Morgunblaðið - 29.06.2019, Qupperneq 6
6 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 29. JÚNÍ 2019
sp
ör
eh
f.
Haust 10
Tíról í Austurríki er heill ævintýraheimur út af fyrir
sig. Fegurð Alpafjallanna umlykur okkur þar sem
við dveljum í fjallabænum Seefeld þaðan sem farið
verður í skemmtilegar skoðunarferðir, m.a. í Swarovski
kristalverksmiðjuna og til vínbónda í Isarco dalnum. Einnig
verður komið til Garmisch-Partenkirchen og farið með kláfi
upp á hæsta fjall Þýskalands, Zugspitze.
24. - 29. september
Fararstjórn: Inga Ragnarsdóttir
Bókaðu núna á baendaferdir.is
Sími 570 2790 | bokun@baendaferdir.is | Síðumúla 2, 108 Reykjavík
Verð: 169.900 kr. á mann í tvíbýli.
Mjög mikið innifalið!
Tindrandi Tíról
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
„Mér finnst ég vera svo mikill nýliði
að ég veit ekki hvort ég má kalla mig
sjómann eða sjókonu. En trillukarl,
ég hef ekkert á móti því,“ segir Katr-
ín Ragnarsdóttir, skipstjóri á strand-
veiðbátnum Vestfirðingi, sem hún
rær frá Patreksfirði. Það orð fer af
henni að hún sé hörkusjómaður.
„Þetta hefur gengið ágætlega, mið-
að við að ég er byrjandi. Maður
myndi helst vilja ná hámarks-
skammtinum alla daga, en það er
ekki svo gott,“ segir Katrín.
Úr flugstöðinni á sjóinn
Hún fór ung á sjó með föður sínum,
fram undir tvítugt, meðal annars á
snurvoðarbát og náði sér í skipstjórn-
arréttindi, svokallað pungapróf, sem
kemur sér vel nú. „Ég ætlaði að vera
með pabba í þessu í sumar, hjálpa til
og leika mér en það þróaðist út í það
að ég fór ein á strandveiðar þar sem
ég hafði réttindin. Pabbi og allir í
kringum mig hjálpa mér í gegnum
þetta. Þetta er dálítið stressandi þeg-
ar maður er að læra og vill gera allt
rétt,“ segir Katrín.
Hún hefur unnið við að afgreiða og
þjóna flugfarþegum í flugstöðinni á
Reykjavíkurflugvelli en sagði upp
starfinu og hellti sér út í sjómennsk-
una. Hún gerði út strandveiðibátinn
Evu í maí og Vestfirðing í júní og
verður með hann áfram. Katrín við-
urkennir að starfið sé erfitt. Vinnu-
dagarnir eru langir og vinnan erfið.
Ekki er alltaf bongóblíða, heldur
stundum kuldi og haugabræla. Ann-
ars segir hún að þetta sé eins og
hvert annað starf.
„Þetta er virkilega gaman og mikil
reynsla fyrir mig og ég mun klára
sumarið í þessu. Svo kemur í ljós
hvað maður gerir í haust og í fram-
haldinu. Það er aldrei að vita nema
maður fari aftur á strandveiðar
næsta sumar,“ segir hún.
Hef ekkert á móti því
að vera kölluð trillukarl
Morgunblaðið/Eggert
Við sjóinn Katrín Ragnarsdóttir er skipstjóri á smábáti sem gerður er út
frá Patreksfirði og þykir standa sig vel. Hún segir að margt þurfi að læra.
Katrín Ragn-
arsdóttir sækir
sjóinn á smábáti
Uppsetning stærsta gámakrana
landsins á hinum nýja Sundabakka í
Sundahöfn hefur gengið að óskum
og er kraninn óðum að taka á sig
mynd. Stefnt er að því að hann
verði tilbúinn í ágúst.
Kraninn á að þjónusta hin nýju
og stóru skip sem verið er að smíða
fyrir Eimskip í Kína. Hann er
gríðarstór, mun ná 90 metra hæð
og þyngdin er 800 tonn.
Gámakraninn var framleiddur í
verksmiðju Liebherr í Killarney á
Írlandi og kom hann hingað ósam-
settur 1. maí sl. Hann mun ganga á
sporteinum sem verða alls 370
metra langir. Írskir sérfræðingar
frá framleiðandanum hafa yfirum-
sjón með samsetningunni en starfs-
menn belgíska fyrirtækisins Sarens
vinna verkið. Um það bil 15 manns
koma að þessu verki.
Ljósmynd/Einar Guðmundsson
Vel gengur að setja nýja
gámakranann saman
Jón Birgir Eiríksson
jbe@mbl.is
Einstakar björgunarsveitir víða um
landið yrðu fyrir talsverðu tekjutapi,
yrðu flugeldasýningar um landið
lagðar af. Fram kom í Morgun-
blaðinu í gær að til umræðu væri hjá
Reykjavíkurborg að flugeldasýn-
ingin á Menningarnótt 2019 gæti
orðið sú síðasta. Sú hugmynd er til-
komin vegna umræðu um umhverf-
ismál og áhrif flugelda á heilsufar
fólks vegna áhrifa á loftgæði.
Jón Ingi Sigvaldason hjá Lands-
björg segir að björgunarsveitir á við-
komandi stöðum um landið sjái um
flugeldasýningarnar, en Landsbjörg
útvegi þeim flugelda og flytji þá inn.
„Ég held það sé ekki haldin sýning í
landinu nema sveitirnar okkar komi
nálægt því,“ segir Jón Ingi, en flug-
eldasýningar eru meðal helstu tekju-
linda sveitanna. „Það er liður í fjár-
öflun sveitanna að skjóta upp
þessum sýningum og það yrði tekju-
tap hjá þeim sveitum,“ segir hann.
Sýningar á sínum stað í ár
Umræða um heilsufarsafleiðingar
flugelda hefur sprottið upp í kring-
um undanfarin áramót. Starfshópur
á vegum umhverfisráðherra sem
skila átti tillögum fyrir 15. febrúar
sl., um hvort og með hvaða hætti
takmarka ætti notkun flugelda, hef-
ur ekki enn skilað niðurstöðum sín-
um. Aðspurður segir Jón Ingi að
Landsbjörg hafi ekki tekið afstöðu
um það hvort flugelda og flug-
eldasýningar eigi að leggja af. „Við
höfum samt bent á að flugeldasalan
okkar um áramótin heldur uppi
stórum hluta almannakerfisins og
heldur björgunarsveitum á lífi. Ef
þessi langstærsta fjáröflun okkar
dytti út, þá getur maður eiginlega
ekki hugsað þá hugsun til enda, hvað
yrði um sveitirnar,“ segir hann, en
Landsbjörg hefur að hans sögn ekki
fundið aðra leið sem er jafn vænleg
til vinnings.
Flugeldasýning Menningarnætur
er stærst hér á landi, en þar á eftir
koma Ljósanótt í Reykjanesbæ,
Þjóðhátíð í Eyjum og Fiskidagurinn
mikli á Dalvík. Þá hafa einnig verið
haldnar sýningar á bæjarhátíðum á
Akranesi, í Stykkishólmi, á Siglu-
firði, á Akureyri og í Neskaupstað,
svo dæmi séu tekin. Skipuleggj-
endur Þjóðhátíðar, Ljósanætur og
Fiskidagsins mikla sammælast um
það í samtölum við Morgunblaðið að
umræðan um umhverfisvernd og
flugelda sé þörf og að þessi mál verði
rædd í framhaldinu. Viðbúið er að
flugeldasýningar verði á sínum stað
á öllum þessum stöðum í ár að þeirra
sögn, en engin ákvörðun verið tekin
um flugeldasýningar framtíð-
arinnar.
Morgunblaðið/Ófeigur
Þjóðhátíð Flugeldasýningin á Þjóðhátíð í Eyjum er jafnan tilkomumikið sjónarspil. Hún verður á sínum stað í ár.
Myndi víða leiða til tekju-
taps fyrir björgunarsveitir
Kæmi sér illa ef engar flugeldasýningar yrðu haldnar