Morgunblaðið - 29.06.2019, Side 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 29. JÚNÍ 2019
Hefur þú prófað nýju
kjúklingasteikurnar?
NÝTT OG
SPENNANDI
FRÁ HOLT
A
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is
Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Fyrsta skipið í raðsmíðaverkefni ís-
lenskra útgerða er væntanlegt til
landsins um 10. júlí. Það er Vest-
mannaey sem útgerðarfélagið Berg-
ur-Huginn í Eyjum, dótturfélag
Síldarvinnslunnar í Neskaupstað,
kaupir. Heimahöfn þess er í Vest-
mannaeyjum eins og nafnið bendir
til.
Vestmannaey fór í reynslusiglingu
í fyrradag frá bænum Aukra í Nor-
egi þar sem VARD er með skipa-
smíðastöð og gekk hún vel, að sögn
Gunnþórs Ingvasonar, fram-
kvæmdastjóra Síldarvinnslunnar.
Skipið 29 metrar að lengd og 12
metrar á breidd og getur borið um
80 tonn af ísuðum fiski. „Mér líst vel
á skipið. Við fáum öflugra skip, betri
aðbúnað og meðhöndlun aflans verð-
ur betri,“ segir Gunnþór.
Fjögur útgerðarfélög sömdu við
VARD um smíði sjö skipa en það eru
auk Síldarvinnslunnar Gjögur á
Grenivík, Skinney-Þinganes á
Hornafirði og Samherji á Akureyri.
Bergey, hitt skip Síldarvinnslunn-
ar, og Vörður sem er fyrra skip
Gjögurs eru væntanleg í september
og síðan koma skipin eitt af öðru.
Nokkur skipanna voru smíðuð að
hluta í Víetnam. helgi@mbl.is
Vestmannaey kemur fyrst
Fyrsta skipið af sjö í raðsmíðaverkefni íslenskra útgerða væntanlegt til landsins
um 10. júlí Vestmannaey, skip Bergs-Hugins, er fyrst í röðinni
Fiskiskip Vestmannaey VE-54 reyndist vel í reynslusiglingunni við bæinn Aukra í Noregi.
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
Félagar úr Slysavarnafélaginu
Landsbjörg stóðu vaktina í gær á um
60 viðkomustöðum ferðamanna víða
um land og ræddu þar við fólk sem
var á leiðinni í frí um ábyrgan akstur.
Einnig var afhent fræðsluefni um
örugga ferðahegðun. Hópar björg-
unarsveitafólks sem sinna Hálend-
isvaktinni lögðu svo upp frá Olís í
Norðlingaholti í Reykjavík síðdegis í
gær. Í sumar verður vakt að Fjalla-
baki, í Nýjadal á Sprengisandi og
Drekagili í Öskju. Auk þess verður
mannskapur í Skaftafelli í Öræfum.
Safetravel ráðið miklu
„Ferðahegðun fólks hefur tekið
framförum á undanförnum árum og
almennt erum við líka betri og örugg-
ari bílstjórar en var. Sérstaklega tel
ég að ungt fólk sé ábyrgara í umferð-
inni en var fyrir ekki svo mörgum ár-
um. Þá sýnir tölfræðin okkur að þó
erlendum ferðamönnum sem koma til
Íslands hafi fjölgað mikið þá fækkar
slysum og óhöppum. Það á jafnt við
um þá sem ferðast á bíl, reiðhjóli,
ganga eða hvað skal nefna,“ segir Þór
Þorsteinsson, formaður Slysavarna-
félagsins Landsbjargar.
Árið um kring rekur Slysavarna-
félagið Landsbjörg verkefnið Sa-
fetravel í samstarfi við fólk og fyrir-
tæki í ferðaþjónustu. Kjarninn í því
verkefni er vefurinn safetravel.is
hvar miðlað er fróðleik og upplýs-
ingum til ferðamanna um öruggan
ferðamáta, færar leiðir, veðurspár og
annað. Þar geta ferðamenn einnig
skilið eftir rafrænar ferðaáætlanir
sem hafa komið að góðu gagni þegar
fólk lendir í ógöngum. „Ég trúi að Sa-
fetravel hafi ráðið talsverðu um þann
góða árangur í slysavörnum sem
náðst hefur,“ segir Þór.
Hálendisvakt í 14. sinn
Líðandi sumar verður það 14. sem
Slysavarnafélagið Landsbjörg heldur
úti Hálendisvaktinni, sem stendur til
ágústloka og venjulega hefur verið
haldið af stað í júlíbyrjun. Vegna góðs
tíðarfars sem réði því að hálend-
isvegir voru opnaðir fyrr en vanalega
hefur verið vakt að Fjallabaki frá 14.
júní. Alls sinna um 200 manns vakt
þessari og sinna rúmlega 2.000 út-
köllum og verkefnum. Sum eru
björgun, leit og aðstoð – en einnig er
fólki vísað til vegar og upplýsingar
veittar.
Morgunblaðið/Hari
Slysavarnir Öryggi á ferðalögum var kynnt ferðafólki af björgunarsveitarmönnum sem fara á hálendið.
Björgunarsveitirnar brýna ferðalanga Hálendisvaktin
fór snemma af stað Betri bílstjórar og slysum að fækka
Formaður Góður árangur í slysa-
vörnum, segir Þór Þorsteinsson.
Ferðahegðun er í framför
Tveir voru fluttir með þyrlu Land-
helgisgæslu Íslands á Landspítalann
í Fossvogi og einn með sjúkrabíl til
Reykjavíkur eftir alvarlegt umferð-
arslys sem varð á Suðurlandsvegi
austan megin við Eystri-Rangá um
kl. fimm í gærdag.
Tveir fólksbílar sem komu úr
gagnstæðri átt skullu saman. Að
sögn Sveins Kristjáns Rúnarssonar,
yfirlögregluþjóns hjá lögreglunni á
Suðurlandi, eru farþegarnir þrír er-
lendir ferðamenn. Ekki var í gær
unnt að veita nánari upplýsingar um
líðan þeirra.
Lögregla þurfti að loka veginum,
þar sem slysið átti sér stað, um
stund vegna vettvangsvinnu og var
umferð á meðan beint um hjáleið.
Miklar tafir mynduðust vegna þessa.
Þrír fluttir
á sjúkrahús
Alvarlegt slys varð
á Suðurlandsvegi
Slys Vettvangur umferðarslyss á
Suðurlandsvegi í gærdag.
Hæstiréttur Íslands hefur ómerkt úr-
skurð Landsréttar þar sem kröfum
ALC um að fá afhenta farþegaþotu
sem félagið á, en WOW air hafði til
umráða, var hafnað. Hæstiréttur
komst að því að í verulegum atriðum
hefði verið vikið frá réttri meðferð
málsins og var málinu vísað á ný til
Landsréttar til löglegrar meðferðar.
Oddur Ástráðsson, lögmaður ALC,
sagði í samtali við mbl.is í gær að
Hæstiréttur hefði tekið undir sjónar-
mið ALC í málinu og yrði Isavia undir
í deilunni gæti það leitt til þess að
ALC krefði Isavia um skaðabætur
sem næmu meiru en því sem Isavia
hefur fengið út úr kyrrsetningunni til
þessa. Isavia segir aftur á móti að úr-
skurður Hæstaréttar hafi staðfest
heimild Isavia til þess að kyrrsetja
flugvél ALC fyrir skuldum WOW air
Deilur hafa staðið yfir milli ALC og
Isavia frá því að flugfélagið WOW air
varð gjaldþrota 28. mars sl.
Isavia taldi sig hafa heimild til þess
að taka veð í farþegaþotu í eigu ALC
fyrir tveggja milljarða skuld WOW
air sem hafði þotuna á leigu. ALC
taldi að Isavia hefði einungis heimild
til þess að krefjast 87 milljóna króna
greiðslu vegna skuldar fyrir farþega-
þotuna TF-GPA en ekki skulda
WOW air vegna annarra véla.
Héraðsdómur Reykjaness komst
að þeirri niðurstöðu í maí að Isavia
hefði einungis verið heimilt að krefja
ALC um greiðslu skulda vegna TF-
GPA að upphæð 87 milljónir króna.
ALC greiddi skuldina í kjölfar úr-
skurðar héraðsdóms. Isavia kærði
þann úrskurð til Landsréttar sem eft-
ir úrskurð Hæstaréttar Íslands hefur
fengið máið aftur í hendur.
ge@mbl.is
Deilur Isavia og
ALC halda áfram
Hæstiréttur ómerkti dóm Landsréttar