Morgunblaðið - 29.06.2019, Blaðsíða 23
FRÉTTIR 23Erlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 29. JÚNÍ 2019
Lyfjalaus meðferð án þekktra aukaverkana.
Bionette er hentugt tæki sem notar ljóstækni til að draga úr einkennum ofnæmis-
kvefs s.s. hnerra, kláða, höfuðverk, nefrennsli, nefstíflu og tárvotum augum.
Bionette hentar vel gegn frjókornum úr trjám, grasi, illgresi og blómum. Myglu,
gróum frá plöntum, ryki, rykmaurum, dýrum og öðrum loftbornum ofnæmisvökum.
HEILSAÐUVORINU
lgueyðandi ljósameðferð gegn einkennum ofnæmiskvefs
Fæst í apótekum
Sölustaði má finna á facebook.com/bionetteisland
Reykjavíkurvegur 62 | Sími 527 0640 | 220 Hafnarfjörður | www.wh.is
óB
Ljósinu er stungið upp í nasirnar, kveikt á því
og haft þangað til það slokknar (um 4 mín.).
Má nota tvisvar til þrisvar á dag við upphaf einkenna.
Síðan eftir þörfum þegar einkenni hafa lagast.
Eftirstöðvar Morandi-brúarinnar í
Genúa á Ítalíu sem hrundi í ágúst í
fyrra voru í gærmorgun sprengdar
í loft upp. Alls létust 43 þegar brúin
hrundi í fyrra með þeim afleið-
ingum að 35 fólksbílar og fjöldi
sendibíla steyptist um 45 metra nið-
ur í gilið. Málið vakti athygli á lé-
legu vegakerfi og skorti á viðhaldi
á innviðum.
Niðurrif þess sem eftir stóð hófst
í febrúar sl. Eftir stóðu tveir turnar
sem voru hluti af burðarvirki brú-
arinnar og var það sprengt upp í
gær líkt og áður segir. Stendur nú
til að koma fyrir nýju samgöngu-
mannvirki á staðnum.
Næstum 4.000 íbúar í nágrenni
brúarrústanna þurftu að yfirgefa
heimili sín áður en sprengt var en
að sögn fréttaveitu AFP fylgdust
þeir Matteo Salvini varaforsæt-
isráðherra og Luigi Di Maio iðn-
aðarráðherra með aðgerðum.
ÍTALÍA
AFP
Sprenging Morandi-brúin í Genúa
þegar hún var endanlega felld í gær.
Restin af brúnni
sprengd í loft upp
Teitur Gissurarson
teitur@mbl.is
Hitamet var slegið í Frakklandi í gær
þegar hæsti hiti frá upphafi mælinga
var mældur í bænum Gallargues-le-
Montueux í suðurhluta landsins. Fór
þá hitamælirinn upp í 45,9 gráður, en
hitamet voru slegin nokkrum sinnum
yfir daginn í gær, fyrst með 44,3
gráðu hita í Carpentras í suðaustur-
hluta landsins og svo með 45,1 gráðu
hita í Villevieille, nálægt Montpellier.
Fram til dagsins í gær hafði hæsti
hiti í Frakklandi verið mældur í hita-
bylgjunni árið 2003 þegar hann
mældist 44,1 gráða.
Hitabylgjan sem nú ríður yfir
meginland Evrópu hefur nú þegar
kostað nokkra lífið, þeirra á meðal
eru tveir sem létust á Spáni og var
annar þeirra 17 ára vinnumaður á
sveitabæ í Andalúsíu. Sá fann fyrir
svima við hveitiuppskeruvinnu og
stakk sér því til sunds til að kæla sig.
Hann féll stuttu eftir komuna upp úr
lauginni í krampakast og var ekið á
spítala í borginni Cordoba hvar hann
lést.
„Maður fer ekkert út“
Í samtali við Morgunblaðið í gær
sagðist Eva Morgan, hálfíslenskur
og hálffranskur íbúi í Montpellier í
Suður-Frakklandi, að búið væri að
lýsa yfir hæsta viðbúnaðarstigi (f. vi-
gilance rouge) og að hún ætlaði að
bíða hitann af sér inni. „Ég sit hérna
bara með viftuna beint fyrir framan
mig. Maður fer bara ekkert út. Það
er verið að segja fólki að vera annað
hvort heima hjá sér eða á stöðum þar
sem loftkæling eða viftur eru til stað-
ar. Og ekki að fara á ströndina fyrir
fjögur í eftirmiðdaginn.“
Spurð hvort vinnustöðum hafi ver-
ið lokað, líkt og sumum skólum á
svæðinu, sagðist Eva ekki vita til
þess en sagðist halda að veitingastað-
ir yrðu opnir, enda mikið af ferða-
mönnum á svæðinu. Á fimmtudag
átti Eva afmæli og bauð vinum sínum
af því tilefni á ströndina enda svalara
þar. „En í dag verður maður bara að
halda sig inni. Það er orðið allt of
heitt.“
Aðspurð sagðist hún ekki hafa
heyrt fréttir af fólki sem hafi verið í
hættu vegna ofhitnunar en sagði að
hugur margra væri hjá eldri borg-
urum því sá hópur eru í mestri hættu.
Aldrei heitara í Frakklandi
Hiti fór upp í 45,9 stig Viðmælandi í Suður-Frakklandi sat við viftuna
og beið af sér hitann Hæsta viðbúnaðarstig Sautján ára drengur lést á Spáni
AFP
Við Eiffelturninn Parísarbúar kæla sig í hinum fræga Trocadero-gosbrunni við þekktasta kennileiti landsins.
Leiðtogar stærstu og voldugustu
ríkja heims komu saman í Osaka í
gær þegar leiðtogafundur G20
ríkjanna var settur.
Gestgjafinn Shinzo Abe, forsætis-
ráðherra Japans, lagði áherslu á
samstöðu milli leiðtoganna, en eins
og Morgunblaðið greindi frá í vik-
unni er búist við að fundurinn verði
að miklu leyti litaður af tollastríði
Bandaríkjanna og Kína. „Með ykkar
hjálp vona ég að við munum koma á
fallegum samhljómi í Osaka. Frekar
en að einblína á ágreining okkar
skulum við leita að því sem sameinar
okkur,“ sagði Abe í ávarpi.
Donald Trump Bandaríkjaforseti
virðist hafa tekið þessi orð Osaka til
sín því það kvað við nokkuð óvæntan
sáttatón í máli hans við upphaf fund-
arins. Trump, sem nýverið gagn-
rýndi Þjóðverja harðlega fyrir að
greiða ekki nóg til Atlantshafs-
bandalagsins, jós Angelu Merkel
Þýskalandskanslara lofi og sagði:
„Hún er stórkostleg manneskja,
stórkostleg kona. Og ég er ánægður
með að vera vinur hennar.“
Mega ekki ógna stöðugleika
Eins og við var að búast voru ýmis
mál rædd meðal leiðtoganna í gær
og var Theresa May, fráfarandi for-
sætisráðherra Bretlands, nokkuð
harðorð í garð Vladimírs Pútíns
Rússlandsforseta. Var þetta í fyrsta
skipti sem leiðtogarnir tveir hittust
eftir að eitrað var fyrir fyrrverandi
njósnaranum Sergei Skrípal í Sal-
isbury á Englandi í fyrra. „Hún
sagði forsetanum [Pútín] að sam-
band ríkjanna gæti ekki komist í
fyrra horf fyrr en Rússland hætti
aðgerðum sem væru óábyrgar og
tefldu stöðugleika í hættu og ógnuðu
Bretlandi og bandamönnum þeirra.
Þar nefndi hún fjandsamleg afskipti
í öðrum ríkjum, upplýsingafölsun og
tölvuárásir,“ sagði talsmaður May.
Þá er hún einnig sögð hafa sagt hon-
um að Bretar hefðu óhrekjanlegar
sannanir fyrir því að Rússar hefðu
staðið á bak við árásina á Skrípal.
Sagði talsmaður Pútíns að Pútín
og May hefðu m.a. rætt Skrípal-
málið og að hún hefði fengið nauð-
synleg svör frá rússneska forset-
anum.
Fleiri ósammála Pútín
Donald Tusk, forseti leiðtogaráðs
Evrópusambandsins, var líkt og
May harðorður í garð Pútíns og
sagðist vera „staðfastlega ósam-
mála“ Pútín um að frjálshyggja væri
„úrelt“ eins og Pútín sagði í blaða-
viðtali nýverið þegar hann ræddi
flóttamannastefnu Merkel kanslara.
Gagnrýndi hann þar að Merkel hefði
leyft meira en einni milljón flótta-
manna inn í Þýskaland og lofaði Do-
nald Trump fyrir tilraunir hans til að
stöðva flæði innflytjenda við landa-
mæri Bandaríkjanna að Mexíkó.
„Hver sem heldur því fram að frjáls-
lynt lýðræði sé úrelt heldur því sam-
hliða fram að frelsi sé úrelt, að lög og
regla séu úrelt og að mannréttindi
séu úrelt,“ sagði Tusk. teitur@mbl.is
Leiðtogarnir tókust á í Osaka
Bandaríkja-
forseti jós Angelu
Merkel lofi
AFP
Leiðtogarnir Í fremstu röð má meðal annars sjá Jair Bolsonaro Brasilíuforseta, Emmanuel Macron Frakklands-
forseta, Recep Tayyip Erdogan Tyrklandsforseta, Donald Trump Bandaríkjaforseta, Shinzo Abe forsætisráðherra
Japans, Vladimír Pútín Rússlandsforseta, Xi Jingping Kínaforseta og Angelu Merkel Þýskalandskanslara.