Furugerðis sem hafa mótmælt
áformunum.
Vildu hafa húsin á einni hæð
„Við íbúarnir erum mjög vonsvik-
in með þessa nýja tillögu enda er
eina raunverulega breytingin sú að
fækkað var um aðeins tvær íbúðir.
Það er samt sem áður fimmfalt
byggingarmagn miðað við núverandi
deiliskipulag sem heimilar 4-6 íbúðir.
Íbúum finnst lítið sem ekkert hafa
verið hlustað á þær athugasemdir
sem sendar voru inn. Væntingar
okkar voru að húsin yrðu lækkuð í
eina hæð þannig að áhrifin á nær-
liggjandi hús yrðu lágmörkuð. Þá
höfðum við væntingar um að bíla-
stæðamál yrðu leyst innan lóða
húsanna. Hvorugt gengur eftir, sem
eru auðvitað mikil vonbrigði,“ segir
Guðrún um breytingarnar.
Mun færri bílastæði en íbúðir
„Það eru 0,75 bílastæði á íbúð og
því verða einhverjar íbúðir án bíla-
stæða. Þá er ekki eitt einasta gesta-
stæði í kringum húsin. Þegar við höf-
um spurt fulltrúa frá skipulagsráði
út í bílastæðamálin er alltaf bent á
almenningssamgöngur, gangstéttir
og hjólreiðar. Ef við erum raunsæ þá
er þjóðin að eldast. Fullorðið fólk
getur ekki ferðast um á hjóli í janúar
og almenningssamgöngur henta því
miður ekki öllum borgarbúum.
Skortur á bílastæðum mun verða
vandamál. Við höfum bent á hversu
þröngar göturnar eru nú þegar og að
gangstéttirnar í götunum rúma
hvorki barnavagna né göngugrind-
ur. Við heyrum frá fólki innan borg-
arinnar að skortur á bílastæðum í
nýja hverfinu á RÚV-reitnum sé
þegar orðinn mikið vandamál. Fólk
getur ekki lengur lagt við heilsu-
gæsluna af því að það fær ekki bíla-
stæði. Þeir sem einna helst sækja í
þessa þjónustu eru eldri borgarar.
Það er ekki á færi allra að leggja við
Kringluna og ganga til læknis,“ segir
Guðrún og bendir á að fyrirhuguð
hús verði svo nærri Bústaðaveginum
að hljóðvist og mengun frá bílaum-
ferð hljóti að verða vandamál.
Íbúarnir muni funda um stöðuna.
Fram kemur í umsögn skipulags-
fulltrúa að bílastæðakrafa sé 0,75
stæði á íbúð en því verið bætt við
skilmála að heimilt sé að gera allt að
1 stæði á íbúð. Þá hafi byggingarreit-
ur fyrir bílakjallara verið stækkaður.
Fyrirhugað deiliskipulag fyrir Furugerði 23 í Reykjavík
Tillaga að skipulagi íbúðabyggðar í Furugerði 23 og á aðliggjandi lóð við Espigerði
Eldri tillaga að skipulagi lóðar frá september 2017
Þrívíddarmynd:
ARKÍS arkitektar
Fu
ru
ge
rð
i
G
re
ns
ás
ve
gu
r
Bústaðavegur
Es
pi
ge
rð
i
A
B
Kort: Loftmyndir ehf.
Heimild: Reykjavíkurborg
Helstu breytingar: Byggðin lækkuð úr þremur hæðum í tvær. Raðhúsabyggð á B-reit
í stað fjölbýlis. Byggingarreitir færðir 3 m nær Bústaðavegi. Hámark 30 íbúðir í stað 32.
Bústaðave
gur
Furugerði
Espigerði
Grensásvegur
Þrívíddarmynd:
ARKÍS arkitektar
REITUR A er 2.358 m2. Gert er ráð fyrir
allt að 20 íbúðum á 2 hæðum. Mesta hæð
6,0 m (fl öt þök) og 7,6 m (hallandi þök).
REITUR B er 1.627 m2. Gert er ráð fyrir
allt að 10 íbúðum á 2 hæðum. Mesta hæð
6,0 m (fl öt þök) og 6,8 m (hallandi þök).
Sameiginleg bílastæði og geymslur
í kjallara undir reit A og hluta reits B.
Guðrún S.
Gröndal
Breytingarnar mikil vonbrigði
Fulltrúi íbúa við Furugerði segir áformaða byggð við Bústaðaveg enn vera alltof umfangsmikla
Íbúðum sé aðeins fækkað um tvær, úr 32 í 30 Fyrirséð að skortur verði á bílastæðum á svæðinu
Verið velkomin í glæsilega sýningaríbúð
Guðbjörg Guðmundsdóttir
löggiltur fasteignasali
gudbjorg@manalind.is
sími: 899 5533
Thelma Víglundsdóttir,
löggiltur fasteignasali
thelma@manalind.is
sími: 860 4700 www.manalind.is Lágmúla 6 sími 511 1020
Sölusýning
Breiðakur 2-4 Garðabæ
Laugardaginn 29. júní frá 16:00-17:00
Sunnudaginn 30. júní frá 16:00-17:00
Nýtt átta íbúða fjölbýli með lyftu.
Þriggja og fjögurra herbergja íbúðir, 122-138 fm.
Verð frá 65,9 millj.
Öllum íbúðum fylgja stæði í lokaðri bílageymslu.
Íbúðirnar eru tilbúnar til afhendingar,
fullbúnar án gólfefna.