Morgunblaðið - 29.06.2019, Blaðsíða 50
50 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 29. JÚNÍ 2019
Alræði fegurðar! er yfirskrift sýn-
ingar sem verður opnuð á Kjar-
valsstöðum á morgun, sunnudag,
klukkan 16 með verkum hins
kunna og áhrifamikla breska
hönnuðar, skálds og listamanns
Williams Morris (1834-1896). Sýn-
ingin gerir skil hinu fjölbreytilega
ævistarfi Morris sem auk þess að
hafa markað djúp spor í hönn-
unarsögu Bretlands og verið
slyngur listamaður var jafnframt
framúrskarandi handverksmaður.
Hann hafði háleitar hugmyndir um
alþýðufræðslu gegnum handverk
og listir og hugmyndir hans um
samfélag iðnbyltingarinnar þóttu á
sínum tíma byltingarkenndar. „Ég
vil ekki list fyrir
fáa fremur en
menntun fyrir
fáa eða frelsi
fyrir fáa,“ skrif-
aði hann árið
1877.
Á sýningunni
á Kjarvals-
stöðum eru, auk
frumteikninga af
frægum mynstr-
um Morris, til að mynda glæsileg
útsaumsverk, húsgögn, steindir
gluggar, fagurlega skreyttar bæk-
ur, veggteppi og flísar. Þá eru
sýnd verk eftir fræga samferða-
menn hans og vini úr hópi fremstu
listamanna Bretlands á þeirra tíð,
til að mynda svokallaða Pre-Rafa-
elíta á borð við Dante Gabriel
Rossetti (1828-1882).
Eins og fyrr segir hafði Morris
sem hönnuður, listamaður og sam-
félagsrýnir mikil áhrif á samtíma
sinn. Og eins og segir í tilkynn-
ingu frá Listasafni Reykjavíkur
skildi hann eftir sig sjónrænan
menningararf og hugmyndafræði
sem hafa haft áhrif allt til okkar
daga. Þá eru tengsl Morris við Ís-
lands athyglisverð á margan hátt.
Hann hafði mikinn áhuga á nor-
rænni sögu og menningu, lagði á
sig að læra íslensku og þýddi
ásamt Eiríki Magnússyni, bóka-
verði í Cambridge, nokkrar
Íslendingasagnanna á ensku. Sög-
urnar urðu honum einnig upp-
spretta í skáldskap og orti hann
þekkt ljóð sem byggjast á drama-
tísku efni þeirra. Morris ferðaðist
tvisvar um Ísland ásamt Eiríki og
breskum félögum sínum, sumrin
1871 og 1873, og hélt fræga dag-
bók á ferðunum, ekki síst þeirri
fyrri. Komu þær út á íslensku árið
1975 undir heitinu Dagbækur úr
Íslandsferðum. Morris varð fyrir
djúpum áhrifum hér á landi og
heillaðist bæði af menningu og
náttúru.
Fyrsta sýning um Morris hér
Sýning sem verður opnuð á
Kjarvalsstöðum á morgun er unn-
in í samstarfi við William Morris
Gallery í London og Millesgården
í Stokkhólmi, þar sem hún var
fyrst sett upp, en hún er einnig
sett upp í Danmörku og Edinborg.
Þetta er fyrsta sýningin sem sett
er upp hérlendis þar sem fjöl-
breyttum ferli Morris eru gerð
skil með allrahanda verkum eftir
hann og nána samferðamenn. Og
þá eru Íslandstengingunni gerð
sérstök skil á sýningunni hér á
landi og er það sérstök viðbót við
það sem sýnt er á hinum
sýningarstöðunum. Hér eru til að
mynda gripir sem Morris tók með
sér héðan og höfðu áhrif á þann
myndheim sem hann skapaði, þar
á meðal útskorið horn og fleiri
áhöld úr horni.
Áhersla á gæði handverks
William Morris var afar fjölhæf-
ur og áhugasamur um margt, eins
og einkenndi iðulega menntamenn
Viktoríutímans. Hann hóf ungur
nám í arkitektúr en sneri sér fljótt
að öðru og er í dag þekktastur
sem hönnuður og skáld. Hann
stofnaði ásamt félögum sínum
fyrirtæki og framleiddu þeir vand-
aðar handgerðar vörur úr gæða-
efnum; húsbúnað, veggfóður, vefn-
að og húsgögn en einnig gler-
glugga og flísar.
Morris barðist gegn iðnvæðingu
sem var að ryðja sér til rúms í
Englandi, lagði mikla áherslu á
gæði handverks og mikilvægi þess
fyrir samfélagið og var talsmaður
Lista- og handverkshreyfingar-
innar (e. Arts and Crafts Move-
ment). Hann tók virkan þátt í
stjórnmálum og var einn af stofn-
endum fyrirrennara breska Verka-
mannaflokksins. Allt sem William
Morris gerði var innblásið af bylt-
ingarkennd. Hann leitaðist við að
gera heiminn og líf fólks betra
með hönnun sinni – með því að
láta fegurðina ráða.
Einnig verk eftir Rossetti
Auk verka Morris verða á sýn-
ingunni verk eftir listmálarann
Dante Gabriel Rossetti en hann
var mikill áhrifavaldur í lífi Morr-
is. 22 ára gamall gerðist Morris
lærlingur hjá Rossetti og bjuggu
þeir saman ásamt öðrum félaga í
listinni. Í framhaldi af því kynntist
Morris verðandi eiginkonu sinni,
Jane Burden (1839-1914), sem var
módel hjá þeim félögum og þekkt
af fjölda málverka. Rossetti og
Burden hófu ástarsamband sem
var opinbert leyndarmál. Þegar
Morris hélt í sínar löngu ferðir til
Íslands 1871 og 1873 bjuggu þau
öll undir sama þaki og segja ævi-
söguritarar Morris að hann hafi
farið til Íslands vitandi að hann
skildi konu sína eftir með ást-
manni sínum, sem jafnframt var
náinn vinur hans.
Meðan á sýningunni á Kjarvals-
stöðum stendur verður boðið upp
á leiðsagnir sérfræðinga um hann
auk þess sem efnt verður til fjöl-
skyldudagskrár og námskeiða fyr-
ir ólíka hópa.
Hrífandi listaverk og hönnun
Sýning með verkum eftir William Morris opnuð á Kjarvalsstöðum á sunnudag Einn áhrifamesti
hönnuður 19. aldar og mikilvirkur listamaður Áhersla er lögð á Íslandstenginguna á sýningunni
Morgunblaðið/Einar Falur
Merkisverk Starfsmenn Listasafns Reykjavíkur unnu að uppsetningu sýningarinnar í vikunni. Á henni er úrval
veggteppa og veggfóðurs sem Morris hannaði, steindir gluggar, húsgögn og ýmiskonar hönnunar- og myndverk.
William Morris
Alþjóðlegt orgelsumar stendur enn
yfir í Hallgrímskirkju og í dag kl.
12 verða haldnir tónleikar þar sem
Mattias Wager, organisti Dóm-
kirkjunnar í Stokkhólmi, flytur
verk eftir Edward Elgar, Dimitri
Shostakovitsj, Jean Guillou og Jo-
hann Sebastian Bach. Á morgun,
sunnudag, kl. 17 leikur Wager aftur
og þá verk eftir Elgar, Guillou,
Bach og Grieg.
Wager fæddist árið 1967 og lærði
á orgel og stundaði nám í kirkju-
tónlist við Royal College of Music
hjá kennurunum Torvald Torén og
Anders Bondeman. Þaðan hélt
hann til Þýska-
lands og lærði
hjá organist-
anum Johannes
Geffert í Bonn og
síðar hjá Naji
Hakim í París.
Hann hefur unn-
ið til fjölda verð-
launa og auk
þess að starfa
sem dómorganisti í Stokkhólmi hef-
ur hann komið fram á tónleikum,
masterclass-námskeiðum og org-
elhátíðum víða um Evrópu og í
Brasilíu.
Wager leikur í Hallgrímskirkju
Mattias Wager
Fjórir íslenskir rithöfundar verða
gestir bókamessunnar í Gautaborg
sem haldin verður 26.-29. sept-
ember. Er það stærsta og fjölsótt-
asta bókamessa Norðurlanda og
hana sækja ár hvert um hundrað
þúsund manns, eins og segir í til-
kynningu.
Íslenskir höfundar og íslenskar
bókmenntir hafa fengið sinn sess á
messunni á undanförnum árum og
í ár kemur Auður Ava Ólafsdóttir,
handhafi bókmenntaverðlauna
Norðurlandaráðs fyrir Ör, fram í
aðaldagskrá messunnar og Kristín
Ómarsdóttir, sem tilnefnd er til
bókmenntaverðlauna Norður-
landaráðs fyrir Kóngulær í
sýningarglugg-
um, tekur þátt í
ljóðadagskránni
Rum för poesi.
Auk þessa taka
Auður Ava og
Kristín þátt í
hliðarviðburði
sem þýðandinn
John Sweden-
mark stýrir í
Världskultur-
muséet í Gautaborg. Ragnar Jón-
asson tekur þátt í glæpasagna-
dagskránni Crimetime en hann
nýtur mikilla vinsælda meðal
sænskra lesenda. Fjórði höfund-
urinn er svo Sigrún Eldjárn sem
kemur fram í barnadagskránni
Barnsalongen en nýjasta bók
hennar, Silfurlykillinn, er tilnefnd
til barna- og unglingabókaverð-
launa Norðurlandaráðs.
Fjórir íslenskir höf-
undar á messunni
Auður Ava
Ólafsdóttir
... stærsti uppskriftarvefur landsins!