Morgunblaðið - 29.06.2019, Blaðsíða 34
34 MESSURá morgun
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 29. JÚNÍ 2019
Á morgun 30.
júní 2019 fagnar
Þróttarinn Birgir
Hólm Björgvinsson
sjómaður, bátsmað-
ur, fv. gjaldkeri Sjó-
mannafélags
Reykjavíkur,
stjórnarmaður í líf-
eyrissjóðnum Gildi,
stjórnarmaður í
stjórn Hrafnistu,
frambjóðandi fyrir
Frjálslynda flokkinn, 80 ára af-
mælisdegi sínum í faðmi fjöl-
skyldu. Það er ekki annað hægt
en að minnast góðs vinar og fé-
laga í nær 50 ár. Þegar ungur
drengur í blóma lífsins kom um
borð í m/s Dettifoss árið 1991,
undir stjórn Erlendar Jónssonar
heitins, mættust tveir félagar
þegar m/s Dettifoss fór í sína
fyrstu eins árs ábyrgð til Dan-
Birgir Hólm Björgvinsson
merkur. Mikið gam-
an, mikið fjör í fót-
bolta þar sem
skiphafnir spiluðu
sín á milli. Vináttan
hefur haldið áfram
síðan eins og lagið
Traustur vinur seg-
ir. Það var mikið
brallað á þessum ár-
um en þær sögur
verða ekki sagðar
hér, en kannski í
söguritum síðar. Segja má að
réttlæti hafi stýrt gjörðum hans
og hugsun þegar sjómenn þurftu
að leita til hans. Honum var það
gefið að bera virðingu fyrir fólki
og lífsbaráttu þess. Um kærleik-
ann er sagt að hann sé hvorki til-
finning né bara hugtak heldur
verknaður í garð náungans. Það
sást best þegar hann barðist
hetjulega fyrir launum sjómanna
á farskipum, þar sem slegist var
á bryggjum landsmanna, þar sem
erlendir sjómenn á smánarlaun-
um áttu í hlut. Hann var hand-
samaður á Akureyri eftir að út-
gerðarmaður kallaði til lögreglu.
Sama átti við í Reykjavík þegar
skemmtiferðaskip frá Panama
kom og launamál voru ekki í lagi.
Þarna er honum best lýst – bar-
áttumaður fyrir hinu rétta. Kæri
vinur og kaffifélagi í Kaffivagn-
inum, innilegar hamingjuóskir,
Biggi minn, frá okkur öllum fé-
lögum þínum og við þökkum þér
áralöng ánægjuleg kynni. Haltu
áfram á brautinni sem þú hefur
verið á. Réttlætiskenndin er besti
kompásinn í lífinu, eins og þú
veist af eigin raun.
Lifðu heill.
Jóhann Páll Símonarson
og allir borðfélagar
þínir í Kaffivagninum.
Afmæli
ÁRBÆJARKIRKJA | Gönguguðs-
þjónusta kl. 11. Gengið frá kirkjunni
um Elliðaárdalinn (Stífluhringinn) og
staldrað við á þremur stöðum í íhug-
un, söng og bæn. Sr. Petrína Mjöll Jó-
hannesdóttir þjónar. Félagar úr kór Ár-
bæjarkirkju leiða söng og á eftir er
boðið upp á kaffi og kleinur í kirkj-
unni.
ÁSKIRKJA | Messa kl. 11. Séra Sig-
urður Jónsson sóknarprestur prédikar
og þjónar fyrir altari ásamt Kristnýju
Rós Gústafsdóttur djákna. Kór Ás-
kirkju syngur. Bjartur Logi Guðnason
leikur á orgelið. Kaffisopi í Ási eftir
messu.
ÁSTJARNARKIRKJA | Messa kl.
11. Keith Reed leiðir tónlistina. Prest-
ur er Kjartan Jónsson. Hressing og
samfélag á eftir.
BÚSTAÐAKIRKJA | Kvöldmessa
sunnudag kl. 20. Jónas Þórir og fé-
lagar úr Kór Bústaðakirkju. Messu-
þjónar og sr. Pálmi annast þjónustu.
Kvöldhressing eftir messuna.
Dómkirkja Krists konungs,
Landakoti | Messa á sunnud. kl.
8.30 á pólsku, kl. 10.30 á íslensku,
kl. 13 á pólsku og kl. 18 á ensku.
Virka daga kl. 18 og má., mi. og fö.
kl. 8, lau. kl. 16 er vigilmessa á
spænsku og kl. 18 er vigilmessa.
DÓMKIRKJAN | Messa kl. 11, séra
Eva Björk Valdimarsdóttir prédikar.
Dómkórinn og Kári Þormar dómorgan-
isti. Minnum á bílastæðin við Alþingi.
EGILSSTAÐAKIRKJA | Útimessa í
Selskógi á Egilsstöðum 30. júní kl.
10.30. Messað er í útileikhúsinu en
þangað liggur göngustígur upp frá
bílastæði. Prestur er Þorgeir Arason
og Torvald Gjerde leikur á harmon-
ikku. Almennur söngur. Boðið upp á
grillaðar pylsur í skóginum eftir stund-
ina. (Ef illa viðrar til útimessu verðum
við í Egilsstaðakirkju.)
FELLA- og Hólakirkja | Sameigin-
legar gönguguðsþjónustur kirknanna í
Breiðholti:
30. júní verður gengið frá Seljakirkju
kl. 10 í Fella-og Hólakirkju. Guðsþjón-
usta kl. 11.
Eftir gönguguðsþjónusturnar er boðið
upp á létta hádegishressingu og síð-
an er rútuferð til baka að þeirri kirkju
sem gengið var frá.
GARÐAKIRKJA | Messa kl. 11. Sr.
Jóna Hrönn Bolladóttir prédikar og
þjónar fyrir altari. Árni Heiðar Karls-
son leiðir safnaðarsöng.
GRAFARVOGSKIRKJA | Kaffihúsa-
messa kl. 11. Séra Guðrún Karls
Helgudóttir prédikar og þjónar. For-
söngvari leiðir söng og organisti er
Hákon Leifsson.
GRENSÁSKIRKJA | Messa kl. 11.
Prestur er María Ágústsdóttir, organ-
isti er Ásta Haraldsdóttir. Félagar úr
Kirkjukór Grensáskirkju leiða söng og
messuþjónar aðstoða. Heitt á könn-
unni fyrir og eftir messu.
GRUND dvalar- og hjúkrunar-
heimili | Guðsþjónusta í umsjón
Dómkirkjunnar í Reykjavík sunnudag-
inn kl. 14 í hátíðarsal Grundar.
Prestur er Eva Björk Valdimarsdóttir
héraðsprestur.
Félagar úr Dómkórnum syngja.
Söngstjóri og organisti er Kári Þor-
mar.
GUÐRÍÐARKIRKJA í Grafarholti |
Guðrþjónusta kl. 11. Prestur sr. Leifur
Ragnar Jónsson, organisti er Hrönn
Helgadóttir og kór Guðríðarkirkju
syngur. Kirkjuvörður er Lovísa Guð-
mundsdóttir.
HAFNARFJARÐARKIRKJA | Helgi-
stund í Garðakirkju kl. 11. Prestur og
organisti í Garðaprestakalli leiða
stundina. Næsta sunnudag og í júlí-
mánuði tekur Hafnarfjarðarkirkja þátt
í helgihaldi í Garðakirkju og er ekki
messað í Hafnarfjarðarkirkju á með-
an.
HALLGRÍMSKIRKJA | Messa kl.
11. Sr. Irma Sjöfn Óskarsdóttir pré-
dikar og þjónar fyrir altari. Hópur
messuþjóna aðstoðar. Félagar úr
Mótettukór Hallgrímskirkju syngja.
Organisti er Mattias Wager, organisti í
Stokkhólmi. Alþjóðlegt orgelsumar:
Tónleikar laugard. kl. 12 og sunnud.
kl. 17. Mattias Wager, organisti dóm-
kirkjunnar í Stokkhólmi, leikur. Fyrir-
bænaguðsþjónusta þriðjud. kl. 10.30
Árdegismessa miðvikud. kl. 8.
HÁTEIGSKIRKJA | Messa kl. 11.
Organisti Guðný Einarsdóttir,
prestur Eiríkur Jóhannsson.
HVÍTASUNNUKIRKJAN Fíladelfía |
Samkoma kl. 11. Translation into
English. Samkoma á spænsku kl. 13.
Reuniónes en español.
Samkoma á ensku kl. 14. English
speaking service.
ÍSLENSKA Kristskirkjan | Sam-
koma kl. 20 með lofgjörð og fyrir-
bænum. Ólafur H. Knútsson prédikar.
Kaffi að samverustund lokinni.
KEFLAVÍKURKIRKJA | Sunnudags-
kvöld 30. júní verður kvöldgöngu-
messa frá Keflavíkurkirkju. Haldið
verður af stað frá kirkjutröppum kl.
20. Hörður Gíslason mun flytja fróð-
leik er við stöldrum við á nokkrum
stöðum í umhverfi kirkjunnar. Arnór
organisti leiðir söng við úkúlelespil og
sr. Erla biður bænarorð. Endað verður
í kvöldkaffi í bakgarðinum hjá sókn-
arpresti þar sem boðið verður upp á
rjúkandi kaffi og heimabakað.
LINDAKIRKJA í Kópavogi | Sunnu-
dagaskóli kl. 11. Messa kl. 20. Sr.
Dís Gylfadóttir þjónar.
MOSFELLSKIRKJA | Pílagríma-
ganga: Bæna- og gönguguðsþjónusta
kl. 11. Prestur Ragnheiður Jónsdóttir.
Samveran hefst í Mosfellskirkju og
síðan gengið út í sumarið í Mosfells-
dal. Gengið verður að mestu á jafn-
sléttu, áð á útvöldum stöðum.
NESKIRKJA | Messa kl. 11.00. Fé-
lagar úr Kór Neskirkju leiða safnaðar-
söng. María Kristín Jónsdóttir situr
við hljóðfærið. Prestur Skúli S. Ólafs-
son. Kaffisopi og samfélag á Torginu
eftir messu.
SAFNKIRKJAN í Árbæjarsafni |
Guðsþjónusta kl. 14.00. Sigrún Stein-
grímsdóttir organisti stjórnar almenn-
um safnaðarsöng. Prestur Kristinn
Ágúst Friðfinnsson.
SAUÐÁRKRÓKSKIRKJA | Kvöld-
messa kl. 20. Kirkjukórinn leiðir
sálmasöng undir stjórn Rögnvaldar
Valbergssonar organista. Prestur Sig-
ríður Gunnarsdóttir.
SELFOSSKIRKJA | Guðsþjónusta kl.
11. Sr. Ninna Sif Svavarsdóttir þjónar
fyrir altari. Kór kirkjunnar syngur, org-
anisti Elísa Elíasdóttir.
SELJAKIRKJA | Síðasta gönguguðs-
þjónusta Breiðholtssafnaðanna,
gengið verður frá Seljakirkju kl. 10 í
Fella- og Hólakirkju þar sem guðsþjón-
usta hefst kl. 11. Boðið verður upp á
akstur til baka að Seljakirkju eftir
messukaffið. Guðsþjónusta í Skóg-
arbæ kl. 15.30, prestur er Bryndís
Malla Elídóttir, organisti er Tómas
Guðni Eggertsson.
SELTJARNARNESKIRKJA | Helgi-
stund kl. 11. Sr. Bjarni Þór Bjarnason
þjónar. Organisti er Kristín Jóhann-
esdóttir. Þorsteinn Freyr Sigurðsson
leiðir almennan safnaðarsöng. Kaffi-
veitingar og samfélag eftir athöfn í
safnaðarheimilinu.
SKÁLHOLTSDÓMKIRKJA | Guðs-
þjónusta sunnudag 30. júní kl. 11.
Séra Skírnir Garðarsson prédikar og
þjónar fyrir altari.
Organisti er Jón Bjarnason.
SLEÐBRJÓTSKIRKJA í Jökulsár-
hlíð | Kvöldmessa 30. júní kl. 20.
Prestur er Þorgeir Arason, organisti er
Jón Ólafur Sigurðsson. Kór Kirkjubæj-
ar- og Sleðbrjótskirkju. Meðhjálpari er
Margrét Dögg G. Hjarðar.
SÓLHEIMAKIRKJA | Guðsþjónusta
sunnudag kl. 14. Séra Skírnir Garð-
arsson annast prestsþjónustuna,
VALLANESKIRKJA | Tónlistarstund
30. júní kl. 20. Fram koma: Berglind
Einarsdóttir, sópran, söngkona og
kennari á Djúpavogi, og Torvald
Gjerde, harmóníum og harmonika,
organisti og tónlistarkennari á Héraði.
Aðgangur ókeypis.
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Þingeyrarkirkja.
Orð dagsins: „Kom-
ið til mín, öll þér sem
erfiðið og þunga er-
uð hlaðin, og ég mun
veita yður hvíld.“
(Matt 11.28)
✝ Marý KristínCoiner fæddist
í Reykjavík 5. júlí
1943. Hún lést á
Hraunbúðum, dval-
arheimili aldraðra,
í Vestmannaeyjum
4. júní 2019.
Foreldrar henn-
ar voru Stein-
gerður Jóhanns-
dóttir, f. 27.7.
1919, d. 21.10.
2005, og Earl Gilliam Coiner, f.
25.2. 1922, d. 11.5. 1976.
Systkini Marý samfeðra eru
Emily Abilene Coiner Simmons,
f. 16.7. 1949, Debra Erle Coiner
(Moore), f. 6.8. 1951, Brenda
Darnell Coiner, f. 8.4. 1953, d.
18.3. 1995, Earl Gilliam Coiner,
Jr., f. 26.9. 1955, Yvonne Maree
Coiner, f. 26.4. 1957, d. 22.9.
2016.
Uppeldissystkini Marý eru
Sandra Kolbrún Ísleifsdóttir, f.
31.8. 1937, og Friðþjófur Örn
Engilbertsson, f. 23.8. 1946.
Þann 25.12. 1963 giftist
Marý Stein Ingólf Henriksen f.
2002, og c) Berta, f. 3.2. 2006.
3) Óðinn, f. 25.10 1973, kvænt-
ur Steinunni Jónatansdóttur, f.
20.9. 1973. Synir þeirra eru a)
Rúnar Kristinn, f. 27.8. 1996, b)
Brynjar Ingi, f. 19.11. 1999, og
c) Jónatan Árni, f. 20.3. 2005.
Marý lauk grunnskólaprófi
frá Gagnfræðaskólanum í
Vestmannaeyjum. Hún byrjaði
ung að vinna í Hraðfrystistöð-
inni í Eyjum og eftir að hafa
unnið við fiskvinnslu í nokkur
ár langaði hana að prófa eitt-
hvað nýtt og fór til Akureyrar
þar sem hún starfaði m.a. á
Hótel KEA og í Hressingarskál-
anum. Á Akureyri kynnist hún
Bróa sínum og eftir að til Eyja
er komið hófu þau búskap í
húsinu London. Marý hóf aftur
störf við fiskvinnslu, vann
lengst af í Fiskiðjunni og síðar
í Eyjabergi. Eftir farsæl störf í
fiskiðnaði í tugi ára langaði
Marý enn að breyta til og hóf
störf sem gangavörður í Ham-
arsskólanum í Vestmanna-
eyjum, þaðan sem hún lauk
sinni starfsævi. Sökum veikinda
dvaldi Marý síðustu ár ævi
sinnar á Hraunbúðum, dvalar-
heimili aldraðra.
Útför Marý fer fram frá
Landakirkju í Vestmannaeyjum
í dag, 29. júní 2019, klukkan
14.
10.1. 1942. For-
eldrar hans voru
Henry Stefán Hen-
riksen, f. 31.7.
1917, d. 19.5. 1982
og Árdís Guðlaugs-
dóttir Henriksen, f.
19.3. 1917, d.
27.10. 1985.
Synir Marý og
Bróa, eins og Stein
er alltaf kallaður,
eru: 1) Ágúst Vil-
helm, f. 1.10. 1962, kvæntur
Örnu Ágústsdóttur, f. 23.1.
1964. Börn Ágústs af fyrra
hjónabandi eru a) Sigríður Ár-
dís, f. 7.9. 1983, hún á einn son,
b) Jón Kristinn, f. 6.7. 1985,
hann á einn son, og c) Tryggvi
Stein, f. 30.10. 1989, hann á tvö
börn. Börn Örnu af fyrra
hjónabandi eru a) Emma, f.
31.8. 1989, hún á fjögur börn,
og b) Logi, f. 17.7. 1992, hann á
eina dóttur. 2) Engilbert Ómar,
f. 3.12. 1965, kvæntur Arndísi
Maríu Kjartansdóttur, f. 3.7.
1971. Börn þeirra eru a) Breki,
f. 10.8. 1998, b) Bríet, f. 19.3.
Jæja ástin mín, okkur var víst
ekki ætlaður lengri tími saman.
Það var mér mikið lán að hafa
hitt þig fyrir um 60 árum og átt
þig sem lífsförunaut. Þú hafðir
sterka trú á lífinu en vissir að það
gæti verið viðkvæmt og erfitt á
stundum, en þú sagðir að það væri
bara til að vinna á. Það sést á því
að við ræddum alltaf okkar mál til
hlítar ef eitthvað bjátaði á og þitt
mottó var að fara alltaf sátt að
sofa.
Þessi þrautaganga þín sem stóð
alltof lengi er loks á enda. Það að
geta ekki lengur komið til þín á
hverjum degi upp á Hraunbúðir
og verið hjá þér er sárt. Þessi
óvægi sjúkdómur Alzheimer bar
þig ofurliði. Þó ég eigi enn erfitt
með að viðurkenna það þá hefur
hvíldin örugglega verið þér kær-
komin. Það verða margir sem
munu sakna þín, Marý mín, en nú
ertu komin í sumarlandið þar sem
foreldrar okkar og aðrir ættingjar
hafa tekið á móti þér með ást og
umhyggju, vil ég trúa.
Þú varst einstök eiginkona,
móðir, tengdamóðir, amma,
langamma og vinur vina þinna.
Elsku Marý mín, þakkir fyrir
allt og allt. Þú munt lifa áfram í
hjarta mínu.
Ég sendi þér kæra kveðju,
nú komin er lífsins nótt,
þig umvefji blessun og bænir,
ég bið að þú sofir rótt.
Þó svíði sorg mitt hjarta
þá sælt er að vita af því,
þú laus ert úr veikinda viðjum,
þín veröld er björt á ný.
Ég þakka þau ár sem ég átti,
þá auðnu að hafa þig hér,
og það er svo margs að minnast,
svo margt sem um hug minn fer,
þó þú sért horfinn úr heimi,
ég hitti þig ekki um hríð,
þín minning er ljós sem lifir
og lýsir um ókomna tíð.
(Þórunn Sigurðardóttir)
Stein I. Henriksen (Brói).
Mamma, elsku mamma,
man ég augun þín.
Í þeim las ég alla,
elskuna til mín.
Mamma, elsku mamma,
man ég þína hönd.
Bar hún mig og benti,
björt á dýrðarlönd.
Mamma, elsku mamma,
man ég brosið þitt.
Gengu hlýir geislar,
gegnum hjarta mitt.
Mamma, elsku mamma,
mér í huga skín.
Bjarmi þinna bæna,
blessuð versin þín.
Mamma, elsku mamma,
man ég lengst og best.
Hjartað blíða, heita,
hjarta er ég sakna mest.
(Sumarliði Halldórsson.)
Þinn
Ómar.
Stundum kemur fólk inn í líf
manns sem er betra en maður
sjálfur. Fólk sem vill öllum vel,
forðast alla árekstra og bætir líf
allra í kringum sig. Það var árið
1996 sem gæfan ákvað að gefa
mér tengdamóður sem alla tíð um-
vafði mig englum, ást og um-
hyggju. Aldrei féll skuggi á það
ferðalag sem við áttum saman, en
það er án efa Marý að þakka að
mestu leyti. Hún tengdamamma
mín sagði alltaf að lífið væri of
stutt fyrir leiðindi. Marý reyndi
aldrei að verða mamma mín, né
stjórna því hvernig ég var, heimili
mitt eða uppeldið á börnunum
mínum og fyrir það er ég óend-
anlega þakklát. Hún var einhvern-
veginn alltaf til staðar, tilbúin að
aðstoða ef á þyrfti að halda og allt-
af var hún yndisleg heim að sækja.
Við áttum fjölmargar stundir
saman bara við tvær og krakkarn-
ir, þar sem eiginmenn okkar voru
oft langdvölum á sjó. Við gerðum
ótrúlega margt skemmtilegt sam-
an og á ég endalaust margar
minningar sem innihalda samveru
með Marý. Hún var ofboðslega
mikil fjölskyldumanneskja og við
deildum áhuga okkar á matreiðslu
og bakstri alla tíð. Einna vænst
þótti mér um það þegar við fórum
loksins saman á tónleika með Tom
Jones, ég veit hvað henni þótti það
magnað. Sömuleiðis var hún börn-
um mínum yndisleg amma, alltaf
góð, alltaf blíð og átti ávallt fullt
hús matar sem hún útbjó eftir
óskum hvers og eins. Hjarta
hennar var alltaf barmafullt af ást
til okkar allra. Börnin mín þrjú
þakka fyrir að hafa átt ömmu sem
var svo yndisleg alla daga og það
sem þau muna mest og best eftir,
er hversu óspör hún var á að gefa
þeim af tíma sínum. Tímarnir
voru fylltir af skemmtilegum hlut-
um sem þau gerðu saman, perl-
uðu, spiluðu, lásu, bökuðu, léku
eða fóru í berjamó. Dagurinn í dag
verður dagurinn sem við minn-
umst hennar fyrir það sem hún
var okkur í lífinu, ekki það sem
sjúkdómurinn tók frá okkur og
henni. Það var óendanlega sárt að
sjá þessa góðu og yndislegu konu
sem elskaði ekkert heitar en fjöl-
skylduna sína, vera að fjarlægjast
okkur í anda. En nú veit ég að sól-
in vermir vanga þína, þú ert komin
á betri stað og vona ég af öllu
hjarta að þú sért umvafin englum
líkt og þú gerðir við allt þitt fólk
alla þína tíð.
Líkt og vefur sem okkar samvera spann.
Börnum og fjölskyldu hún hugástum ann.
Horfin á braut, okkur farin að gleyma.
En á meðal oss varst enn, vildum við
meina.
Áttum við þó saman hin ljúfustu ár,
þó sjúkdómur þinn myndaði í hjarta okkar
sár.
Fjölskyldan og vinirnir voru þér alltaf allt.
Umhyggja, tími og ástúð er aldrei falt.
Elsku yndislega kona, móðir og meyja,
þetta var tími sem þér var ætlað að deyja.
Við munum þín minnast fyrir hjarta fullt
af hlýju,
þar til við kveðjum þetta líf og hittumst
að nýju.
(AMK)
Með saknaðarkveðju.
Þín tengdadóttir,
Arndís.
Elsku amma Marý, nú sit ég
hér og skrifa þessi orð og trúi því
ekki að þú sért búin að kveðja í síð-
asta skipti. Það er svo erfitt að lýsa
því hversu mikils virði þú varst
mér og öllum þeim sem þér þótti
vænt um.
Það var alltaf svo gott og gaman
að koma í Dverghamarinn og svo
Hrauntúnið til ykkar afa Bróa,
alltaf var tími fyrir mann og ekki
vantaði kökurnar og aðrar kræs-
ingar hjá þér. Maður var alltaf vel-
kominn og man ég vel þegar ég
átti heima hjá ykkur um tíma í
Dverghamrinum hvað það var gott
að vera hjá ykkur. Svo fannst þér
ekki leiðinlegt þegar við komum
með Sigurð Hjálmar og Sædísi
Lilju í heimsókn, varstu alltaf jafn
glöð að fá yndislegu langömmu-
börnin þín og eru þessar stundir
ásamt mörgum fleiri svo dýrmæt-
ar nú.
Það var alltaf svo stutt í hlát-
urinn og gleðina hjá þér, kem ég til
með að muna eftir þér og afa dans-
andi, brosandi út að eyrum og
hlæjandi.
Þín verður sárt saknað, elsku
amma Marý mín
Þinn
Tryggvi Stein og
fjölskylda.
Amma kær, ert horfin okkur hér,
en hlýjar bjartar minningar streyma
um hjörtu þau er heitast unnu þér,
og hafa mest að þakka, muna og geyma.
Þú varst amma yndisleg og góð,
og allt hið besta gafst þú hverju sinni,
þinn trausti faðmur okkur opinn stóð,
og ungar sálir vafðir elsku þinni.
Marý Kristín
Coiner